Morgunblaðið - 11.02.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1993
47
Minningarsjóður Ársæls Sigurðs-
sonar og Sigurbjargar Pálsdóttur
Frá Þórði Tómussyni:
íslenskar sveitir hafa á undanföm-
um áratugum gefið Reykjavík og
þéttbýlisstöðum landsins mikinn
fjölda af manndómsfólki sem átt
hefur góðan þátt í að byggja þar upp
athafnir og menningu. Eitt hefur það
átt sameiginlegt, að gleyma ekki
uppruna sínum og að bera hlýjar
taugar til gamaila heimabyggða.
Gott dæmi um það eru hjónin Ár-
sæll Sigurðsson skólastjóri og Sigur-
þjörg Pálsdóttir frá Skammadal í
Mýrdal sem lengi gerðu garð sinn
frægan í Blönduhlíð 7 í Reykjavík.
Ársæll fæddist á Ljótarstöðum í
Skaftártungu 31. des 1901, sonur
Sigurðar Sigurðssonar bónda þar og
konu hans, Þórunnar Hjálmarsdóttur
ljósmóður, sem bæði voru af góðum
bændaættum í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Sigurður á Ljótarstöðum dó
1905 og ólst Ársæll næstu ár upp
með móður sinni í Skaftártungu og
Vestmannaeyjum en árið 1912 flutti
hann að Skammadal, þar sem hann
átti fast heimili til 1924. Hann lauk
kennaraprófi frá Kennaraskólanum
1925, sótti kennaranámskeið í Askov
1937 og lauk prófi í íslenskri nútíma-
hljóðfræði frá Háskóla íslands 1944.
Ársæll kenndi á ýmsum stöðum,
lengst af við Austurbæjarbarnaskól-
ann í Reykjavík, frá 1938-1968, síð-
ast sem skólastjóri. Eftir hann liggja
ýmsar ritgerðir í tímaritum og rit á
sviði íslenskrar málfræði til notkunar
í skólum. Áhugamál Ársæls beindust
einnig mjög að þjóðfræði og skráði
hann margt á því sviði, einkum varð-
andi mannlíf í Vestur-Skaftafells-
sýslu og eru þau handrit hans nú í
Landsbókasafni. Með tíð og tíma
kom hann sér upp miklu og góðu
bókasafni, ekki síst á sviði íslenskra
fræða og handbóka í námi og
kennslu.
Ársæll kvæntist 31. maí 1941 Sig-
urbjörgu Pálsdóttur frá Skammadal,
Ársæll Sigurðsson
mikilhæfri mannkostakonu á alla
grein. Hún var fædd 6. júlí 1907,
dóttir Páls Sigurðssonaf frá Breiða-
bólstað á Síðu og konu hans, Berg-
þóru Sveinsdóttur frá Giljum í Mýr-
dal, sem lengi bjuggu sæmdarbúi í
Skammadal. Þau Arsæll og Sigur-
björg bjuggu, sem fyrr segir, í
Blönduhlíð 7 og eiga margir góðar
minningar um fagurt og gestrisið
heimili þeirra. Ársæll andaðist 28.
júní 1970, Sigurbjörg 23. ágúst
1989.
Nokkru fyrir andlát Ársæls höfðu
þau hjón gert erfðaskrá sem kom til
framkvæmda eftir fráfall Sigur-
bjargar og þá kom eftirminnilega í
ljós að þau höfðu munað vel til átt-
haga. Bókasafnið var ánafnað
Skógaskóla, sem nú heitir Fjöl-
brautaskólinn í Skógum. Það kom
til skólans í á annað hundrað kössum
1990 og ætti í framtíð að verða mik-
il lýftistöng fyrir menningarstarf
skólans, m.a. í tengslum við Héraðs-
skjalasafnið í Skógum, sameign
Vestur-Skaftfellinga og Rangæinga.
Erfðaskráin kvað á um það að 55%
af húseign þeirra hjóna í Blönduhlíð
Sigurbjörg Pálsdóttir
7 rynni til stofnunar á Minningar-
sjóði Ársæls Sigurðssonar og Sigur-
bjargar Pálsdóttur, en tilgangur hans
skal vera „að styrkja hæfan fræði-
mann til rannsókna á ættum Skaft-
fellinga og byggðasögu Vestur-
Skaftafellssýslu". Skal til þess varið
90% árlegra raunvaxta hans sam-
kvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar.
Skipulagsskrá sjóðsins hefur verið
staðfest af dómsmálaráðuneytinu og
gera má ráð fyrir að fyrsta úthlutun
úr honum fari fram árið 1993. Sjóðs-
stjórn skipa þrír menn. Formaður
hennar er bróðir Sigurbjargar,
Sveinn Pálsson í Blönduhlíð 7. Með
honum í stjórn eru Páll Ævar Páls-
son tannlæknir í Álfatúni 15 í Kópa-
vogi og Þórður Tómasson safnvörður
í Skógum.
Minningarsjóðurinn horfír til þess
að geta orðið þýðingarmikill aflvaki
í skaftfellskum fræðum, einkum á
sviði byggðasögu. Mannfræði hér-
aðsins hafa þegar verið gerð mikil
skil í öndvegisriti Björns Magnússon-
ar prófessors, Vestur-Skaftfellingar
I-IV. Þessi ákvörðun heiðurshjón-
anna Ársæls og Sigurbjargar ber
vitni um mikinn menningarlegan
skilning og einstaka ræktarsemi í
garð Skógaskóla og Vestur-Skaft-
fellinga og skal hér þökkuð fyrir
hönd þeirra sem rækta munu akur
fræðanna í framtíð. Ekki skyldi því
gleymt hér að til byggðasafnsins í
Skógum runnu ýmsir hlutir frá heim-
ilinu í Blönduhlíð 7 samkvæmt
ákvörðun Sveins Pálssonar og Páls
Marteinssonar og fjölskyldu hans,
en Páll var giftur Gyðríði Pálsdóttur
frá Skammadal. Þau Ársæll og Sig-
urbjörg voru bæði hög í höndum og
margt í húsbúnaði þeirra heimagert.
Skógasafn flytur gefendum þökk
fyrir þennan kærkomna safnauka.
ÞÓRÐUR TÓMASSON,
safnvörður í Skógum.
LEIÐRÉTTINGAR
Nafn höfund-
ar féll niður
í annarri af tveimur minningargrein-
um um Þórarin Elís Jónsson í þriðju-
dagsblaði Morgunblaðsins féll niður
nafn höfundarins, Jóns Hjörleifs
Jónssonar, og voru engin skil á milli
greinanna. Grein Jóns Hjörleifs end-
aði á tilvitnun í kvæði eftir Einar
Benediktsson sem Jón sagði að væri
eins og töluð út frá hjarta frænda
síns, Þórarins. Síðari greinin, sem
er eftir Pál Ingólfsson, hefst á fyrsta
erindi {ir kvæði, sem Þórarinn Elís
orti um bernskustöðvar sínar að
Núpi á Berufjarðarströnd. Hlutaðeig-
andi eru innilega beðnir afsökunar á
þessum leiðu mistökum.
Hry guinar stofn-
inn 230 þús. tonn
Vegna misskilnins var rangt farið
með stofnstærð þorskárganga 83 og
84 í frétt er birtist í Morgunblaðinu
10. febrúar og bar fyrirsögnina
Vænn þorskur fæst í dragnót. Hið
rétta er að stofnstærð þorskárganga
frá 83 og 84 var að áliti fiskifræði-
nag um 54 þúsund tonn í ársbyijun
en hrygningarstofninn allur 230 þús-
und tonn. Er beðist afsökunar á þess-
um mistökum.
YELVAKANDI
Of lítið leikið af
danstónlist
Flestir kannast við rokk,
klassíska tónlist, djass og fleiri
tegundir tónlistar, en færri
þekkja danstónlist eða vilja
kynnast henni. Eflaust hlustar
meiri hluti íslenskra ungmenna
á þess háttar tónlist og mörgum
öðrum finnst gaman að dansa
við hana, en hún virðist aðallega
höfða til fólks undir tuttugu og
fimm ára aldri. Unglingar, sem
vilja heyra þessa tónlist, fá ekki
mörg tækifæri til þess þar sem
hún er mjög lítið leikin á út-
varpsstöðvum og sjónvarpi. Það
er einna helst á skemmtistöðum
landsins sem hún heyrist, en á
þeim stöðum er svo hátt aldurs-
takmark að unglingarnir geta
ekki notið þess. Unglingar hafa
stundum haldið svokallaðar
dansveislur, en það eru sam-
kvæmi sem ekki hefur fengist
leyfi fyrir og unglingarnir halda
upp á sitt einsdæmi í vöru-
skemmum eða öðrum álíka stöð-
um.
Danstónlist einkennist af
tölvufærðum lögum sem eru
yfirfull af trommutökum, hljóm-
borðsmelódíum og miklum söng.
Á síðastliðnu ári sendu tvö
stærstu útgáfufyrirtæki lands-
ins út geisladiska með þessari
tónlist, og hétu þeir Icerave og
Reif í fótinn en á þeim diski var
mestöll tónlistin erlend.
Nokkrar íslenskar hljómsveit-
ir sem spila þessa tónlist hafa
skotið upp kollinum upp á síð-
kastið og áhugi fólks virðist
vera að vaxa.
Við vonumst eftir því að fá
að heyra meiri danstónlist á ljós-
vakamiðlunum í framtíðinni.
Tveir danstónlistar-
unnendur.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Snyrtitaska tapaðist
Stór svört snyrtitaska tapað-
ist, líklega á Þórsgötu, sl. laug-
ardag. Finnandi vinsamlega hafi
samband við Öddu í síma
626299 á skrifstofutíma.
Tölva tapaðist
Vasatölva af tegundinni
Casio, Boss, tapaðist á leiðinni
frá Frostaskjóli að Kaplaskjóls-
vegi fimmtudaginn 4. þ.m. um
kl. 21. í tölvunni eru ómetanleg-
ar upplýsingar fyrir eigandann
sem gagnast engum öðrum.
Upplýsingar gefur Egill Eð-
valdsson í síma 16215 eða
vinnusíma í Sjónvarpinu
693900. Fundarlaun.
GÆLUDÝR
Köttur gerir sig
heimakominn
Svartur og hvítur gæfur
fressköttur hefur gert sig
heimakominn á Laugarásvegin-
um og Sunnuveginum frá því í
sumar og kringum hann hafa
safnast saman fleiri kettir, sum-
ir merktir, en þeir eru frekar
styggir. Upplýsingar í síma
37164.
Kettlingar fást gefins
Nokkra góða og blíða kettl-
inga vantar gott heimili. Kassa-
vanir. Upplýsingar í síma
42384.
Wilhelm Norðfjörð
Hugo Þórisson
Nú er að heíjast námskeið þar sem foreldrum
gefst kostur á að kynnast og tileinka sér
ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum
foreldra og bama þar verður m.a. fjaltað um
hvað foreldrar geta gert til að:
•aðstoða börn sín við þeirra vandamál.
•að leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi.
•byggja upp jákvæð samskipti innan
fjölskyldunnar.
Upplýsingar og
skráning í síma
621132 og 626632
■t
1993
ÁRIÐ
'93
1993
KRÓNUR
ÁÁRINU 1993 BÝÐUR
AMMA LÚ UPP Á 3JA
RÉTTA KVCTDVERÐ OG
SKEMMTIATRIÐI Á
FÖSTUDAGSKVÖEDUM Á
KR. 1993.
GESTUR KVÖLDSINS 12. FEBRÚAR:
BOGOMli FONT
■/r-
1/l/latu* oq íkehihitiatHÍi kn 199?.-
QS$m/ma/ \93
Borðapantanir í síma 689-686