Morgunblaðið - 11.11.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992
Píanótónleikar
________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Jónas Ingimundarson i píanó-
leikari hélt tónleika í Norræna
húsinu sl. mánudag á vegum
Epta, sem er skammstöfun fyrir
Evrópusamband píanókennara.
Jónas hefur unnið merkilegt starf
í skólum landsins, verið ólatur að
kynna tónlist og er öðrum tónlist-
armönnum fremri og góð fyrir-
mynd hvað það varðar. Tónleik-
arnir báru þess merki að vera
hugsaðir að hluta til sem kennslu-
efni fyrir unga og óreynda hlust-
endur, því þrátt fyrir að efnisskrá-
in væri ákveðin en prentaða gerð
hennar ekki afhent fyrr en að
loknum tónleikunum, uppfærði
Jónas tónleikana sem þeir væru
„leiknir af fingrum fram“ og
kynnti verkin, svo sem eins og
honum dytti í hug á staðnum,
hvað væri best að leika. Jónasi
tókst þessi aðferð vel og kom al-
vörugefnum hlustendum oft til að
brosa og í raun að bijóta upp
þögult og þungbúið hlustunar-
hlutverk hljómleikagesta.
Tónleikarnir hófust á tilbrigð-
um Mozarts yfir A,b,e,d, sern Jón-
as lék i heild fallega. A eftir fylgdi
menúetti Paderewskis, þá kvöld-
lokkar eftir Moszkowsksi, Spila-
dósin eftir Ljadow og prelúdía
eftir Rachmaninov. Allt eru þetta
falleg tónverk og þarf að leika
þau sérlega vel, svo sem eins og
Jónas gerði, sérstaklega þijú
síðstnefndu verkin. Fyrri hluta
tónleikanna lauk Jónas með As-
dúr píanósónötunni op. 26 eftir
Beethoven. Ólíkt því sem Jónas
leikur hvað fallegast með, þ.e.
ýmis fínleg blæbrigði, þá var
heildarsvipur sónötunnar grófari
en búast hefði mátt við frá hendi
Jónasar, t.d. í tilbrigðunum og
einnig í sorgarmarsinum, sem var
í hraðara lagi og vantaði því hinn
þungbúna sorgargöngutakt, sem
Beethoven var snillingur í að út-
færa. í Sherso-kaflanum gætti of
mikillar notkunar pedals og varð
þessi sérkennilegi þáttur svolítið
bólginn, þar sem hins vegar fer
vel á að bæla niður spennuna og
láta hana ekki bijótast út fyrr en
undir lokin í seinni hluta menú-
ettsins.
Seinni hluti tónleikanna var
byggður upp á sama hátt og fyrir
hlé, en með íslenskum píanóverk-
um, sem eiga erindi til ungra
hlustenda, og voru það tvö lög
úr Dimmalimm eftir Atla Heimi
Sveinsson, Barnalagaflokkurinn
eftir Leif Þórarinsson og Tón-
leikaferðir, lagaflokkur eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson. Öll þessi
skemmtilegu verk flutti Jónas
mjög vel, sérstaklega þó Barna-
lagaflokk Leifs.
Tónleikunum lauk með sónötu
í Es:dúr op. 31 nr. 3 eftir Beethov-
en. í þessari sónötu er margt sér-
kennilegt að heyra, eins og t.d.
hljómskipan aðalstefsins, sem
hefst á II. sæti, er gerir það sér-
kennilega leitandi. Jónas lék
þennan kafla vel, en bestur var
hann í „stakkato“-kaflanum
fræga, Scherzo-þættinum, sem
Jónas Ingimundarson
hann lék frábærlega vel. Upphaf-
lega voru skersókaflarnir breyting
sem Beethoven gerði á menúettin-
um, en í þessari sónötu eru bæði
skérsó (í sónötuformi) og menúett
og það sem meira er, meúettinn
er smálega breyttur hvað snertir
endurtekningar og tónrænt irini-
hald, t.d. er fyrsti kaflinn (menú-
ett I) í raun 16 takta ljóðrænt
sönglag. Lokakaflinn er erfiður,
bæði hraður og jafnframt hryn-
rænt erfiður og þar var leikur
Jónasar ekki ávallt í jafnvægi og
á köflum órólegur. I heild voru
þetta skemmtilegir tónleikar,
gæddir ýmsu því sem Jónas leikur
hvað best með og ber auk þess
vott um hversu fegurð tónlistar-
innar er honum mikilsverð og ríkri
þörf hans til að gefa öðrum með
sér af þessum auði.
Arkitektafélag fslands
Hörður Agústsson listmál-
Gunnar Guðbjöms-
son á opnunartónleik-
um í Wigmore Hall
Gunnar Guðbjörnsson tenór-
söngvari mun koma fram á
Galatónleikum í Wigmore Hall
í Lundúnum á morgun, fimmtu-
daginn 12. nóvember. Tilefni
tónleikanna er opnun tónlistar-
hússins, en það hefur verið lok-
að í eitt ár vegna viðgerða.
Tónleikarnir eru tileinkaðir
Shakespeare á þann hátt að textar
eru allir eftir hann. Sextán ein-
söngvarar koma fram á tónleikun-
um; meðal annars Barbara Bonney
sópran, Margaret Price sópran,
Sarah Walker mezzósópran, Philip
Langridge tenór og Francois Le
Roux barítón. Við píanóið eru Ge-
offrey Parsons og Graham John-
son.
Gunnar mun á þessum tónleik-
um syngja tvö lög eftir Síbelíus
við texta eftir Shakespeare og-taka
þátt í flutningi á Serenade ,eftir
R. Vaughan Williams og Finale
úr Falstaff, eftir Verdi.
Gunnar mun einnig taka þátt í
söngtónleikaröð Norrænu Menn-
ingarhátíðarinnar „Tender is the
North“. Tónleikaröðin verður einn-
ig í Wigmore Hall. Meðal söngvara
á hátíðinni eru Elisabeth Söd-
erström sópran, Karita Mattila
sópran, Olaf Bár barítón og Jorma
Hynninen barítón. Tónleikar Gunn-
ars verða 27. nóvember og mun
hann þá flytja verk eftir íslensk
tónskáld og ljóð eftir Schubert,
Strauss og Síbelíus. Við píanóið
verður Jónas Ingimundarson.
Þann 22. nóvember syngur
Gunnar í „Missa solemnis„“ eftir
Beethoven með Kammersveitinni í
Frankfurt. Hann hefur nýlega end-
urnýjað samning sinn við óperuna
í Wiesbaden til tveggja ára.
Gunnar Guðbjörnsson
Síðustu sýnin g-
ar á Uppreisn
Sýningum íslenska dansflokksins
á UPPREISN fer senn að ljúka.
Að sögpi forráðamanna dans-
flokksins hefur sýningunni verið
mjög vel tekið, en í henni eru sýnd-
ir þrír ballettar eftir jafnmarga
danshöfunda.
Fyrsta verkið á sýningunni er
glettinn íþróttaballett þar sem dans-
ararnir dansa tii dæmis fótbólta,
karate og skautadans, annað verkið
er Notturno eftir William Soleau en
sá ballett er saminn sérstaklega fyr-
ir íslenska dansflokkinn. Þriðji ball-
ettinn er rómantískt verk með söngv-
um Edith Piaf eftir. danshöfundinn
Stephen Mills.
Næstu sýningar verða í kvöld,
miðvikudaginn 11. nóvember,
fimmtudaginn 19. nóvember og síð-
asta sýning fimmtudaginn 26. nóv-
ember. Miðasala er í Þjóðleikhúsinu.
ari kjörinn heiðursfélagi
I TILEFNI af sjötugsafmæli Harð-
ar Agústssonar listmálara þriðju-
daginn 4. febrúar 1992 var hann
kjörinn heiðursfélagi í Arkitekta-
félagi Islands á seinasta aðalfundi
félagsins.
Hörður Ágústsson hefur starfað
sem myndlistarmaður, kennari og
fræðimaður um íslenska byggingarl-
ist. í umsögn frá Arkitektafélagi ís-
lands segir: „Hörður hefur verið
brautryðjandi á öllum sínum starfs-
sviðum. Hann hóf rannsóknir á ís-
lenskri byggingarlist fyrir rúmum
þremur áratugum að áeggjan Krist-
jáns Eldjárns og hefur haldið þeim
áfram sleitulítið.
Hörður fjallar um íslenska bygg-
ingarhefð sem listamaður. Hann
skoðar og skýrir byggingarlist og
byggingarhefðir í ljósi listræns skiln-
ings. Hann varpar ljósi á þætti menn-
ingarsögu okkar sem huldir hafa
verið myrkri pg skyggnist lengra
aftur í fortíð en áður hefur verið
gert. Vegna þekkingar Harðar á
menningarsögu Evrópu og reynslu
hans af listsköpun og kennslu er
Hörður Ágústsson listmálari
hann þess megnugur að framreiða
fomar byggingarhefðir okkar sem
girnilegar krásir, þar sem aðrir sáu
áður aðeins úldinn graut.“
Ennfremur segir að auk fræði-
starfa um íslenska byggingarlist hafí
Hörður unnið ötullega að varðveislu
byggingararfs þjóðarinnar á hveijum
vettvangi sem gefíst hefur. Hann
átti dijúgan þátt í því að þjóðminja-
lög voru aukin og bætt við þau kafla
um húsafriðun, að húsafriðunar-
nefnd tók til -starfa og Húsafriðunar-
sjóður var stofnaður. Hörður tók
þátt í stofnun og stjóm Torfusamtak-
anna og hefur verið í fararbroddi
íslenskrar húsvemdar í þijá áratugi.
Enn segir að Hörður hafi með ein-
stöku framlagi sínu til íslenskrar
byggingarlistasögu lagt grunninn að
menntun íslenskra arkitekta framtíð-
arinnar. Til að votta Herði þakklæti
fyrir framlag hans til íslenskrar
byggingarlistar hafa félagar í Arki-
tektafélagi íslands einróma kosið
hann heiðursfélaga sinn.
Viimustofusýn-
ing í Hafnarfirði
Fimm myndlistarkonur úr Hafnar-
fírði og Kópavogi hafa um skeið rek-
ið sameiginlega vinnustofu á Hellu-
hrauni 16 í Hafnarfirði (á efri hæð
Húsasmiðjunnar). Þær eru Erla Sig-
urðardóttir, Sigrún Sveinsdóttir,
Guðrún Sigurðardóttir, Katrín Páls-
dóttir og Steindóra Bergþórsdóttir.
Allar hafa þær að baki nám úr viður-
kenndum myndlistarskólum hérlend-
is og erlendis. Myndlistarkonumar
vinna með blýant, olíu, vatnslit og
gler. Opnunartími vinnustofunnar
hefur verið óreglulegur fram til
þessa, en til jóla verður hún opin
alla laugardaga frá kl. 10-16 og þar
verður ýmiss konar listvamingur til
sýnis og sölu.
ISLENSKA OPERAN
= Prufusöngur
Þann 30. nóvember nk. fer fram prufusöngur fyrir einsöngv-
ara og kórsöngvara, sem óhuga hafa ó að koma sér ó fram-
færi vió íslensku óperuna, kynna sig eóa lóta endurmeta.
Einsöngvarar þurfa að syngja tvær ólíkar aríur úr óperum.
Kórsöngvarar komi meó tvö ólík verkefni.
Umsóknir berist Islensku óperunni skriflega eða símleióis
eigi síóar en 24. nóvember nk.
Morgunverðarfundur
fösfudaginn 13. nóvemberl 992
kl. 08.00 - 09.30, I Áfthqgasal Hólels Sögu
EVRÓPA OG TAIWAN
• Á ÍSLAND TÆKIFÆRI ÞAR?
Fjndurinn fjallar sérstaklega um viðskipti milli Taiwan og
Evrópulanda, í nútíð og næstu framtíð.
Við spyrjum m.a. hvort við gætum átt jpar hlutverki
að gegna.
En veltum að sjálfsögðu jafnframt fyrir okkur beinum
viðskiptakostum gagnvart Taiwan og Asíu.
Gestur fundarins og frummælandi
verður C.P. Chang forstjóri
Euro-Asian Trade Organization á
Taiwan - EATO.
Frummælandinn, C.P. Chang, hefur
frá um J 970 m.a. verið opinber
viðskiptaráðgjafi á erlendum vettvangi,
framkvæmdastjóri Ferðamálaráðs Taiwan,
sendifulltrúi í Washington D.C., og frá
1980 hefur hann verið starfsmaður og nú síðast
forstjóri EATO. En EATO er sjálfstæð samtök í viðskipta-
lífi Taiwan til eflingar viðskipta við Evrópu á sviði iðnaðar,
verslunar og fjárfestingar.
Fundurinn er opinn en tilkynna verður fyrirfram
um þátttöku í síma VÍ, 676666 (kl. 08-16)
Þátttökugjald með morgunverði kr. 1.000.
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS