Morgunblaðið - 11.02.1993, Side 46

Morgunblaðið - 11.02.1993, Side 46
46 — MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRUAR 1993 Mcð morgnnkaffinu Ast er ... 1-18 ... að ýta gleraugum hennar hærra upp á nefið. 3 Lot Angetes Tlmes Syndicate i 11 i1 Æ, æ, ég gleymdi alveg að segja þér frá þeim! Vertu róleg Jóna mín, þetta er eina nýársheitið sem ég átti eftir! HOGNI HREKKVISI BREF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811 Landráð, landráð, landráð Frá Þórði E. Halldórssyni: Þetta voru algengar upphrópanir í Þjóðviljanum, allt frá stofnun Kommúnistaflokksins 3.12.’30 til hruns heimskommúnismans á níunda áratugnum. Þeir leituðu grannt að öllum ávirðingum er þeir töldu sig finna í samskiptum ís- lenskra ráðamanna við áhrifamenn í lýðræðisríkjunum. Hámarki mann- víga þeirra náði fréttastofa Ríkisút- varpsins þegar Stefán Jón Hafstein fréttamaður kom með þá fregn að Stefán Jóhann Stefánsson fyrrver- andi ráðherra hafi stundað landráða- starfsemi. Enda þótt Stefán Jóhann væri látinn þegar þetta gerðist, tókst góðum mönnum að slá þetta lyga- upphlaup úr höndum Stefáns J. Hafsteins. Það er umhugsunarvert hversu snemma kommúnistum tókst að hreiðra um sig á Ríkisútvarpinu, og þá alveg sérstaklega á fréttastof- unni. í hvert sinn sem þeir komust í ríkisstjóm eftir 1944, þegar Brynj- ólfur Bjarnason var leiddur upp"í stól menntamálaráðherra, hafa þeir haft sama hátt á að biðja um menntamálin, enda er flestum kunn- ugt hvernig menntakerfið hefur stuðlað að útþynntri lágkúru, sem hefur haft í för með sér menntunar- leysi og ólæsi. Það voru hugsjónir kommúnismans sem öllu voru látnar ráða og íslendingar flutu óvörum að feigðarósi menntakerfisins, sem þá var látið ráða að sænskri fyrir- mynd, eins og svo margt annað. Væri látið að því liggja að undrum sætti hvernig kommúnistar hefðu ráð á öllum þeim fjárfestingum sem þeir réðust í og jafnvel innt að því að þeim bærist fé með undarlegum hætti austanað frá móðurstöðinni í Moskvu, ærðust kommar og hrópuðu „moggalygi“ og landráð að þeim sem létu sér slíkt um munn fara. Það er þess vegna ánægjulegt að sjá unga menn, Ama Snævarr fréttamann og Val Ingimundarson sagnfræðing senda frá sér bók sína „Liðsmenn Moskvu“, þar sem þeir fletta ofan af svikastarfsemi ís- lenskra kommúnista. Við könnun þeirra á skjölum í söfnum í Rúss- landi kemur í ljós að kommúnista- flokkurinn á íslandi hefur í gegnum árin tekið á móti hundruð þúsunda króna, jafnvel milh'ónum, til að reka áróðursmaskínu kommúnismans á íslandi. Um þessi atriði hafa komm- únistar logið áratugum saman og reynt að veija sig með upphrópun- inni „moggalygi“. Ég vil skora á fólk að kaupa þessa bók og sjá þar svart á hvítu hvernig þessi trúar- bragðalýður hefur leikið landa sína grátt. Hvernig er svo viðhorfið í dag. Hefur kommúnisminn lagt upp laupana, eins og víðast í Evrópu? Nei, það er víðs ljarri. Eins og oft áður þegar kommúnistaflokkurinn hefur skipt um nafn, til að villa á sér heimildir, er nú tekin upp sú stefna að beija sér á bijóst og segj- ast nú vera orðnir hinir sönnustu lýðræðissinnar. Hver sem hefur hlustað á sjónvarpsumræðurnar um EES-samninginn nú fyrir stuttu þarf ekki að fara í grafgötur um að allt er með sömu ummerkjum sem var um borð í rauðu skútunni áður fyrr. Foringinn Ólafur Ragnar Gríms- son kaus að fela sig í skúmaskoti á meðan flokksbræður hans, Hjörleif- ur Guttormsson og Svavar Gestsson, messuðu með sama orðbragði og brigslyrðum frumheijanna sem þeir tóku sér til fyrirmyndar í æsku. Jón Baldvin Hannibalsson sagði í svar- ræðu sinn á eftir, að þar hefðu læri- sveinar Brynjólfs Bjarnasonar og Einars Olgeirssonar notið sín til fulls. Það hafa kannske ekki margir tekið eftir broti úr ræðu Hjörleifs, þar sem hann sagði orðrétt: „Það er því miður ekki afl hér á Alþingi til að stöðva þetta mál, það þarf að koma til utanað, hugsanlega." Dag- inn eftir, þegar atkvæðagreiðslan fór fram í þinginu um EES-samninginn, kom greinilega fram hvað Hjörleifur átti við með aflinu sem þurfti að koma utanað. Það er freistandi að telja að hann hafí sjálfur staðið að undirbúningi þess að sjö unglingar, sem sögðust eftir á vera meðlimir æskulýðsfylkingar kommúnista, komust vopnaðir inná áheyrenda- palla Alþingis. Enda þótt vopnin væru ekki annað en góð eftirlíking alvöru vopna, var meiningin samt sem áður sú að valda hræðsluupp- þoti og truflun á störfum Alþingis. Hvenær kemur að alvörunni al- þingismenn? Þetta var áþreifanleg könnun sem tókst. Það hefur verið viðtekin regla hjá kommúnistum í gegnum tíðina að ráðast gegn stöðuveitingum á veg- um ríkisins, ef þær hafa verið þeim á móti skapi. Það vakti því talsverða athygli að þegar ráðið var í stöðu útvarpsstjóra síðast var sú stöðuveit- ing kommum svo sannarlega þókn- anleg. Ekki fyrir það að sá ráðni væri endilega úr þeirra flokki, heldur sáu þeir að þama var kominn maður sem aldrei hafði nálægt fjölmiðli komið og auðvelt væri að hafa í vasa sínum sakir þekkingarskorts. Þeir hafa t.d. aldrei gagnrýnt svo vitað sé að útvarpsstjóri bjó til nýja, vel launaða stöðu handa konu sinni við Ríkisútvarpið. Ekki er vitað hvort menntamálaráðherra hefur lagt blessun sína yfir sköpunarverkið í þrengingum þjóðarinnar. Svo vel hefur þetta mælst fyrir út á við að hinn nýi forseti Bandaríkjanna Bill Clinton réð kellu sína í ábyrgðar- stöðu við embætti sitt. Stóri munur- inn er þó sá að forsetafrúin er launa- laus. Ég mundi telja að tími sé kominn fyrir ríkisstjórnina að líta í kringum sig í því sem er að gerast hjá Ríkisút- varpinu. Væri fyrirtækið gert að hlutafélagi mundi starfsliðið skreppa saman um a.m.k. 30% samdægurs. Öryggismál hafa ætíð verið sett á oddinn í fjálglegi’i umræðu um breyt- ingar frá ríkisrekstri útvarpsins. Því er ekki lengur til að dreifa vegna nýjustu tækni ljósleiðara útvarps- stöðva og tækniþróunar Landsí- mans. í gegnum tökin, sem kommúnistar hafa náð á menntakerfínu og öðrum þeim greinum er undir menntamála- ráðuneytið heyra, vekur athygli hvað fólk virðist sofandi og sinnulaust í þessum málum. Það nær langt út fyrir landsteinana undrun á því hvaða tökum kommar hafa náð í opinberum stofnunum á íslandi. Það þarf hins vegar engan að undra þeg- ar litið er til þess hversu marga ára- tugi þeir hafa fengið til að stunda iðju sína óáreittir. Það eru margir undrandi á því hvernig Ríkisútvarpið hefur nú uppá síðkastið kallað oft á Ólaf Ragnar Grímsson öllum öðrum fremur þegar þörf virðist á að ráðast með illyrðum að ríkisstjóminni. Hann er aðalleik- arinn í þeirri sápuóperu. Hver sem lesið hefur „Liðsmenn Moskvu“ hlýtur að spyija sjálfan sig og aðra: Höfum við ekki endanlega fundið hina einu og sönnu landráða- menn? Það var ekkert rugl sem haft var eitt sinn eftir Indriða Þorsteins- syni skáldi: „Síðasti kommúnistinn sem finnst í Evrópu er búsettur á íslandi. ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON Sólheimum 25, Reykjavík. Víkverji skrifar Keppnisíþróttir eru í hugum flestra eingöngu fyrir ungt og þrautþjálfað fólk; það er ekki óalgengt að íþróttafréttamenn tali um gamla manninn eða gömlu kon- una innan gæsalappa ef viðkomandi er skriðinn yfír þritugt. Upp frá því geta fæstir keppt við sér yngra fólk, þótt þess séu raunar dæmi, og í mörgum íþróttagreinum komast menn í svokallaðan öldungaflokk þegar þeir ná fertugu eða jafnvel fyrr. En þetta á ekki við um allar íþróttir. I hugaríþróttum, eins og skák og brids, geta keppnismenn verið í fremstu röð fram á elliár. Um þetta eru mörg dæmi, bæði innlend og erlend. Um síðustu helgi urðu tvær konur íslandsmeistarar í blönduðum flokki í brids, önnur þeirra á 75. aldursári og hin á því sjötugasta. Þá varð maður hátt á áttræðisaldri hraðskákmeistari Húsavíkur fyrir skömmu. Erlendis frá hafa einnig borist svipaðar frétt- ir af afrekum eldra fólks við græna* borðið eða skákborðið í keppni við fólk á besta aldri. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að nú er algengt að fólk láti af störf- um fyrir aldurs sakir þegar það nær sjötugu og gildir þá einu þótt and- legt þrek þess sé ekkert farið að bila. Það getur verið að fólk á þess- um aldri sé ekki eins hugmyndaríkt og gjarnt til að koma fram með nýjungar og yngra fólkið. En eins og dæmin úr hugaríþróttunum sýna getur áralöng reynsla og yfirvegun sem henni fylgir ekki síður verið vænlegt til árangurs. xxx Það hefur einnig vakið athygli Víkveija að innan bridsíþrótt- arinnar virðist kynslóðabilið ekki breitt. Þannig er yfir fjörutíu ára aldursmunur á spilafélögunum í sig- ursveitinni á Islandsmótinu sem áður var getið. Og svipaður aldurs- munur er á spilurunum í því brids- pari sem verið hefur einna sigursæl- ast á yfirstandandi keppnistímabili. Víkverji gerði fyrir skömmu að umtalsefni þær ógöngur sem sparnaður í opinberum rekstri lend- ir stundum í. Þar var tekið dæmi um ákveðna heilbrigðisstofnun sem hefði ekki viljað fjárfesta í símboð- um en léti þess í stað flytja einn símboða milli bakvaktarfólks með leigubílum. Nú hefur Víkveiji frétt að í kjölfar þessarar umfjöllunar hafí stofnunin fjárfest í símboðum þannig að nú má búast við að leigu- bílareikningar heilbrigðiskerfisins lækki sem þessum ferðum nemur. <

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.