Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 35
seei HaaöTiio .sí HUOAam,Gia<t aia/aaviuoHOM
MORfiUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTOBER 1992
Hálka á vegnm
Fjóm' fluttir
á slysadeild
eftir árekst-
ur í hálku
FJÓRIR voru fluttir á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri eftir árekstur á Ólafsfjarð-
arvegi í gær og var einn mikið
slasaður. Hálka er talin hafa
valdið árekstrinum, en seinni
hluta dags fór að snjóa. Lög-
regla telur ráðlegt fyrir fólk
sem aka þarf um þjóðvegi
norðanlands að setja snjódekk
undir bíla sína.
Áreksturinn á Ólafsfjarðarvegi
varð laus fyrir kl. 16 í gærdag
skammt frá Baldursheimi ofan
Hjalteyrar. Annar bíllinn skrikaði
til vegna hálku sem á veginum var
með þeim afleiðingum að hann
lenti framan á bifreið sem ekið var
í gagnstæða átt.
Tvennt var í hvorum bíl og voru
allir fluttir á sjúkahús, farþegi í
öðrum bílnum slasaðist allmikið við
ákeyrsluna en aðrir sluppu minna
meiddir.
Ámi Magnússon, varðstjóri lög-
reglunnar á Akureyri, sagði að
hálka hefði myndast á veginum
síðari hluta dagsins, eftir að byrj-
aði að snjóa. Spáð er leiðindaveðri
í dag, þriðjudag, og sagði Ámi
ástæðu til að hvetja þá sem aka
þurfa um þjóðvegi norðanlands að
setja snjódekk undir bílana. „Það
er vissara fyrir menn að huga að
snjódekkjum, það má búast við
nokkurri hálku á vegum og betra
að vera við öllu búnir,“ sagði Ámi.
♦ ♦ ♦----
Tillögum um
Ljósmynd Halldór Gunnarsson
Klesstir kvótabátar
Bátamir tveir sem Sigurbjörg ÓF keyrði á í Ólafsfjarðarhöfn á föstudagskvöld eru taldir ónýtir. Báðir voru
tíu tonna trébátar, sem ekki höfðu verið gerðir út um nokkurt skeið, eni svokallaðið kvótabátar, en fjórir
slíkir lágu á sama stað í höfninni. Halldór Gunnarsson, lögreglumaður I Ólafsfírði, sagði að bilun hefði orðið
í tækjabúnaði í brú Sigurbjargar, en verið var að færa skipið örlítið til í höfninni er atvikið átti sér stað
þannig að í stað þess að fara áfram bakkaði skipið. Lenti það fyrst á Hafey Óf og sökkti henni en síðan
lenti Sigurbjörg á hinum bátnum, Kára. Bátunum hefur verið komið upp á land, en frystitogarinn fór til
veiða um hádegi á laugardag.
Mýyatnssveit
Lítið sést
af rjúpu
Björk, Mývatnssveit.
YMSIR óttast nú að rjúpnastofnin
sé í verulegri hættu, en ástæðuna
telja menn vera hvað lítið sést af
rjúpu um þessar mundir og meiri
sókn undanfarin ár, samfara full-
komnari veiðitækni, miðað við það
sem áður var. Nú beita veiðimenn
hriðskotabyssum og ferðast á fjór-
þjólum, vélsleðum og fjallabílum.
Hér í nágrenni Mývatns verður
lítið vart við ijúpu. Fyrr á árum var
hér allt kvikt og stórir hópar hvert
sem litið var. Sömu sögu segja
gangnamenn úr Búrfellshrauni, sem
talið er eitt besta ijúpnaland hér um
slóðir, en í dag er þar allt autt og
snautt. Þetta eru vissulega váleg tíð-
indi. Á síðasta ári var stofnað hér á
Norðurlandi eystra áhugamannafé-
lag til að vemda íslensku ijúpuna.
Vonandi nær þessi félagsskapur já-
kvæðum árangri þó að við ramman
reip sé að draga. Ef ekki má treysta
manninum til að umgangast náttúr-
una á þessu sviði án þess að valda
óbætanlegu tjóni verða náttúm-
vemdarsamtök um allt land að skar-
ast I leikinn svo og stjómvöld og
alfriða ijúpuna áður en það verður
um seinan. _ Rristján
Kaupfélag Eyfirðinga
Hagiiaður af rekstrinum 83
millj. fyrstu 8 mánuði ársins
Sumarið jafnan besti tíminn í rekstrinum, segir kaupfélagsstj ór i
MIKIL umskipti hafa orðið í rekstri Kaupfélags Eyfirðinga, hagnað-
ur af starfsemi félagsins fyrstu 8 mánuði þessa árs nemur 83 miHjón-
um króna, en samkvæmt 6 mánaða uppgjöri var hagnaður af starf-
seminni 7 milljónir króna. Þetta er í fyrsta sinn sem 8 mánaða upp-
gjör er gert þjá félaginu, en fram til þessa hafa uppgjörin miðast
fyrir fyrstu 6 og 9 mánuði ársins. Uppgjör fyrir fyrstu 8 mánuði
ársins er m.a. gert ef til þess kæmi að útgáfa á samvinnuhlutabréf-
um hæfist, en það er til athugunar innan félagsins.
skerta þjón-
ustu mótmælt
KVENFÉLAGIÐ Iðunn í Eyja-
fjarðarsveit hefur mótmælt til-
lögum um að skerða þjónustu
Kristnesspítala.
„Við mótmælum öllum tillögum
sem fram hafa komið um að
skerða á einhvem hátt þá þýðing-
armiklu þjónustu sem Kristnessp-
ítali veitir héraðsbúum á sviði end-
urhæfingar og hjúkrunar aldr-
aðra,“ segir í ályktun Iðunnar.
„Verði öldrunardeildin lögð nið-
ur mun skapast neyðarástand í
málefnum aldraðra í héraðinu.
Ekki má koma til þess voðaverks
að flytja þurfí gamalt lasburða
fólk nauðungarflutningum burtu
úr héraði frá sínum nánustu", seg-
ir í ályktuninni.
Magnús Gauti Gautason
kaupfélagsstjóri sagði að sumarið
væri félaginu yfírleitt gott og bati
í rekstri tengdist því, verslun væri
mikil yfír sumarmánuðina,
mjólkurframleiðsla í hámarki og
eins væri sjávarafli þá að jafnaði
hvað mestur. Sagði Magnús Gauti
að fiskafli í júlí síðastliðnum hefði
til að mynda verið mikill og aukist
verulega miðað við fyrra ár. Af-
koman í fiskvinnslu væri þó slak-
ari en verið hefði á síðasta ári, en
það væri ekki bundið við útgerð
kaupfélagsins heldur væri svo al-
mennt um land allt. Þá benti kaup-
félagsstjóri einnig á að fjármagns-
kostnaður hefði lækkað til muna
í minnkandi verðbólgu og væri það
annað meginatriðið fyrir bata í
rekstri fyrirtækisins.
Heildartekjur Kaupfélags Ey-
firðinga á fyrstu 8 mánuðum árs-
ins voru 5.539 milljónir króna.
Rekstrargjöld voru á sama tíma-
bili um 5.347 milljónir króna, en
þar af voru laun og launatengd
gjöld um 842 milljónir króna. Tekj-
ur af rekstri félagins allt árið í
fyrra námu rúmum 8,8 milljörðum
króna og rekstrargjöldin rúmum
8,5 milljörðum króna.
Fjármunatekjur að frádregnum
fjármagnsgjöldum voru samtals til
gjalda að upphæð 154 milljónir
króna á fyrstu 8 mánuðum ársins,
en á öllu síðasta ári greiddi félag-
ið 280 milljónir króna í fjármuna-
tekjur. Hagnaður af reglu-
legri starfsemi félagsins frá árs-
byijun til ágústloka nam 39 millj-
ónum króna. Að viðbættum
óreglulegum tekjum, svo sem
greiðslu úr Verðjöfnunarsjóði sjáv-
arútvegsins að upphæð 56 milljón-
ir króna verður niðurstaðan sú að
hagnaður af rekstri félagins nam
83 milljónum króna á umræddu
tímabili. Hagnaður af rekstrinum
á öllu síðasta ári var 54 milljónir
króna. Félagið hefur greitt um 13
milljónir króna í skatta á tímabil-
inu.
Eignir Kaupfélags Eyfírðinga
Frá afhendingu blóðgjafarbekksins, frá vinstri er Guðjón H. Sig-
urðsson, formaður Hængs, Vigfús Þorsteinsson, yfirlæknir rann-
sóknadeildar, Vilborg Gautadóttir meinatæknir, Þorbjörg Völund-
ardóttir deildarmeinatæknir, Ingers Jensen meinatæknir og Krist-
ján Kristjánsson, fráfarandi formaður Hængs.
Lionsklúbburinn Hæng-
ur gefur blóðgjafarbekk
LIONSKLÚBBURINN Hængur hefur gefið rannsóknadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri blóðgjafarbekk með fylgi-
hlutum og er þetta annar bekkurinn sem klúbburinn gefur
deildinni.
Klúbburinn aflaði fjár til kaup-
anna með útgáfu auglýsinga-
blaðsins Leós sem hann gefur
jafnan út í desember ár hvert.
Stærstu verkefni klúbbsins eru
auk útgáfu á blaðinu fram-
kvæmd Hængsmótsins, sem er
opið íþróttamót fyrir fatlaða.
Undirbúningur fyrir næsta mót
sem haldið verður í íþróttahöll-
inni í maí á næsta ári er þegar
hafinn.
Auk gjafarinnar til rann-
sóknadeildar FSA hefur verið
veitt úr verkefnasjóði klúbbsins
til íþróttasambands fatlaðra
vegna þátttöku á Ólympíuleikun-
um, Félags hjartasjúklinga á
Akureyri og nágrenni, Vímu-
lausrar æsku og til bocciadeildar
Völsungs.
nema 7.632 milljónum króna, en
félagið skuldar 4.684 milljónir
króna. Eigið fé fyrirtækisins nem-
ur 2.947 milljónum og er um 39%
af heildareignum.
» » ♦-----
Bílar skemmd-
ust í þremur
árekstrum
ÞRÍR árekstrar urðu á Akur-
eyri í kringum hádegið í gær.
Ekki urðu slys á fólki en þó
nokkrar skemmdir urðu á bif-
reiðum.
Tveir fólksbflar rákust saman á
gatnamótum Gránufélagsgötu og
Hríseyjargötu nokkru fyrir hádegi
í gær og laust fyrir kl. 12 skullu
tveir bílar saman í Munkaþverár-
stræti. Þá varð nokkuð harður
árekstur við gatnamót Skarðshlíð-
ar og Smárahlíðar skömmu eftir
hádegi.
Enginn meiddist í þessum
ákeyrslum, en að sögn varðstjóra
lögreglunnar urðu þó nokkuð mikl-
ar skemmdir á bílunum og eigna-
tjón umtalsvert.
Nokkur ölvun var í bænum að-
faranótt laugardags, sjö menn
gistu fangageymslur lögreglunn-
ar, sex voru teknir fyrir að aka
of hratt og tveir fyrir meinta ölvun
við akstur.
Þá var í gærmorgun tilkynnt
um að brotist hefði verið inn í
geymslu bakatil við Hótel Hörpu
og stolið þaðan nokkrum flöskum
af léttu víni. Þeir sem þar voru
að verki brutu sér leið inn í geymsl-
una með því að rífa niður spóna-
plötu á geymslunni. Ekki var búið
að upplýsa málið undir kvöldið.