Morgunblaðið - 16.02.1993, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993
MND-félag stofnað
HÓPUR fólks vinnur að undirbúnlngi stofnunar MND-félags, sem
kennt er við sjúkdóminn MND (motor neuron desease) — hreyfitaug-
ungahrörnun. Stofnfundurinn verður haldinn í húsi MS-félags Is-
lands í Alandi 13, Reykjavik, laugardaginn 20. febrúar, og hefst
hann klukkan 14.
I undirbúningsnefndinni fyrir
stofnfundinn eru Jóna Alla Axels-
dóttir, Eiðistorgi 9, Seltjamamesi,
Rafn Jónsson, Bugðulæk 3, Reykja-
vík, og Sigríður Eyjólfsdóttir,
Flúðaseli, 61 Reykjavík.
Að sögn Sigríðar Eyjólfsdóttur
verður tilgangur félagsins að vinna
að velferð MND-sjúklinga, en félag-
ið er ekki hugsað fyrir þá eina held-
ur geta einnig aðstandendur þeirra
orðið félagar og reyndar allir þeir
aðrir sem vilja leggja MND-sjúk-
lingum lið.
Loðnukvóti eykst
um 170 þús. tonn
Mokveiði hefur verið á loðnumiðunum
í RÁÐI er að auka 170 þúsund tonnum við loðnukvótann
og á þá eftir að veiða 520 þúsund tonn af loðnu. Mokveiði
hefur verið á loðnumiðunum og var veiðin mest út af Sel-
vogi í gær.
Hafrannsóknastofnun hefur lagt
til að loðnukvótinn verði aukinn um
80 þúsund tonn, vegna þess að
meðalþyngd hverrar loðnu hefur
aukist um 1,5 grömm og í gær
rann út veiðitímbil Grænlendinga
og Norðmanna sem höfðu leyfí til
að veiða 90 þúsund tonn á íslands-
miðum. Vegna ótíðar og þess hve
Aðalútibú Borg-
arbókasafns
Útlán stöðv-
uð vegna
tölvubilunar
ÚTLÁN Aðalútibús Borgar-
bókasafns Reykjavíkur voru
stöðvuð tveimur tímum áður en
loka átti safninu á laugardag
vegna bilunar í tölvukerfi.
Tenging við tölvukerfi útibúsins
rofnaði þegar rafmagn fór af
höfuðborginni síðdegis á föstu-
dag en unnið var að viðgerð í
loðnan var dreifð í janúar náðu
Grænlendingar og Norðmenn ekki
að veiða sinn hlut. Að sögn Jóns
B. Jónassonar skrifstofustjóra í
sjávarútvegráðuneytinu verður
formlega gengið frá málinu í dag
eða á morgun og koma þá 170
þúsund tonn til úthlutunar. Viðbót-
arkvótinn deilist niður á bátana í
sama hlutfalli og kvótinn sem fyrir
var.
Um 180 þúsund tonn af loðnu
hafa borist í land síðan um áramót
en heildaraflinn á vertíðinni er um
390 þúsund tonn. Eftir er að veiða
um 520 tonn og er viðbótarkvótinn
þá reiknaður með.
Áta fer minnkandi
Ómar Ólafsson, stýrimaður á
Albert GK, sagði að mokveiði væri
á loðnumiðunum. Albert landaði um
700 tonnum á Siglufírði á sunnudag
og kom aftur á miðin út af Selvogi
í gærkvöldi. Nokkur áta var í loðn-
unni og taldist farmur skipsins
óhæfur til frystingar. Ómar sagði
að átan færi nú minnkandi í loðn-
unni og hefði Faxi RE landað 350
tonnum í frystingu í Þorlákshöfn í
gær.
— Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Bjarg-vættir
KRISTINN og hundurinn Kolur, sem er af Labradorkyni. Kristinn fékk hann fyrir tveimur árum
þegar hann var hvolpur og byrjaði strax að þjálfa hann til leitar.
Hundurinn fann pilt-
inn medvitundarlausan
- segir eigandi Kols sem fann piltinn í Einarsstaðaskógi
„ÞAÐ mátti engu muna, drengurinn var orðinn meðvit-
undarlaus og kaldur þegar hundurinn fann hann liggj-
andi í snjónum,“ sagði Kristinn Hannesson bakari á Nes-
kaupstað en með aðstoð hunds síns fann hann piltinn sem
leitað var að á Völlum á Fljótsdalshéraði á laugardag.
Kristinn fékk hund sinn Kol, sem
er af Labrador-kyni, sem átta vikna
hvolp fyrir tveimur árum og byij-
aði fljótlega að þjálfa hann til leit-
ar að fólki. Á Neskaupstað erU
tveir aðrir menn með leitarhunda.
Þeir hafa ekki áður lent í leit en
þeir hafa verið að kynna möguleika
hundanna fyrir björgunarsveitum á
Austurlandi að undanfömu.
Rann á lyktina
Eigendur leitarhundanna voru
kallaðir út snemma á laugardags-
morgun og voru þeir komnir til
leitar í Einarsstaðaskógi á Völlum
um klukkan 7.40. Þar höfðu verið
varðveitt spor sem talin voru eftir
týnda manninn og byijuðu hund-
amir að rekja þá slóð. Þeir náðu
ekki að fylgja henni. Kristinn sagði
að mjög erfíðar aðstæður hefðu
verið til leitar vegna það hvað mik-
ill snjór var í skóginum og kjarrið
þétt. Þegar búið var að láta hund-
ana leita á aðal leitarsvæðinu í
þijá klukkutíma var ákveðið að að
fara með þá í útjaðar svæðisins og
leita þar. Þar rann hundurinn á
lykt piltsins. Hann lá þá við á eða
læk og taldi Kristinn að það hefði
getað verið erfítt að fínna hann án
aðstoðar hundsins.
Pilturinn var meðvitundarlaus
þegar Kristinn kom að honum en
með góðu lífsmarki. Hann komst
síðar til meðvitundar og svaraði
Kristni. Kristinn sagði að hann
hefði verið mældur 40 mínútum
eftir að hann fannst og þó þá hafí
verið búið að hlynna töluvert að
honum hefði líkamshitinn verið 34
gráður. „Ég held að ekki hafí mátt
miklu muna með hann,“ sagði
Kristinn.
Það er af piltinum að segja að
hann hefur náð sér og er kominn
heim til sín á Egilsstöðum.
Athugasemdir Ríkisendurskoðunar o g yfirskoðunarmanna ríkisreiknings
Lán til Sandgerðishafn-
ar ekki í samræmi við lög
YFIRSKOÐUNARMENN ríkisreiknings fyrir árið 1991 taka
undir gagnrýni Ríkisendurskoðunar á að um tæplega 1.700
milljóna króna framlag vegna yfirtöku á skuld Fram-
kvæmdasjóðs hafi verið fært til útgjalda á árinu 1991 i
stað ársins 1992 sem ríkisendurskoðun og yfirskoðunar-
menn telja eðlilegt. Leggja yfirskoðunarmenn til við Al-
þingi að framlagið verði ekki samþykkt sem útgjöld ársins
1991 heldur verði fært til ársins 1992. Ríkisendurskoðun
og yfirskoðunarmenn gagnrýna einnig lánveitingu Endur-
lána ríkissjóðs til Hafnabótasjóðs vegna framkvæmda í
Sandgerðishöfn upp á rúmlega 287 milljónir króna í skýrslu
sinni um endurskoðun ríkisreiknings 1991. Leggja yfirskoð-
unarmenn til við Alþingi að lánveitingin gangi til baka og
á móti lækki ógreidd gjöld um sömu fjárhæð.
gær.
Sigurður Vigfússon bókasafns-
fræðingur sagði að ákveðið hefði
verið að stöðva útlán kl. 14 á laug-
ardaginn vegna þess að ekki hefði
verið hægt að skrá þau beint inn
í tölvukerfíð. Hins vegar sagði
hann að tekið hefði verið á móti
bókum og vísað á önnur útibú til
kl. 16 þegar safninu er lokað.
Aðspurður sagði hann að hægt
hefði verið að taka bækur út af
safninu í gær. Unnið hefði verið
að viðgerð um daginn og sumir
skjáimir væra komnir í lag. Hann
sagði að bilunar hefði ekki orðið
vart í tölvukerfí á lessal eða í öðr-
um útibúum.
Ómar Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri þjónustusviðs Skýrsluvéla
ríkisins, sagði að það hefði tekið
tíma fyrir tölvukerfi að verða virk
að nýju eftir rafmagnsbilunina en
hann vissi ekki af meiriháttar
skakkaföllum vegna þess. Eina
bilunin sem valdið hefði óþægind-
um hefði verið í aðalútibúi Borgar-
bókasafnsins.
VINKLAR Á TRÉ
HVERGI LÆGRI VERÐ
ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
EINKAUMBOO
£8 Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
Fjármálaráðuneytið telur rétt-
mætt að færa áfallnar skuldbind-
ingar vegna Framkvæmdasjóðs til
gjalda árið 1991 eins og fram kom
í frétt Morgunblaðsins sl. sunnu-
dag. í skýrslu sinni segjast yfir-
skoðunarmenn ríkisreiknings hins
vegar taka eindregið undir athuga-
semdir ríkisendurskoðunar og
benda m.a. á að engar ábyrgðir
hafí enn fallið á Ríkisábyrgðasjóð
vegna vanskila Framkvæmdasjóðs
í lok reikningsársins. Umrædd
tæplega 1,7 milljarða yfirtaka rík-
issjóðs á skuldum Framkvæmda-
sjóðs sé samkvæmt heimild í lánsf-
járlögum fyrir árið 1992 og heim-
ildin hafi verið notuð í mars 1992
og hljóti því að tilheyra því ári.
„Hafi stjórnvöld ætlað að koma
þessu framlagi undir árið 1991,
eins og þau telja nú mikilvægt, þá
hefði verið hægt að koma því við
í frumvarpi til breytinga á lánsfjár-
lögum fyrir árið 1991, en það var
afgreitt á Alþingi 20. desember
1991 eða á sama tíma og lánsfjár-
lög fyrir árið 1992 voru til með-
ferðar á Alþingi,“ segja yfirskoð-
unarmennirnir Pálmi Jónsson,
Svavar Gestsson og Sveinn G.
Hálfdanarson.
Lán vegna Sandgerðishafnar
Ríkisendurskoðun og yfír-
skoðunarmenn gagniýna einnig
gjaldfærslu 287 millj. kr. vegna
framkvæmda við Sandgerðishöfn.
Fjármögnun þeirra fór m.a. þannig
fram að Endurlán ríkissjóðs veittu
Hafnabótasjóði Ián skv. heimild í
lánsfjárlögum að fjárhæð 275 millj.
kr., en sjóðurinn endurlánaði síðan
sömu Qárhæð til Sandgerðisbæjar.
Lýsti fjármálaráðuneytið því yfír
að ríkissjóður myndi endurgreiða
lánið á næstu 8 árum af framlagi
á fjárlögum til Sandgerðishafnar,
jafnframt því sem hann tæki á sig
allan kostnað vegna lántökunnar.
„Hér er um að ræða fjármögnun
á lögbundnum hluta ríkissjóðs í
þessum hafnarframkvæmdum og
telur Ríkisendurskoðun því að fara
eigi með fjármögnun á framlagi
þessu á sama hátt og fjármögnun
annarra útgjalda ríkissjóðs, þ.e.
með útborgun úr sjóði eða með
lántökum. Ríkisendurskoðun telur
þessa málsmeðferð gagnrýnis-
verða enda samiýmist hún hvorki
hafnalögum né lögum um gerð rík-
isreiknings og fjárlaga,“ segir í
skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Laugdælingar
Blótuðu
þorra í raf-
magrisleysi
Laugarvatni.
LAUGDÆLINGAR létu ekki á
sig fá veðurham og rafmagns-
leysi þegar blóta átti þorra föstu-
daginn 12. febrúar sl. Skruggur
og eidingar gengu þá yfir landið
og ollu ramagnstruflunum á Suð-
vesturlandi.
Raftnagnslaust var á Laugar-
vatni um kl. 18 á föstudag og kom
ekki aftur fyrr en kl. 11 morguninn
eftir. Þrátt fyrir þetta skyldi þo.rra
blótað enda búið að leggja í heilmik-
inn undirbúning fyrir blótið. Voru
sóttar tvær ljósavélar sem gáfu
hljómsveitinni næga orku, bætt við
kertum á borðin og síðan dansað
fram undir morgun. Blótið hefur
sjaldan verið fjölmennara eða
skemmtilegra að sögn forkólfa.
- Kári.