Morgunblaðið - 16.02.1993, Síða 2

Morgunblaðið - 16.02.1993, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 16. FEBRÖAR 1993 ÚA greiðir 240 milljónir kr. fyrir þýska fyrirtækið Viðræðum haldið áfram um mánaðamót og reynt að ljúka þeim fyrir 1. aprO Gróðurinn snyrtur Starfsmenn garðyrlqustjóra Reykjavíkurborgar vinna þessa dagana að snyrtingu trjágróðurs á opinberum svæðum I borginni. I gær var þessi mynd tekin við dagheim- ilið Laugaborg þar sem vinnu- flokkur var að klippa og snyrta trjáplöntur á lóð dag- heimilisins. ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa mun greiða um 240 miiy- ónir króna fyrir 60% hlut í útgerðarfyrirtækinu Mecklen- burger Hochseefischerei í Rostock í Þýzkalandi, verði af kaupum á fyrirtækinu. Nafnverð hlutarins, eins og gengið var frá því í desember síðastliðnum, var 96 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er eigið fé fyrir- tækisins talsvert meira en hlutaféð. Gunnar Ragnars, for- stjóri ÚA, greindi í gær stjórn Útgerðarfélagsins frá samn- ingaviðræðum sínum í Þýzkalandi í síðustu viku. Viðræðum verður haldið áfram um mánaðamót og áfram er stefnt að því að ljúka þeim fyrir 1. apríl. Væntanlegir eigendur fyrir- tækisins, auk ÚA, eru Rostock- höfn, Rostockborg og landstjómin í Meclenburg-Vorpommem. Að sögn Gunnars Ragnars hefur að mestu leyti verið gengið frá samn- ingum þessara aðila við Treuhand- anstalt, einkavæðingarfyrirtæki þýzku stjómarinnar, og Deutsche Fischwirtschaft, eignarhaldsfélag Mecklenburger Hochseefischerei. Hins vegar eiga væntanlegir eig- endur eftir að ganga frá samning- um sín á milli um samþykktir fé- lagsins, framkvæmdastjóm og ýmsa aðra þætti. Gert er ráð fyrir að einhveijir af stjómendum fyrir- tækisins verði íslendingar. Utan bannsvæðisins Gunnar Ragnars sagði að ákvörðun sjávarútvegsráðuneytis- ins um að leyfa skipum Mecklen- burger Hochseefischerei að landa karfa hér á landi, sé hann veiddur utan afmarkaðs bannsvæðis, þýddi að löndunarheimildir væm rýmri en verið hefði, en engu að síður væri ekki um óskoraða heimild að ræða. Gunnar sagði að á síðasta ári hefðu skip fyrirtækisins einkum haldið sig utan bannsvæðisins, enda hefði lítið veiðzt af kvóta fyrirtækisins í grænlenzkri lög- sögu. Ef veiði yrði góð þar myndu skipin hins vegar veiða sinn kvóta. „Ef þessi fískur veiðist á annað borð verður honum ekki landað hér á íslandi, heldur siglt með hann annað,“ sagði hann. Gunnar sagði að forsvarsmenn ÚA hefðu mjög horft til þess að geta landað afla hér á landi, en menn væm þó ekki að einblína á takmarkaðar löndunarheimildir eins og málin stæðu. „Við munum meta alla þætti málsins í heild,“ sagði Gunnar. Rjkisendurskoðun um skuldir ríkissjóðs Stöðug aukning er mikið áhyggjuefni RIKISENDURSKOÐUN telur að skuldastaða ríkissjóðs og stöðug aukning skulda sé mikið áhyggjuefni og mikilvægt sé að Alþingi fjalli sérstaklega um það sem fyrst. Þá telur stofnunin ekki síður mikilvægt að skattgreiðendum sé gert ljóst hvert stefnir í þessu efni. í árslok 1991 námu heildar- skuldir A-hluta ríkissjóðs að frádregnum kröfum 131,4 millj- örðum króna. Þar með taldar eru lífeyrisskuldbindingar vegna opinberra starfsmanna að fjárhæð 55 milljarðar kr. en í árs- byrjun sama ár námu lífeyrisskuldbindingar 50 milljörðum. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar vegna endur- skoðunar ríkisreiknings 1991. Þar er bent á að aukning skulda um- fram eignir ríkisins námu 18 millj- örðum kr. á árinu 1991. Ef frá eru taldar skuldbindingar vegna lífeyr- isgreiðslna opinberra starfsmanna nemur hlutfall nettóskulda ríkis- sjóðs um 72% af árstekjum ríkis- sjóðs. Fjármagnskostnaður ríkissjóðs og ríkisstofnana nam tæpum 13 milljörðum króna 1991 að meðtöld- um áföllnum en ógjaldföllnum vöxtum á skuldum ríkissjóðs. á sama ári nam álagður tekjuskattur einstaklinga 13,9 milljörðum. í dag Grayson laus úr haldi___________ Hæstiréttur felldi í gær úr gildi gæsluvarðshaldsúrskurðinn yfír James Brian Grayson 4 Félagafrelsi og skylduaðild Félagsmálaráðherra telur vafa- samt að takmarka rétt til atvinnu- leysisbóta við aðild að stéttarfélagi 16 Brautskráðir frá HÍ_____________ Að loknu haustmisseri í Háskóla íslands luku 96 kandidatar prófum og voru brautskráðir í byrjun febr- úar 46 Leiðari_________________________ Bandaríkin vakna af dvala 24 íþróttir ► Svissneskt félag vill fá Valdi- mar Grímsson. Bjarki Sigurðs- son með landsliðinu til Frakk- lands. Fatlaðir settu sjö íslands- met og unnu 13 gull í Svíþjóð _____________________________________________________________________Morgunblaðið/RAX Vanskil vegna staðgreiðslu skatta 3,4 milljarðar áríð 1991 Áætlað að 1,6 milljarðar króna séu tapaðar kröfur GJALDFALLNAR en óinnheimtar eftirstöðvar af tekjum rík- issjóðs námu tæplega 20 milljörðum króna í árslok 1991 og höfðu aukist um tæplega fímm milljarða króna milli ára eða um 34%. Þar af námu vanskil launagreiðenda vegna stað- greiðslu 3,4 milljörðum kr. í árslok og áætla yfirskoðunar- menn ríkisreiknings ársins 1991 í skýrslu sinni að 1,6 miiyarð- ar af þeirri fjárhæð séu tapaðar kröfur. Hækkuðu eftirstöðv- ar tekjuskatts einstaklinga um 1.450 milljónir króna milli ára eða um 32,1% Yfirskoðunarmenn telja með öllu ólíðandi að fyrirtæki skili ekki af- dreginni staðgreiðslu skatta launa- manna og vilja að hart verði tekið á þeim málum. Ríkisendurskoðun tekur undir þetta og bendir á að þrátt fyrir skýlausar heimildir til að stöðva atvinnurekstur launagreið- enda sem skulda staðgreiðslu séu dæmi um að ekki sé gripið til að- gerða gegn þeim sem skuldi umtals- verðar fjárhæðir í lengri tíma. Vanskil vsk. 2,7 miHjarðar Þá rúmlega tvöfölduðust gjald- fallnar eftirstöðvar á álögðum virðis- aukaskatti á á milli áranna 1990 og 1991 og voru vanskilin komin í 2,7 milljarða í árslok 1991 eftir annað ár virðisaukaskattsins. Telur Ríkis- endurskoðun að hér sé um mjög al- varlega þróun að ræða. Bifreiðagjöld til innheimtu námu 3,8 milljörðum á árinu 1991 og upp í þá fjárhæð innheimtust 2,9 millj- arðar eða 76,4%. Ríkisendurskoðun segir allnokkur dæmi um að bifreið- ir fái lögbundna skoðun án þess að lögboðin gjöld hafi verið greidd og telur þörf á að. herða eftirlit með innheimtu bifreiðagjalda. Líkfundir í Djúpinu TVÖ lík hafa komið upp með veiðarfærum tveggja báta í Isafjarðardjúpi með skömmu millibili. Fyrra líkið kom I botnvörpu Gunnbjörns ÍS 302 skammt frá Bolungarvík á föstudag. Ekki er vitað af hveijum líkið er og hefur það verið sent til Reykjavíkur. Seinna líkið kom upp með rækjutrolli Donnu ST 4 útaf Arn- amesi í svokölluðum ál, innarlega í ísafjarðardjúpi, í gær. Amar Kristjánsson, skipstjóri, sagði að líkið hefði greinilega verið búið að liggja lengi í sjó. Líkið verður flutt til Reykjavíkur i dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.