Morgunblaðið - 11.11.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992
19
Matthías Viðar Sæmundsson
Fundur um
galdra
á Islandi
Félag íslenskra fræða stend-
ur fyrir fundi í kvöld, miðviku-
dag, kl. 20.30 í Skólabæ við
Suðurgötu. Þar mun Matthías
Viðar Sæmundsson flylja er-
indi um væntanlega bók sína,
Galdrar á íslandi, en hún inni-
heldur m.a. galdrahandrit sem
er einstök heimild um galdra
eins og þeir voru iðkaðir hér-
lendis á 17. öld.
Á handrit þetta sér raunar
enga hliðstæðu í Norður-Evrópu,
enda var slíkum ritum útrýmt af
fremsta megni í galdrafári 17.
aldar. Hér á landi varð hópur
fólks eldinum á bráð fyrir þær
sakir einar að hafa galdrarit á
borð við þetta í fórum sínum. í
erindi sínu ijallar Matthías Viðar
um galdra hér á landi og í alþjóð-
legu samhengi, heiðnar rætur og
og átök sem urðu í íslensku þjóð-
félagi eftir siðaskiptin og á 17.
öld, en þá var heiðinni þjóðmenn-
ingu tortímt með báli og brandi
að hans mati. Jafnframt því skýr-
ir hann noktfra forna galdra, rök-
hugsun þeirra, táknmál og meint-
an áhrifamátt.
----» » 4---
Eignarhaldsfélag
Alþýðubankans
Samþykkt
að breyta
hlutverki
félagsins
TILLÖGUR stjórnar Eignar-
haldsfélags Alþýðubankans um
breytt hlutverk félagsins voru
samþykktar á hluthafafundi
um helgina. Samkvæmt því er
hluthöfum heimilt að skipta út
hlutabréfum í Eignarhaldsfé-
laginu fyrir hlutabréf í íslands-
banka.
Þá verður fjárfestingarstefnu
félagsins breytt þannig aðfjárfest
verði í fleiri félögum en íslands-
banka. Einnig verður væntanlega
ráðist í hlutafjáraukningu til að
gefa aukið svigrúm til kaupa á
hlutafé í öðrum fyrirtækjum,
samkvæmt upplýsingum Ás-
mundar Stefánssonar, stjórnar-
formanns Eignarhaldsfélagsins.
Borgarráð
Borg-arstjóri áminnir emb-
ættismaim fyrir brot í starfi
MARKÚS Örn Antonsson borgarstjóri hefur áminnt Björn L. Halldórs-
son forstöðumann Skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar, fyrir brot í
starfi, vegna aðildar hans að samningi við fimm verktaka um lóð-
arfrágang við Seljaskóla í Breiðholti. Einn verktakanna er sonur
forstöðumannsins og tveir þeirra eru synir stjálfstætt starfandi verk-
fræðings og eins af hönnuðum skólans. Bréf borgarstjóra ásamt grein-
argerð forstöðumannsins varðandi samninginn og skýrsla borgarend-
urskoðanda var lagt fram á fundi borgarráðs í gær.
í greinargerð Björns Halldórsson-
ar kemur fram, að á undanförnum
árum hafi minni háttar viðhald skóla-
lóða í borginni, verið unnið af Vinnu-
skóla Reykjavíkur en stærri verk af
verktökum eða starfsmönnum borg-
arinnar. Skólaskrifstofan hafi fyrir
um áratug komið á fót sérstökum
sumarvinnuhópi undir stjórn starfs-
manns skrifstofunnar til að annast
verk sem Vinnuskólinn réði ekki við.
Þar til fyrir tveimur árum hafi sá
háttur verið á en þá lét umsjónar-
maðurinn af störfum. Frá þeim tíma
hefur hópurinn starfað sjálfstætt
aðallega samkvæmt tilboðum í ein-
stök verkefni eða samkvæmt tíma-
gjaldi.
Unnið hefur verið við frágang lóð-
ar Seljaskóla í áföngum frá árinu
1978. Við lokafrágang var ákveðið
að taka ekki síðasta innigarðinn í
heildarútboð vegna eðlis verksins,
sem að mestu varð að vinna í hönd-
unum og flytja varð allt efni í hjólbör-
um í gegnum húsið. „Áður gerðan
innigarð í Seljaskóla vann vinnu-
flokkur undir stjórn starfsmanns
Skólaskrifstofu og var nú ákveðið
að leita til þeirra er öðlast höfðu
reynslu við þá framkvæmd. Gerðu
þeir fast tilboð í verkið að upphæð
kr. 1.430.608,-, virðisaukaskattur
meðtalinn. Þegar þetta tilboð lá fyrir
voru einingarverð borin saman við
einingarverð í verðbanka borg-
arverkfræðings og að svo miklu leyti
sem unnt var að fá samanburð og
að teknu tilliti til aðstæðna við fram-
kvæmd' verksins var talið að tilboðið
væri viðunandi."
Skólastjóri óskað eftir að svæði
við eitt húsanna yrði hellulagt og var
leitað eftir verði hjá þeim sem unnu
við frágang innigarðsins. Tilboð
þeirra var 1.177.944,- virðisauka-
skattur meðtalinn. Samningurinn
sem gerður var um framkvæmdirnar
var því samtals 2.608.552,-. „Vinnu-
flokkurinn varð á eigin kostnað að
sjá sér fyrir áhöldum og tækjum, sem
þurfti til verkanna, svo sem steinsög,
þjöppum o.fl. Samninginn undirritaði
ég f.h. verkkaupa og sjálfstætt starf-
andi verkfræðingur, sem er einn af
hönnuðum skólans, en hann stað-
festi einingarverð og magntölur.“
Verkin voru unnin á sex vikna
tímabili og voru laun að meðaltali
69.800 krónur á viku. Unnið var alla
daga vikunnar eða 85 klst. á viku
og var tímakaup að meðaltali 820
krónur. Fram kemur að útseld vinna
verkamanna er 692 krónur á klukku-
stund í dagvinnu en 70% álag er á
yfirvinnu. Þekkt sé að talsvert hærra
sé greitt fyrir ákvæðisvinnu. „Vafa-
laust má að því finna að ég skyldi
hafa staðfest samning þann er hér
um ræðir þar sem sonur minn var
einn af fimm viðsemjendum en ég
var þeirrar skoðunar að samningsfj-
árhæðir væru eðlilegar og að borgar-
sjóður myndi ekki skaðast af við-
skiptunum."
Verkkaupi lagði til efni
Í greinargerð Bergs Tómassonar
borgarendurskoðanda, kemur fram
að verktakarnir fimm eru á aldrinum
17 til 24 ára og að tilboðið sé undir-
ritað af Ágústi Þór Jónssyni verk-
fræðingi og Birni Halldórssyni for-
stöðumanni fyrir hönd verkkaupa.
Þá segir að tilboðið taki til vinnuliða,
en verkkaupi leggi til allt efni. Niður-
staða samanburðar á einingarverði
hjá skrifstofu borgarverkfræðings
leiddi í ljós að fyrri hluti samningsins
er í samræmi við einingarverð úr
verðbanka en einingarverð við inni-
garð er nokkuð hærra að teknu til-
liti til aðstæðna á staðnum. „Tekið
skal fram að, verð í verðbanka endur-
spegla ekki sveifiur eftir markaðsað-
stæðurn."
Samningsverð ekki hagstætt
í bréfí borgarstjóra til forstöðu-
manns Skólaskrifstofu Reykjavík-
urborgar, segir meðal annars að,
„Ýmislegt er athugavert við þessa
samningsgerð, m.a. hvemig að und-
irritun var staðið. Þá virðist samn-
ingsverð ekki hafa verið hagstætt.
Áðfinnsluvert er, að umrætt verk var
ekki boðið út á vegum Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkurborgar með
þeim hætti, sem reglur borgarinnar
kveða á um. Þá er mjög ámælisvert,
að meðal viðsemjenda var sonur yðar
og tveir synir fyrrnefnds Ágústar
Þórs, sem urtdirritaði samninginn
ásamt yður. Líta verður á þetta fram-
ferði sem brot í starfi, og er yður
því hér með Veitt áminning með vís-
an til 3. mgr. 7. gr. reglna um rétt-
indi og skyldur starfsmanna Reykja-
víkurborgar."
Hversu mörg verkefni án
útboða?
Á fundi borgarráðs í gær, óskaði
Ólína Þorvarðardóttir fulltrúi Nýs
vettvangs, eftir upplýsingum að
gefnu tilefni um hversu mörg verk-
efni á vegum borgarinnar væru af-
hent verktökum án útboða og hversu
háar fjárhæðir væri um að ræða
hveiju sinni. Jafnframt hvaða megin-
reglur borgin setti sér í reynd við
úthlutun verkefna og hvort dæmi
sem þetta ætti sér fleiri hliðstæður,
það er hvort hætta er á að embættis-
menn hafi úthlutað tengsla- og
vennslamönnum verkefni í krafti
embætta sinna.
Brot á samþykkt
Innkaupastofnunar
Alfreð Þorsteinsson fulltrúi Fram-
sóknarflokks, bókaði að augljóslega
hefðu samþykktir Innkaupastofnun-
ar Reykjavíkurborgar verið þver-
brotnar vegna lóðarframkvæmda við
Seljaskóla. Innkaupastofnun bæri að
annast útboð á verklegum fram-
kvæmdum og samningsgerð sam-
kvæmt 2. grein. „Ég undrast að
borgarendurskoðandi skuli ekki gera
athugasemd við þennan þátt máls-
ins. Eg tel brýnna en nokkru sinni
fyrr að Reykjavíkurborg setji siða-
reglur fyrir borgarfulltrúa og æðstu
embættismenn til að starfa eftir.“
Lágt tilboð Pólveija í viðgerð á Búrfelli
Mánaðarlaun skipasmiða
í Póllandi 10-20.000 kr.
MUN LÆGRl laun skipasmiða í Póllandi er meginástæðan fyrir lægri
tilboðum frá pólskum skipasmíðastöðvum í viðgerðarverkefni á skip-
um, segir Einar Hermannsson skipaverkfræðingur. Einar segir að
ómaklcga hafi verið vegið að Pólverjum í þessu máli því vitað væri
að mestu niðurgreiðslurnar í skipasmíðaiðnaðinum væru í Noregi, þar
sem nýsmíði skipa fyrir íslendinga væri mest. Engar niðurgreiðslur
eru í skipasmíðaiðnaði í Póllandi.
Einar fór á vegum samgongu-
ráðuneytis til pólsku skipasmíða-
stöðvarinnar sem samið hafði verið
um að annaðist viðgerð á flutninga-
skipinu Búrfelli. Hann sagði að
launakostnaður í pólskum skipa-
smíðastöðvum væri aðeins brot af
því sem hann væri annars staðar.
„Ég skal ekki fullyrða um stofn-
kostnað í tækjum og slíku, en fyrst
og fremst liggur munurinn í launun-
um. Mánaðarlaun starfsmanna í
pólskum skipasmíðastöðvum er á
bilinu 10-20 þúsund krónur. Skipa-
viðgerðir eru mjög mannaflskre-
fjandi. Pólveijar búa við sama efnis-
kostnað og aðrir en auðvitað má
segja að skipasmíðastöðvar á íslandi
búi við hærri efniskostnað því hér
leggjast á aðflutningsgjöld og hærri
flutningskostnaður," sagði Einar.
Hann sagði að engar ívilnanir eða
niðurgreiðslur væri um að ræða í
rekstri pólskra skipasmíðastöðva.
„Satt að segja er verið að hengja
bakara fyrir smið í þessari umræðu
hér, því langstærsti hlutinn af þess-
um verkefnum fyrir sjávarútveginn
hafa farið til Noregs. Þar er verið
að byggja frystitogara og hver þeirra
kostar í kringum tæpan einn milljarð
kr. Þar er vitað að niðurgreiðslur
eru til staðar og Norðmenn eru svo
sem ekkert að fela það. Mér finnst
dálítið lágkúrulegt að veitast svona
að Póiveijum sem eru að reyna að
krafsa sig út úr vægast sagt erfiðri
stöðu í efnahagsmálum. Það væri
nær að beina sjónum þangað sem
upphæðirnar liggja. Ég held að það
sé enginn fótur fyrir ásökunum um
undirboð Pólveija,“ sagði Einar.
Hann sagði að Pólveijar biðu fyrst
og fremst lág verð í viðgerðum á
stáli en þegar málið snerist um
ýmiss konar hátæknibúnað og fín-
vinnu væru Pólveijar síður hæfír en
margar stöðvar á Vesturlöndum.
Einar sagði að Pólveijunum hefði
komið þróun mála vegna viðgerðar-
innar á Búrfelli undarlega fyrir sjón-
ir. Hann fékk forsvarsmenn stöðvar-
innar til að skrifa undir yfirlýsingu
um að ekki yrði farið fram á
skaðabótakröfur vegna riftunar á
samningi um viðgerð skipsins. Hann
hefði skýrt fyrir þeim að hér væri
um einstakt tilfelli að ræða, þar sem
skipið væri í ríkiseign, og engin
ástæða væri að ætla annað en að
aðrir íslenskir skipaeigendur myndu
sækja til Póllands með viðgerðir. 13
stöðvar frá sex löndum hefðu lagt
inn tilboð í viðgerð á skipinu og var
stöðvunum sendar niðurstöður út-
boðsins. Pólveijarnir hefðu verið
með lægsta tilboðið í útboði sem var
sambærilegt á milli allra landanna,
og hefðu þeir lýst yfir ánægju með
það.
Skídasamfestingar
á hreint ótrúlegu verdi
'Qiru
St. 120-170
kr. 5.990,-
St. XS-XL
kr. 7.990,-
5% staðgreiðsluafsláttur.
Sendum í póstkröfu.
»hummeli
SPORTBUÐIN
ÁRMÚLA 40, SÍMAR 8 1 3 555, 8 1 3 655