Morgunblaðið - 16.02.1993, Side 37

Morgunblaðið - 16.02.1993, Side 37
sama örlagadómi og hann forðum. Góð og löng kynni verðskulda að þeirra sé minnst. Það varð ég og að gera þegar Oddgeir vinur minn er allur. Hann brást aldrei. Glaður og reifur var hann jafnan. Síðustu tvö árin var hann vistmaður á Elli- og hjúkrunárheimilinu Grund hér í borg. Þar leið honum víst sæmilega, þó að andlegur þróttur væri þverrandi. Hann andaðist í þeirri stofnun mánudaginn 8. febr- úar 1993. Á sjötugs-, áttræðis- og áttatíu og fimm ára afmælinu heimsótti ég Oddgeir, eins og vera bar. Flutti ég honum ljóð í öll skiptin, sem hann kunni vel að meta. Þegar hann varð 80 og 85 ára héldu vinir hans í Hafnarfirði, Inga og Hjörleif- ur á Þúfubarði 11, veislu fyrir hann, og þar sátu vinir hans með honum góða stund. Kvaddur er sannur heiðursmað- ur. Auðunn Bragi Sveinsson. Langri lífsgöngu er lokið. Odd- geir vinur minn lést í sjúkradeild Grundar 8. þ.m. 87 ára að aldri. Hann var vistmaður á Grund síð- ustu árin, en á sjúkradeild aðeins nokkrar vikur. Oddgeir kvæntist' föðursystur minni, Helgu Sigurðardóttur, 15. maí 1936, fæddri að Litla-Koílabæ í Fljótshlíð. Þau bjuggu lengst á Skólavörðustíg 33. Helga lést 28. janúar 1955. Þau eignuðust soninn Sigurð, sem nú er kennari við Menntaskólann á Laugarvatni. Þar sem ég var sveitabarn fyrstu ár ævinnar varð gleði í huga þegar Oddgeir og Helga komu í heimsókn og þau bættu við gleði barnsins og tóku það með til Reykjavíkur. Fjög- urra ára telpan fór með þeim í þetta mikla ferðalag. Það var engin smá- ferð fyrir nærri sextíu árum, að fara úr Fljótshlíðinni alla leið til Reykjavíkur. Þegar fjölskylda mín fluttist til borgarinnar varð styttra milli vina og margar voru ferðimar milli heimilanna. Þegar ég stofnaði heimili og Oddgeir er orðinn einn, sonur hans búsettur í öðru landi, urðu þau mörg jólakvöldin og áramótin sem við héldum saman. Fyrir kom á góðum sumardegi, að við fórum í bíltúr austur í sveitir. Rifjaðist þá upp fyrir Oddgeiri þegar hann var í sveit að sumrinu. Við það að hlusta á frásögn hans, sá ég í huganum lítinn dreng vaða flóðin í Ölfusinu, með heybandslestina eða koma með pokann sinn, sitjandi á hestvagni yfir Hellisheiðina á leið til Reykja- víkur og áfram þaðan gangandi til Hafnarfjarðar. Þar dvaldist hann hjá foreldrum sínum og fór einn vetur í Flens- borg. Því miður varð skólaganga hans ekki lengri þrátt fyrir góða námshæfileika. Oddgeir var einn af tólf bömum Jóns Þorleifssonar kirkjugarðsvarð- ar í Hafnarfirði og Margrétar Eyj- ólfsdóttur. Hann fór í fóstur til föð- urbróður síns, Bergs Jónssonar, og Ingibjargar Halldórsdóttur, en hún var ekkja Benjamíns Halldórssonar og urðu böm Ingibjargar og Benj- amíns fóstursystkini Oddgeirs. Mik- il vinátta var með þeim og börnum þeirra. Bergur og Ingibjörg bjuggu á Stokkseyri og þar var Oddgeir fermdur. Eftir það fluttust þau til Reykjavíkur. Oddgeir bjó með þeim, þar til hann stofnaði sitt eigið heim- ili. Hann var þá farinn að vinna í Ullarverksmiðjunni Framtíðinni. Stóð hann við spunavélina í tugi ára. Þegar Framtíðin hætti að starfa fékk hann vinnu í ullarverk- smiðju Álafoss og vann þar til sjö- tíu og fimm ára aldurs. Hver kynslóð er örstutt ung og aftur til grafar ber en eilífðaraldan þung lyftir annarri á brjósti sér. Þá kveðjumst við öll, voru kvöldi hallar en kynslóð nýja til starfa kallar sá dagur sm órisinn er. (Tómas Guðmundsson.) Við Jón vottum aðstandendum innilega samúð og þökkum Odd- geiri af hjarta fyrir samfylgdina. Jóna Sigurðarsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993 37 Minning Björk Jónasdóttir Fædd 12. desember 1930 Dáin 28. janúar 1993 Elskuleg föðursystir mín, Björk frænka, er látin, aðeins 62 ára að aldri. Heilsufarið var henni alla ævi fjötur um fót, en þrátt fyrir það var lundin létt og stutt i glensið og gamanið og má segja að geislað hafí út frá henni. Björk frænka fæddist á Húsavík 12. desember 1930. Foreldrar henn- ar voru Oddfríður Skúladóttir, f. 10. júní 1897, d. 1955, og Jónas Jónason skósmiður á Húsavík, f. 27. nóvember 1895, d. 1970. Böm Oddfríðar og Jónasar voru. Skúli, f. 1925, kvæntur Guðrúnu Guð- mundsdóttir og eiga þau fimm börn; Kristín, f. 1926, d. 1941; Helgi, f. 1927, d. 1991, kvæntur Elsu Sig- urðardóttur og eiga þau fimm börn; Reynir, f. 1928, kvæntur Kristínu Axelsdóttur og eiga þau fjögur börn. Yngst þessara systkina var Björk. Björk ólst upp á Húsavík með foreldrum og systkinum. 17 ára að aldri veiktist hún af berklum og þurfti næstu sex árin að dveljast á sjúkrastofnunum. Á Vífilsstöðum kynntist hún Stefáni Jónssyni, f. 1927, bifvélavirkja frá ísafirði. Á afmælisdag móður sinnar árið 1956 gengu þau Björk og Stebbi í hjóna- band. Einkasonurinn, Jónas, fædd- ist þeim 27. desember 1958, og má segja að hann hafi verið sólar- geislinn þeirra í lífínu og það sem allt snerist um. Þau bjuggu sér heimili í Hafnarfírði, fyrst bjuggu þau á Lækjargötu 18, þangað til 1971_að þau fluttust að Hverfisgötu 57. Á sl. ári fluttust þau síðan í nýja íbúð að Lækjarbergi 25, en vistin þar varð því miður ekki löng hjá frænku. Þegar ég var krakki á Húsavík, þá var það tilhlökkun á hveiju sumri að þau kæmu norður í heimsókn. Þá þurftum við systkinin að sýna frænkunni það sem markvert var og hafði breyst í bænum frá því að þau höfðu komið síðast. í júlí 1988 var haldið ættarmót að Hóli í Siglufírði. Þangað komu Björk og Stebbi og nú hafði tengda- dóttir, Ragnheiður Þorsteinsdóttir, bæst í hópinn. Samband þeirra tengdamæðgna var ávallt innilegt. Ég man það svo vel, hvað hún frænka mín var stolt, því að nú var fjölskyldan hennar að stækka, en lengi hafði hún beðið eftir því. Þessi helgi var mjög ánægjuleg. Veðrið var eins og það best getur verið og ýmislegt brallað. Síðast komu þau Björk og Stebbi í heimsókn til mín á Akureyri, sum- arið 1990. Þetta var svolítið sér- stakt. Það var föstudagur og fjöl- skylda mín var að fara til Mallorca á þriðjudaginn eftir helgina. Ýmis- legt var það sem ég þurfti að út- rétta áður en við færum. í miðjum þessum útréttingum fékk ég þá hugdettu að ég þyrfti að kaupa ís og fara með hann heim svo hann bráðnaði ekki. Þetta fannst dætrum mínum eitthvað skrýtið, að þurfa endilega að kaupa ís og fara með hann heim. En ég var ákveðin, ísinn var keyptur og við fórum heim. Við vorum ekki nema rétt komnar heim, ég hljóp inn með ísinn, stelpumar vora úti og biðu eftir mér og ég heyri að þær era að tala við ein- hveija. Era þá ekki Björk og Stebbi komin. Þetta var yndisleg heim- sókn. Við fórum svo í bæinn og við frænkurnar skottuðumst í búðir og skemmtum okkur, en á meðan beið Stebbi eftir okkur. Á eftir fórum við síðan heim og fengum okkur kaffí, skoðuðum myndir af barna- bömunum hennar og spjölluðum. Af þessari heimsókn hefði ég ekki viljað missa. Barnabörnin hennar, þau Sunna Björk, Þorri Jarl og Aron Breki, fengu notið ömmu sinnar alltof stutt. Þau vora yndið hennar síð- ustu árin og hún ljómaði þegar hún talaði um þau. Síðasta árið var henni erfitt, spít- alalegur með stuttum viðverum heima á milli. Hún var þó alltaf kát, heim komst hún síðast rétt fyrir afmælisdaginn sinn og gat verið heima í faðmi íjölskyldunnar um jólahátíðina. Síðasta lega henn- ar var ekki löng og kátínuna missti hún aldrei. Hinn 4. febrúar sl. var Björk frænka jarðsett frá Hafnarfjarðar-. kirkju. Það sem setti svip sinn á þessa fallegu athöfn var að sólin sendi geisla sína inn um glugga kirkjunnar og dönsuðu sólargeisl- arnir um, rétt eins og gáskinn sem- Björk frænka bjó yfir. Minningin er sterk og við eram öll ríkari að hafa átt og fengið að njóta samvist- anna við hana. Kæra Stebbi, Jónas, Heiða og börn. Missir ykkar er mikill, en um leið margs að þakka. Megi.minning- in um elskulega eiginkonu og móð- ur gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Blessuð sé minning Bjarkar Jónas- dóttur. Jakobína Reynisdóttir. Birting afmælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík, og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birt- ar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar era birtar afmælisfréttir með mynd í dag- bók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Gísh Sigurður Geirsson - Minning Fæddur 26. desember 1957 Dáinn 28. janúar 1993 Ég ætla að minnast frænda míns Gísla með fáeinum orðum. Ég frétti á fimmtudagskvöld að Gísli væri lát- inn eftir hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm. Gísli var sonur Bergsveinu Gísla- dóttur móðursystur minnar og Geirs Siguijónssonar. Helstu minningar mínar um Gísla frænda eru frá því að við vorum krakkar og samgangur var meiri. Ég var aðeins tveimur árum eldri en hann, og lékum við okkur því oft saman þegar við komum til Sveinu frænku í Þúfubarði. Það var árviss atburður að við frændsystkinin hitt- umst að Þúfubarði 26. desember og ættum ógleymanlegar stundir sam- an, þvi að Gísli átti mjög samhelda foreldra sem tóku virkan þátt í því sem við bömin vorum að gera. Einn- ig minnist ég stunda okkar saman hjá afa og ömmu í Norðfirði, þar sem við lékum í fjörunni eða í árabát sem afi átti. Þegar við uxum úr grasi, þá fækkaði samverastundum okkar, eins og oft vill verða. Gísli var kvænt- ur Kristínu Edvardsdóttur og átti með henni þijú indæl börn. Ég votta Kristínu, börnunum og foreldrum Gísla Sigurðar innilega samúð. Kristín Gunnarsdóttir. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur hlýhug, samúð og vin- áttu við andlát og útför ástkærrar eigin- konu minnar og móður okkar, FJÓLU EINARSDÓTTUR frá Vestmannaeyjum, Norðurtúni 22, Bessastaðahreppi. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks við deild 3B á Landakotsspítala, Kvenfé- lags Bessastaðahrepps og Álftaneskórsins. Bergur Ólafsson, Einar Bergsson, Ólafur Bergsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HALLDÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR, áðurtil heimilis á Brávallagötu 48, Reykjavi\, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. febrúar kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hennar, eru vinsamlegast beðnir að láta Hjartavernd njóta þess. Kristján G. Kristjánsson, Kristján Birgir Kristjánsson, Anna S. Snæbjörnsdóttir, Guðmunda Auður Kristjánsdóttir, Vilhelm Ingólfsson, Ása Maria Kristjánsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför PÉTURS SIGURBJÖRNSSONAR, Barónsstíg 23. Ásta Jónsdóttir, Guðrúnog Tómas Waage, Ásta Waage, Helga Waage, Helgi Hjálmarsson, Hrefna Helgadóttir, Magnfriður Sigurbjarnardóttir, Páll Sigurbjörnsson, Pálína Andrésdóttir. + InnilegarÞakkir færum við öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐLAUGAR TÓMASDÓTTUR frá Hrútafelli, sfðast vistmaður á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Rútur Eggertsson, Bergljót Einarsdóttir, Jóhannes Eggertsson, Vilborg Þorsteinsdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andiát og útför eiginkonu minnar, móð- ur okkar, tengdamóður og ömmu, HULDU STEFÁNSDÓTTUR, Borgarheiði 9, Hveragerði. Þórir Björnsson, Björn Þórisson, Sigrún Ingibjartsdóttir, Jónas Þórisson, Ingibjörg Ingvarsdóttir, Stefán Þórisson, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Sverrir Þórisson, Kristín Þórsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur hlýhug, samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BERGS V. SIGURÐSSONAR verkstjóra frá Bæjarskerjum, Stafnesvegi 2, Sandgerði. Pálína Þ. Theodórsdóttir, Þorbjörg Bergsdóttir, Baldvin Njálsson, VigdfsTh. Bergsdóttir, Margrét Bergsdóttir, Berglfn Bergsdóttir, Einar Bergsson, Hrönn Bergsdóttir, Guðveig Bergsdóttir, Valgerður A. Bergsdóttir, Sigurður Skúli Bergsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ellert Pálmason, Baldur Matthfasson, Guðmundur Hólmgeirsson, Jón Guðmundsson, Sverrir Ólafsson, Elís Björn Klemenzson, Þurfður Árnadóttir,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.