Morgunblaðið - 11.11.1992, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 11.11.1992, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992 41 Eignm við að hafa laug- ardag sem hvíldardag? Frá sr. Jan Habets: Vér vitum að Bandaríkin eru ekki aðeins land vélanna, heldur einnig land sem flytur út mörg trúarleg samfélög, t.d. votta Jehóva, morm- óna, nýaldarhreyfingu, Scientology og aðventista sjöunda dags, svo nokkur séu nefnd. Þröstur B. Stein- þórsson, sóknarprestur Sd. aðvent- ista, skrifaði 18. október í Morgun- blaðið grein um hvíldardag á laugar- degi. Hann segir: „Það deilir enginn um að Biblían boðar sjöunda daginn (laugardag) sem hvíldardag. Þeir sem til þekkja vita þetta.“ Svarið er einfalt: Sammála viðvíkjandi Gamla testamentið, en Nýja testa- mentið segir annað. Kristin kirkja byrjaði snemma að halda sína eigin þjónustu, jafnvel forðast samkundu- húsin og þá líka að koma saman á Drottins degi, (Dominica/Kuriake), þ.e. á degi upprisu Krists. Hvers vegna? Þegar Páll prédikaði í sam- kunduhúsum að Jesús, sem gyðingar höfðu hengt á krossinn, væri Guð, þá var hann oft rekinn út og átti að fara til heiðingjanna: Post. 13,46/18,6. „Ekki er mér það um að kenna. Upp frá þessu fer ég til -heiðingja." I kirkjum sem Páll „postuli heiðingjanna" (Gal. 2,9) stofnaði var ekki mögulegt að halda þjónustu með gyðingum í samkundu- húsum þeirra á laugardegi. Gyðingar byrjuðu þá að hata Pál. Við lesum t.d.: „Gyðingar bundust samtökum og sóru þess eið að eta hvorki né drekka, fyrr en þeir höfðu ráðið Pál af dögum. Þeir voru fleiri en fjöru- tíu sem þetta samsæri gjörðu" (P. 23,12). Hvers vegna vildu þeir þá ráða Pál af dögum? Svarið er mikil- vægt fyrir okkur. Fyrir gyðinga kom sáluhjálp fyrir lögmál Móse. Nei, segir Páll, hún kemur aðeins fyrir náð, ekki fyrir lögmál Móse, sem er búið með dauða Krists á krossinum. Fyrir gyðinga var lögmálið Móse allt, fyrir Pál ekki meiri en „Tyftari vor, þangað Kristur kom ... nú, eftir að trúin er komin, erum vér ekki lengur undir tyftara“ (lögmáli). Páll er ákafur postuli kristins frelsis frá lögmáli Móse. Rómverja-, 1. Kórintu-, Galata- og Hebrea-bréfin eru full af textum til að fella lögmál Móse sem meðal til sáluhjálpar, sem kristnir menn með Páli tileinka náð Krists, sem hann vann fyrir okkur á krossinum. Páll segir: „Til frelsis frelsaði oss Kristur. Standið því stöð- ugir og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok" (Gal. 5,1). Það seg- ir Pétur líka: P. 15,10. „Enginn," segir Páll, „skyldi því dæma yður fyrir mat eða drykk eða það sem snertir hátíðir, tunglkomur eða hvíldardaga. Þetta er aðeins skuggi þess, sem koma átti.“ (Kol. 2,16). „Kristur er endalok lögmálsins" (Róm, 10,4). Hvers vegna? Gamla testamentið var búið þegar Jesús stofnaði Nýja testamentið við síð- ustu máltíð í blóði sínu: „Þessi bikar er hinn Nýi Sáttmáli í mínu blóði, sem fyrir yður verður úthellt" (Lk. 22,20/1. Kor. 11,25). „Guð hefur gjört oss hæfa til að vera þjóna nýs sáttmála, ekki bókstafs, heldur anda, því að bókstafurinn deyðir en andinn lífgar" (2. Kor. 3,6). Hebrea- bréfið talar líka um „betri sáttmála" (7,22) og „þar sem hann nú kallar þetta nýjan sáttrpála, þá hefur hann lýst hinni fyrri úreltan" (Heb. 8,13). En það er rétt að spyija: Tilheyra tíu boðorðin einnig lögmáli Móse? Svarið er: Já. Ern þau þá líka úr gildi? Hér eigum við að gera aðgrein- ingu. Boðorðin sem skuldbinda alla menn, einnig heiðingja, sem.eru „rit- uð í hjörtum þeirra" (Róm. 2,15) falla ekki niður, t.d. stela, fremja morð. En boðorðin sem Guð skrifaði ekki í hjörtu allra manna, en Móse gaf aðeins gyðingum: Hvíla á laug- ardegi og gjöra engar líkneskjur, þau falla úr gildi, með öðrum boðorðum Móse. Það var útskýring og strax iðkun í söfnuðum sem Páll stofnaði á meðal heiðingjanna. Við lesum að þeir koma saman á fyrsta degi (degi upprisunnar) „til að bijóta brauðið": Altarissakramentið. (Post. 20,7). „Hvern fyrsta dag vikunnar skal hver yðar leggja í sjóð heima ... eins og ég hef fyrirskipað söfnuðum í Galatíu" (1. Kor. 16,1-2). Þennan dag prédikaði Páll líka og „braut brauðið og neytti" (Post. 20,11). 1 Opb. 1,10 lesum við nafn „kuriake" (hemera), dominica (dies), Drottins dagur, nafn sem frumkirkjan notaði fyrir sunnudag. Ágreiningur frá sab- bat (7. degi) gyðinganna var svo alger að fyrsti dagurinn (sunnudag- ur) var fyrir frumkirkju aðeins dag- ur fyrir guðsþjónustu en ekki hvíld- ardagur. Árið 321 gerði Konstantín hann að hvfldardegi. (Cf. Lexicon zur Bibel). Hvemig hélt Jesús hvíldardaginn? Það var nær ómögulegt, farísear höfðu þröngvað fram 39 fyrirmælum um hvernig halda skyldi hvíldardag- inn. Hins vegar uppgötvuðu þeir meðöl til að komast undan lögskipan dagsins. Jesús, sem kallaði sig „herra hvfldardagsins braut boðin svo oft (gríska: epoiei/eluen) að gyð- ingar vildu drepa hann og sögðu: „Þessi maður er ekki frá Guði, fyrst hann heldur ekki hvíldardaginn" (Jh. 9,16). Theologisches Wörterbuch zum Neuen Testament (8 Bd) þorir að kalla Jesúm „destructor": eyð- anda hvfldardagsins. Framkoma Jesú varðandi hvíldardaginn gat a.m.k. ekki verið hindrun fyrir kristna að snúa frá 7. degi til 1. dagsins (upprisunnar) sem hæfari dags til að minnast altarissakra- mentisins, eins og Jesús hafði beðið um (Lk. 22,20 og 1. Kor. 11,25). Biblían og frumkirkjan sanna skýrt og ríkulega að það var rétt að sleppa með Páli postula lögmáli Móse og hvíldardegi gyðinganna skv. Kol. 2,16 því að við eigum að lifa með Jesú í Nýja testamentinu en ekki með gyðingum skv. lögmáli Gamla testamentisins. „Þótt jafnvel ... engill frá himni færi að boða yður annað fagnaðarerindi en það, sem vér höfum boðað yður, þá sé hann bölvaður" (Gal. 1,8). SR. JAN HABETS Austurgötu 7, Stykkishólmi Pennavinir Fjórtán ára austurrísk stúlka með áhuga á hestum og útreiðum: Astrid Oberherber, Hummelhofstrasse 8, A-4020 Linz, Austria. Fimmtán ára ísraeli sem hefur mikinn áhuga á popptónlist og spil- ar á gítar: Aia Oz, 27 Shazar St., 34861 Haifa, Israel. Átján ára franskur strákur með áhuga á bréfaskriftum og safnar póstkortum: Frederic Werner, 213 Blvd de la Madeleine, 06000 Nice, France. LEIÐRÉTTING Of lágar tölur Af gefnu tilefni er rétt að taka það fram að upplýsingar um barna- bætur og bamabótaauka sem birt- ust með grein í sunnudagsblaði, „Spilað á kerfið", vora 0,38% lægri en nú er. Tölumar sem stuðst var við voru frá fyrri hluta ársins. Þá láðist að geta forsenda við útreikning barnabóta og barnabóta- auka, en neðri tekjumörk vora 1.098.000 kr. árstekjur hjóna, eða 91.500 kr. á mánuði en 732.000 kr. árstekjur einstæðs foreldris, eða 61.000 kr. á mánuði. VELVAKANDI MANNRÉTT- INDABROT Vilhjálmur Alfreðsson, Efsta- sundi 76, Reykjavik: Eg hvet alla íslendinga til þess að lesa frábæra grein eft- ir Sigurð Emil Pálsson, sem ber fyrirsögnina „Um meint mann- réttindabrot i Eistlandi“ og birtist í Morgunblaðinu 3. nóv- ember. Það er ekki nóg að styðja sjálfstæðisbaráttu smá- þjóða — það verður að fylgja þeim stuðningi eftir og gott betur. ÁKEYRSLA Ekið var á bíl á Kringluplani 6. nóvember milli 13.45 og 15.30, Lödu Samara ’91, gráa að lit með númerinu MJ-936. Afturhurð er mikið skemmd eftir áreksturinn og rispa á afturbretti. Bifreiðin sem olli þessu er sennilega rauð að lit. Þeir sem urðu vitni að ákeyrsl- unni era vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. HJÓL Bleikt fjallahjól var skilið eftir við hús í Safamýri aðfara- nótt laugardags. Upplýsingar í síma 675065: EYRNA- LOKKUR Eyrnalokkur ofínn úr kopar- þræði eftir Katrínu Didriksen gullsmið tapaðist á leið frá Kringlunni í Þingholt á sunnu- dagsmorgun. Finnandi er vin- samlegast beðinn að hringja í síma 26297 eða 75595. TASKA Rauð taska með vegabréfí, sjóferðabók o.fl. tapaðist fyrir nokkra. Finandi er vinsamleg- ast beðinn að hringja í síma 11006. ÚLPA ^ Græn og svört karlmanns- úlpa var tekin í misgripum á Hressó á laugardagskvöld. Við- komandi er vinsamlegast beð- inn að skila henni í afgreiðsluna þar eða hringja í síma 74035. GLERAUGU Gleraugu með brúnyijótta umgjörð töpuðust í maí í A. Haúsen eða á Hótel íslandi. Finnandi er vinsamlegast beð- inn að hringja í síma 42023. ÚR Karlmannsúr fannst í Kringlukránni á laugardag. Upplýsingar í síma 45882. BELTI Svart leðurbelti með spor- öskjulaga silfurlitaðri sylgju tapaðist á laugardagskvöld við Perluna eða Ömmu Lú. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 651409. Fundarlaun. LYKLAKIPPA Lyklakippa fannst við Glæsi- bæjarhúsið. Eigandi getur vitj- að hennar i íslandsbanka í Glæsibæ. HÁLSMEN Hálsmen með áletran fannst við Suðurgötu. Upplýsingar í síma 24257. Innilegt þakklœti fœri ég yÖur öllum, sem heiðr- uðu mig á einn eÖa annan hátt á 85 ára afmœli mínu 29. október sl. Gísli Sigurbjörnsson. Tannlæknastofa Grafarvogi Hef opnað tannlæknastofu í verslunarmið- stöðinni Hverafold 1-3. Tekið er á móti tímapöntunum frá kl. 10.00-12.00 og 13.00-16.00 í síma 683830. Auður G. Eyjólfsdóttir, tannlæknir. 1922 Grund 1992 Öllum þeim, sem heiðruðu Grund á afmælisdegi heimilisins 29. október sl., færum við innilegar þakkir. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund. Stjórn og forstjóri. <______________________________________________________^ CARDIA UV)NAA/q ^ NÁTTÚRUAFURÐ SEM ENGINN MÁ LÁTA FRAMHJÁ SÉR FARA Gott á brauðið, í baksturinn, í sósuna, í súpuna, í teið eða í flóuðu mjólkina. CARDIA-hunang stendur alltaf fyrir sínu. HREIN NÁTTÚRUAFURÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.