Morgunblaðið - 11.11.1992, Side 21
MÖRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992
21
Rússneskt
herlið til
Ingushetíu
Rússneskar hersveitir héldu
í gær inn í héraðið Ingushetíu
í suðurhluta Rússlands, að
sögn fréttastofunnar Itar-
Tass. Stjórnvöld í Moskvu
lýstu fyrr í mánuðinum yfir
neyðarástandi í héraðinu
vegna harðra átaka sem geys-
að höfðu vegna deilna um
landamæri Ingushetíu og
Norður-Ossetíu, en bæði hé-
röðin eru innan Rússlands.
Áður var búið að senda her-
sveitir til Ossetíu. Átökin
standa um landsvæði sem til-
heyrði löngum Ingushetíu en
var afhent Ossetíu í síðari
heimsstytjöldinni af Jósef
Stalín, sem sakaði Ingushía
um samstarf við Þjóðveija og
sendi íbúa svæðisins til Síberíu
og Kazakhstan.
Reynt að
stöðva átök
í Angóla
Háttsettur embættismaður
á vegum Sameinuðu þjóðanna,
Marrack Goulding, reyndi í
gær að ná fundi af Jonas Sav-
imbi, leiðtoga UNITA-hreyf-
ingarinnar í Angóla. Sögðu
stjórnarerindrekar hjá SÞ að
þetta væri úrslitatilraun til að
reyna að ræða við Savimbi í
því skyni að koma í veg fyrir
allsheijar borgarastyijöld í
landinu. Goulding hefur þegar
rætt við Eduardo dos Santos,
forseta Angóla. Hann mun lík-
lega yfirgefa Angóla í dag
beri tilraunir hans til að ná
sambandi við Savimbi, sem
hófust á sunnudag, ekki
árangur.
Breytt nef
bjargaði
hjónabandi
ísraelskum rabbínum hefur
tekist að sannfæra þarlenda
konu um að láta lýtalækna
breyta á sér nefinu þannig að
eiginmaður hennar muni girn-
ast hana á ný og hætta við
skilnað. Eiginmaðurinn vildi í
fyrstu ekki skýra dómurum
við rabbínadómstólinn í Tel
Aviv frá því af hveiju hann
vildi skilja við konuna sína.
Þau höfðu verið gift í tvö ár
og konan neitaði að sam-
þykkja skilnaðinn. Hann við-
urkenndi þó loks að honum
þætti nef konunnar svo
óheyrilega ljótt að hann þyldi
ekki lengur við í hjónaband-
inu. Eftir langar samningavið-
ræður tókst rabbínunum að fá
konuna til að breyta nefinu
og manninum til að una við
hlutskipti sitt.
Danmörk
Seðlabankinn að-
stoðar Varde-bank
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
í FYRSTA skipti í átta ár þurfti danski seðlabankinn að hlaupa
undir bagga með dönskum banka nú um helgina. Fyrir helgi höfðu
áhyggjufullir sparifjáreigendur tekið sem svarar þremur milljörðum
ISK út úr Varde-bankanum. Til að koma í veg fyrir áframhaldandi
fjármagnsflæði frá bankanum ákvað seðlabankinn og sjö stjórir
bankar að leggja fram tryggingu til að auka traust hans.
Varde-bankinn hefur höfuð-
stöðvar í Esbjerg, en rekur útibú
úti um allt land. Bankinn hefur
tapað miklu fé á fasteignalánum, í
kjölfar samdráttar og nauðungar-
uppboða á fasteignamarkaðnum.
Bankinn varð illilega fyrir barðinu
á óróa á evrópskum gjaldeyrismörk-
uðum fyrir skömmu. Eftir að slæm
staða bankans varð ljós á aðalfundi
hluthafa bankans í síðustu viku
streymdi féð út úr bankanum fram
að helgi.
Um helgina ákvað svo danski
seðlabankinn og sjö aðrir bankar
að leggja fram tryggingu sem sam-
svarar um 7,5 milljörðum ÍSK.
Einnig lagði danski seðlabankinn
fram lausafjártryggingu, þannig að
bankinn verði ekki uppiskroppa með
reiðufé ef mikið er tekið út af reikn-
ingum hans. Jafnframt settu bank-
arnir á fót nefnd sem fýlgist með
starfsemi bankans.
Engar áætlanir eru uppi um að
bankinn sameinist öðrum banka,
en undanfarin ár hafa ýmsir dansk-
ir bankar sameinast. Þeir sem fylgj-
ast með dönskum bankamálum
segja að fjárhagsstaða danskra
banka hafi vart verið verri en nú
er síðan á 3. og 4. áratugnum.
Nýlega hafa mikil skrif verið um
hallarekstur Unibank, sem er einn
af stærstu bönkunum hér. Þó að
vandi danskra banka sé enn ekki
sambærilegur við vandann í Noregi
og Svíþjóð sér ekki fyrir endann á
honum.
Sænskar bílaverksmiðjur í vanda
Uppsagnir hjá
Volvo og Saab
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSKU Volvo-verksmiðjurnar
ákváðu fyrir skömmu að leggja
niður verksmiðjur sínar í Udde-
valla og Kalmar og þar með missa
um 4.500 manns vinnuna. Saab-
verksmiðjurnar fylgdu í kjölfarið
í gær, talsmenn þeirra segja að
alls verði 2.000 manns, þar af um
1.650 í Trollháttan en einnig í
Gautaborg og Södertalje, sagt upp
störfum. Trollhattan er aðeins
nokkra kílómetra frá Uddevalia
og fjöldi undirverktaka á svæðinu
verður fyrir áfalli vegna sam-
dráttarins í bílaframleiðslunni.
Sænsk bílaframleiðsla er í kreppu
og almennur samdráttur í efnahags-
málum á alþjóðavettvangi bætir ekki
ástandið. Saab var þegar búið að
loka nýreistri verksmiðju í Málmey
og verksmiðja Volvo í Uddevalla, sem
tekin var í notkun 1989, var yfirleitt
álitiii ein hin nýtískulegasta í álf-
unni. Saab hyggst minnka árlega
framleiðslu í 80.000 bíla; fyrir ári
var spáð að framleiðslan á þessu ári
yrði um 110.000 bílar.
Atvinnuleysið í Svíþjóð er nú um
sex af hundraði. Þar sem bílafram-
leiðsla er mikilvæg atvinnugrein er
talan oft 10-12% og sveitarfélögin
æskja nú stuðnings frá ríkisvaldinu.
Stjómin er sem stendur ekki með
sérstakar ráðstafanir vegna bílaiðn-
aðarins á döfinni.
Reúter
Múslimar í kosningaham
„íslamska bandalagið" í Egyptalandi, kosningabandalag Múslimska
bræðralagsins og Sósíalíska verkamannaflokksins, sem hafa verið
bannaðir, tók í fyrsta sinn þátt í sveitarstjómakosningum í gær og
fyrir viku. Bandalagið vann sigur í kosningum til 56 sveitarstjóma,
en stjórnarflokkurinn, Demókrataflokkurinn, sem hefur verið við völd
í landinu í 40 ár, til 2.405. Myndin er af ungum stuðningsmönnum
bandalagsins, íklæddum borðum með áletruninni: „íslam er lausnin".
ERLENT
Haustfundur
Félagsfundur Hafnarfjarðardeildar Rauða
kross íslands verður haldinn í húsakynn-
um deildarinnar, Bæjarhrauni 2, í dag,
miðvikudaginn 11. nóvember nk.
kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Kynning á starfseminni.
2. Málefni barna og unglinga.
Stjórn Hafnarfjarðardeildar RKÍ
Bíll möguleikanna á frábæru verði
Við eigum nokkra Ford Econoline Club Wagon
á frábæru verði, frá 2.400.000 krónum m/vsk.
Ford Econoline er sannarlega bíll möguleikanna. Hann hefur
frábæra aksturseiginleika, er mjög rúmgóður þægilegur;
hjjóðlátur og þú færð tæpast betri bíl til ferðalaga.
Tiyggðu þér Ford Econoline strax í dag.
Ryðvörn og skráning er innifalin í verðinu.
Hefur þú ekiö Ford.....ný!ega?
'lobus?
-heimur gœda!
Lágmúla 5, sími 91- 68 15 55