Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993 29 Tölvur Hlutverk stórtölvunnar í nútíð og framtíð eftir Sverri Ólafsson í heimi tölvutækninnar hefur þró- unin orðið svo stórstíg á liðnum árum og áratugum að líkja má við röð af byltingum. Byltingar fara sjaldnast fram án átaka og hefur hér enda orðið á raun- in. Umtalsverðu fé er varið til þróun- ar í greininni og menn deila um stefn- ur og leiðir. Einkatölvan varð til og markaði tímamót. Stórtölvan átti í vök að veijast og á hana var hallað enda voru þeir miklu fleiri sem áttu og ráku einkatölvur en hinir, sem áttu og ráku stórtölvur. Sumir töldu stórtölvuna óhentuga og dýra miðað við einkatölvurnar og fundu mörg dæmi máli sínu til stuðnings. Aðrir bentu á ýmsa kosti stórreksturs við tölvuvinnslu og tíunduðu önnur dæmi máli sínu til stuðnings. Svo voru þeir sem deildu um hvort betra væri að nota eina stórtölvu eða fleiri meðaltölvur í hennar stað (downsizing). í bókasafni einu í Japan fór fram könnun á því hvort tölvuvæða ætti stofnunina og þá hvers konar búnað ætti að kaupa. Niðurstaða hagkvæm- isathugunar leiddi í ljós, að hentug- ast væri að kaupa hjólaskauta á starfsfólkið. Athuganir hafa leitt í ljós, að í almennu skrifstofuhaldi hefur nánast enginn framleiðniaukning orðið á síð- asta áratug þrátt fyrir tilkomu eink- atölvunnar. Það er að sjálfsögðu engin ein rétt leið til á þessu máli. Vandinn er fólginn í því að velja það um- hverfí, sem bezt hæfir hveijum stað og getur sá vandi reynst ærinn. Þeir sem fylgjast grannt með þró- un tölvutækninnar hafa ef til vill veitt því athygli að umræðan snýst nú meir um hvert hlutverk stórtölv- unnar eigi að vera fremur en um að annars konar fyrirkomulag leysi hana af hólmi. Bent hefur verið á að hlutverk stórtölvuumhverfís er ekki sízt að þjóna samhæfðri vinnslu margra smærri kerfa, þar sem gögn og for- rit eru geymd á hinum ýmsu stöðum í kerfunum (miðlari/biðlari — client server). Með afli sínu er hún slíkum kerfum styrkur af því að hún bætir upp veikleika smákerfanna. Þannig er hún nauðsynlegur og hagkvæmur kostur við gagnageymslu, gagna- sendingar milli staðarneta og á milii einkatölva. Fá rök hníga til, að miðlara/biðla- raumhverfi leysi stórtölvurnar af hólmi. Þvert á móti munu þau hafa aukin not fyrir þær. System 390 umhverfið frá IBM var enda hannað til að vera opið fyrir víðtækum teng- ingum, öflugri stjórntækni og sam- verkandi vinnslugetu á víðum grunni. Því meira af gögnum, sem á að geyma, meðhöndla, dreifa og hafa umsjón með, þeim mun meira er notagildi stórtölvunnar. Staðametin hafa ekki aðeins hag af styrk og afkastagetu stórtölvunnar í sam- bandi við gagnaflutning, kerfisþjón- ustu, netstjórn og hugbúnaðardreif- ingu. Stórtölvan gefur að auki kost á óviðjafnanlegum möguleikum við endursköpun netumhverfa, sem hafa hrunið, og við geymslu hvers konar gagna, sem þarf að komast að með skjótum hætti. Síflóknari og stöðugt fullkomnari vinnslukerfi gera vax- andi kröfur um stærð minnis og mikinn vinnsluhraða. Stefnt er að því, að netstýringar og stjórn gagna- flutninga á netum fari í einn farveg, sem gerir það kleift að stjóma marg- þátta netum sem eitt væri. Ný og háþróuð verkefni svo sem á sviði margmiðlunar bæta enn einni magn- þörfínni við og flest ber að sama brunni; Þörfin fyrir afl stórtölvunnar í framtíðinni verður ekki síður brýn en hún er í dag. Einn kostur stórtölvuumhverfís er ótalinn og er það meðferð öryggis- mála. Eftir því sem tölvuumhverfi er stærra í sniðum, þeim mun meira vægi hafa öryggismálin. Stjórn þarf áð hafa á gögnum og geymslu gagna. Eftirlit þarf að hafa með að öryggis- reglur virki. Gögn þarf að vernda gegn óheimilum aðgangi, að þeim sé breytt eða þeim eytt. Styrkleiki stórtölvunnar við vernd viðkvæmra gagna erí reynd hafinn yfir allan vafa. Stjórn er auðveldari og eftirlit markvissara á stórtölvu heldur en á tíu niðurfærðum miðtölvum eða þús- und einkatölvum með jafnmörgum möguleikum til mistaka og ómetan- legum kostnaði, ef illa tekst til. Kostir einkatölvunnar snúa fyrst og fremst að notandanum og frelsi hans til að nota búnaðinn að vild innan þess ramma sem honum er það fæært. Því minna sem umhverfið er hentar einkatölvan betur. Verulega þarf að vanda til við uppbyggingu og rekstur staðarneta og þeim mun betur sem þau verða meiri að vöxt- um. Höfuðatriði í þessu máli er að sjálf- sögðu kostnaður. Fagstofnanir og fagtímarit spá frekari kostnaðar- lækkunum á stórtölvum og hafa jafn- framt komist að athyglisverðum nið- urstöðum, sem stangast á við fyrri væntingar. Rækilega unnar athug- anir hafa leitt í ljós, að kostnaður á notanda í PC-staðarneti á fimm ára tímabili er allt að þrefaldur á við notanda í stórtölvuumhverfi. Aðstoð við uppsetningu og rekstur staðar- neta er allt að sextán sinnum meiri í raun en gert hafði verið ráð fyrir við ákvarðanatöku. Stórtölvumar standa miðtölvunum fyllilega á sporði kostnaðarlega séð og hafa þá tæknilega og rekstrarlega yfirburði í kaupbæti. Af framangreindu verða þær nið- urstöður helst dregnar, að stórtölvan er fjarri því að hafa runnið skeið sitt á enda. Þvert á móti mun hún fá nýtt og aukið hlutverk í framtíðinni. Tölvur Hún verður kostnaðarlega hagstæð- ur valkostur í réttu umhverfi. Hún mun styrkja einkatölvu- og staðar- netarekstur með yfirburðum í geymslurými og aðgangshraða. Hún byggir á 40 ára reynslu og fjárfest- ingu í hugbúnaði. Kostir varðandi vinnsluöryggi og eftirlit era ótvíræð- ir. Athygli vekur, að IBM 4381-tölv- urnar víðkunnu era almennt ekki leystar af hólmi með minni einingum. Þvert á moti era þær fremur leystar af hólmi með nýjum og öflugum stór- tölvum til að takast á við nýtt, aukið og breytt hlutskipti. Sérstakan gaum þarf að gefa að ráðum ráðgjafa, sem gera róttækar tillögur um niður- færslu og gleymdum kostnaðarliðum í sambandi við slíkt. Og svo era hjólaskautarnir enn í fullu gildi og verða um ófyrirsjáan- lega framtíð. Heimildir: Við samningu greinar þesarar var meðal annars stuðst við eftirfarandi heimildir: Erindi Will- iams G. Wilsons, AGM Enterprize Systems, The Future of the Main- frame, október 1992. Computer World 7. september 1992. Gartner Group, RAS Services, júlí 1992. Xep- hon plc., nóvember 1992. Business Weekly, maí 1992. Höfundur er markaðsstjóri hjá Nýheija hf. Skýrr með neteftir- litskerfi frá HP SKÝRSLUVÉLAR ríkisins og Reykjavíkurborgar (Skýrr) hafa fest kaup á Hewlett Packard Open View neteftirlitskerfi til að fá yfirsýn yfir háhraðanet Pósts og síma alla leið inn í tölvur notenda. Þetta kerfi gefur kost á að fylgjast með búnaði viðskiptavina Skýrr m.a. nýtingu diskarýmis. Einnig er unnt að stjórna öryggisafritun og gera fyrirbyggjandi ráðstafanir ef diskarými er að fyllast. Að sögn Jóns Þórs Þórhallsson- | arlaus. Lengst af hefur aðeins verið ar, forstjóra Skýrr, starfrækir fyrir- tækið viðamikið samskiptanet eða svokallað Alnet sem unnt er að tengja við flestar vélagerðir. Mark- miðið er að notendur verði ekki sérstaklega varir við netið og um- ferðin um það sé greið og hindrun- möguleiki á að fylgjast með ástandi fastra leigulína en skort hefur tæki til að hafa eftirlit með háhraðanet- inu. Hið nýja kerfi gefur til kynna ef röskun verður einhvers staðar á leiðinni frá móðurtölvunni inn á ein- menningstölvu notandans. Kentruck LYFTARAR SIEMENS Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara! Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið! Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6. Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13. Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála. Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaöarhóli 25. Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42. Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7. Búöardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12. ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9. Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1. Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1. Siglufjörður: Torgið hf., Aðalgötu 32. Akureyri: Ljósgjafinn, Reynishúsinu, Furuvöllum 1 • Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a. • Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3. • Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24. • Reyöarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31. • Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1. • Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13. • Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43. • Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18. • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4. • Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29. • Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2. • Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25. c 02 §■1 0*0* 3<Q 1=8 3 3 C 3 Ox Q < Os c o Q Q' sft Q =; =?o 3 a

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.