Morgunblaðið - 16.02.1993, Page 22
22
6.000
látnir í
Huambo
STJÓRNVÖLD í Angóla sögð-
ust í gær hafa náð aftur land-
svæðum af skæruliðum UN-
ITA-hreyfingarinar sem reyna
að leggja undir sig næst-
stærstu borg landsins, Hu-
ambo. Erlendir stjórnarerind-
rekar telja þó að skæruliðar
ráði nú yfir meirihluta borgar-
innar. Sagt var að meira 6.000
óbreyttir borgarar hefðu fallið
þær fimm vikur sem bardagar
um borgina hafa staðið yfir
Neðri deildin
ekki hundsuð
TALSMENN stjórnar Johns
Majors í Bretlandi reyndu i'
gær að kveða niður þann orð-
róm í fjölmiðlum að hún hygð-
ist beita lítt kunnum laga-
ákvæðum til að tryggja að
Maastricht-samningurinn tæki
óbreyttur gildi án þess að þing-
ið greiddi um hann atkvæði.
Uppreisnarmenn í þingliði
íhaldsmanna betjast gegn
samningnum með öllum ráð-
um. Háttsettur embættismað-
ur sagði þessar bollaleggingar
sunnudagsblaðanna vera
„fjarstæðu".
Deilt á
Montazeri
DAGBLAÐ í íran sagði í gær
að efnt hefði verið til mót-
mæla við heimili ayatollah
Hosseins Alis Montazeris, er
eitt sinn var talinn líklegur
arftaki ayatollah Khomeinis
erkiklerks, í gær. Sögusagnir
frá París um að Montazeri
hafi verið handtekinn hafa
ekki fengist staðfestar. ír-
anska blaðið segir Montazeri
hafa kallað sjálfan sig „Móður
byltingarinnar“ og aðrir leið-
togar landsins hafi aðeins
gegnt hlutverki yfirsetu-
kvenna. Montazeri hefur
gagnrýnt meðferð stjórnvalda
á pólitískum andófsmönnum.
Innistæður
Mobutus verði
frystar
WILLY Claes, utanríkisráð-
herra Belgíu, hyggst reyna að
fá Warren Christopher, banda-
rískan starfsbróður sinn, til að
samþykkja að innistæður ein-
ræðisherra Zaire, Mobutus
Sese Sekos, í vestrænum bönk-
um verði frystar. Mobutu hefur
áratugum saman stolið úr
ríkissjóði Zaire, hann er nú
talinn vera í hópi rikustu
manna heims en landið á von-
arvöl. Honum og fylgdarliði
hans hefur þegar verið bannað
að koma til Belgíu.
Clerides
sigraði
GLAFKOS Clerides, frambjóð-
andi hægrimanna, sigraði
óvænt í seinni umferð forseta-
kosninga á Kýpur um helgina.
Sitjandi forseti, Georg Vas-
silíú, studdi eindregið áætlun
sem Sameinuðu þjóðimar hafa
lagt fram um sameiningu
landa grískumælandi og tyrk-
neskumælandi íbúa eyjarinnar
í sambandsríki en Clerides er
á móti. Almennt var litið á
kosningarnar sem þjóðarat-
kvæði um áætlunina og hún
því talin í verulegri hættu eftir
úrslitin.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRUAR 1993
Reuter
Mannvíg í Jerúsalem
ÍSRAELSKIR lögreglumenn á verði yfír ungum Palestínumanni
í Jerúsalem. Hann er grunaður um að hafa stungið til bana
karlmann og sært konu snemma í gærmorgun í hverfí gyðinga
í austurhluta borgarinnar.
Mandela og de
Klerk segjast
ekkí hafa samið
Jóhannesarborg. The Daily Telegraph.
MIKIL óvissa ríkir nú í Suð-
ur-Afríku eftir að F.W. de
Klerk forseti og Nelson
Mandela, forseti Afríska
þjóðarráðsins (ANC) lýstu
því yfir á sunnudag að ekk-
ert samkomulag væri til
staðar um að sameiginleg
stjóm hvítra og svartra færi
með völd í landinu næstu
fimm árin. „Samkomulag-
inu“ hafði verið ákaft fagn-
að þegar fréttir af því bár-
ust í lok síðustu viku.
De Klerk sagði í samtali við
breska sjónvarpið, BBC, að menn
ættu í viðræðum um málið en þeg-
ar kæmi að hinu endanlega sam-
komulagi myndi það ná til allra
hópa í landinu. Mandela sagði aftur
á móti á fundi um helgina að allar
fréttir af leynilegu samkomulagi
milli stjórnarinnar og ANC væru
rangar.
Stjórnmálaskýrendur telja að
þessar yfirlýsingar leiðtoganna eigi
fyrst og fremst að þjóna þeim til-
gangi að róa umbjóðendur þeirra á
meðan þeir vinni að því að vinna
samkomulaginu fylgi. Virðast flest-
ir ganga út frá því sem vísu að
mjög víðtækt samkomulag um
flestu deilumál sé í raun þegar til
staðar.
Polgar
sigraði
Spasskí
Búdapest. Reuter.
JUDIT Polgar, 16 ára gamall
stórmeistari frá Ungverja-
landi, sigraði Borís Spasskí í
tíu skáka einvígi þeirra er
keppendur sættust á jafntefli
í níundu skákinni á sunnu-
dag. Polgar hafði þá hlotið
fimm og hálfan vinning,
Spasski þijá og hálfan.
Níunda skákin var að mati
sérfræðinga mest spennandi og
stóð yfir í sex stundir. Upp kom
endatafl með fjórum riddurum,
Spasskí hafði náð nokkru frum-
kvæði í miðtaflinu en Polgar
tókst smám saman að rétta hlut
sinn. „Judit hagar sér eins og
hvolpur sem hleypur áhyggju-
laus út á götu, alls óhræddur
um að einhver geti ekið á
hann,“ sagði alþjóðameistarinn
Pal Benkö um skákstíl Polgar.
„Með aldrinum kemst fólk að
því að slys geta orðið“.
Fullyrðing eins af leiðtogum valdaránstilraunarinnar í Rússlandi
Helsti ráðgjafi Gorbat-
sjovs var erindreki CIA
Annar harðlínumaður segir Sovétforsetann hafa verið „guðföður“ valdaránsins
Moskvu. The Daily Telegraph og Reuter.
NOKKRIR af þátttakendum í valdaráninu misheppnaða í
Sovétríkjunum gömlu árið 1991 voru heiðursgestir á sér-
stöku þingi rússneskra kommúnista um helgina. Valdaráns-
menn ganga nú lausir en réttað verður í máli þeirra í
apríl. Verði þeir dæmdir sekir um landráð má búast við
dauðarefsingum. Vladímír Kijútsjkov, einn af helstu leið-
togum tilraunarinnar og þáverandi yfirmaður öryggislög-
reglunnar, KGB, segir að Alexander Jakovlev, aðalhug-
myndafræðingur umbótastefnu Míkhaíls S. Gorbatsjovs
Sovétforseta, hafi verið á mála hjá bandarísku leyniþjón-
ustunni, CIA.
Jakovlev var yfirleitt talinn nán-
asti ráðgjafi Gorbatsjovs en var
sendiherra í Kanada áður en um:
bótastefnan, perestrojka, hófst. í
útdrætti endurminninga
Kijútsjkovs, sem birtist í einu af
blöðum harðlínukommúnista um
helgina, rifíar KGB-forstjórinn upp
af Sovétforsetinn hafi hundsað við-
varanir sínar um að Jakovlev væri
ef til vill svikari — með þessu þyk-
ir Kijútsjkov jafnvel gefa { skyn
að Gorbatsjov hafi tekið þátt í
ráðabruggi ráðgjafa síns með
Bandaríkjamönnum.
Verkefnum KGB, sem var lagt
niður að nafninu til, var skipt og
annast sérstakt öryggismálaráðu-
neyti nú verkefnin innanlands. Yf-
irmaður þess, Viktor Baranníkov,
tók nýlega þátt í ráðstefnu um
glæpi og sakaði þar erlendar leyni-
þjónustustofnanir um að reyna að
efna til sambands við rússneska
glæpahringi. Þess má geta að
Krjútsjkov bar fram sams konar
ásakanir áður en valdaránstilraun-
in batt enda á völd hans.
Hlutverk Gorbatsjovs
Annar valdaránsmaður, Oleg
Baklanov, sem einnig var á þingi
kommúnista, talar á nokkuð öðrum
nótum en Kijútsjkov. Baklanov
sagði í blaðaviðtali að Gorbatsjov
hefði verið „guðfaðir" valdaráns-
manna. Margir róttækir umbóta-
sinnar hafa dregið í efa fullyrðing-
ar Sovétforsetans fyrrverandi þess
efnis að honum hafi verið haldið í
einangrun við Svartahaf fyrstu
valdaránsdagana. Þeir álíta að
hann hafi vitað um tilraunina og
ætlað að sjá hver framvindan yrði,
styðja ránið ef það virtist ætla að
takast.
Um 650 fulltrúar sátu þingið
um helgina en harðlínukommúnist-
um hefur gengið illa að ná til fjöld-
ans, þeir fá lítið fylgi í skoðana-
könnunum, þrátt fyrir efnahags-
legt neyðarástand í landinu. Mark-
mið þingsins var að endurreisa
flokkinn og kommúnistahreyfing-
una sem slíka. Ríkisstjórnin var
fordæmd og sömuleiðis allar til-
raunir stjómvalda til að koma á
markaðsbúskap. Borís Jeltsín
Rússlandsforseti bannaði starfsemi
kommúnistaflokksins eftir valda-
ránið en hæstiréttur landsins af-
létti banninu síðar að hluta.
Aðrir valdaránsleiðtogar á þing-
inu, er haldið var skammt utan við
Moskvu, voru þeir Gennadí
Janajev, varaforseti Gorbatsjovs,
og Anatólí Lúkjanov sem var þing-
forseti. Hinn síðamefndi sagði að
nýr flokkur myndi verða að beijast
jafnt utan þings sem innan. „Sann-
ur Lenínistaflokkur, flokkur sem
er laus við tækifærissinna og skrif-
finnsku, verður til, agaður og hug-
myndafræðilega samstilltur flokk-
ur,“ sagði Lúkjanov í sjónvarpsvið-
tali.
Fjársjóður ívans
grimma fundinn
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKIR fornleifafræðingar telja sig hafa fundið bóka-
safn og fjársjóð sem kennd eru við ívan grimma er var keis-
ari á sextándu öld. ívan Koltsov fornleifafræðingur segir að
gripimir, á meðal þeirra ómetanleg listaverk, hafi verið falin
í völundarhúsi neðanjarðarganga og herbergja undir gömlu
klaustri norðan við Moskvu, að sögn blaðsins Prövdu.
Aðgangur var bannaður að
göngunum öldum saman og 1917,
er bolsévikkar rændu völdum, var
klaustrið innsiglað. Alþýðufólk í
nágrenninu geymdi þó ávallt með
sér sögur af fjársjóðnum undir
klaustrinu. Leitarmenn fundu bréf
frá manni sem hafði verið í þrælk-
unarbúðum Stalíns og bauðst mað-
urinn til að vísa á fjársjóðinn sem
hann sagðist hafa séð þrisvar sinn-
um. I staðinn vildi hann fá frelsi,
glæsibifreið, fimm milljónir rúblna,
þriggja herbergja íbúð með hús-
gögnum og fullan rétt til að stunda
háskólanám. Bréfið var hundsað.
Koltsov fann að lokum gamla
konu sem hafði verið síðasti safn-
vörður í klaustrinu á keisaratíman-
um og mundi hún eftir gripunum.
Böm í Alexandrov, borg í grennd
við klaustrið, léku sér að gullmun-
um sem þau sögðust hafa fundið
í göngum er opnast höfðu þegar
jörð skreið; göngin höfðu síðar ver-
ið notuð sem ruslahaugar.