Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 15
-'MORGUÍÍBM&ÍÐ SÚNNUDA<Í0K;!8Í3NÓVEMBER:1$Ö2 M5 REPUBLIKANAR SLEIKJA SÁRIN NAFLASKODUN OGBRÆDRAVIG GLUNDROÐI ríkir meðal repúblikana eftir ósigur George Bush í banda- risku forsetakosningfunum. Á næstunni má búast við bræðravígum, ásökunum, sakfellingum, réttlætingum og rækilegri naflaskoðun. Hinir löngu hnífar hafa verið dregnir fram og valdabaráttan um sál og hjarta flokksins er þegar hafin. Repúblikanaflokkurinn var sendur út í eyði- mörkina í kosningunum og nú er að sjá hvort það muni taka fjögur ár eða tuttugu að snúa sundrungu í einingu og komast til valda á ný. Eitt helsta deiluefnið verður hvernig Bush og liðsmenn hans fóru að því að tapa kosningunum. Hægri vængurinn mun halda því fram að Bush hafi fjarlægst hug- myndafræði forvera síns, Ronalds Reagans. Hófsami armurinn er hins vegar þeirrar hyggju að það hafí verið banabiti forsetans fráfarandi að stíga í vænginn við hægri arminn. HRAP BUSH Það er erfitt að fínna einhvern einn vendipunkt sem batt enda á vonir Bush um endurkjör. Víst er að vinsældir hans meðal bandarísku þjóðarinnar í kjölfar Persaflóastríðs- ins voru ótrúlegar. Það fór hins veg- ar að halla undan fæti þegar Bush gekk á bak orða sinna um enga nýja skatta haustið 1990. íhaldsarmurinn var lítt hrifínn á sínum tíma og Bush kvaðst í kosningaræðum ítrekað hafa gert hrapalleg mistök með því að svíkja loforðið. Nú hefur þessi gagn- rýni blossað upp fyrir alvöru og at- hygli vekur að ónefndir aðstoðar- menn Dans Quayle halda því nú fram við blaðamenn að varaforsetinn hafí alltaf verið andvígur skattahækkun yfírboðara síns. Bush var þess hins vegar fullviss að almenningur gerði ekki þá kröfu til stjómmálamanna að þeir stæðu við orð sín og iðrast þess sennilega nú. Quayle er einn þeirra, sem munu beijast um yfirráð í flokknum. Fréttaskýrendur hamra á því að hann hafí í þessum kosningum rekið af sér slyðruorðið, sem hann fékk á sig vegna mismæla og afglapa á undan- förnum ijórum ámm, og þótt flokk- urinn muni ekki hafa jafnað sig nægilega eftir ósigurinn í síðustu viku til að tefla honum fram árið 1996 gæti hans tími komið síðar. Keppinautar Quayles á hægri vængnum eru Pat Buchanan, sem tókst að ýfa skrautfjaðrir forsetans svo um munaði í upphafí forkosning- anna, sjónvarpsklerkurinn Pat Ro- bertson, sem hefur löngum haft augastað á framboði og Jack Kemp, sem var sniðgenginn meðan hann gegndi embætti húsnæðismálaráð- herra í stjóm Bush utan hvað hann rétt komst í sviðsljósið eftir óeirðim- ar í Los Angeles í vor. Af þessum þremur er Kemp einna höfsamastur, sennilega á svipuðu reki og öldungadeildarþingmaðurinn Bob Dole, leiðtogi repúblikana í þing- deildinni, sem ugglaust á eftir að færa sér það fullkomlega í nyt að vera orðinn valdamesti repúblikaninn í Washington. RADDIR HÓFSEMI Hófsami armurinn beinir spjótum sínum hins vegar að Buchanan og Robertson og heldur þvi fram að framkoma þeirra á flokksþingi repú- blikana í Houston í Texas hafi gert út um sókn Bush eftir endurkjöri. Buchanan notaði tækifærið í ræðu, sem hann hélt á besta sjónvarpstíma á þinginu, tii að lýsa yfir afdráttar- lausri andstöðu við fóstureyðingar, fordæma homma og lesbíur, einstæð- ar mæður, kvenréttindakonur, um- hverfisvemdarsinna og spyrða þessa hópa saman í úrhrak, sem ætti ekki heima undir bandaríska fánanum. William Weld, ríkisstjóri Massachu- setts, vakti athygli á þinginu fyrir að mæla með því að fóstureyðingar yrðu leyfðar. „Blærinn yfir þinginu fældi fjölda kjósenda frá flokknum," sagði Weld eftir kosningamar. „Nú verðum við að tryggja að öll sjónar- mið fái þrifíst innan flokksins. Það ræður úrslitum um það hvort við verðum fjögur ár frá völdum eða 20 er hvort sundrung og baktjaldamakk víkja fyrir einingu." Weld er arftaki Michaels Dukakis- ar, sem var forsetaefni demókrata fyrir fjórum árum, og hann þykir fjöður í hatti repúblikana ásamt skoðanabróður sínum, Pete Wilson, ríkisstjóra Kalifomíu. Hófsami arm- urinn getur einnig stutt tilkall sitt til forystu með því að hægri vængur- inn hafi nú fengið sitt tækifæri og klúðrað því. Nú sé röðin komin að öðrum að spreyta sig. BRÁST HIRÐIN? Bush hefði getað tekið Clinton sér til fyrirmyndar í mannahaldi. Sú gagnrýni gerist æ háværari að Bush hafí eingöngu haft í kringum sig hvíta karlmenn, sem sagðir em hafa verið annars flokks og óhæfír. Hvorki konu né svertingja hafi verið hleypt inn í innsta hring. Ron Brown, for- maður Demókrataflokksins, er svart- ur og hann fylgdi Clinton eins og skugginn í kosningabaráttunni. Að auki fer það orð af Clinton, að hann hafí ráðið fjölda kvenna í áhrifastöð- ur í Arkansas, þar sem hann er ríkis- stjóri, og séð var til þ'ess að það færi ekki framhjá 1Hm| kjósendum. Sökinni er einnig skellt á Bush sjálfan. Hann er sagður hafa verið úr sambandi. Hann hafi ekki haft neina sannfær- ingu eins og forveri hans og læri- meistari og því þurft að reiða sig á þá, sem hann hafði í kringum sig. Þeir brugðust. Fyrir fjórum árum sýndi Bush að hann hafði lært ýmis- legt af Reagan, sem gegndi embætt- inu eftir handriti sinna nánustu ráð- gjafa. Nú virtist allt gleymt. Hann hlustaði ekki á ráð, áttaði sig-ekki á stöðunni. Quayle kennir stjórnendum kosn- ingabaráttunnar um án þess að nefna nokkur nöfn og heldur því fram að gera hefði mátt betur. „Efnahagur- inn er ekki jafn slæmur og fólki hef- ur verið talin trú um,“ sagði Quayle á fímmtudag. „En við gátum hrund- ið þeirri trú. Slíkt krefst herkænsku og vilja til að láta skeika að sköp- uðu.“ Fjölmiðlar hafa einnig fengið sinn skerf af gagnrýni og á hluti ummæla Quayles við um þá. Bush segir að þeir hafí lagt öll efnahagstíð- indi út á versta veg og gert Clinton að forseta mörgum vikum fyrir kjör- dag. Allar þessar skýringar geyma sannleikskorn. En Bush féll einnig á tíma. „Við vorum við völd í 12 ár,“ sagði William Bennett, sem Bush setti til höfuðs eiturlyfjavandanum. „Við vorum orðnir þreyttir, gleymd- um til hvers við komum.“ Æ e/ 7. janúar Verö kr. 39.700,- Verð per mann, m.v. hjón með 2 börn, 7. janúar. Njóttu lífsins vib frábæran abbúnab á Kanaríeyjum þar sem veburblíban er einstök yfir vetrarmánubina og þú getur notib sólar og sumars þegar kaldast er á íslandi. Heimsferbir bjóba vandab úrval af gististöbum, smáhýsi eba íbúbarhótel, allt eftir óskum hvers og eins og fararstjórar okkar tryggja góba þjónustu allan tímann og spennandi kynnisferbir. 18. febrúar Jólaferö-i7.de$. Verb kr. 52.300,- Verð kr. 55.500,- Verð per mann, m.v. hjón með 2 börn, 18. febrúar. Verð per mann, m.v. hjón með 2 börn, 17. des. Brottför: 17. desember — síbustu sætin. 7. janúar — fá sæti laus. 28. janúar. 18. febrúar. 11. mars. 1. apríl — páskaferð. Fararstjórar Heimsferöa: Bergþóra Tómasdóttir, Þorsteinn Stephensen, Jakobína Davíðsdóttir. Flogið er með glæsilegum 757 Boeing þotum Air Europa. air europa HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæö • Sími 624600 TURAVIA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.