Morgunblaðið - 16.02.1993, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993
45.
Af nauðgunum og öðrum
viðeigandi trakteringum
Frá Helgu Kr. Einarsdóttur.
HÖRMUNGAR í öðrum löndum
eru tilefni mikilla heilabrota
Sveins Kristinssonar, sem lesa má
í bréfi til Morgunblaðsins, laugar-
daginn 13. febrúar sl. í því stend-
ur meðal annars að konum sé ekki
„nauðgað hérlendis, nema í
neyðartilvikum og þá helst í
svefni". Helst er á manninum að
skilja að hér sé vart þverfótað
fyrir viljugum konum og þá sjald-
an að bregst „Komiði með/ ég
spar’ ekki féð“-bogalistin (eitt glas
af barnum) sé fátt annað til ráða
en að spenna bogann á ný og bíða
þess, tvístígandi, að óminnishegr-
inn slái viðfang kvöldsins í rot, og
taki þannig ómakið af herranum.
Frá mínum bæjardyrum séð er
slík sturtuklefagamansemi best
geymd í sturtuklefanum og færi
enn betur á að hún rataði beint í
niðurfallið, í stað þess að rata á
síður víðlesnasta blaðs landsins,
óhindrað. Staðreyndin er því miður
sú að konuiri er nauðgað, alls stað-
ar, og það ekki vegna þess að
árásarmanninum, á barmi kyn-
ferðislegrar örvæntingar, hafi
virst öll önnur sund lokuð. Ætlun-
in er að niðurlægja fómarlambið.
Ef Sveinn Kristinsson hefur ekki
heyrt af slíkum „viðeigandi trakt-
eringum", eins og hann segir svo
skemmtilega í fyrrgreindu bréfí,
er kannski tími til kominn að hann
leggi við hlustimar, fari jafnvel
að eigin ráðum: „Opnaðu fyrir
útvarpið, líttu í fréttadálka blað-
anna. Daglega eru dæmin kynnt.
Er það þó sennilega aðeins „topp-
ur ísjakans“ sem þar kemur fram.“
Það hefur ugglaust komið illa við
fómarlömb nauðgunar hérlendis
að sjá reynslu sína hafða í flimt-
ingum. Vona ég að ekki sé svo
vel byrgt fyrir sálarglugga Sveins
Kristinssonar að hann sjái ekki
að sér. Vel er hugsanlegt að
Sveinn hafí geyst fram á ritvöllinn
í þvflíku ofboði að honum hafí orð-
ið fíngraskortur á ritvélinni sinni,
en ef hitt reynist sannara, að hon-
um hafí verið fyllsta alvara, bið
ég honum Guðs blessunar - ekki
veitir af.
HELGA KR. EINARSDÓTTIR,
Kleppsvegi 6, Reykjavík.
LEIÐRÉTTING
Lína féll niöur
í minningargrein Kristjáns J.
Jónssonar um Oskar G. Jóhannes-
son, hafnsögumann á ísafirði, í
laugardagsblaði Morgunblaðsins
féll niður heil lína úr handriti og
raskaðist við það samhengið. Rétt
hljóðar efnisgreinin svo: „Er ég
heyri góðs manns getið, mun ég
minnast þín. Þetta er mér efst í
huga við brottför þessa látna vijiar.
í anda hans ætla ég ekki að vera
langorður. Hann var einn af þeim
allt of fáu sem kaus að láta verkin
tala í stað orða. Það er sagt að sjald-
an falli eplið langt frá eikinni. For-
eldra Óskars þekkti ég vel vegna
vem minnar á Djúpbátnum Fagra-
nesi í mörg ár, en þau bjuggu lengi
á Bæjum á Snæfjallaströnd. Það
var stutt í hlýjuna hjá þeim og á
þeirra heimili og sérstaklega við þá
sem minna máttu sín. I mínum
huga er það gulls ígildi. Óskar
vemdaði þetta veganesti með sinni
ljúfu framkomu alla tíð.“
Hlutaðeigendur em innilega
beðnir afsökunar á mistökunum.
Vinning laugarc
stötur 13. feb. 1993.
'jY20)Í|f^ ÍX29j (37)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
! 1. 5al5 1 2.356.476
i A fUfctf 4af5^ $ 2 204.679
3. 4af5 77 9.170
í 4. 3ai5 3.437 479
: Heildarvinningsupphæðþessaviku: 5.118.247 kr.
% 1
UPPLÝSINGAR SIMSVARI91 -681511 lukkul!na991002
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
Penni tapaðist
GULLHÚÐAÐUR Parker-
blekpenni tapaðist þriðjudag-
inn 9. febrúar sl. sennilega
nálægt Tollstöðinni eða í mið-
bænum. Skilvís finnandi vin-
samlegast hringi í s: 72394 eða
677900. Fundarlaunum heitið.
Innbrot
BROTIST var inn í geymslur á
Ásvallagötu 55 og meðal ann-
arra hluta var stolið stórum
innkaupapoka á hjólum og
minni tösku, nokkurs konar
leikfimitösku og gylltum gler-
öskubakka á gylltum fæti sem
er erfðagripur. Ef einhver
skyldi verða var við þessa hluti
vinsamlegast skili því á sama
stað.
Týndur köttur
ÞESSI bröndótti fressköttur
týndist frá Þingholtsstræti 26
sl. miðvikudag. Hann er
þriggja ára, hvítur á bringu og
stórvaxinn. Þeir sem kynnu að
hafa orðið hans varir, vinsam-
lega hringi í síma 22461.
l *. ^ l ■ * . *^ l *
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
ALMENNUR VEFNADUR
Kennari: Herborg Sigtryggsdóttir.
22. feb. - 5. apríl mánudaga og fimmtudaga kl.
19.30 - 22.30. Skráning fer fram á skrifstofu skól-
ans mánud. - fimmtud. kl. 14-16 í síma 17800.
V
VASKHUGI
Nú er rétti tíminn til að bæta vinnuumhverfið þitt svo um mun-
ar. Með Vaskhuga uppfyllir þú ekki aðeins kröfur hins opinbera
um skattskil, heldur er staða rekstrarins alltaf á hreinu.
Vaskhugi er eitt forrit með öllum kerfum, sem venjulegur rekstur
þarfnast, þ.e. sölukerfi, fjárhagsbókhaldi, birgða-, viðskipta-
manna- og verkefnabókhaldi, hefti, ritvél og mörgu fleira. Tugir
gagnlegra skýrslna sýna sölusögu, útistandandi kröfur, skulda-
stöðu, virðisaukaskatt o.fl. o.fl.
Vaskhugi prentar sölureikninga, gíróseðla, póstkröfur, víxla, lím-
miða o.s.frv. Allt þetta fæst með einföldum skipunum.
Og það besta er að Vaskhugi kostar aðeins 48.000 kr. Prófaðu
Vaskhuga í 15 daga án skuldbindinga. Hringdu og fáðu sendar
upplýsingar um þetta frábæra forrit, eða komdu við og skoðaðu
möguleikana.
(=»
^pVaskhugi hf.
Grensásvegi 13, sími 682680, fax 682679.
EITTHUNDRAÐ KLUKKUSTUNDIR!
Tölvunám fyrir alla: Ritara og annað skrifstofufólk,
banka- og lagermenn, húsmæður og alla aðra sem vilja
hafa sitt á hreinu!
Kennt er á öll helstu forrit fyrir PC- og Macintosh-tölvur.
Með hverjum áf anga fylgja vönduð kennslugögn, sem . v
gott er að nota sem uppsláttarrit seinna meir.
Námið skiptist í níu áfanga. Þeir eru: Almenn
tölvufræði, MS-DOS og Windows, Word f.
Windows, Teikning og umbrot, Töflureiknir og
áætlanagerð í Excei f. Windows, Gagnasafnsfræði,
Stýrikerfi Macintosh-tölvu, Works og Page Maker. y
Engrar undirbúningsmenntunar er krafist. Gjörðu svo vel, hringdu
C3S Tölvuskóli Revkiavikur
lrr---r-r---T.t M Botsartúni 28.105 Revkiavík. sfmk 68 75 90. faic 62 14 T8
upplýsingabxkling.
TONLEIKAR
Rauö áskriftarröö-
Háskólabíói
fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20.00
Hljómsveitarstjóri:
Edward Serov
Einleikari:
Rivka Golani
EFNISSKRÁ:
Alfred Schnitke:
Konsert fyrir lágfiðlu
Felix Mendelssohn:
Sinfónía nr. 3
Miðasala fer fram alla virka daga á skrifstofu
hljómsveitarinnar I Háskólabíói og við
innganginn við upphaf tónlelka
SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS
Háskólabíól við Hagatorg. Simi 622255. Greiðslukortaþjónusta.