Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.02.1993, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993 + Ástkær eiginmaður minn, ANDRÉS OTTÓSSON, lést laugardaginn 13. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna, Helga Ólafsdóttir. + Bróðir okkar, HELGI PÁLSSON frá Seljaiandi, Fljótshverfi, lést á Sólvangi 13. þessa mánaðar. Systkinin. • t Móðir okkar, SÆUNN FRIÐJÓNSDÓTTIR, Flókagötu 60, Reykjavfk, lést í Landspítalanum sunnudaginn 14. febrúar. Margrét Rún Sigurmundsdóttir, Úlfur Sigurmundsson. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRÍET MAGNEA STEFÁNSDÓTTIR, andaðist á dvalarheimilinu Skjólgaröi, Höfn, Hornafirði, sunnudag- inn 14. febrúar. Helga Pétursdóttir, Hörður Valdimarsson, Eysteinn Pétursson, Aldfs Hjaltadóttir, Kristi'n Pétursdóttir, Ágúst Alfreðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t STEINGRÍMUR EGGERTSSON, Ránargötu 1, Akureyri, lést laugardaginn 13. febrúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 22. febrúar kl. 13.30. Heiðrún Steingrímsdóttir, Þorsteinn Jónatansson, Karl Hróðmar Steingrimsson, Katri'n Guðmundsdóttir, Cecilia Steingrímsdóttir, Jón Hallgri'msson. t Móðir okkar og tengdamóðir, G. LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR, Dalbraut 20, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. febrúar kl. 13.30. Þorsteinn Hörður Björnsson, Arnheiður Einarsdóttir, Þórir Einarsson, Renate Einarsson, Sigríður Erna Einarsdóttir. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINÞÓR ÁSGEIRSSON frá Gottorp, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. febrúar kl. 15.00. Kolbrún Steinþórsdóttir, Auður Steinþórsdóttir, Emil Als, Ásdfs Inga Steinþórsdóttir, Þorgeröur Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Minning Oddgeir Jónsson iðn verkamaður Fæddur 4. júlí 1905 Dáinn 8. febrúar 1993 Þá er hann Oddgeir vinur minn látinn. Hann lifði langa og farsæla ævi; hann lifði sem nefnt er vamm- lausu lífi, vildi öllum vel. Slíkt er hægt að segja um Oddgeir við leið- arlok. Hann lifði í rúm 87 ár á þessari jörð, blessaður karlinn. Oddgeir var fæddur í Vola í Ár- nessýslu. Þar fæddist einnig hinn merki skólamaður Freysteinn Gunnarsson. Oft ræddum við Odd- geir um þennan stað. Foreldrar hans voru Jón Þorleifsson, kirkju- garðsvörður í Hafnarfírði, frá Vatnsholti í Flóa (f. 14. september 1879, d. 29. nóvember 1954) og Guðlaug Oddsdóttir, kona hans, frá Minni-Mástungu í Gnúpveijahreppi (f. 6. júní 1877, d. 26. júlí 1953). Æskuspor Oddgeirs lágu á ýms- um stöðum í Ámessýslu. Bama- skólanám stundaði hann á Stokks- eyri. Námsmaður var hann vel í meðallagi. Þess vegna sótti hann um inngöngu í framhaldsskóla - Flensborgarskóla í Hafnarfírði. Þar varð hann að hætta námi, langt kominn með 2. bekk. Leyfði fjár- hagurinn ekki frekari skólagöngu. Var það þungbært fyrir Oddgeir sem þráði það heitast að mennta sig. Oft minntist hann á þetta við mig. Og þeir voru, því miður, marg- ir sem urðu að sæta svipuðum ör- Iögum fyrr á tíð. Vel mundi Odd- Útför + ÖNNU SIGURJÓNSDÓTTUR frá Blöndudalshólum, verður gerð frá Bólstaðarhlíðarkirkju laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00. Aðstandendur. + Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARÍA K. PÁLSDÓTTIR frá Höfða, Grunnavíkurhreppi, áður til heimilis á Stýrimannastfg 13, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. febrúar kl. 15.00. Maríus Jónsson Inga Maríusdóttir, Jón Alfreðsson, Óskar Maríusson, Kristbjörg Þórhallsdóttir, Steinunn Mari'usdóttir, Sæþór Skarphéðinsson, María Maríusdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, tengdasonur, bróðir, mágur og afi, ÓLAFUR B. JÓHANNESSON, Gyðufelli 10, Reykjavík, sem andaðist 8. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 18. febrúar kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á að láta Slysavarna- félag íslands njóta þess. Hjördís Antonsdóttir, Bjarni Ólafsson, Dagmar Kristjánsdóttir, Jóhannes Olafsson, • Svanhildur Guðlaugsdóttir, Aðalheiður Bjarnadóttir, Dóra Jóhannesdóttir, Ingi Þorbjörnsson og barnabörn. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, JÓNS ODDGEIRS JÓNSSONAR, Tómasarhaga 55, Reykjavík. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hafnarbúða fyrir langa og góða aðhlynningu. Fanney Jónsdóttir, Baldur Hrafnkell Jónsson, Edda Margrét Jensdóttir og barnabörn. + Elskulegur sambýlismaður minn, faðir og bróðir, VALDIMAR VALDIMARSSON fyrrverandi brunavörður, sem lést af slysförum 9. febrúar, verður jarðsunginn frá Lang holtskirkju í dag, þriðjudaginn 16. febrúar, kl. 15.00. Guðrún Svanhvít Sigurðardóttir, Fanney Dögg Valdimarsdóttir, Kristján Valdimarsson. L E GSTERNAR Vetrartilboð ©rdiift s/P HELLUHRAUNI 14 ■ 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 652707 geir kennarana, er þá kenndu við Flensborgarskóla. Oft gat hann um sr. Þorvald Jakobsson, afa Vigdísar forseta, þennan snaggaralega ná- unga, er gerðist kennari á efri árum. Oddgeir mundi marga skóla- félaga sína frá þessum tíma, eins og Emil Jónsson, er var óvenju mikill námsmaður og útskrifaðist stúdent frá MR aðeins 16 ára að aldri. Vafalítið hefði Oddgeir orðið menntamaður, ef aðstæður hefðu leyft. En hann átti eftir að hasla sér starfsvöll annars staðar og skil- aði dijúgu ævistarfí. Ungur stundaði Oddgeir vöru- bílaakstur í Reykjavík. Einnig var hann innanbúðar hjá tóbakskaup- manninum R.P. Leví, sem auglýsti vörur sínar með áhrifamiklum hætti, eins og kunnugt er. Meginævistarf Oddgeirs Jóns- sonar var við ullariðnað. Hann stóð við vélar á þeim vettvangi næstum hálfa öld, lengst á Frakkastíg í Ullarverksmiðjunni Framtíðinni. Starf sitt sem iðnaðarmaður vann Oddgeir síðast í Álafossi, þá kominn yfír sjötugt. Á „Ári iðnaðarins“ fýr- ir allmörgum árum var hann heiðr- aður sérstaklega fyrir langt og far- sælt starf í þágu íslensks iðnaðar. Heiðursskjalið setti Oddgeir í ramma, eins og því hæfði. Eg fann að honum þótti vænt um þessa við- urkenningu. Oddgeir bjó í leiguíbúð, lengi á Skólavörðustíg 30, síðar á Grettis- götu. En þegar hann varð sjötugur festi hann kaup á lítilli íbúð í Teiga- seli 5. Þar kunni hann vel við sig, út af fyrir sig með sínar persónu- legu eigur. Talsvert átti hann af bókum, og þær voru ekkert rusl. Oddgeir var heimilisvinur hjá okkur hjónum. Oft buðum við hon- um í mat, blessuðum gamla mann- inum. Víst kunni hann vel að meta það, einstæðingur eins og hann var, eftir að hann missti konu sína árið 1955. Hún hét Jónína Helga Sigurðardóttir. Hún var fædd árið 1910, frá Litla-Kollabæ í Fljótshlíð. Þeim auðnaðist aðeins 19 ára sam- búð. Sonur þeirra, Sigurður Niku- lás, fæddist 1. mars 1939, er BA að mennt í landafræði og sögu frá HÍ og hefur stundað kennslu í bama- og framhaldsskólum hér heima og á Grænlandi. Lagði Odd- geir mikið kapp á að sonurinn hlyti góða menntun og þyrfti ei að lúta Kransar Krossar Kistuskreytingar Opið alla daga fri kl. 9-22 Fákafeni 11 s. 68 91 20 ölóm, krarisar 00 skreyti ngar. Opíð til kl. 22. Vesturgötu 4, sími 622707

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.