Morgunblaðið - 16.02.1993, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 16.02.1993, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRUAR 1993 4* ÚR DAGBOK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVIK: Helgin 12. - 14. feb. Helgin var annasöm hjá lög- reglunni. Alls var tilkynnt um 38 umferðaróhöpp. Þar af urðu slys á fólki í sex tilvikum og grunur er um ölvun ökumanna í tveimur tilvikum. Tilkynnt var um 15 innbrot og níu þjófnaði, sex líkamsmeiðingar og átta öku- menn eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis auk þeirra tveggja sem lentu í um- ferðaróhöppunum. Rúmlega fimmtíu sinnum var tilkynnt um fok eða skemmdir vegna foks, aðallega seinnipart föstudags og á föstudagskvöid. Árekstrar Á föstudagsmorgun varð harð- ur árekstur tveggja bifreiða á Skothúsvegi og Sóleyjargötu. Eftir áreksturinn kastaðist önnur bifreiðin á umferðarljósavita sem lagðist niður við höggið. Aðili úr annarri bifreiðinni kvartaði yfir eymslum og var því fluttur á slysadeildina með lögreglubif- reið. Skömmu síðar lentu tvær bifreiðir saman á Reykjanesbraut við Stekkjarbakka. Onnur bif- reiðin kastaðist á vegrið, sem þar er. Flytja þurfti farþega á slysa- deild. Skömmu fyrir hádegi valt bifreið út fyrir Vesturlandsveg í Kjós. Ökumaður og farþegi fóru sjálfir á slysadeild. Skömmu eftir hádegi þurfti að flytja ökumann og bam á slysadeild eftir árekst- ur tveggja bifreiða á gatnamót- um Háaleitisbrautar og Lásta- brautar. Á laugardag varð árekstur með tveimur bifreiðum á Hringbraut við Melatorg. Ann- ar ökumannanna fór sjálfur á slysadeild. Skömmu síðar þurfti að flytja ökumann á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bif- reiða á gatnamótum Breiðholts- brautar og Skógarhlíðar. Aðfaranótt laugardags var til- kynnt um að bifreið hefði verið ekið á brott í Lækjargötu í óleyfí eiganda. Sá hafði læst bifreið- inni, en skildi lykla eftir í hanska- hólfínu. Bílþjófar Á laugardagsmorgun handtók lögreglan í Borgarnesi tvo pilta sem höfðu stolið bifreið í Mos- fellsbæ um nóttina. Piltarnir voru handteknir við Botnsskála. Þeir höfðu byijað að stela bifreið við Flyðrugranda en skilið við hana á Kaplaskjólsvegi. Þá tóku þeir bifreið traustataki á Aflagranda. Á þessari bifreið komust þeir upp í Mosfellsbæ þar sem þeir gengu að bifreið við Arkarholt. Á henni' óku þeir sem leið lá upp í Hval- fjörð þar sem þeir voru stöðvaðir af Borgarneslögreglunni. Pilt- amir, sem era 14 og 17 ára gaml- ir, vora skömmu fyrir helgi stöðv- aðir af lögreglu á stolinni bifreið á Rjúpnahæð. Annan þeirra var hægt að vista í fangageymslun- um en hinn varð að vista fyrir opnum dyram þar sem hlutaðeig- andi félagsmáia- og bamavemd- aryfírvöld höfðu ekki aðstöðu til þess að taka við honum. Báðir piltamir hafa margítrekað komið við sögu lögreglu vegna ýmissa afbrota og má segja að lögreglan sé orðin langþreytt á aðgerða- leysi hlutaðeigandi aðila í réttar- kerfínu sem og úrræðaleysi fé- lagsmálayfirvalda. Á sunnudagsmorgun vora tveir piltar handteknir á stolinni bifreið á Kjósarskarðsvegi. Um var að ræða tvo þekkta bílþjófa og hafði annar þeirra komið við sögu málsins morguninn áður. Bifreiðinni höfðu þeir stolið í Kóngsbakka og notað til innbrota á nokkram stöðum í nágrenni borgarinnar og í Hvalfirði. Þeir vora færðir til skýrslutöku eftir vistun hjá lögreglu, en sama úr- ræðaleysið og fyrr virtist blasa við. Mánaðarlegt átak lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum hóst í gær. Að þessu sinni mun lögreglan á þessu svæði beina athygli sinni sérstaklega að óskoðuðum bif- reiðum og að stefnuljósanotkun ökumanna. Talsvert virðist vera um það að ökumenn kunni ekki að gefa stefnumerki. Ferðahugur í fólkinu BIÐRÖÐ myndaðist fyrir framan skrifstofur Samvinnu- ferða-Landsýnar á sunnudag, þegar nýr bæklingur um ferð- ir sumarsins var kynntur. Hjá Úrvali-Útsýn í Pósthússtræti höfðu yngstu gestimir mestan áhuga á bangsanum, sem kom í heimsókn. Morgunblaðið/Sverrir Mikil aðsókn þegar ferðaskrifstofur kynntu bæklinga Sjá fram á ferðasumar „AÐSÓKNIN var svo mikil að það var eins og við værum að gefa ferðir," sagði Helgi Jóhannsson, framkvæmda- sljóri Samvinnuferða-Landsýnar, en ferðaskrifstofan kynnti á sunnudag nýjan bækling yfir ferðatilboð sumars- ins. Það gerði Úrval-Útsýn einnig og á skrifstofum félags- ins voru afhentir 8-10 þúsund ferðabæklingar, að sögn Tómasar Tómassonar, markaðsstjóra. 66 þús. til Flórída „Til okkar í Austurstræti komu 4-5000 manns á sunnudag og við urðum að hleypa inn í hollum," sagði Helgi Jóhannsson. „Ferðaáhugi landsmanna er greinilega mikill og í morgun [mánudag] höfðu þegar borist 200 pantanir. Mestan áhuga hafa menn á sólinni í Benidorm, en í sumar er í fyrsta sinn flogið beint til Flórída. “ Helgi sagði að verð fyrir einstakl- ing á tveggja vikna ferð til Flórída, með bílaleigubíl allan tímann, væri frá 66 þúsund krónum. „Við bjóðum líka flug og bíl, en tvær vikur kosta þá frá 45 þúsund krónum á mann.“ Helgi sagði að hann væri bjart- sýnn á gott ferðasumar. í fyrra hefði farþegum Samvinnuferða-Landsýn- ar fjölgað og árið skilað hagnaði. Dreymir um að komast út „Það dreymir enn fleiri um að komast úr landi nú en í fyrra, eftir snjóþungan vetur,“ sagði Tómas Tómasson, markaðsstjóri Úrvals- Útsýnar. „Það var mikil aðsókn á skrifstofum okkar á sunnudag. Við afhentum 8-10 þúsund bæklinga og enn streymir fólk að. Mér sýnist aðsóknin heldur meiri en í fyrra, en það er ekki endilega til marks um að fleiri fari utan, heldur frekar að fleiri dreymi um það.“ Tómas sagði að lítið væri farið að reyna á pantanir, en ágætlega hefði gengið að selja í sólarlanda- ferðir um páskana. „Helsta nýjungin hjá okkur í sumar er verðlistinn sjálf- ur, því sólarlandaferðir lækka að krónutölu, jafnvel svo að munar tug- um þúsunda fyrir fjölskyldur. Þá leggjum við áherslur á Flórídaferðir, en við verðum með sólarmiðstöð við Mexíkóflóann. Fyrir fjögurra manna fjölskyldu, hjón með tvö börn, kostar slík Flórídaferð um 300 þúsund krónur," sagði Tómas Tómasson., _ - -----♦ ♦ ♦---- Miðbær Hafnarfjarðar Arkítektar á móti stórhýsi STJÓRN Arkítektafélags ís- lands hefur skorað á bæjar- stjórn Hafnarfjarðar að rasa ekki um ráð fram við fram- - kvæmd nýs skipulags miðbæj- ar Hafnarfjarðar. Telur stjóm- in að óbætanlegur skaði yrði ef bæjarmyndinni yrði spillt með vanhugsuðum byggingar- framkvæmdum. Á félagsfundi i Arkitektafélagi íslands fyrir skömmu var skipulag miðbæjar Hafnarfjarðar til umræðu og samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu var sú skoðun almenn og eindregin á fundinum að skipulaginu sunnan Strandgötu væri verulega ábótavant. Hin fyrirhugaða verslun- armiðstöð væri með öllu framandi í umhverfí sínu og í allt öðrum stærð- arhlutföllum en miðbæjarbyggðin a#*" Nýkjörinn formaður eftir stjómarkjöríð í Alþýðuflokksfélaginu í Reykjavík iýnd sú hugrriynd að hafa verslun Hugsjónir okkar eiga ekki að armiðstöð af þessum toga á miðbæj- arsvæðinu, þar sem slíkar byggingar ættu heima í útjöðrum byggðar þar sem bílastæðabreiður væru ekki til jafnmikilla lýta og í þéttum miðbæ. fara á útsölu þótt á móti blási ÓLÍNA Þorvarðardóttir, borgarfulltrúi, náði ekki endurkjöri í stjórn Alþýðuflokksfélags Reylg’avíkur síðastliðið miðviku- dagskvöld. Þorlákur Helgason var kjörinn formaður með 41 atkvæði félagsmanna en Valgerður Gunnarsdóttir hlaut 34 atkvæði. Aðrir aðalmenn eru Ásgerður Bjamadóttir, Aðal- heiður Fransdóttir, Cecil Haraldsson, Gunnar Ingi Gunnars- son og Jónas Þór Jónsson. Sæti í varastjórn eiga Rúnar Geir- mundsson, Helgi Daníelsson og Halldór Kristjánsson en Ólína Þorvarðardóttir afþakkaði sæti þar. Þegar rætt var við Þorlák sagðist hann túlka sigur sinn á þann veg að fólk væri almennt ánægt með þær línur sem hann hefði verið að leggja og hann myndi halda áfram sömu leið. „Ég hef Iagt áherslu á jafnrétti og að það að hugsjónir okkar fari ekki á útsölu hvenær sem á móti blási. Auðvitað getur verið nauðsyn- legt að skera niður en það er alls ekki sama hvemig það er gert. Við hljótum alltaf að þurfa að leggja megináherslu á að vernda þá sem minnst mega sína og geta ekki sótt í varasjóði þegar kreppir að,“ sagði Þorlákur. Hann sagðist vera þeirra skoðun- ar að umræðu vantaði um það sem væri að gerast á Alþingi. „Ég ætl- ast líka til þess að í þessu stærsta félagi innan Alþýðuflokksins fari fram umræða og mótun sem flokks- forystan taki tillit til,“ sagði hann. Tvær fylkingar Aðspurður um fall Ólínu úr aðal- stjórninni sagðist Þorlákur ekki hafa áttað sig á því hversu mikil tog- streita hefði myndast milli tveggja fylkinga í félaginu en hana mætti rekja til þess að ekki hefðu allir fé- lagsmenn gengist við því að flokkur- inn hafi stofnað Nýjan vettvang. Sjálfur væri hann hins vegar þeirrar skoðunar að Alþýðuflokkurinn bæri vissa ábyrgð á honum. Hvað framtíðina varðaði sagðist hann líta björtum augum til kom- andi borgarstjómarkosninga. „Sú einokunarstefna sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur fylgt, svo sem með því að hygla einstaka verktökum, hefur komið okkur í koll. Reykjavík- urborg verður að leggja áherslu á velferð allra íbúanna og að búa í haginn fyrir atvinnutækifærum á almennum grunni og gæta þess að útgjöld borgarinnar séu í samræmi við tekjur.“ „Að ýmsu leyti verður að gjör- breyta stefnunni, ungt fólk í dag er t.d. ekki tilbúið til að leggja allt sitt undir, fjölskyldu og fjárhag, til að eignast húsnæði þannig að Reykja- víkurborg verður að laga sig betur að breyttum þörfum," sagði Þorlák- ur og sagðist að lokum sannfærður um að fjölmargir væru tilbúnir til að sameinast um stefnu jafnaðar- manna í Reykjavík sem væri fijáls- lynd um leið og hún hefði fastar rætur í jafnaðarstefnunni. Sóttist ekki eftir að fara í s^jórn Þegar leitað var eftir viðbrögðum Ólínu Þorvarðardóttur við því að hún hefði ekki náð kjöri í stjóm félagsins tók hún fram að hún hefði ekki sóst eftir að eiga þar sæti heldur fallist á beiðni uppstillingarnefndar. „Síðan mætti ég á fund, eins og hver ann- ar. Einu atkvæði munaði að ég færi inn og ég sá ekki tilgang með því að sitja í varastjórn úr því ég hafði ekki fullt fylgi til að fara inn í aðal- stjóm. Égtaldi einfaldlega að félags- menn í Alþýðuflokksfélagi Reykja- víkur óskuð ekki minnar nærveru S stjóm. Og ég tók þau skilaboð eins og þau lágu fyrir,“ sagði ÓlSna. Hún sagði að um væri að ræða lið í því að ákveðin öfl væru að ná undir- tökunum í flokknum.,, Öfl sem eru í hugmyndafræðilegri andstöðu við það sem ég stend fyrir. Ég hlýt að harma þá þróun en við henni er ekkert að gera. Maður verður að virða niðurstöður lýðræðisins og það geri ég,“ sagði hún að lokum. —efþú spilar til að vinna! 6. Idkvika -13. febrúar 1993 Nr. Leikur: Röðitu 1. Arsenal - Nott. Foreat 1 - - 2. Blackbum - Newcastie 1 - - 3. Derby - Bolton 1 4. Man. City - Barnsley 1 S. ShefT. Wed. - Southend 1 - - 6. Chelsea - Aston VUla - - 2 7. Leeds-Otdham 1 - - 8. Birmingham - Portsm. - - 2 9. Chalton - Sunderland - - 2 10. Peterborough - Wotves - - 2 11. Swindon - Mlllwall 1 — 12. Tranmere - Luton - - 2 13. Watford - West Ham - - 2 * HeUdarvinningsupphseðin: 151 milljón króna 13 rfttir: | 78.190 l 12 réttir: 3.100 l 11 réttir: | 350 1 kr’ 10 réttir: [ O l *“**

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.