Morgunblaðið - 11.02.1993, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 11.02.1993, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1993 Vilhjálmur G. Bjarnason á Lauf- skálum — Minning Fæddur 2. júlí 1900 Dáinn 4. febrúar 1993 í dag kveð ég minn elskulega tengdaföður, Vilhjálm G. Bjamason, fv. forstjóra, Laufskáium, Álfheim- um 35, sem andaðist á Landspítalan- um 4. febrúar sl. Andlát Vilhjálms kom engum á óvart því hann var orðinn aldraður maður og heilsan tæp. Hann vissi að hverju stefndi og virtist deyja sáttur við allt og alla. f Margs er að minnast þegar svo mikill heiðursmaður er fallinn frá. Vilhjálmur fæddist 2. júlí árið 1900 að Sauðhúsnesi í Álftaveri í V- Skaftafellssýslu. Hann var sonur hjónanna Bjama Pálssonar og Ragn- hildar Brynjólfsdóttur, en þeim varð fjögurra bama auðið. Elst var Pál- ína, þá Magnús, síðan Vilhjálmur og yngstur var Páll, en öll eru þau látin. Vilhjálmur talaði með mikilli hlýju um æskustöðvar sínar og var stoltur af að vera Skaftfellingur. Ungur byijaði hann að vinna eins og tíðkað- ist á þessum tíma því að fátæktin var mikil. Sú lífsreynsla sem hann lenti í mjög ungur var honum minnis- stæð, er hann sem smaladrengur var . sendur til að reka fé af fjalli, en það fjall var Katla. Þar sem hann var staddur á fjallinu byijaði Katla að gjósa og átti hann og hestur hans fótum íjör að launa og sá hann þar mikið af fénu verða hraunstraumnum að bráð. Það er enginn vafi að Guð hefur vakað yfir honum í þessari för og ætlað honum lengri lífdaga, eins og raun varð á. Vilhjálmur fluttist til Reykjavíkur árið 1922 og hóf þá nám í trésmíði, en það nægði honum ekki því einnig lærði hann húsasmíði og líkkistu- • smíði og vann hann eftir nám við smíðar í nokkur ár. Árið 1930 stofn- aði hann Kassagerð Reykjavíkur ásamt öðrum. í byijun var fyrirtæk- ið undir berum himni og kassamir smíðaðir með handafli einu saman, því tækninni var ekki fyrir að fara í þá daga. Leiðir þeirra skildu eftir tæplega 28 ára samstarf, var þá fýrirtækið komið í eigið húsnæði á Skúlagötu 26. Skiptu þeir fyrirtækinu þannig að Vilhjálmur fékk húsnæðið og vann síðan sjálfstætt að eigin atvinnu- rekstri. í einkalífinu var hann lánsamur. Hann giftist árið 1933 eftirlifandi eiginkonu sinni Elínu Kristjánsdóttur frá Patreksfirði og varð þeim fjög- urra bama auðið sem öll em á lífi. Elstur er Hiimar, maki Kristín Hall- grímsdóttir, þá Valdís, maki Tiyggvi Hannesson, síðan Kristbjörg, maki Hallgrímur H. Einarsson, og yngstur Bjami, maki Björg E. Guðmunds- dóttir, og eru bamaböm og bama- barnaböm orðin mörg. Árið 1939 byggðu ungu hjónin sér glæsilegt hús að Laufskálum, sem nú er Álfheimar 35, og urðu margir vinir þeirra undrandi á því hversu langt upp í sveit þau vildu búa, en samgöngur vom oft erfiðar á þeim tíma. Heimili þeirra var til fyrir- myndar í alla staði, hvar sem á var litið var snyrtimennskan allsráðandi og vom þau hjón miklir höfðingjar * heim að sækja. Ég var þess láns aðnjótandi að kynnast Vilhjálmi og Elínu þegar yngri sonur þeirra, nú eiginmaður minn, kynnti mig fyrir þeim fyrir rúmlega 25 ámm. Man ég enn þann kvíða sem b’ærðist innra með mér, 17 ára stúlkunni, þegar ég hitti þau hjón í fyrsta skipti, Vilhjálmur þá orðinn 67 ára en Elín 55 ára. Ég var alin þannig upp að bera mikla virð- ingu fyrir eldra fólki, en kvíði minn var óþarfur því yndislegri hjón var ekki hægt að hugsa sér. Var mér tekið opnum örmum eins og ég hefði alltaf verið ein af fjölskyldunni. Vilhjálmur var sannkallaður höfð- ingi í orðsins fyllstu merkingu. Hann var mikið glæsimenni, hár og spengi- legur, og hvar sem hann kom var ávallt tekið eftir honum sökum glæsi- leika. Þeir sem umgengust hann, dáðu hann og virtu, og bára mikla virðingu fyrir honum. Hann var hreinskilinn og óhræddur við að segja skoðanir sínar á mönnum og málefn- um, en móðgaði þó engan. Vilhjálmur var manna skemmti- legastur þar sem gleðskapur var og naut þess að lyfta glasi í góðra vina hópi, en alltaf var það í hófi. Einnig hafði hann gaman af söng og var sögumaður góður. Var gaman að hlusta á hann segja skondnar sögur af sér, vinum og kunningjum, því að þeir vom margir í gegnum tíðina. Vilhjálmur og Elín höfðu mörg sameiginleg áhugamál, m.a. upp- byggingu Langholtskirkju. Vilhjálm- ur var einn af frumkvöðlum safnað- arins og formaður byggingarnefndar í mörg ár. Var áhugi hans mjög mikill sérstaklega vegna byggingar nýju kirkjunnar og vann hann þar fómfúst og óeigingjamt starf. Ekki má gleyma garðinum við Laufskála sem hann og kona hans höfðu unnið við af mikilli eljusemi, en þau vom mjög samhent um að gera garðinn sem glæsilegastan og uppskám laun erfíðis síns, því að árið 1957 var garðurinn verðlaunaður af Fegmnar- félagi Reykjavíkur, og var hann einn af fallegri görðum í Reykjavík, þang- að til heilsubrests fór að gæta hjá þeim hjónum hin síðari ár. Til Vilhjálms var alltaf hægt að leita í erfíðleikum og leysti hann öll mál af mikilli kostgæfni. Bömum, tengdabömum og bamabömum reyndist hann góður félagi. Er hans sárt saknað, en minningin lifír áfram um allar þær góðu stundir er við áttum saman. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Elín mín, sem nú liggur á langlegudeild Landakotsspítala, þinn söknuður er mikill. Ég bið góðan Guð að gefa þér styrk. Björg E. Guðmundsdóttir. Okkur systur langar til að setja hér fáeinar línur á blað til að minn- ast afa okkar Vilhjálms Bjarnasonar, fyrrverandi forstjóra Kassagerðar Reykjavíkur, sem andaðist í Land- spítalanum fímmtudaginn 4. febrúar síðastliðinn. Afí fæddist á aldamótaárinu og hefði því orðið 93 ára í sumar hefði hann lifað. Hann var fæddur og upp- alinn í Álftaveri í Vestur-Skaftafells- sýslu, fæddur á bænum Sauðhúsnesi og ólst upp á Heijólfsstöðum. Hann var alltaf mikill Skaftfellingur í sér og hélt tryggð við sína heimabyggð. Ungur fluttist hann þó til Reykjavík- ur til þess að læra trésmíði. Þegar afí var rúmlega þrítugur kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Elínu Kristjánsdóttur, en sjúk- dómar ellinnar hafa sett mark sitt á líf þeirra beggja síðustu ár. Amma, sem er einum tólf ámm yngri en afí, dvelur nú á öldmnardeild Landa- kotsspítala, við slæma heilsu. Það má segja að þeim hjónum hafí famast vel og þau aldrei liðið neinn skort. Það var ávallt gott að koma og heilsa upp á þau á Laufskál- um og nokkur okkar bamabamanna áttum þess kost að búa aðeins steinsnar frá þeim í Álfheimunum í æsku. Afí hafði mikið dálæti á garðyrkju og garðurinn umhverfis Laufskála vakti alltaf eftirtekt fyrir einstakan glæsileika. Þrátt fyrir að aldurinn færðist yfír og veikindi var garðurinn alltaf ofarlega í huga afa. Þau vom einnig ófá skiptin sem eitthvert okk- ar bamabamanna kom í heimsókn og spurði eftir afa og þá var viðkvæð- ið „hann er úti í skúr“, en í bílskúm- um hafði afi komið sér upp allfull- komnu smíðaverkstæði og þar gat hann verið löngum stundum. Afí var einstaklega em og gat ekið bílnum sínum allt þar til fyrir um sex ámm. Maður gat ekki annað en dáðst að því að sjá hann hátt í nírætt akandi um götur borgarinnar á R-1530. Afí var einn þeirra sem slapp naumlega undan KÖtluhlaúpinu þeg- ar Katla byijaði að gjósa árið 1918. Þá var afi 18 ára og við smala- mennsku. Hann þreyttist sjaldan á að segja okkur ungviðipu frá þessari upplifun, enda mátti litlu muna að Katla gamla næði að hremma ungu smalana, sem flýðu á hestum með vatnsflauminn á hælunum. En það áttu eftir að líða tæp sjötíu og fimm ár þar til afí gengi á vit örlaga sinna. Hugsun hans var skýr fram á síð- asta dag. Til marks um það tók hann sjálfur þá ákvörðun að gangast ekki undir þá aðgerð sem læknar ráðlögðu til að reyna að bjarga lífi hans, sem um leið hefði þýtt örkuml fyrir afa. Hann sagði nei, og nú kveðjum við hann. Elín Hirst og Þóra Hirst. í suðausturhomi Mýrdalssands má fínna sérstætt byggðarlag, Álfta- ver. Það kúrir þar sem lítil vin á ævafomu uppgrónu hrauni með mý- rasundum í milli, nú að mestu þurrk- uð ræktarlönd. Að austan markast Verið af Kúða- fljóti er líður þar hægt og hljóðlega til sjávar, eitt mesta og torfærasta jökulvatn landsins, þar sem sand- bleytan ógnar við hvert fótmál hveij- um ókunnugum og óvarkámm manni. Sunnan byggðarinnar svellur Atlantshafíð óheft og löðrungar sandströndina án afláts. Vestan og norðan Álftavers em svartar óra- breiður Mýrdalssands, er leitast sí- fellt við að afmá hveija hraunnibbu eða -drang, sem enn vemda byggð- ina. En að baki svartrar auðnar gefur stórkostlega fjallasýn til norðurs, þar sem fannbreiður Mýrdalsjökuls liggja á heiðum sem risaskjöldur og hylja hæstu fjöll og djúpa dali. Þar undir leynist svo óvætturin Katla, sem um aldir hefur hrellt og ógnað þessu ein- ángraða byggðarlagi með umbrotum elds og ísa og hamföram jökul- hlaupa, fært skógalendur í kaf og lagt byggðir í auðn, uns núverandi Álftaversbyggð er ein eftir. Þar átti Vilhjálmur Guðjón Bjama- son sín bemsku- og unglingsár, fæddur í Sauðhúsnesi (sem fór í eyði eftir síðasta Kötlugos), flutti svo með foreldram sínum, Ragnhildi Brynj- ólfsdóttur og Bjarna Pálssyni, að Heijólfsstöðum, er hann var 7 ára. Þaðan lá leið þeirra svo til Víkur eftir Kötlugosið 1918. Rösklega tví- tugur hélt Vilhjálmur svo til Vest- mannaeyja og dvaldi þar í tvö ár, en flutti svo til Reykjavíkur. Þar nam hann „snikkaraiðn" hjá Eyvindi Ámasyni, líkkistusmið. Sú iðngrein, trésmíði, varð síðan aðalstarfsvett- vangur hans, einkum við húsasmíði. En árið 1932 stofnaði hann Kassa- gerð Reykjavíkur í félagi við Kristján Jóh. Kristjánsson og veittu þeir henni forstöðu í tæp 30 ár við mikinn orðst- ír. Þá og síðar átti Vilhjálmur þátt í starfí og stofnun ýmissa annarra iðnfyrirtækja og víða gætti áhrifa hans og atorku til fmmkvæðis og framfara. Vilhjálmur Bjarnason var gæfu- smiður. Með vandaðri og glæsilegri konu sinni, Elínu Kristjánsdóttur frá Patreksfírði, eignaðist hann fjögur mannvænleg og vel gerð böm: Hilm- ar 1934, Valdísi 1938, Kristbjörgu 1945 og Bjarna 1951. Þau Elín og Vilhjálmur reistu sér fyrir stríð fagurt býli inn við Lang- holt, efst í Laugardalnum. Þar var gróðursælt og friðsælt, þá fjarri þétt- býli borgarinnar. í því landnámi fór fljótt að gæta smekkvísi og hag- kvæmni þessara samhentu myndar- hjóna; fagurt og vel gert íbúðarhúsið varð brátt umlukið fjölþættum tijá- og blómagróðri. Býlið hlaut með réttu heitið Laufskálar. Það nafn sótti Vilhjálmur til bemskuslóða sinna, en sagnir em um Laufskála- og Dynskógahverfí fyrir ofan núver- andi byggð í Álftaveri. Þar skammt frá þjóðveginum upp að Skaftárt- ungu er hraunnýpa eða -kambur, er ber heitið Laufskálavarða og gnæfír upp úr sandinum. Þar og í grennd em litlar gijótvörður, hundmðum saman, en slíka vörðu ber hveijum að hlaða, er hann fer þar fyrsta sinni. Við býli sitt, Laufskála við Álf- heima 35, hafa þessi elskulegu hjón af elju reist sér gróðursælan minnis- varða, sönnun fyrir fegurðarsmekk þeirra og trú á framtíð íslands. En eftir stríð, þegar byggð var svo skipulögð og hafín um Voga og Heima, þá reyndist teikniborðsmönn- um ekki kleift að virða og varðveita þessa skógar- og blómavin, en drógu strik um þveran garð og mddu burt stómm hluta tijá- og blómalundar þeirra hjóna, svo að komið yrði þar fyrir steinkumbalda og malargötu. Það vom hjónunum þungbærar stundir, en þau gáfust eigi upp, skipulögðu á ný lóð sína, sem eftir var skilin, og héldu ræktuninni áfram. Þótt við Vilhjálmur væmm sýsl- ungar hófust kynni okkar fyrst með stofnun og starfí Langholtssafnaðar í Reykjavík árið 1952. Við lentum þar saman í fyrstu safnaðarstjóm og hennar biðu mörg torleyst vanda- mál, eigi síst sakir húsnæðisleysis fyrir kirkjulegt starf. Þegar af bygg- ingarmálum kom og lóð var fengin var Vilhjálmur þegar valinn til for- mennsku byggingamefndar og æ síðan. FVrst var ákveðin bygging safnaðarheimilisins, sem húsameist- ari, Hörður Bjamason, valdi að hafa í gömlum íslenskum stíl, þótt úr steinsteypu væri. Þakið leyst Vil- hjálmi misvel á, reyndist líka vanda- samt og dýrt; en Vilhjálmur leysti þann vanda með traustum bygging- armönnum, er hann hafði sjálfur valið. Þegar löngu síðar kom að sjálfu kirkjuskipinu reyndust steinsteyptar einingar þaksins eigi síður erfiðar. En allt tókst þetta vel að lokum undir farsælli fomstu Vilhjálms. Og nú á Langholtssöfnuður, þetta óska- bam okkar Vilhjálms, eitt vandað- asta guðshús landsins, þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, svo að söngur og hvers konar tónlist ómar Guði til dýrðar og mannanna börnum til yndisauka svo sem best verður á kosið. Þótt Vilhjálmur væri eigi sátt- ur við alla gerð þessa sérstæða og veglega musteris, þá vann hann af sinni alkunnu atorku og þrótti að allri framkvæmd þess, svo sem sam- þykkt var og ætlað. Sakir fjárskorts varð áradráttur á byggingu kirkjuskipsins og á meðan gegndu salarkynni safnaðarheimilis- ins öllum þáttum til kirkjulegs og félagslegs starfs, enda var þar reist fyrsta safnaðarheimili landsins. Fór það allt vel fram og við mikla að- sókn, enda klerkar safnaðarins, þeir sr. Árelíus Níelsson og sr. Sigurður Haukur Guðjónsson, engir lognmollu predikarar. Þegar sýnt þótti, að dráttur yrði á byggingu kirkjuskipsins, þá undi Vilhjálmur því ekki, að kirkjuklukkur kveddu menn ekki til og frá guðs- þjónustu. Var því ákveðið að hans fmmkvæði að reisa klukknaport á tilætluðum stað, fjársöfnun hafin, en vitað að þar gáfu þau Laufskálahjón langstærstan hlut. Hljómfagrar klukkur, sem dr. Róbert A. Ottósson valdi af sinni alkunnu smekkvísi, kveðja nú í dag með dumbum hljómi mikilhæfan fomstumann Langholts- safnaðar. Þegar saga þessa safnaðar og byggðar um Voga og Heima verður skráð ber einna hæst nöfn þeirra mætu Laufskálahjóna, Vilhjálms og Elínar. Þau vom hér meðal fyrstu landnema og fremst í röð áhuga- og forystuliðs um uppbyggingu fjöl- þætts o g merkilegs kirkju- og félags- starfs Langholtssafnaðar. Að Laufsskálum var ætíð gott að koma. Hvert sem erindið var var gesti tekið þar opnum örmum að fomum íslenskum höfðingjasið. Við- mót hjónanna ætíð hlýtt, viðræður auðveldar og veitingar óspart fram- dreiddar, ýmist í gestastofu eða vinnuherbergi húsbóndans. Margar urðu þær unaðsstundir meðan starfs- leiðir okkar lágu saman um safnaðar- mál eða önnur hugðarefni. Á fund þeirra vænu hjóna, Elínar og Vil- hjálms, gekk maður ætíð kvíðalaus og hvarf þaðan bjartsýnn og hug- djarfur um farsæla lausn aðkallandi vandamála. Þá minnumst við hjónin ótal ánægjustunda í safnaðarheimilinu með Vilhjálmi og Elínu, hvort sem var við kirkjulegar athafnir eða fjöl- breytt félagsstörf. Ógleymanlegar verða þær stundir, er konurnar stóðu við drekkhlaðin borð til framleiðslu úr eldhúsi safnaðarheimilisins og frá Laufskálum bámst ómæld blóma- föng til skreytingar altaris eða veisluborða. Allt var þetta unnið í hljóðri gleði, sem svo oft mátti sjá í svip þessara mætu hjóna. Á helgum tíðum og hátíðarstund- um létu þau sig aldrei vanta, lotning var og reisn í svip þeirra og fasi, er þau gengu til sæta í kirkjusalnum, en eldkrossinn blasti við á kórgafli. Vilhjálmur Bjarnason, formaður byggingamefndar og safnaðar- stjómar Langholtssafnaðar um langt árabil, er kvaddur í dag með virðingu og þökk. Að honum stóðu sterkir skaftfellskir stofnar og bar hann glögg einkenni þeirra, hár og þrek- vaxinn, víkingur til verka, áræðinn en aðgætinn, skapmaður og stefnu- fastur, stjórnsamur og úrræðagóður, gestrisinn og traustur. Eiginkonur okkar beggja, sem svo lengi áttu samleið í safnaðarstarfi, geta því miður ekki hist við þessi tímamót, svo er heilsu beggja hátt- að, en hugir leita saman til gamalla og góðra minninga. Við hjónin þökkum Vilhjálmi á Laufsskálum góð kynni og farsælt ævistarf og vottum eiginkonu hans, börnum þeirra og öllu venslafólki dýpstu samúð. Blessuð sé minning þessa aldna forustu manns, vinar og fmmheija. Helgí Þorláksson. Kveðja frá Langholtssöfnuði í Reykjavík Það var gæfa Langholtssafnaðar, að hjónin Vilhjálmur G. Bjarnason og Elín Kristjánsdóttir reistu hús sitt, Laufskála, í sókninni 1936. í kringum húsið ræktuðu þau fagran garð, sem unun er að horfa á og njóta. Þau ræktuðu einnig bænalíf. Vilhjálmur G. Bjarnason var einn af fmmkvöðlum Langholtssafnaðar. Starfskraftar hans nýttust til heilla frá fyrstu skóflustungu safnaðar- heimilisins til vígslu Langholts- kirkju. Þau geogu í Guðshús hvern helgan dag, hann höfðinglegur og hún glæsileg. Það var sem helgi messunnar yrði meiri er þau sátu á kirkjubekknum. Lotning þeirra lífs- ins höfundi birtist átakalaust. Vilhjálmur G. Bjarnason miklaði sig aldrei af verkum sínum. En svo mikilhæfur var hann að það var honum átakalaust að sýna sérhveiju verki, smáu og stóru, fullkomna virð- ingu. Kirkjuklukkur, gjöf Laufskála- hjónanna til Langholtskirkju, kirkju Guðbrands biskups, kalla til kirkju sóknarbörnin hvern helgan dag. Langholtssöfnuður drúpir höfði í virðingu og þökk. Samúðarkveðjur eru sendar eig- inkonu, börnum og öðrum ástvinum. Guð blessi minningu Vilhjálms G. Bjarnasonar. F.h. Langholtssafnaðar, Sigríður Jóhannsdóttir, formaður sóknarnefndar. Afi minn Vilhjálmur G. Bjarnason er látinn. Á slíkri stund lítur maður um öxl og rifjar upp þá ánægjulegu tíma sem við höfum átt saman frá því að ég var aðeins smápolli. Afi og amma bjuggu í næsta húsi við okkur, á Laufskálum, frá því að ég fæddist, þar til að ég fluttist að heiman tuttugu og þriggja ára gam- all. Frá tveggja ára aldri fór ég gjarn- an í morgunheimsóknir til afa og ömmu. Ég fór í náttsloppinn árla morguns áður en nokkur vaknaði heima, fór í inniskóna, tók Morgun- blaðið undir hendina og trítlaði út til þeirra í næsta hús. Ég hringdi bjöllunni og stóð síðan kotroskinn úti fyrir þangað til afi kom til dyra, *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.