Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 19
en skilur ekki hvað þáð er. Fyrir rúmu ári var hann að reyna að steypa af stóli réttkjörnum forseta heima- landsins Bophuthatswana og s- afríski herinn kom og bjargaði mál- inu. Þá mótmælti Mandela harðlega íhlutun hersins, því maðurinn væri ekki lengur forseti, það væri búið að steypa honum af stóli! Mandela nýtur mikils stuðnings í S-Afríku, hann lofar öllum gulli og grænum skógum. Hann er formaður hreyfíng- arinnar sem hefur frelsað svertingj- ana undan stjórn hvítra manna, en þeir gera sér ekki grein fyrir því hvert hann stefnir. Mandela vill þjóð- nýtingu og endurúfhlutun auðsins, hann er með allar gömlu kommún- istahugmyndimar. Ef hann kemst til valda er efnahagslíf S-Afríku dauða- dæmt. Þetta sterka ríki, sem gæti verið til svo mikillar uppbyggingar í allri Afríku, væri þá búið að vera. Efnahagskreppa og glæpir Menn berjast við fleira en kyn- þáttavandamál í S-Afríku. Ef mönn- um þykir erfitt ástand hér þá er það tíu sinnum verra þar. Verstu þurrkar í 50 ár hafa gengið yfir landið og landbúnaðurinn er í miklum vanda. Gullið er S-Afríku sama og fiskurinn íslandi. Heimsmarkaðsverð á gulli hefur verið í lágmarki í mörg ár og ekkert að hækka, fremur að það falli. Það er talað um að 60% af gullframleiðslunni sé rekin með tapi. Um hálf milljón svertingja hefur misst vinnuna í gullnámunum og á sumum svæðum er allt að helmingur vinnufærra manna án atvinnu. Bygg- ingariðnaðurinn hefur nær stöðvast og fasteignir seljast ekki. Ég á 400 fermetra fallegt einbýlishús en get ekki einú selt það fyrir verð sem dugar fyrir 2 herbergja kjallaraíbúð hér á íslandi. Einnig á ég glugga- verksmiðju, þar sem starfa 30-40 menn flestir svartir, og reksturinn gengur dræmt vegna samdráttar í byggingariðnaði. Afríska þjóðarráðið hvetur svertingjana til að borga hvorki rafmagns- eða vatnsreikninga né heldur afborganir af lánum. Sveit- arfélögin eiga því í miklum erfiðleik- um og bankarnir hafa stöðvað hús- byggingalán til blökkumanna. Þeir blökkumenn sem vilja borga af lán- um sínum verða fyrir hótunum og aðkasti. Á tíma aðskilnaðarstefnunn- ar var íbúafjölda svartra á einstökum svæðum stjórnað þannig að til væri atvinna og húsaskjól fyrir alla. Nú er búið að afnema slíka stýringu. Á Jóhannesarborgarsvæðinu hefur íbú- um íjölgað úr tveimur milljónum upp í fjórar á einu og hálfu ári. Það eru risin hreysahverfi um allt. Svertin- gjamir reyna að reisa kofa hvar sem þeir geta. Það er áætlað að íbúafjöld- inn verði kominn í tólf milljónir um aldamót og árið 2010 í 45 milljónir. De Klerk og Mandela hafa samið um lausn fjölmargra pólitískra fanga, það er búið að sleppa um 50 þúsund föngum undanfarið. Margir hafa verið fangelsaðir fyrir glæpa- ,starfsemi, en Mandela heimtar að fá þá lausa sem pólitíska fanga óg því er hlýtt. Dómarar eru í uppnámi yfir því að öllum þessum glæpamönnum sé sleppt. í kjölfar .atvinnuleysins fjölgar afbrotum. Þar sem áður var tiltölulega öruggt umhverfi ríkir nú vargöld. Á síðustu þremur og hálfu ári hefur verið stolið af mér níu bíl- um. Það er stolið 70 bílum á dag á Jóhannesarborgarsvæðinu og er þeim ýmist smyglað úr landi eða seldir í varahluti. Það gerist í hverri viku að bílræningjar slq'óti bílstjóra undir stýri, þar sem þeir bíða á umferðarljósum, fleygi líkinu út og ræni bílnum. Hvítu fólki er varla óhætt að fara lengur um miðborgina og alls ekki um helgar. Mörg stór og glæsileg hótel eru að loka. Borg- arstjóm Jóhannesarborgar hefur ákveðið að ráða 600 lögreglumenn til að gæta eins ferkílómetra í mið- bænum. Á þessu svæði ríkir algjört ófremdarástand. Ótti við hrun Róm féll og stórveldi hafa fallið hvað þá minni ríki. Sovétríkin féllu í öskustóna og það tekur marga ára- tugi að byggja Rússland aftur upp. Mér sýnist á öllu að sagan sé að endurtaka sig í S-Afríku. Nýlega var gerð skoðanakönnun meðal ensku- mælandi hvítra og þar kom fram að 40% eru ákveðin í að flytja úr landi, þar að auki voru margir að hugsa MQRGUNBLAÐIÐ SUNNUD^AGyR 8. NÓyEMBER. ,1992 um að fara. Búarnir komast ekki neitt, því þeir eru jafn mikill hluti af Afríku og svertingjamir. S-afrísk stórfyrirtæki keppast við að opna útibú víða um heim og kaupa upp fyrirtæki, ekki síst í Evrópu. Þau vilja vera viðbúin þvi versta heima fyrir og baktryggja sig. Það hefur verið mikið um fyrirtækjasamruna í landinu og mikill rekstur safnast á fárra hendur. Það er engin fyrirliggj- andi lausn á málum S-Afríku. I S- Afríku var sagt í vor að 7% þeirra sem lykju stúdentsprófi ættu mögu- leika á að finna vinnu. Tíminn einn sker úr um hvemig þetta fer. Það er sorglegt ef S-Afríka hrynur, því þetta land hefur mjög sterka innri uppbyggingu og gæti verið svo mik- il lyftistöng fyrir alla álfuna. Það er líkt og maður fylgist með Róm brenna. Gott að koma heim Meðan ég bjó í S-Afríku voru þar lengstum 30 til 40 íslendingar og HEIMALÖND í S-AFRÍKU flestum hefur vegnað vel. Eitthvað af fólkinu hefur verið að tala um að koma aftur til íslands. Það hefur margt breyst hér á landi meðan ég bjó úti og ekki allt til batnaðar. Ég fæ hroll þegar ég sé þetta ofboðslega ríkisbákn sem búið er að byggja upp. Ef fólk lítur á launaseðilinn sinn og rannsakar hvert launin renna þá kemst það að því að minnst 70-80% af kaupinu fer beint og óbeint í sjóði ríkis og bæjar. Ég er þeirrar skoðun- ar að til að þjóðfélag blómgist þurfi skattar að vera lágir og afskiptasemi í lágmarki. Þá á ég ekki bara við hið opinbera heldur líka verkalýðs- hreyfinguna. Menn em orðnir hraeddir við að fara út í framkvæmd- ir eða rekstur vegna allra þessara óraunhæfu krafna og reglna. Meðal þess jákvæða sem ég sé er að það er hætt að styðja vonlaus fyrirtæki sem geta ekki borið sig. Mér fínnst kjarninn í þessu vera sá að ríkið verður að skapa þær aðstæð- ur að atvinnurekstur geti skilað ________________________________19 hagnaði. Það ætti að gera alla íslend- inga að kapítalistum. Sósíalistar hafa alla tíð talað um þjóðnýtingu, mér finnst að hér ætti að gera fólksnýt- ingu. Færa eignir frá ríki og bæ til einstaklinganna, svo þeir geti notið milliliðalaust arðs af eignum sem hafa orðið til fyrir skattpeninga al- rriennings. Nú fer ég að starfa við fyrirtækið Fismark, aflamiðlun sem selur afla skipa til vinnslustöðva. Framboð og eftirspum ræður verðinu. Sjómenn- irnir vilja hámarksverð og vinnslu- stöðvarnar sem mestan afla. Við er- um í sama húsnæði og Kvótamarkað- urinn sem sonur minn Hilmar stofn- aði. Sá rekstur gengur ágætlega og er dæmi um nýja atvinnustarfsemi sem svarar þörf markaðarins. Þótt margt sé heppilegra erlendis, gott veðurfar og hvað eina þá er maður samt alstaðar útlendingur nema á íslandi. Ég er mjög glaður yfir því að vera kominn heim og finn að ég er kominn á rétta bylgjulengd. Ódýr og spennandi lúxusferð til Tælands fyrir aðeins 99.900 kr. Nú er tækifærið til aö hverfa á vit framandi menn- ingar og ævintýra í Tælandi. Royal Cliff hóteliö er dvai- arstaöur sem er þekktur fyrir þægindi og glæsileika. Fjögur ár í röð hefur hóteliö veriö kosiö besti hótelstaður- inn í allri suö-austur Asíu. Hvergi er auöveldara að llfa í vellystingum en einmitt þarna. Á hótelsvæöinu er t.d. að finna sundlaugar, fjóra 18 holu golfvelli, glæsilegar versl- anir, spennandl námskeið í tælenskri matargerö auk bestu þjónustu og aöbúnaöar sem hægt er aö hugsa sér. Stutt er I iðandi mannlífið á Pattaya ströndinni og aöeins tveggja tíma akstur til Bangkok. SAS býöur ferö og lúxus- dvöl á Royal Cliff hótelinu í tvær vikur á aöeins 99.900 kr. Tekið er á móti farþegum á flugvellinum í Bangkok viö komu ef óskaö er og ekið aftur viö brottför. Láttu draumaférölna til Tælands veröa að veruleika - þaö er mögulegt meö SAS! Haföu samband viö SAS eöa feröaskrifstofuna þína. /////SÆf Laugavegi 172 Sími 62 22 11 SAS á íslandi - valfrelsi í flugi! Verö miöast viö einstakling í tveggja manna herbergi. 1250 kr. flugvallarskattur er ekki innifalinn í veröi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.