Morgunblaðið - 11.11.1992, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992
27
Meðgjöf til flóabáta 400-
500 milljónir á næsta ári
Gert ráð fyrir 330 milljónum í fjárlagafrumvarpi
MÁLEFNI fcrja og flóabáta voru
nokkuð rædd í umræðum á AI-
þingi um breytingar á vegaáætl-
un. Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra hefur verulegar áhyggj-
ur af kostnaði vegna þessara
skipa. „Það er svo komið nú þeg-
ar búið er að fara yfir reikning-
ana á nýjan leik að það er búist
við að meðgjöfin með þessum
flóabátum verði nær hálfur millj-
arður króna á næsta ári.“ í frum-
varpi til fjárlaga fyrir næsta ár
er gert ráð fyrir 330 milljónum
króna.
milljóna króna og fari svo á sjötta
hundraðið eftir tvö ár.“ Samgöngu-
ráðherra sagði ástæður þessarar
fjárþurftar vera vondan viðskilnað
fyrri ríkisstjórnar. Síðar í umræðum
ítrekaði samgönguráðherra að nú
lægi fyrir að vegna ráðstafana síð-
ustu ríkisstjómar í sambandi við
flóabáta væri svo komið að styrkir
til flóabáta myndu á næstu árum
fara upp í á sjötta hundrað milljónir
króna. Það hefði verið gert ráð fyrir
því í fjárlagafrumvarpinu að 330
milljónir myndu nægja. „Það er svo
komið nú þegar búið er að fara yfir
reikningana á nýjan leik að það er
búist við að meðgjöfin með þessum
flóabátum verði nær hálfur milljarð-
ur króna á næsta ári.“ Samgöngu-
ráðherra treysti sér ekki á þessari
stundu til að tilgreina upphæðina
nákvæmlega en hún lægi einhvers-
staðar milli 400-500 milljóna króna.
Halldór Blöndal samgönguráðherra
sagði ennfremur: „Auðvitað verða
þessir peningar að dragast frá öðrum
útgjöldum ríkissjóðs. Framhjá því
er ekki hægt að komast."
Hin nýja Breiðafjarðarferja Baldur.
í umræðum í gær gagnrýndiJó-
hann Ársælsson (Ab-Vl) í nokkru
máli hvemig ríkisstjómin hefði stað-
ið að þeirri ákvörðun að veija 1.800
milljónum til vegaframkvæmda til
að örva atvinnu. Jóhann taldi ekki
allt í því lagi sem ríkisstjómin vildi
vera láta. Meðal þess sem hann taldi
fram var að nú væri Vegagerðinni
falið að annast fjármögnun feija.
Einar K. Guðfinnsson (S-Vf) sagði
að það rétt vera að ríkisstjórnin
gerði ráð fyrir því að rekstur feija
og flóabáta kæmi inn á vegafé. Þeg-
ar og ef sú ákvörðun yrði tekin yrðu
menn að gæta þess afskaplega vel
að standa að þeirri ákvörðun með
þeim hætti að Vegagerðinni yrði séð
fyrir sómasamlegu rekstrarfé til að
annast rekstur þessara skipa. Það
hefði verið ráð fyrir því gert að sér-
stök aukning á tekjum Vegasjóðs
færi til þessa rekstur og einnig
mætti búast við að tekjur Vegasjóðs
myndu aukast af öðrum ástæðum.
Einar lagði áherslu á að þegar
þetta mál yrði tekið sérstaklega fyr-
ir, yrði áð fara nákvæmlega ofan í
það hver kostnaður feija myndi
verða. Það gengi ekki að skrifa upp
á óútfyllta ávísun. Einar óttaðist að
enn væru ekki öll kurl komin til
grafar. Einar benti á að heildar-
kostnaður vegna Heijólfs væri nú
samtals 1.621,3 milljón króna. Væri
þá allt framtalið, smíðakostnaður,
hönnunarkostnaður, heimsiglingar-
kostnaður, kostnaður vegna hafnar-
gerðar í Þorlákshöfn og Vestmanna-
eyjum. Slíkur kostnaður yrði auðvit-
að ekki lagður á Vegasjóð án þess
að sjá honum fyrir tekjum til að
standa straum af þessu.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra tók undir það með Einari K.
Guðfinnssyni að ástæða væri til þess
að hafa áhyggjur af því hversu mikl-
ir fjármunir yrðu að fara til flóabáta
á næstu árum. í fjárlagafrumvarp-
inu væri gert ráð fyrir 330 milljónum
króna í þessu skyni. En það mætti
búast við að sú fjárhæð myndi
hækka. „Jafnvel á næsta ári mjög
verulega, eitthvað á fímmta hundrað
Breyting á vegaáætlun
Ákvarðanataka átalin harðlega
Þingmenn fagna auknum framlögum til vegamála
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra hafði á Alþingi í gær fram-
sögu fyrir þingsályktunartillögu um breytingu á vegaáætlun; að færa
til 50 milljónir milli viðfangsefna í áætluninni. Það er tillaga samgöngu-
ráðherra að nota fé sem sparaðist í vetrarþjónustu síðasta vetur til
þess að standa straum af kostnaði vegna útboða í tengslum við þá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að auka framlög til vegamála um 1800
milljónir króna. Þingmcnn stjórnarandstöðu gagnrýndu aðferð ríkis-
stjórnarinnar við þessa ákvarðanatöku en ekki ákvörðunina sjálfa.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra gerði grein fyrir tillögu til
þingsályktunar um breytingu á
þingsályktun um vegaáætlun fyrir
árið 1992. Samgönguráðherra rifjaði
upp að ríkisstjórnin hefði ákveðið
að beita sér fyrir auknum. fram-
kvæmdum í vegagerð til atvinnu-
aukningar. í fjárlagafrumvarpi fyrir
1993 væru ætlaðar 1800 milljónir
króna í þessu skyni.
Ráðherra sagði að vegna hag-
stæðrar tíðar síðastliðinn vetur væri
fyrirsjáanlegt að nokkur greiðsluaf-
gangur yrði á vetrarþjónustu á þessu
ári. Því væri gerð tillaga um að veija
af þessari upphæð til nýrra þjóðvega
til að staiida undir þeim kostnaði
sem til felli á þessu ári vegna útboða.
Samgönguráðherra lét þess getið
að verkefni til fyrstu útboða hefðu
verið valin af Vegagerðinni. Valið
hefði ráðist af því hvaða verkefni
væru það langt komin í undirbúningi
að bjóða mætti þau út með skömm-
um fyrirvara. Einnig hefði verið
höfð hliðsjón af því hvaða fram-
kvæmdir hentuðu til vetrarvinnu.
Skipting á upphæðinni á verkefni
væri í samræmi við mat á þörf. Sú
skipting væri ekki í samræmi við
hefðbundna skiptingu fjár í vega-
áætlun á milli kjördæma. Endur-
skoðun vegaáætlunarinnar færi hins
vegar fram og væri ráð fyrir því
gert að skiptingin yrði leiðrétt þá.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 7 = 17411118>/2 =
□ GLITNIR 5992111119 II 5
I.O.O.F. 9= 17411118’/2 = Sp.
□ HELGAFELL 5992111119 VI 2
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Almenn samkoma í Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58-60 í
kvöld kl. 20.00. Raeöumaöur:
Ástráöur Sigursteindórsson. Þú
ert velkomin(n) á samkomuna!
IOGT
St. Einingin nr. 14
Fundur í Templarahöllinni í kvöld
kl. 20.30.
Dagskré: Ljóð og list í tali
og tónum.
Félagar fjölmenniö.
Æ.T.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaöarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bibliulestur í kvöld kl. 20.30.
Námskeiðið „Kristiö lif og vitnis-
buröur". Kennarar: Mike Fitzger-
ald og Hafliði Kristinsson.
wmmyM
Byrjendanámskeiö hefst fljót-
lega. Kenndar verða teygjur,
öndun, hugleiðsla og slökun.
Upplýsingar i síma 679181
(kl. 17-19).
JÓgastöðin Heimsljós.
Samgönguráðherra lagði til að þessu
máli yrði að lokinni umræðu vísað
til samgöngunefndar og hann fór
þess eindregið á leit að nefndin hrað-
aði umfjöllun um þetta mál eftir því
sem kostur væri.
Málsmeðferð gagnrýnd
Þingmenn sem tóku til máls bentu
á að ástæða fyrir tilfærslu þessara
50 milljóna króna væri ákvörðun rík-
isstjómarinnar um að taka 1800
milljóna króna lán og veija því til
aukinna framkvæmda við vegagerð.
Enginn þingmaður gagnrýndi þá
ákvörðun að auka fé til vegamála
en hins vegar fundu þingmenn
stjórnarandstöðu mjög að því hvern-
ig ríkisstjórnin héfði staðið að þess-
ari ákvörðun. Þeir drógu mjög í efa
að þessi málsmeðferð stæðist vega-
lög og þá hefð sem ríkt hefði um
ráðstöfun fjármuna til vegamála.
Ríkisstjórnin hefði gengið framhjá
þingmönnum og samgöngunefnd.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
(SK-Vf) kvaðst að sjálfsögðu fagna
samgöngubótum en hún lét þó í ljós
vissar efasemdir um að þessi ráðstöf-
un fjármuna væri sú mest atvinnu-
skapandi sem völ væri á. Þessar
framkvæmdir myndu tímabundið
veita 480-500 manns vinnu en hér
væri ekki varanleg atvinna.
Þingmenn í stjómarliði, Einar
K. Guðfinnsson (S-Vf), Sturla Böð-
varsson (S-Vl), Árni Johnsen
(S-Sl), Egil Jónsson (S-Al) hvöttu
stjórnarandstæðinga til að láta af
„ólund“, væri þeim nær að fagna
auknum framlögum til vegamála,
og með þessari tillögu væri komið
til móts við gagnrýni vegna forms-
atriða.
Hve mikið?
Stjómarandstæðingar samþykktu
að fé til vegamála væri vel varið en
þeir töldu að stjórnarliðið væri að
reyna að „slá sig til riddara" með
því að veifa 1800 milljónum króna.
Jóhanni Ársælssyni reiknaðist svo
til að ef tekið væri tilit til fyrri skerð-
ingar á fjármagni til vegaáætlunar
um 344 milljónir, því að Vegasjóði
væri ætlað að standa undir rekstri
feija og flóabáta 330 milljónir, og
að hætt hefði verið við 250 milljón
króna lántöku vegna Vestfjarða-
ganga; þá stæðu eftir 876 milljónir
króna í aukið framkvæmdafé. Hins
vegar tæki Vegasjóður á sig 1800
milljón króna skuld sem honum
væri ætlað að greiða af fram-
kvæmdafé næstu ára.
Það kom glöggt og skýrlega fram
að þingmennimir Krístinn H.
Gunnarsson (Ab-Vf) og Ólafur Þ.
Þórðarson (F-Vf) höfðu einna mest-
ar áhyggjur af því að brúargerð yf?r*
Gilsfjörð myndi frestast um ófyrir-
sjáanlega framtíð.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra vildi benda á að undirbúningur
vegna Gilsfjarðarbrúar væri það
skammt á veg kominn að ekki væri
hægt að bjóða þessa brúarsmíð út.
Samgönguráðherra vildi einnig
benda á að þrátt fyrir þrengingar í
efnahagsmálum hefði ekki verið var-
ið minna fé til vegamála á þessu ári
en á undanförnum ámm.
Þingmenn ræddu hvort framföjf
til vegamála hefðu verið skert, um
horfur á því að Gilsfjörður yrði brú-
aður í framtíðinni og um gömul fyrir-
heit um framlög til brúa og vega.
Einnig bar rekstur feija og flóabáta
nokkuð á góma. Pálmi Jónsson
(S-Nv) greindi frá þeirri skoðun sinni
að þessi umræða hefði „farið um
víðan völl".
AlMflGI
Tálbeita fær að
finna til tevatnsins
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó: Tálbeitan —
„Deep Cover“. Leikstjóri Bill
Duke. Aðalleikendur Larry Fis-
hburne, Jeff Goldblum, Charles
Martin Smith, Victoria Dillard,
Sidney Lassick, Clarence Will-
iams IH. Bandarísk. Miramax
1992.
Þessi grimma ádeila og spennu-
mynd um lögreglumenn sem ekki
eru vandir að meðulum í baráttu
við eiturlyfjasala hefst á því er
söguhetjan (Fishbume), þá ung
að árum, horfir upp á föður sinn
falla fyrir kúlum lögreglunnar.
Kárl er forfallinn eituræta og er
að fjármagna jólagjafa- og lyfja-
kaup með vopnuðu ráni er laga-
verðir skakka leikinn. Þessi at-
burður verður til þess að drengur-
inn ákveður að fara að lögum og
næst birtist hann á tjaldinu sem
starfsmaður fíknó í Cleveland.
Yfirmaður hans (Martin Smith)
er að fá honum erfítt verkefni,
að gerast tálbeita á sorastrætum
Los Angeles-borgar. Á Fishbume
að komast í raðir eitursala í Holly-
wood og smáfeta sig upp metorða-
stigann í dreggjum mannlífsins
uns nægar sannanir fást til að
koma lögum yfír höfuðpaurana.
Martin eys fé í eiturlyfjakaup
Fishburnes sem í rauninni er orð-
inn ótíndur dópsali og sem slíkur
smásmýgur hann í innstu raðir
stórlaxa kókaíninnflutningsins.
Er það ekki síst fyrir orð lögfræð-
ingsins og dópmangarans Gold-
blums, sem treystir honum full-
komlega. En leiðin verður æ hálli
og myrkari.
Myndin er sýnd í sömu mund
og mál af þessu tagi (þó smærri
séu í sniðum) koma uppá yfirborð-
ið hérlendis. Og þó svo að hún
svari svo sem ekki neinum spum-
ingum til hlítar, hún er einfaldlega
fullhrottaleg og með of fyrirferð-
armiklar áherslur á ofbeldi til að
hægt sé að taka hana alvarlega,
þá segir hún ljóta sögu sem er
ekkert einsdæmi úti í hinum stóra
heimi sem við nálgumst með
hveiju grammi sem smyglað er
til landsins. Og það má draga af
henni vissar ályktanir. Þessum
mannhundum, blinduðum af stór-
gróða eiturlyfjasmygls, er ekkert
heilagt. Þeir fara ekki að neinum
lögum utan þeirra eigin. Því á
ekki að sýna þeim neina linkind.
Okkar helgidómur er bömin okk-
ar, æska þessa lands. Því á að
beita öllum tiltækum meðulum til
að hafa hendur í hári djöflamergj-
anna, fólk vill aðeins sjá eitt í
viðskiptum lögreglu og dóphunda;
árangur. Hvert gramm sem tekst
að uppræta áður en það lendir á
götunni er öllu dýrmætara en ein-
hver formsatriði í að koma sölu-
mönnum dauðans bak við lás og
slá. Og skiptir þá litlu hvort svið-
ið er Hlemmur eða Hollywood.
Tálbeitan er að mörgu leyti
athyglisverð mynd þótt hægar
hefði mátt fara í ofbeldið og
myndin endi í fullmjúkum en ekki
óalgengum iðnaðarstíl. Fishburne
er fæddur í hlutverk löggunnar
sem fyrir óræðar leiðir örlaganna
lenti réttum megin laga og reglu.
Goldblum á sftia kafla sem lög-
maðurinn sem blindast af dópsölu-
gróðanum og Charles Martin
Smith bregst ekki bogalistin í
hlutverki undirföruls yfirmanns
Fishburne. Og skálkarnir saman-
safn manngerða sem maður hefur
lítinn áhuga á að mæta í myrkri.
Duke kann vel til verka í
spennuatriðunum sem eru mörg
og margvísleg en dettur á rassinn
með handritshöfundi í allnokkur
skipti er þeim verður á sú skyssa
að taka sig einum um of alvarlega. *