Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992
25
einu og öllu þá væri það þjóðfélag
án glæpa, misréttis, atvinnuleysis
og annars böls.“
Börn og frumspekingar
— Geturðu sagt lítillega frá því
sem helst hefur mótað þínar kenn-
ingar?
„Ég held að bandaríski heimspek-
ingurinn John Dewey hafi haft mest
áhrif á mig. Þó þróaði hann aldrei
neinar hugmyndir um heimspeki fyr-
ir börn. En hann beindi athyglinni
að menntamálum og lagði áherslu á
þroskun hugsunarinnar í menntun,
benti á að ekki ætti bara að huga
að þjálfun minnisins og hæfni til að
innbyrða þekkingu. Forngrísk heim-
speki hefur vitanlega haft mikil áhrif
á mig líka og sérstaklega sá hugsun-
arháttur að vilja færa heimspekina
til fólksins og skrifa heimspeki á
hverdagsmáli í stað fræðimáls.
Franskur heimspekingur skrifaði
grein sem ég las 20 árum áður en
ég þróaði mínar hugmyndir og hafði
mikil áhrif á mig, greinin fjallaði um
hvað margt er líkt með börnum og
frumspekingum. Hvorirtveggja hafa
hæfileika til að undrast á lífinu og
spyrja spurninga. Börn og frumspek-
ingar glíma á sambærilegan hátt við
ráðgátur lífsins án þess að fella
vandamálin í sérhæfðar greinar eins
og eðlisfræði eða líffræði. Börn hafa
mjög takmarkaðan orðaforða en
veiti maður orðfæri þeirra athygli
kemur í ljós að þar er margt líkt
með orðræðu frumspekingsins, ein-
faldleikinn og hæfileikinn til að hitta
naglann á höfuðið."
— Hver er munurinn á hæfileik-
um barna og fullorðinna til að læra
heimspeki?
„Ef maður ber saman fullorðinn
einstakling og barn þá stendur sá
fullorðni miklu betur að vígi. En
annað kemur í ljós þegar maður ber
saman fullorðinn einstakling og hóp
af börnum. Þegar maður lætur nokk-
ur börn rökræða þá fær maður að
heyra ótrúlega skarpar og djúpar
athugasemdir, vegna þess að hugur
barnsins er svo opinn, ímyndunarafl-
ið svo fijálst. Þau eru.svo óhrædd
við að koma með hugmyndir, hugur
þeirra svo óbundinn af vanahugsun."
Heimspeki og lýðræði
— Er ekki mikil von til þess að
aðferðir þínar muni breiðast út í
framtíðinni til komandi kynslóða
vegna þess að þarna tileinka börn
sér ákveðinn hugsunarhátt sem þau
koma áleiðis til afkomenda?
„Jú, það er rétt, þetta verður sam-
hangandi ferli, þetta heldur áfram. “
— En hvernig gengur þá að
breiða þetta út?
„í Bandaríkjunum hefur það
gengið mjög hægt. Við erum rétt
farin að gára yfirborðið þó að heim-
speki fyrir börn sé kennd víða sem
sjálfstæð grein í skólum. En til þess
að þetta breiðist nægjanlega út þurf-
um við að koma aðferðum okkar að
í kennaraskólum. Og heimspeki fyrir
böm hefur mætt andstöðu í kennara-
skólum í Bandaríkjunum. Ástæðan
er sú að ef þeir ættu að taka þetta
inn þar þyrftu þeir að kasta svo
miklu fyrir róða af því sem þeir
nota núna í kennaramenntun. Hins
vegar er þetta farið að komast inn
í kennaramenntunina í öðrum lönd-
um, t.d. í Ástralíu og nýlega í Rúss-
landi.“
— Hugsunarháttur barnaheim-
spekinnar er mjög mikilvægur fyrir
lýðræðið, ekki satt?
„Jú, þetta er mjög mikilvægt fyr-
ir lýðræði."
— Trúirðu á lýðræði?
„Já, ég geri það, ég hef mjög
sterka trú á lýðræði. Eg hef ekki
komið auga á neinn annan valkost
sem kemur til greina fyrir okkur að
lifa við. Þegar við leiðum hugann
að þvi sem mannlegt frelsi veitir
okkur og gerum okkar ljósa kosti
þess þá viljum við ekki fórna því
fyrir neitt annað. Við erum jafnvel
reiðubúin að fórna lífinu fýrir það
til þess að börnin okkar og börn
þeirra njóti þess. Ég lít á heimspeki
sem m.a. tæki til að styrkja fijálsa
hugsun og tjáningarfrelsi. Við get-
um ekki lifáð sem manneskjur án
þessa frelsis.
Höfundur er dagskrárgerðar-
maður og heimspekinemi.
Fra afhendmgu lyftunnar.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Sjúkrahúsi Akra-
ness færð stórgjöf
Akranesi. ÖlP
FÉLAGAR í Lionsklúbb Akraness komu færandi hendi á dögunum
á Sjúkrahúsi Akraness og færðu því stórgjöf.
Akranesi á ýmsan hátt og komið
víða við í þeim efnum. Það var
Ólafur Hallgrímsson, formaður
klúbbsins, sem afhenti gjöfina og
veitti Benedikt Jónmundsson, bæj-
arfulltrúi og stjórnarmaður í
sjúkrahússtjórn, henni viðtöku.
- J.G.
Um var að ræða fáeranlega
lyftu, sem þegar hefur verið tekin
í notkun, svo og tæki til að mæla
súrefnismagn í blóði. Alls er verð-
mæti þessara gjafar um 600 þús-
und krónur.
Lionsklúbburinn á Akranesi
hefur um langan tíma lagt sig
fram við að styrkja sjúkrahúsið á
Verð IVá
151.905 kr.
Í^rÚRVALÚTSÝN
/Mjódd: sfmi 699 300; við Austurvöll: sími 2 69 00
f Hafnarfirði: sfmi 65 23 66; við Ráðbústorg á Akureyri: sfmi 2 50 00
- og bjá umboðsmönnum um land allt
Florida, New York Lystireisa um
og allt þar á milli Karíbahafíð
17. apríl - 3- maí.
Ógleymanleg sigling á einu glæsilegasta
skemmtiferðaskipi heims, MS Dreamward, á Star
Intemational þilfarinu. 13 daga ævintýraleg sigling
m.a. með viðkomu á Bahama- og Bermúdaeyjum.
Ótrúlegt verð. Aðeins 8 klefar í boði.
22. febrúar - 9- mars.
Gefðu þig á vald töfrum Karíbahafsins. Bahama eyjar,
Jamaica, Mexíkó, mikið af kalypsó og örlítið rúmóna
gera ferðina ógleymanlega. Sex daga dvöl í Orlando.
íslensk fararstjóm.
Staðgreiðsluvcrð á mann í tveggja manna klefa.
Innifalið í verði: Fullt fæði og öU afþreying um borð. Flug og akstur miUi
staða erlendis. Gisting á Orlando Penta í eina nótt og aðra á hótel
Lexington í New York.
Ekki innifaUð: FlugvaUarskattar og forfaUagjald
3.610 kr., þjórfé um borð ca. 3-200 kr.
og skoðunarferðir.
Staðgreiðsluverð á mann í tveggja manna klefa.
InnifaUð í verði: FuUt fæði og öU afþreying um borð. Flug og akstur miUi
staða erlendis. Gisting á hótel Sheraton Plaza í átta nætur.
Ekki innifaUð: FlugvaUarskattar og forfaUagjald 3.610 kr., þjórfé um
borð ca. 3.200 kr. og skoðunarferðir.
ÞAR SEM RAUNVERULEIKINN
TEKUR DRAUMUNUM FRAM