Morgunblaðið - 11.02.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.02.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1993 21 Ástæðulaust að fara til út- landa til að gera góð kaup - segir Guðlaugur Bergmann, for- svarsmaður Stórútsölumarkaðarins Stórútsölumarkaður hefur verið opnaður n í Faxafeni 10 og er þetta tuttugasta árið sem hann er haldinn. A markaðnum eru boðið upp á mjög fjölbreytt vöruúrval frá sautján fyrirtækjum, og meðal þess sem boðið er upp á er fatnaður, tónlist á hljómplötum geisladiskum og kasettum, myndbönd, skófatnaður, raftæki, blómavörur og margt fleira. Að sögn Guðlaugs Bergmanns, forsvarsmanns markaðarins, hefur vöruúrvalið sjaldan verið meira og verðið aldrei hagstæðara. „Það er svo sannarlega engin ástæða fyrir fólk að storma til út- landa til að gera góð kaup, þvi það er einfaldlega hægt að gera þau á þessum markaði," sagði hann. Eins og áður og sagði er þetta tuttugasta árið sem „Hinn eini sanni stórútsölumarkaður" er hald- inn, en hann bytjaði á sínum tíma í kjallaranum á Iðnaðarhúsinu við Hallveigarstíg. Að sögn Guðlaugs reyndist það húsnæði þó fljótlega vera of lítið, og var markaðurinn þá fluttur í Húsgagnahöllina á Ár- túnshöfða. „Markaðurinn þarf 1000-1200 fermetra svæði til að koma vörum frá öllum þessum fyrirtækjum þokkalega vel fyrir. Langmest af þessum vörum eru nýlegar og sum- ar jafnvel alveg nýjar, en þó má finna þarna innan um eldri vörur sem eru á mjög niðursettu verði, en þó fullboðlegar," sagði Guðlaug- ur. „Vöruúrvalið er ótrúlega mikið. Þarna er hægt að fá fínustu herra- föt og dragtir á konur, gallabuxur á alla aldurshópa, kuldaúlpur, peys- urr skyrtur og boli. Þá má fá þarna skófatnað af öllum gerðum, svo sem fína herra- og dömuskó, kuldaskó, barnaskó og íþróttaskó. Þarna má fá popptónlist, rokktónlist, sveita- tónlist og sígilda tónlist á geisla- diskum kassettum og hljómplötum, og þarna eru líka seld ferðaútvarps- tæki, sjónvarpstæki, myndbands- tæki, símar og vekjaraklukkur, blómvendir pottablóm, afskorin blóm, þurrkuð blóm, skrautvörur, skartgripir, skóflur vasaljós, stíg- vél, húfur, vettlingar, koddar, sængur, handklæði og efni allskon- ar svo eitthvað sé nefnt. Af þessari upptalningu, sem þó er aðeins hluti af því sem fáanlegt er, má sjá að á markaðnum er hægt að fá vörur af ótrúlega mörgum gerðum. Við bjóðum viðskiptavinunum upp á ókeypis kaffi í kaffiteríu þar sem fólk getur sest niður, en þar eru Þorsteinn stýrir samn- inganefnd ríkisins ÞORSTEINN Geirsson ráðu- neytisstjóri í dómsmálaráðu- neyti er formaður nýrrar samninganefndar ríkisins í launamálum, sem fjármálaráð- herra hefur skipað. Aðrir nefndarmenn eru: Birgir Guðjónsson, skrifstofustjóri og fyrrverandi formaður samninga- nefndarinnar, Guðríður Þorsteins- son, lögfræðingur, Indriði H. Þor- láksson skrifstofustjóri og Bragi Guðbrandsson aðstoðarmaður fé- lagsmálaráðherra. Þá munu fjölmargir starfsmenn ýmissa deilda stjómarráðsins og ríkisstofnana vinna að samnings- gerðinni, auk ýmissa sérfræðinga sem til verða kallaðir eftir þörfum. Thitancv Heílsuvörur nútímafólks ýmsar aðrar veitingar jafnframt á boðstólum. Þá er þarna sérstakt afdrep fýrir bömin þar sem þau geta horft á myndbönd á meðan foreldrarnir skoða vöruúrvalið." 17 fyrirtæki Fyrirtækin sem selja vörur sínar á stórútsölumarkaðnum eru Karna- bær, Steinar músík og myndir, Sonja, Stúdíó, Kókó og Kjallarinn, Skóhúsið, Nína, Pósedon, Hjá Kára, Blómalist, Sjónvarpsmiðstöðin, Hummel, Barnafatalagerinn, Skæði, Fínar línur, Hlauptu og kauptu og Gullregn. Markaðurinn stendur til 28. febrúar og er hann opinn mánudaga til föstudaga kl. 13-19, laugardaga kl. 11-17 og sunnudaga frá kl. 13-17. Markaðurinn Á stórútsölumarkaðnum í Faxafeni 10 sem nú er haldinn í tuttug- asta sinn er hægt að fá fjölbreytt vörurúrval frá sautján fyrirtækj- um. Að sögn Guðlaug Bergmanns forsvarsmanns markaðarins hefur verðið aldrei verið hagstæðara, og óþarfi fyrir fólk að leita til út- landa til að gera góð kaup. ; ■■ . 3ja vikna ferð 25. feb. -18. mars. Örfá sæti með 10.000 kr. afslætti. Sólartilboð til Kanaríeyja Yfir 100 íslendingar hafa að staðaldri notið frábærrar dvaiar í Sólarmiðstöð Úrvals-Útsýnar á Kanaríeyjum frá því fyrir jól. Fyrsta flokks aðbúnaður, glaðværð og frábær fararstjórn. Vegna mikilla vinsælda Sólarmiðstöðvarinnar hafa færri komist þar að en vildu í febrúar. Samstarfsaðilar okkar ytra hafa gefið okkur grænt ljós að bóka í nokkrar viðbótaríbúðir í þriggja vikna ferð 25. feb.-18. mars. 10.000 kr. afsláttur í tvíbýli! Aðeins fá sæti laus. yikÚRVALÚTSÝN / Mjódd: stmi 699 300; viö Austurvðll: simi 2 69 00 í Hafnarfirði: sími 65 23 66; við Ráðbústorg á Akureyri: sími 2 50 00 - og bjá umboðsmöntium um land allt Eldri borgarar. Aðeins 5 sæti eftir í tilboðsferðina 25. febrúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.