Morgunblaðið - 13.10.1992, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1992
Nýtt Evrópu-
bandalag í
uppsiglingu?
BRESKA dagblaðið The Times
skýrði frá því í gær að gerð
hefði verið leynileg skýrsla á
vegum framkvæmdastjómar
Evrópubandalagsins þar sem
reifuð væri sú hugmynd að
ríki, sem vilja aukin samruna,
fengju að draga sig úr banda-
laginu og stofna nýtt. Fréttin
var birt á sama tíma og hátt-
settir stjórnarerindrekar aðild-
arríkjanna stóðu í ströngu við
að undirbúa leiðtogafund Evr-
ópubandalagsins í Birming-
ham á föstudag. í hugmynd-
inni um nýtt bandalag felst að
þau ríki, sem eru andvíg aukn-
um samruna Evrópubanda-
lagsríkjanna, svo sem Dan-
mörk og Bretland, verði ein-
faldlega skilin eftir. Talsmaður
framkvæmdastjómarinnar í
Brussel vísaði þessari frétt al-
gjörlega á bug og sagði hana
„hugarburð".
Skip grænfrið-
unga stöðvað
RÚSSNESKA landhelgisgæsl-
an stöðvaði skip græn-
friðunga, Solo, í gær og fór
um borð. Áður hafði verið
skotið þremur viðvömnar-
skotum fyrir framan stefni
skipsins. Rússar segja að Solo
hafí farið inn í rússneska
landhelgi við eyjuna Novaja
Zemlja en grænfriðungar
segja að skipið hafí verið í
alþjóðlegri siglingaleið, 25 míl-
um frá landi. Tilgangur
siglingar Solo er að kanna
geislamengun í sjónum við
Novaja Zemlja. Grænfriðungar
segjast hafa sótt um leyfi til
rannsóknarferðarinnar en
ekkert svar hafi borist.
Aðalflugvöllur
í Gardermoen
NORSKA stórþingið
samþykkti í atkvæðagreiðslu í
síðustu viku að gera nýjan
aðalflugvöll fyrir Oslóborg og
lauk þar með 36 ára þrefi um
staðarval fyrir flugvöllinn.
Þingið samþykkti að stækka
flugvöllinn í Gardermoen, um
40 kílómetra fyrir norðan
borgina, þar sem nú er einkum
sinnt leiguflugi, og gera hann
að aðalflugvelli árið 1998.
Kostnaður er áætlaður um 18
milljarðar norskra króna (167
milljarðar ísl. kr.) og er þar
meðtalinn kostnaður við
lagningu nýrrar jámbrautar
milli miðborgar Óslóar og flug-
vallarins.
Genúa
Rólegt á degi
Kólumbusar
Genúa. Reuter.
LITIÐ var um að vera í Genúa á
Italíu, heimaborg Kristófers Kól-
umbusar, I gær, þegar þess var
minnst, að 500 ár voru liðin frá
komu hans til Ameríku. Eini form-
legi atburðurinn í borginni, þar
sem neyðarástandi var lýst yfir
vegna flóða i siðasta mánuði, var
afhjúpun minningarskjaldar á
heimili landkönnuðarins.
Öllu tilstandi var aflýst, meðal
annars tónleikum stórsöngvarans
Placido Domingo, í virðingarskyni
við þá sem áttu um sárt að binda
vegna flóðanna.
Á sunnudag gengu 20.000 friðar-
sinnar um miðborg Genúa til að
mótmæla hátíðahöldum vegna ferðar
Kólumbusar um allan heim. Þátttak-
endur voru víða að, þar á meðal indj-
ánar frá Suður-Ameríku.
Bandarískir aðdáendur Leifs
heppna Eiríkssonar gerðu sér glaðan
dag í sólinni á sunnudag og létu
ekki á sig fá, þó að þess væri minnst
um helgina, að 500 ár eru liðin, frá
því að Kólumbus kom til Ameríku.
Aðeins degi fyrir 500 ára afmælið
gengu um 150 manns í skrúðgöngu
um götur bæjarins Durham í Nýja
Englandi til þess að minna á þá stað-
hæfíngu, að víkingar hafí orðið fyrst-
ir Evrópumanna til að fínna Norður-
Ameríku.
Fórnarlambanna í Amsterdam minnst
Reuter
Minningarathöfn fór fram í Amsterdam á sunnudag um þá sem fórust er ísraelsk flutningaþota brotlenti
á fjölbýlishúsum í borginni fyrir viku. Um 9.000 manns voru viðstaddir athöfnina, sem var í stærsta sýn-
ingarhúsi borgarinnar, en þúsundir til viðbótar fylgdust með henni fyrir utan á stórum sjónvarpsskjá. Um
10.000 manns gengu síðan að slysstaðnum þar sem Ed van Thijn, borgarstjóri Amsterdam, lagði blómsveig
til minningar um fómarlömbin. Áætlað er að 75 hafí farist í slysinu. 51 lík hefur fundist í rústunum en talið
er að 24 hafí brunnið til ösku í eldhafinu. í fyrstu var óttast að 250 manns hefðu farist en margir þeirra,
sem saknað var, komu síðar fram. Myndin er af Júlíönu prinsessu, fyrrverandi drottningu Hollands, dóttur-
syni hennar Willem Alexander (fyrir miðju) og Ronald Venetiaan, forseta Súrinams (t.h.) við minningarat-
höfnina. Mörg fómarlambanna voru innflytjendur frá Súrinam.
Forsetakappræðumar í Bandaríkiunum
Perot vinmir fyrstu lotuna —
Clinton skrefí nær Hvíta húsinu
Boston. Frá Karli Blðndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞAÐ er mál manna að auðkýfingurinn Ross Perot frá Texas hafi haft
betur þegar forsetaframbjóðendurnir þrír leiddu saman hesta sína í
beinni sjónvarpsútsendingu í St. Louis á sunnudag. Bill Clinton, ríkis-
syóri Arkansas, þokaðist hins vegar skrefi nær í átt að því að inn-
sigla sigur sinn í forsetakosningunum, að þvi er talið er, á meðan
George Bush forseta tókst ekki að nýta þetta fyrsta tækifæri sitt af
þremur til þess að snúa kjósendum á sitt band.
Þetta var í fyrsta skipti frá því
Bandaríkjamenn sendu fyrst út
kappræður forsetaframbjóðenda í
sjónvarpi árið 1960 sem þrír fram-
bjóðendur hafa att kappi. Ein afleið-
ing þess var sú að Bush þurfti að
svara tveimur andstæðingum í stað-
inn fyrir einum. Einnig hafa menn
velt vöngum yfír því hvort Perot
myndi taka fylgi frá Bush eða Clint-
on. Samkvæmt skoðanakönnun, sem
sjónvarpsstöðin ABC lét gera þegar
eftir kappræðumar, tapar Bush. Þar
stóð Clinton nánast í stað með 46
prósenta fylgi og hafði aðeins glatað
einu prósenti. 14 prósent kváðust
styðja Perot, helmingi fleiri en áður.
31 prósent studdi Bush, fjórum pró-
sentum færri en fyrir sjónvarpsum-
ræðurnar.
í raun mæddi mest á Bush í kapp-
ræðunum. Hann þurfti að hrista upp
í kjósendum og skáka andstæðingum
sínum með beittum tilsvörum á með-
an Clinton þurfti aðeins að forðast
mismæli og halda sínu og Perot hafði
engu að tapa.
Bush hamraði á reynslu sinni, en
Clinton og Perot sögðu að breytinga
væri þörf. Bush kvaðst á undanföm-
um fjórum ámm hafa eflt lýðræði í
heiminum og nú væri komið að því
að taka til hendinni heima fyrir, sagði
hvað eftir annað að það væri sama
hvað demókratar segðu, það eina,
sem vekti fyrir þeim væri skattpíning
og óráðsía og notaði líka tækifærið
til að vega að dómgreind Clintons
með því að gagnrýna þátt hans í
mótmælum gegn Víetnamstríðinu
erlendis.
Þar fékk Clinton í hendurnar sitt
besta tækifæri til að koma lagi á
Bush. Hann sagði að Bush hefði jafn
rangt fyrir sér og kommúnistaveiðar-
inn Joe McCarty og rifjaði um leið
upp að faðir forsetans, Prescott
Bush, hefði þegar hann var öldunga-
rr
var algengasta svar viðskiptavina okkar, þegar við spurðum um ástæðu þess að þeir keyptu
vörur úr 3 SUISSES vörulistanum.
Vetrarlistinn frá 3 SUISSES hefur glæsilegar vörur fyrir alla, einnig þá sem ekki skilja frönskul
Honum fylgja nefnilega einfaldar íslenskar leiðbeiningar. Dugi þær ekki, er bara að reyna ágætu
símaþjónustuna okkar.
Hringdu strax í síma 91-642100 og pantaðu eintak.
Listinn fæst einnig í eftirtöldum bókaverslunum:
Kilju, Miðbæ v/Háaleitisbraut 58-60, Reykjavík.
Bókaskemmunni, Stekkjarholti 8-10, Akranesi.
Bókaverslun Grönfeldts, Egilsgötu 6, Borgarnesi.
Bókabúð Brynjars, Suöurgötu 1, Sauðárkróki.
Bókaversluninni Eddu, Hafnarstræti 100, Akureyri.
Bókaverzlun Þórarins Stefánssonar, Garðarsbraut 9, Húsavík.
Bókabúð Sigurbjörns Brynjólfssonar, Fellabæ, Egilsstöðum.
Versluninni Hvammi, Ránarslóð, Höfn.
Bókabúðinni Heiðarvegi 9, Vestmannaeyjum.
Bókabúð Keflavíkur, Sólvallagötu 2, Keflavík.
□ QQOESS
Kríunesi 7. Pósthólf 213,212 Garðabæ
Ross Perot
deildarþingmaður verið einn fárra,
sem höfðu dug til að standa upp í
hárinu á McCarty.
Perot lagðist á sveif með Clinton
í þessu máli. Hægt væri að horfa
framhjá gerðum manna á yngri
árum, en kalla yrði menn til ábyrgð-
ar fyrir ákvarðanir í háum embætt-
um. í orðum Perots lá ásökun um
að Bush hefði ekki komið heiðarlega
fram í íran-kontra-málinu, en forset-
inn og liðsmenn hans hafa ítrekað
sagt að ekki sé hægt að treysta Clint-
on vegna þess að hann hafi ekki
sagt sannleikann um hvemig hann
komst undan herþjónustu í Víetnam.
Bush reyndi einnig að láta líta svo
út að Clinton og Perot drægju upp
full dökka mynd af efnahagsástand-
inu. Stjómmálaskýrendur sögðu að
í stað þess að sauma að andstæðing-
um sínum hefði hann litið út fyrir
að vera í öðrum heimi en almenning-
ur.
Baker til bjargar
Bush hafði eitt nýtt fram að færa.
Hann sagði að James Baker, starfs-
mannastjóri sinn og kosningastjóri í
raun, myndi hafa yfirumsjón með
efnahagsmálum næsta kjörtímabil.
Ekki er lengra síðan en í síðustu
viku að Bush sagði að Baker yrði
aftur utanríkisráðherra næði hann
endurkjöri. Fyrir utan það að hafa
fréttagildi, þjónaði þessi yfirlýsing
einnig þeim tilgangi að sýna að Bush
hyggst stokka upp í stjórn sinni.
I gær bárust frekari vísbendingar
um það úr kosningaherbúðum forset-
ans. Háttsettur embættismaður
sagði í skjóli nafnleyndar að Bush
hygðist skipta um alla þá, sem stjórn-
að hafa efnhagsmálum. Samkvæmt
því yrði Nicholas Brady fjármálaráð-
herra Richard Darman fjárlagastjóra
og Michael Boskin, formanni efna-
hagsráðgjafamefndar forsetans, vik-
ið úr starfí.
Baker hefur haldið sig fjarri sviðs-
ljósinu frá því að hann tók að sér
að stjórna kosningabaráttunni, en í
viðtali á sunnudag sagði hann að
Bush þyrfti eitthvað að gera til að
sannfæra kjósendur um að sér væri
alvara í að bæta efnahaginn og það
væri liður í að sýna það að gera sig
að efnahagseinvaldi.
...síðosta HRADLESTRARNAMSKEIÐID!
★ Vilt þú margfalda lestrarhraðann og bæta eftirtektina?
★ Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum?
★ Vilt þú verða mikið betri námsmaöur og auðvelda þér allt nám með
auknum lestrarhraða og bættri námstækni?
★ Vilt þú ná betri árangri á prófum og með bættri tækni?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax á sfðasta námskeið ársins sem
hefst miövikudaginn 21. október. Skráning í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
S 1978-1992 CE