Morgunblaðið - 16.02.1993, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 16.02.1993, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993 Paragon-hópurinn frá Skotlandi. PARAGON TÓNLEIKAR _________Ténlist____________ Jón Ásgeirsson Paragon-hópurinn frá Skot- landi hélt tónieika á vegum Myrkra músíkdaga fyrir síðustu helgi í Listasafni Islands. Á efnis- skránni voru verk eftir Martin Dalby, Judith Weir, Gordon McPherson og Thomas Wilson. Einsöngvari var Irene Drummond en stjórnandi David Davies. Tónleikamir hófust á tilvitn- unarverki eftir Martin Dalby og jafnvel titillinn, „Songs my Mot- her taught me“, er tekinn frá Dvorák og í efnisskrá telur Dalby upp fyrirmyndimar, menn eins og Francaix, Messiaen, Strauss og Mahler. Það má segja að „ekkert er nýtt undir sólinni" og að fmm- leiki sé í raun blekking en það að sækja í smiðjur annarra, hefur ævinlega verið talið vafasamt. Þrátt fyrir þetta var verkið vel samið og nokkuð áheyrilegt. Kammeróperan, „The Consol- ations of Scolarship", eftir Judith Weir, er eitt af stærri verkunum, sem flutt var á þessum tónleikum. Efni hennar er kínverskt og fjall- ar í raun um hefndina sem endan- legt uppgjör við sviksemina. Hvaða erindi á svona efni við nútíma manninn? Með hvaða hætti er mögulegt að búa til nokk- uð annað en föla eftirmynd þess kínverska heims, sem horfmn er bak við tjöld sögunnar. Eitt af því sem einkennir tónmál verksiris er að setningaskipan textans og undirspilsins, var nánast sam- ferða út allt verkið. Þetta einkenn- ir forn-kínverska leikhúsmúsík og var í raun það eina sem minnti á tíma sögunnar. Irene Drummond söng verkið aldeilis ágætlega og auðheyrt að þar fór frábær söng- kona. Strengjakvartett nr. 1, eftir Gordon McPherson, með undirtitl- inum „Civil Disobedience on the Northem Front" er eins konar „óhlýðnisverk“ og er tilfinninga- grunnur þess þær andstæður, sem kalla má óhlýðni og skyldurækni. Það er töluverður stráksskapur í verkinu og skylduræknin á sann- arlega í vök að veijast og af því leyti til, er verkið skemmtilegt áheymar en á köflum gróft og hrekkjótt, eins og vera ber. Skylduræknin byggist sumpart á uppeldi og samhygð innan ákveðins samfélags og það mátti heyra í kammersinfóníu eftir Thomas Wilson. Allt er þar snyrti- lega gert en án allrar ástríðu eða tilfinningalegra umbrota og því dæmigert fyrir listamann, sem reynir að hafa sýn til allra átta en man of mikið. Orðið „Paragon“ merkir á ensku, að þar fari þeir sem séu fyrirmynd og afbragð annarra. Gott er að setja sér háleit mark- mið og rétt er það, að flutningur- inn í heild var góður og stjómand- inn vann sitt verk án allrar fyrir- ferðar, svo að vel má við una þá staðhæfíngu, að Paragon-hópur- inn sé „fyrirmynd og afbragð annarra". 911RÍ1 91 Q7H LARUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjori Ll I VVk I 0 / U KRISTINN SIGURJONSSON. HRL. loggiltur fasteignasali Til sýnis og sölu meöal annarra eigna: Mikið endurnýjað einbýlishús við Selvogsgrunn ein hæð rúmir 170 fm. Bílskúr tæpir 30 fm. Glæsileg lóð 560 fm með háum trjám. Úrvals staður. Einstakt tækifæri Sér efri hæð í austurborginni um 150 fm með 6 herb. íbúð. Bílskúr fylgir. Selst í skiptum fyrir 3ja-4ra herb. íbúð með bílskúr. Teikn. og nánari uppl. á skrifst. ________________ ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 • • • Fjöldi fjársterkra kaupenda einkum að 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. fbúðum. Málverk og skúlptúr ________Myndlist_____________ Bragi Ásgeirsson í Portinu, hinum nýja sýningar- sal þeirra Hafnfírðinga, þar sem áður var Vélsmiðja Hafnarfjarðar, sýnir Gunnhildur Pálsdóttir mál- verk og skúlptúra fram til 21. febr- úar. Gunnhildur nam við MHÍ á ámn- um 1969-73, en hefur svo einnig numið við einhveija stofnun er nefnist „Spektra" 1988-89 og list- íðaskólann í Kolding 1989-92, en hún var um árabil búsett í Dan- mörku. Myndlistarkonan hefur haldið tvær einkasýningar áður, hina fyrri í Vestmannaeyjum 1974, en hina seinni í Óðinsvéum 1989. Þetta er hins vegar fyrsta sýning hennar á hinu svonefnda Stór-Reykjavíkur- svæði, eða þéttbýliskjamanum í nágrenni höfuðborgarinnar. Það er um margt framandi blær yfír þessari sýningu, sem stafar að sjálfsögðu af því, að Gunnhildur hefur orðið fyrir annars konar áhrif- um, en við eigum að venjast hér á landi. En hins vegar kenni ég aftur þessa framstæðu æð sem fylgdi henni í skóla, og hér hafa ekki orð- ið merkjanleg umskipti, því að hún er ennþá í ríkum mæli gædd þess- ari verðmætu og bemsku kennd andspænis hlutveruleikanum. Þó virðist Gunnhildi ganga nokkuð erf- iðlega að rækta sérgáfu sína og má það vera vegna þess, að hún hefur ekki unnið nægilega samfellt að frjálsri listsköpun og þannig ekki náð að virkja vitundarlíf sitt að marki. Síðast var hún t.d. þijú ár í listiðnaðarskóla og bera skúlpt- úrverk hennar ljósan vott um það, en þau em mörg hver á mörkum listiðnaðar og skúlptúrs. Og að mínu viti tekst henni helst að virkja innri lífæðir rýmislistarinnar í þeim verkum, sem búa yfír skipulögð- ustum mótunarkrafti svo sem nr. 11, 12, 19, 21 og 26. Þessi verk eru í eðli sínu meira meðvituð sem frjáls sköpun, en flest annað á sýning- unni. Hvað málverkin snertir virðist Gunnhildur jafnan vera að segja einhveijar augnablikssögur. Um er að ræða hugdettur, gjarnan teknar langt að, jafnvel úr lesefni dagsins. Er um mjög lausformaðar myndir að ræða og hér á ég erfítt með að fylgja henni. Einna sáttastur var ég við myndina nr. 4 „Hreyfing", því að þar birtist úthverfur kraftur um leið og hún ber með sér inn- sæisblossa og er að því marki skyld nýja málverkinu svonefnda, og um leið svo mörgu svipuðu í list fortíð- arinnar. 51500 Maríubakki - Rvík Til sölu góð 3ja herb. íb. á 1. hæð. Herb. fylgir í kj. Hafnarfjörður Klettahraun Gott einbhús ca 140 fm íbhæð auk kj., bílsk. og blómaskála. Verðlaunagarður. Lindarhvammur Glæsil. efri sérhæð ásamt risi ca 140 fm. Mikið endurn. Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn- arfirði ca 200-300 fm. Ölduslóð Til sölu góð ca 110 fm íb. í tvíb- húsi á 2. hæö, 4-5 herb. Hringbraut Til sölu góð 4ra herb. ca 114 fm efri sérhæð og einstaklíb. í kj. Getur selst í einu lagi eða sér. Ölduslóð Til sölu tvær hæðir samtals ca 215 fm auk bílsk. á þessum vin- sæla stað. Fráb. útsýni. Laust strax. Nánari uppl. á skrifst. Klettagata Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í tvíbhúsi auk bílsk. Geta selst í einu lagi eða sér. Allar nánari uppl. á skrifst. Laufvangur Góð 4-5 herb. ca. 115 fm íb. á 2. hæð í sex íbúða stigahúsi. Áhv. ca. 2 millj. Hjailabraut Góð 4-5 herb. íb. á 1. hæð. Árni Grétar Finnsson hrl., Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl., Linnetsstíg 3,2. hæð, Hfj., símar 51500 og 51601 Gunnhildur Pálsdóttir við eitt verka sinna. 4---44-4 EIGNAMIÐLCNIN'f / Sími 67-90-90 - Síðiuiuila 21 Boðagrandi -10. hæð Vorum að fá í sölu 2ja herb. glæsilega íbúð. íbúðin er einstaklega björt með nýju parketi og ný flísalögðu baðherbergi. Frábært útsýni. Verð 6,3 millj. 2253. TIME MANAGER 1993 Stjórnunarfélags íslands 25. og 26. febrúar á Hótel Loftleiðum. Innritun hafin. Leiðbeinandi: Haukur Haraldsson, TMI leiðbeinandi. Haukur Haraldsson A. Stjórnunarfélag íslands Á ÍSLENSKU TÍMASTJÓRNUN, MARKMIÐASETNING, FORGANGSVERKEFNI, MANNLEG SAMSKIPTI OG AUKNAR HUGMYNDIR. Upplýsingar í síma 621066

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.