Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
256. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
+ Morgunblaðið/RAX
GAMAGER
Byltingarafmælið hefur
aldrei tekið jafn fljótt af
Moskvu. Reuter. Daily Telegraph.
TÆPLEGA 20.000 manns minntust 75 ára afmælis byltingar bolsjévíka í Moskvu
í gær en urðu að gera sér Oktjabrskaja-torgið að góðu til fundarhalda þar sem
Rauða torgið var lokað vegna viðgerða. Fundarmenn báru fána fyrrum Sovétríkj-
anna og merki kommúnistaflokksins, kröfðust afsagnar stjórnar Borís Jeltsíns og
að völd Kommúnistaflokksins yrðu endurreist. Kommúnistar efndu til fundarhalda
í tilefni afmælisins í öðrum helstu borgum Rússlands, en að sögn Moskvuútvarps-
ins var þátttaka afar dræm og nær eingöngu bundin við eldra fólk. Útvarpið sagði
að byltingarafmælið hefði aldrei tekið jafn fljótt af og verið jafn illa sótt.
„Við erum hérna saman komin því okk-
ur mislíkar hvernig mál hafa þróast í land-
inu,“ sagði Sergej Bondarenko, einn fund-
armanna á Oktjabrskaja-torgi. „Hinir ríku
verða ríkari en þeir fátæku snauðari. Það
er ekki það sem við bjuggumst við fyrir
ári,“ sagði hann.
Ráðstefna var haldin var í Moskvu í
fyrradag til þess að kryfja stöðu byltingar-
leiðtogans Vladímírs Leníns í mannkyns-
sögunni og ræða orsakir og afleiðingar
byltingarinnar 1917, sem margir fundar-
manna nefndu aldrei öðruvísi en sem
„valdaránið".
„Lenín sóttist aðeins eftir einu og engu
öðru; völdum og aftur völdum og enn meiri
völdum," sagði Dmítríj Volkogonov hers-
höfðingi, sem nýtur virðingar sem helsti
fræðimaður Rússlands á sviði hersögu.
„Við töluðum alltaf um Lenín sem snilling.
En skoðið aðeins spádóma hans; um öreiga-
byltingu um jörðina gjörvalla, hrun kapítal-
ismans og sigur kommúnismans. Til allrar
hamingju gengu þeir ekki eftir,“ bætti
Volkogonov við.
Margir forsprakkar misheppnaðs valda-
ráns í Moskvu í fyrrasumar sitja bak við
lás og slá en Lenín liggur þó enn með reisn
■í grafhýsi sínu við Rauða torgið. Tugur
lífefnafræðinga við rannsóknarstofnun í
Moskvu fylgist með líkinu, hefur skoðað
það á mánudögum og föstudögum frá því
hann dó 1924.
Á morgun, mánudag, verður líkið tekið
úr steinkistunni og framkvæmd á því sér-
stök skoðun sem gerð er á 18 mánaða
fresti. Verður það baðað í sérstakri smurn-
ingslausn, sem er eitt best varðveitta ríkis-
leyndarmál Rússlands.
Sérfræðingur sem haft hefur þann starfa
í 40 ár að annast lík Leníns sagði að um
það leyti sem hann hóf störf hefði stjórn-
málaráðið ákveðið að láta skipta um föt á
líkinu. Fyrstu 25 árin var líkið fært í her-
mannaföt en Lenín var aldrei í hemum og
því var ákveðið að klæða líkið borgaraleg-
um klæðum. Höfð eru fataskipti á líkinu
á nokkurra ára fresti og er komið að því nú.
Skellur hala-
stjarna á jörð-
inni árið 2126?
Í ÁGÚST ár hvert fer jörðin þvert yfir
sporbraut halastjörnu, sem er tíu kiló-
metrar á breidd. Ef stjarnan verður ein-
hvern tima á sömu slóðum og jörðin
gæti hún skollið á plánetunni, myndað
gífurlegan gig, komið af stað skjálfta-
bylgjum og valdið þykkum skýmekki
yfir allri jörðinni þannig að ekki sæist
til sólar í marga mánuði. Ef svo færi
myndi stór hluti plantna þurrkast út, sem
og margar dýrategundir sem eru háðar
jurtum til matar - og ef til vill líka
mannkynið. Margir vísindamenn telja að
samskonar hörmungar hafí útrýmt risa-
eðlunum fyrir 65 miiyónum ára. Þá
skýrði US Geological Survey frá því
nýlega að sljörnuhrap í Atlantshafið fyr-
ir 35 milljónum ára hafi valdið 300 metra
hárri flóðbylgju sem hafi skollið yfir
austurströnd Bandaríkjanna. Sem betur
fer hafa plánetur og halastjörnur aldrei
verið á sama stað á sama tíma. Einu
greinanlegu afleiðingarnar af því er
jörðin fer yfir sporbraut halasljörnunnar
eru svokölluð Perseid-hrapstjörnuél,
sem sjást árlega þegar ryk frá sljöm-
unni brennur í andrúmslofti jarðar. Ekki
er þó víst að mannkynið verði alltaf jafn
heppið. Sá möguleiki er fyrir hendi að
halastjarnan skelli á jörðinni þegar hún
nálgast næst, líklega árið 2126. Likurnar
eru þó ekki miklar - 10.000 á móti 1 -
að sögn Brians Marsdens hjá Alþjóðlegu
stjörnufræðistofnunni. Afleiðingar hugs-
anlegs áreksturs yrðu hins vegar svo
alvarlegar að Marsden hefur hvatt
starfsbræður sína til að fylgjast vel með
halastjörnunni svo hægt verði að reikna
út ferð hennar um sporbrautina með
meiri nákvæmni. Ef hætta reynist á
árekstri telur hann að eina lausnin kunni
að felast í því að sprengja stjörnuna í
loft upp í hæfilegri fjarlægð með kjam-
orkueldflaugum.
„Magic“ kraf-
inn skaðabóta
EARVIN „Magic" Johnson, körfuknatt-
leiksmaðurinn bandaríski, á ekki sjö dag-
ana sæla um þessar mundir. Fyrir ári
varð hann að leggja skóna á hilluna er í
ljós kom að hann var haldinn alnæmi. í
sumar ákvað hann að taka skóna fram
að nýju en í vikunni hætti hann við að
hætta við að hætta er væntanlegir mót-
heijar sögðust óttast smit er þeir skrám-
uðu hver annan i hita leiksins. í vikunni
lagði svo fyrrum lagskona Magics fram
skaðabótakröfu á hendur honum fyrir
að hafa smitað sig. Johnson viðurkennir
að hafa samrekkt konunni, sem er fyrrum
eiginkona körfuboltaþjáifara, en heldur
því fram að jafnmiklar lfkur séu á því
að hún hafí smitað hann.
NÝKYNSLÓD 14
BREYTTIR TÍMAR?
Hilmar
Kristjómson
rcedistnadur
erjluttur
heim
RÓM i8
BRENNUR