Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.11.1992, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992 Tölvunámskeid Excel 4.0 fyrir Windows og Macintosh, 14 klst. Word 2.0 fyrir Windows og Macintosh, 14 klst. Windows 3.1, 8 klst. PC grunnnámskeið, 16 klst. Innifaldar eru nýjar ísienskar bækur. Jólafrímerki Ný jólafrímerki koma út á morgun 9- nóvember. Fyrstadagsumslög fást stimpluö á pósthúsum um land allt. Einnig fást þau með pöntun frá Frímerkjasölunni. posrafflL PÓSTUR OG SÍMI Pósthólf 8445, 128 Reykjavik, Simi 63 60 51 8 i tr Blóðlaus blóðsugubrandari Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Sagabíó: Blóðsugubaninn Buffy “Buffy - The Vampire Slayer“ Leikstjóri Fran Rubel Kuzui. Aðalleikendur Kristy Swan- son, Luke Perry, Donald Sut- herland, Rutger Hauer. Bandarísk. 20th Century Fox 1992. Þessi afspymulélegi blóðsugu- banabrandari reynir af nánast engum mætti að feta í fótspor vampírugamanmynda, en jafnvel George Hamilton gekk betur. Buffyer nánast klúður enda sag- an blóðlaus. Með hjálp Suther- lands, hins eilífa hjálparmanns vampímdrápara, kemst klapp- stýran Buffy að því að hún er borin í hlutverk næsta blóðsugu- bana hér á jörð. Og ekki veitir af því þessi ófélegi stofn virðist í miklum uppgangi í myndarbyrj- un. Það er ráðlegt að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá þeim sýn- ingarsölum sem hýsa Buffy og blóðsugumar. Því hér emm við rétt við botninn á skemmti- myndaiðnaðinum og í rauninni útilokað að sjá nokkra vitglóru í framleiðslu myndar sem þessar- ar. Eina ástæðan fyrir tilveru hennar er líklega vinsældir sjón- varpsstjörnunnar Perry sem er puntaður uppí annað aðalhlut- verkið. En hetjum litla skjásins hættir við að gleypa alt hrátt til að komast á hvíta tjaldið og mætti Perry hafa hugfast að sú er einnig ástæðan fyrir lánleysi þeirra í bíómyndum. Annars virðist hér enn ein eftiröpunin af James Dean mættur á svæðið með lítið annað en snöfurlegt útlit í trússinu. En það verður ekki dæmt um leikræna hæfi- leika hans eftir frammistöðu hans hér. Frekar en hinnar bráð- fallegu Swanson, slíkt væri í hæsta máta ósanngjamt! Og ekki ríða gömlu garparnir Sut- herland og Hauer, feitari hesti frá garði. Náms- og Rannsðknarstyrkur Rannsóknir á áli Með samningi við Alusuisse o.fl. mun rannsókna- verkefni á sviði áltækni hefjast í ársbyrjun 1993. Markmið verkefnisins er að rannsaka eðlis- og efna- fræði títan-bór samsöfnunar og áhrif hennar í álfram- leiðslu. í fyrsta áfanga verkefnisins mun íslenskur stúdent hljóta styrk til meistaranáms á þessu sviði við Háskóla íslands. Möguleiki er á doktorsverkefni í næsta skrefi. Gert er ráð fyrir að nokkur hluti verk- efnisins feli í sér náms- og rannsóknadvöl í Sviss og Bretlandi. Höfuðstöðvar verða við Raunvísinda- stofnun Háskólans. Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi í málmfræði, eðlisfræði, efnafræði, vélaverkfræði eða skyldum greinum. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og stað- festum prófskírteinum skulu sendar til dr. Þorsteins I. Sigfússonar prófessors, Raunvísindastofnun, Dun- haga 3, 107 Reykjavík, fyrir 15. nóvermber. Axel Ingólfsson og Magnús Hv. Hannesson fyrir utan efnalaug- ina Hvíta svaninn, Hringbraut 119. Ný efnalaug á Hring- braut119 NÝLEGA opnuðu Axel Ingólfs- son og Magnús Hv. Hannesson efnalaug í vesturbænum á Hring- braut 119, fyrir ofan JL-húsið. Efnalaugin Hvíti svanurinn sf. er búin nýjum og umhverfísvænum tæknibúnaði frá Ítalíu og hefur Vinnueftirlit ríkisins staðfest að hann standist ströngustu kröfur um umhverfisvernd. Auk almennra hreinsana og venjulegs þvottar er unnt að láta vatnsveija flíkur í Hvíta svaninum og einnig er boðið upp á fatavið- gerðir og sérmeðhöndlun á við- kvæmum fatnaði. Hvíti svanurinn er opinn virka daga frá 7.30-18.30 og frá 10 til 14 á laugardögum. Wterkur og kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Hótel íslandi, í dag, sunnudag 8. nóvember kl. 15 til 17 Fimmtán ára afmælishátíð SÁÁ verður haldin á Hótel íslandi f dag, sunnudag 8. nóvember. Á dagskrá verða ræðuhöld, skemmtiatriði, ávarp ráðherra, frumsýning á nýju merki SÁÁ, kaffiveitingar og fleira. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis en greiða þarf fyrir kaffiveitingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.