Morgunblaðið - 08.11.1992, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.11.1992, Qupperneq 1
80 SIÐUR B 256. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS + Morgunblaðið/RAX GAMAGER Byltingarafmælið hefur aldrei tekið jafn fljótt af Moskvu. Reuter. Daily Telegraph. TÆPLEGA 20.000 manns minntust 75 ára afmælis byltingar bolsjévíka í Moskvu í gær en urðu að gera sér Oktjabrskaja-torgið að góðu til fundarhalda þar sem Rauða torgið var lokað vegna viðgerða. Fundarmenn báru fána fyrrum Sovétríkj- anna og merki kommúnistaflokksins, kröfðust afsagnar stjórnar Borís Jeltsíns og að völd Kommúnistaflokksins yrðu endurreist. Kommúnistar efndu til fundarhalda í tilefni afmælisins í öðrum helstu borgum Rússlands, en að sögn Moskvuútvarps- ins var þátttaka afar dræm og nær eingöngu bundin við eldra fólk. Útvarpið sagði að byltingarafmælið hefði aldrei tekið jafn fljótt af og verið jafn illa sótt. „Við erum hérna saman komin því okk- ur mislíkar hvernig mál hafa þróast í land- inu,“ sagði Sergej Bondarenko, einn fund- armanna á Oktjabrskaja-torgi. „Hinir ríku verða ríkari en þeir fátæku snauðari. Það er ekki það sem við bjuggumst við fyrir ári,“ sagði hann. Ráðstefna var haldin var í Moskvu í fyrradag til þess að kryfja stöðu byltingar- leiðtogans Vladímírs Leníns í mannkyns- sögunni og ræða orsakir og afleiðingar byltingarinnar 1917, sem margir fundar- manna nefndu aldrei öðruvísi en sem „valdaránið". „Lenín sóttist aðeins eftir einu og engu öðru; völdum og aftur völdum og enn meiri völdum," sagði Dmítríj Volkogonov hers- höfðingi, sem nýtur virðingar sem helsti fræðimaður Rússlands á sviði hersögu. „Við töluðum alltaf um Lenín sem snilling. En skoðið aðeins spádóma hans; um öreiga- byltingu um jörðina gjörvalla, hrun kapítal- ismans og sigur kommúnismans. Til allrar hamingju gengu þeir ekki eftir,“ bætti Volkogonov við. Margir forsprakkar misheppnaðs valda- ráns í Moskvu í fyrrasumar sitja bak við lás og slá en Lenín liggur þó enn með reisn ■í grafhýsi sínu við Rauða torgið. Tugur lífefnafræðinga við rannsóknarstofnun í Moskvu fylgist með líkinu, hefur skoðað það á mánudögum og föstudögum frá því hann dó 1924. Á morgun, mánudag, verður líkið tekið úr steinkistunni og framkvæmd á því sér- stök skoðun sem gerð er á 18 mánaða fresti. Verður það baðað í sérstakri smurn- ingslausn, sem er eitt best varðveitta ríkis- leyndarmál Rússlands. Sérfræðingur sem haft hefur þann starfa í 40 ár að annast lík Leníns sagði að um það leyti sem hann hóf störf hefði stjórn- málaráðið ákveðið að láta skipta um föt á líkinu. Fyrstu 25 árin var líkið fært í her- mannaföt en Lenín var aldrei í hemum og því var ákveðið að klæða líkið borgaraleg- um klæðum. Höfð eru fataskipti á líkinu á nokkurra ára fresti og er komið að því nú. Skellur hala- stjarna á jörð- inni árið 2126? Í ÁGÚST ár hvert fer jörðin þvert yfir sporbraut halastjörnu, sem er tíu kiló- metrar á breidd. Ef stjarnan verður ein- hvern tima á sömu slóðum og jörðin gæti hún skollið á plánetunni, myndað gífurlegan gig, komið af stað skjálfta- bylgjum og valdið þykkum skýmekki yfir allri jörðinni þannig að ekki sæist til sólar í marga mánuði. Ef svo færi myndi stór hluti plantna þurrkast út, sem og margar dýrategundir sem eru háðar jurtum til matar - og ef til vill líka mannkynið. Margir vísindamenn telja að samskonar hörmungar hafí útrýmt risa- eðlunum fyrir 65 miiyónum ára. Þá skýrði US Geological Survey frá því nýlega að sljörnuhrap í Atlantshafið fyr- ir 35 milljónum ára hafi valdið 300 metra hárri flóðbylgju sem hafi skollið yfir austurströnd Bandaríkjanna. Sem betur fer hafa plánetur og halastjörnur aldrei verið á sama stað á sama tíma. Einu greinanlegu afleiðingarnar af því er jörðin fer yfir sporbraut halasljörnunnar eru svokölluð Perseid-hrapstjörnuél, sem sjást árlega þegar ryk frá sljöm- unni brennur í andrúmslofti jarðar. Ekki er þó víst að mannkynið verði alltaf jafn heppið. Sá möguleiki er fyrir hendi að halastjarnan skelli á jörðinni þegar hún nálgast næst, líklega árið 2126. Likurnar eru þó ekki miklar - 10.000 á móti 1 - að sögn Brians Marsdens hjá Alþjóðlegu stjörnufræðistofnunni. Afleiðingar hugs- anlegs áreksturs yrðu hins vegar svo alvarlegar að Marsden hefur hvatt starfsbræður sína til að fylgjast vel með halastjörnunni svo hægt verði að reikna út ferð hennar um sporbrautina með meiri nákvæmni. Ef hætta reynist á árekstri telur hann að eina lausnin kunni að felast í því að sprengja stjörnuna í loft upp í hæfilegri fjarlægð með kjam- orkueldflaugum. „Magic“ kraf- inn skaðabóta EARVIN „Magic" Johnson, körfuknatt- leiksmaðurinn bandaríski, á ekki sjö dag- ana sæla um þessar mundir. Fyrir ári varð hann að leggja skóna á hilluna er í ljós kom að hann var haldinn alnæmi. í sumar ákvað hann að taka skóna fram að nýju en í vikunni hætti hann við að hætta við að hætta er væntanlegir mót- heijar sögðust óttast smit er þeir skrám- uðu hver annan i hita leiksins. í vikunni lagði svo fyrrum lagskona Magics fram skaðabótakröfu á hendur honum fyrir að hafa smitað sig. Johnson viðurkennir að hafa samrekkt konunni, sem er fyrrum eiginkona körfuboltaþjáifara, en heldur því fram að jafnmiklar lfkur séu á því að hún hafí smitað hann. NÝKYNSLÓD 14 BREYTTIR TÍMAR? Hilmar Kristjómson rcedistnadur erjluttur heim RÓM i8 BRENNUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.