Morgunblaðið - 11.11.1992, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992
í
ARSALIR hf.
Fasteignasala
Borgartúni 33 - 105 Reykjavik
C 62 43 33
2 Björgvin Björgvinsson, fasteignasali,
< Sigurður Ingi Halldórsson, hdl.,
a Björn Jónsson, hdl.
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
< --------------------
Gata Stærð Verð
Lækjarhjalli 2ja herb. 5,7
Rauðarárstígur 2ja herb. 7,9
Reykás 2ja herb. 6,9
Flókagata 2ja herb. 4,4
Foldahverfi 2ja herb. 5,9
Álfhólsvegur 3ja herb. 6,6
Hamraborg 3ja herb. 6,2
Hjallavegur 3ja herb. 5,9
Lundarbrekka 3ja herb. 6,9
Rauðarárstígur 3ja herb. 6,7
Hamrahlíö 3ja herb. 6,7
Leifsgata 4ra herb. 8,8
Melabraut 4ra herb. 7,9
Nónhæð-nýjar íb. 4ra herb. 7,9
Traðarberg-nýjar íb. 8
Seilugrandi 4ra herb. 9,7
Hrísrimi 4ra herb. 9,7
Bæjargil 5 herb. 13,9
Digranesvegur 5herb. 9
Gerðhamrar 5 herb. 11,8
Grasarimi-ný íb. 5 herb. 8,5
Laxakvísl 5 herb. 10,1
Keilugrandi 5 herb. 10,5
Laugarásvegur 5 herb. 10,8
Akrasel 6 herb. 18,1
Birkigrund 6 herb. 12,4
Foldarsm.-ný raðh. 8,2
Fornistekkur 6 herb. 15
Urriðakvísl 6 herb. 18,2
Æsufell 6 herb. 9,8
Ásbraut 6 herb. 13,5
Holtasel 6 herb. 15,8
Granaskjol 8 herb. 15,8
Seltj.-nýtt einb. 22,2
Seltj.-ný raðh. 17,5
Óskum eftir öllum
stærðum fasteigna á
skrá. Skoðum og verð-
metum samdægurs.
624333
Sinfóníuhljómsveit Islands
Fyrstu tónleikar í
grænni áskriftarröð
FYRSTU tónleikar í grænni
áskriftarröð Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands verða fimmtudaginn
12. nóvember. Sljómandi tón-
leikanna verður Guðmundur Oli
Gunnarsson, en einleikari Zheng-
Rong Wang fiðluleikari frá Kína.
A efnisskrá verða eftirtalin verk:
Gioacchino Rossini: Forleikurinn að
Vilhjálmi Tell; Max Bruch: Fiðlu-
konsert í g-moll; Ludvig van Beet-
hoven: Sinfónía nr. 5, Örlagasinfón-
ían.
í fréttatilkynningu segir að þess-
um tónleikum verði þjófstartað mið-
vikudaginn 11. nóvember, þegar
haldnir verða Háskólatónleikar.
Samvinna hefur verið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og Háskólanum
um að halda að minnsta kosti
tvenna tónleika árlega fyrir Há-
skólastúdenta, sem geta þá keypt
miða á niðursettu verði.
Hljómsveitarstjórinn, Guðmund-
ur Óli Gunnarsson, stundaði nám í
hljómsveitarstjóm í Hollandi og eft-
ir það framhaldsnám meðal annars
undir handleiðslu hins þekkta kenn-
ara Jorma Panula. Guðmundur hef-
ur fengist mikið við hljómsveitar-
stjórn og kórstjórn síðan hann lauk
námi. Hann stjórnaði meðal annars
uppfærslu Operusmiðjunnar á „La
Boheme" eftir Puccini í Borgarleik-
húsinu í fyrravor. Guðmundur ?r
félagi í CAPUT-hópnum og hefur
stjórnað þeim víða. Haustið 1992
var hann ráðinn skólastjóri við Tón-
listarskóla Akureyrar. Hann er
Dalbrekka - Kóp.
Ca 123 fm iðanðarhúsnæði ásamt 70 fm millilofti. Loft-
hæð 4,9 m. Góðar innkeyrsludyr. Malbikuð bílastæði.
Verð 5,2 millj. Hagstæð kjör.
ÞIXGIIOLT
Suðurlandsbraut 4A,
ífj
sími 680666
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSS0N FRAMKVÆMDASTJÓRI
KRISTINNSIGURJ0NSS0N. HRL.loggilturfasteígnasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Skammt frá Rússneska sendiráðinu
ein af þessum vinsælu sérhæðum í gamla, góða vesturbænum nánar
tiltekið 5 herb. efri hæð 125 fm nettó í þríbhúsi. Hiti og inng. sér.
Gott geymsluris fylgir. Bílsk.
Á betra verði við Egilsgötu
endurn. neðri hæð 4ra herb. tæpir 100 fm í þríbhúsi. Góð endurbætt
sameign. Langtlán kr. 2,1 millj. Tilboð óskast.
Fyrir smið eða laghentan
2ja herb. einstaklíb. á 1. hæð v. Gautland um 50 fm.
2ja herb. samþ. kjíb. v. Holtsgötu um 65 fm.
íb. eru lausar strax, skuldlausar, innr. af eldri gerð. Mjög gott verð.
Nýleg sérhæð í tvíbhúsi
neðri hæð 4ra herb. 104,3 fm nettó í „litla Skerjafirði“. Gott skipul.
Allt sér. Frág. lóð. Góður bílsk. Laus fijótl.
Glæsileg sérhæð - öll eins og ný
Neðri hæð 6 herb. um 140 fm skammt frá Menntask. v. Hamrahlíð.
Allt sér. Forstherb. m. sérsnyrtingu. Góður bílsk. Teikn. á skrifst.
Á söiuskrá óskast m.a.
góðar 3ja, 4ra og 5 herb. íb. Einbhús á einni hæð í borginni og nágr. íb.
í gamla bænum sem mega þarfn. standsetn. Sérstakl. óskast 2ja-3ja
herb. íb. í Kóp., Gbæ og Hafnarf.
• • •
Viðskiptum hjá okkur fylgir
ráðgjöf og traustar uppl.
Almenna fasteignasalan sf.
var stof nuð 12. júlí 1944.
AIMENNA
FASTEI6HASA1AH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
jafnframt stjómandi Kammer-
hljómsveitar Akureyrar.
Einleikari á tónleikunum átti að
vera Auður Hafsteinsdóttir, en hún
varð fyrir því óhappi að togna illa
á hendi. í hennar stað var fengin,
með aðeins viku fyrirvara, ung kín-
versk stúlka, Zheng-Rong Wang.
Zheng-Rong Wang var á sjötta
ári þegar henni var veitt innganga
í Tónlistarskólann í Peking. Ung
að árum flutti hún til Bandaríkj-
anna og stundaði nám þar hjá Rom-
an Totenberg við Tónlistarskólann
í Boston. þar sem hún lauk prófi
með láði.
Zheng-Rong Wang hefur frá 14
ára aldri unnið hveija fiðlukeppina
á fætur annarri, meðal annars vann
hún til fyrstu verðlauna í LEXUS-
keppninni á Nýja Sjálandi, þar sem
Sigrún Eðvaldsdóttir vann einnig
til verðlauna. Hún hefur komið fram
sem einleikari með helstu hljóm-
sveitum í Bandaríkjunum, á Eng-
Zheng-Rong Wang fiðluleikari
verður einleikari á tónleikunum.
landi og Nýja Sjálandi.
Sinfóníuhljómsveitin mun leika
sömu efnisskrá á tónleikum í
Grindavík 14. þessa mánaðar.
Vegna beinna útsendinga Ríkis-
útvarpsins frá tónleikum hljóm-
sveitarinnar í vetur eru tónleika-
gestir vinsamlegast beðnir um að
Guðmundur Óli Gunnarsson
hljómsveitarsljóri.
athuga, að tónleikarnir hefjast
stundvíslega kl. 20.00. Af þeirri
ástæðu verður dyrum tónleikasalar
lokað um leið og tónleikarnir hefj-
ast. Tónleikagestir sem koma of
seint, geta því ekki komist í sæti
sín fyrr en að loknum flutningi
fyrsta verks tónleikanna.
Rauðhærði riddarinn
Leiklist
Hávar Sigurjónsson
Verslunarskólinn: Leikfélagið
Allt milli himins og jarðar
Hvenær kemurðu aftur, rauð-
hærði riddari?
Höfundur: Mark Medoff
Þýðandi: Stefán Baldursson
Leikstjóri: Þorsteinn Bachman
Leikendur: Arnar Arnarsson,
Regína Böðvarsdóttir, Jakob
Ingimundarson, Jóna Valborg
Árnadóttir, Valgerður Guðrún
Guðnadóttir, Jón Svanur Jó-
hannsson, Róbert Aron Magnús-
son, Þórunn Guðmundsdóttir.
Það er að ýmsu leyti vel til fund-
ið hjá leikklúbbi Verslunarskólans
að velja Rauðhærða riddarann sem
viðfangsefni. Þetta er efnismikið
og spennandi leikrit, þrungið of-
beldi og orðfærið er ekki alltaf par
fallegt. Þannig séð hefur það ýmis-
legt til að bera sem „trekkir" og
greinilegt að margt krassandi féll
í góðan jarðveg hjá áhorfendum á
þeirri sýningu sem undirritaður
fylgdist með á sunnudagskvöldið.
Sviðið er í stuttu máli þetta; í
gömlum niðurníddum veitinga-
vagni við hraðbraut í Nýju Mexíkó
51500
Maríubakki - Rvík
Til sölu góð 3ja herb. íb. á 1.
hæð. Herb. fylgir í kj.
Hafnarfjörður
Ölduslóð
Til sölu tvær hæðir samtals ca
215 fm auk bílsk. á þessum vin-
sæla stað. Fráb. útsýni. Allar
nánari uppl. á skrifst.
Laufvangur
Góð 4-5 herb. ca. 115 fm íb. á
2. hæð í sex íbúða stigahúsi.
Áhv. ca. 2 millj.
Hjallabraut
Góð 4-5 herb. íb. á 1. hæð.
Trönuhraun
Til sölu gott rúml. 300 fm skrifst-
húsn. Hentar vel fyrir félagasam-
tök eða sem kennsluaðstaða.
Allar nánari uppl. á skrifst.
Vantar \
Vantar gott einb. í Hafnarfirði
fyrir fjársterkan aðila, helst í
skiptum f. glæsilega hæð og ris
í Hafnarf. Milligjöf staðgreidd.
Allar nánari uppl. á skrifst.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3,2. hæð, Hfj.,
símar 51500 og 51601
vinna Stephen og Angel. Þau eru
á tvítugsaldri, hann þráir að kom-
ast burt en hefur ekki burði í sér
til þess, hún er nægjusamari og
virðist tilbúin að sætta sig við flest.
Fastagestur þeirra er Lyle gamli
sem rekur gistihús og bensínsölu
handan götunnar. Þá er það Betty
sem rekur veitingavagninn með
harðri hendi og birtist í upphafi
og enda verks. Inn í veitingavagn-
inn slæðast svo tvenn pör á ferða-
lagi; Richard og Clarisse, hún vel
þekktur fiðluleikari, hann eins kon-
ar meðreiðarsveinn og umbi. Hitt
parið, Teddy og Cheryl, eru af
öðru sauðahúsi og það líða ekki
margar mínútur þar til Teddy tek-
ur stjórnina og byrjar að ógna fólk-
inu í veitingavagninum.
Ég sagði að leikritsvalið væri
vel til fundið, en það er sagt með
þeim fyrirvara að leikstjóri og leik-
endur geri sér góða grein fyrir
því, að það sem gerir þetta leikrit
einhvers virði er ekki grátt gaman-
ið, ofbeldið og klámfengið orð-
bragðið í sjálfu sér, heldur sá jarð-
vegur sem það er sprottið úr og í
hvaða samhengi það er skrifað.
Rauðhærði riddarínn er á vissan
hátt afskaplega amerískt verk, það
flallar um örlög kynslóðarinnar
FASTEIGNASALA
Suöurlandsbraut 10
Ábyrgð - Reynsla - Öryggi
Hilmar Valdimarsson.
SÍMAR: 687828 OG 687808
UÓSHEIMAR
Vorum aö fá í sölu mjög góöa 3ja
herb. 83 fm íb. á jaröh. Suðursvalir.
Góö lán áhv.
ÁLFTAMÝRI
Til sölu góö 3ja herb. endaíb. á 4.
hæö. Suöursvalir. Áhv. 2,3 millj.
húsnstjlán.
HRAUNBÆR
Mjög góö 4ra herb. ib. á 2. hæö.
Sérþvhús í kj.
REYKÁS
Til sölu 5 herb. 153 fm íb. hæö og ris
í þriggja hæða húsi. Parket og marm-
araflísar á gólfum. Laus nú þegar.
Skipti á minni eign mögul.
VESTURBERG
Vorum að fá í sölu raðh. á tveimur
hæöum ásamt bílsk. samt. 170 fm.
Frábært útsýni. Góö lantl. áhv. Skipti
á 4ra herb. íb. mögul.
DÍSARÁS
Raðh. 170 fm auk 42 fm tvöf. bílsk.
Góöar innr. Arinn i stofu. Mögul. á 6
svefnh. Góð langtl. Eignask. mögul.
LÆKJARTÚN - MOS.
Vorum að fá i sölu einbhús 136 fm.
52 fm tvöf. bilsk. 1000 fm verðlauna-
lóð. Mikið endurn. og falleg eign.
Hilmar Valdimarsson,
SigmundurBöðvarssonhdl.,
Brynjar Fransson.
sem barðist fyrir Bandaríkin í Víet-
nam og sýnir á harðneskjulegan
hátt að mjúkar hugmyndir um ’68
kynslóðina svokölluðu stóðust ekki
nema að litlu leyti, ef horft var
annað í Bandaríkjunum en til Wo-
odstock og blómabarnanna. Rit-
unartími verksins er einnig mikil-
vægur; það er frumsýnt 1973 -
rétt um það bil er Bandaríkjamenn
hættu þátttöku í Víetnamstríðinu
- og er því eitt af fyrstu verkunum
sem fjallaði um þetta efni og náði
verulegri athygli. Verkið hlaut
margvíslegar viðurkenningar og
var sýnt víða um Bandaríkin árin
þarna á eftir.
Allt skiptir þetta máli ef setja á
atburðarás og persónur þessa sárs-
aukafulla verks í eitthvert vitrænt
samhengi. Það er kannski ekki
hægt að ætlast til þess, að ungling-
ar sem ekki þekkja þessa sögu
nema af afspurn og úr kvikmynd-
um síðari ára, hafi fullan skilning
á því sem þau eru þarna með í
höndunum. En það er hægt að
ætlast til þess að leikstjórinn sem
ráðinn er til að leiða hópinn í gegn-
um svona erfitt verk, sé vandanum
vaxinn og fari með hópinn í rann-
sóknarleiðangur um innviði og
bakgrunn verksins, þannig að út-
koman verði annað og meira en
grunnfærin - og á köflum ábyrgð-
arlaus - útfærsla á söguþræði. Það
fylgir því nefnilega töluverð
ábyrgð að leikstýra opinskáum og
„sterkum" leikritum, ekki síst þeg-
ar um er að ræða hóp af ungu
fólki, sem hefur litla reynslu af
slíkri vinnu.
Hins vegar er greinilegt að hóp-
urinn hefur lagt mikla vinnu í alla
umgjörð sýningarinnar og gaman
að sjá hversu mikil alúð hefur ver-
ið lögð við ýmis smáatriði í leik-
myndinni. Samt má kannski benda
á til umhugsunar að góð innrétting
verður ekki alltaf góð leikmynd í
öllum tilfellum, þó raunsæið eigi
að ráða ferðinni.
Eins og ráða má af ofansögðu
er talsvert langt frá því að leikend-
ur komi öllu til skila sem felst í
þessu leikriti, en sumt er ágætlega
gert og nefni ég sérstaklega leik
þeirra Valgerðar Guðrúnar og Jóns
Svans í hlutverkum Clarisse og
Richards. Róbert Aron í hlutverki
Teddys átti ágæta spretti, en missti
þess á milli þráðinn svo raunveru-
leg sköpun þessarar flóknu per-
sónu var nokkuð langt undan.
Leikstjórinn hefði einnig mátt
leggja meiri alúð við textameðferð
Arnars og Róberts; það hefði hjálp-
að þeim ef þeir hefðu verið brems-
aðir betur niður í hraðmælskunni
sem er oft einkenni á talanda hjá
unglingum.