Morgunblaðið - 16.02.1993, Page 48
MORGUNBLAÐID, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
StMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
STJÓRN Einars Guðfinnssonar hf. í Bolungarvík óskaði
eftir því við Jónas Jóhannsson, héraðsdómara Vestfjarða
í gær að EG og Hólar hf. yrðu tekin til gjaldþrotaskipta.
„Sljórn fyrirtækisins komst að þessari niðurstöðu á fundi,
nú um helgina, því það var engin önnur leið talin fær,
eftir að neikvæð svör Landsbankans höfðu borist við er-
indi okkar,“ sagði Einar Jónatansson, forstjóri EG í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Héraðsdómari Vestfjarða úr-
skurðaði svo kl. 16 í gær að EG og Hólar skyldu tekin til
gjaldþrotaskipta og síðdegis í gær var Stefán Pálsson sem
skipaður var skiptastjóri búsins þegar kominn vestur til
ísafjarðar. Páll Arnór Pálsson var einnig skipaður skipta-
stjóri og hann mun væntanlegur vestur. Jón Sigfús Sigur-
jónsson var skipaður skiptastjóri Hóla hf.
verksmiðja væru metin á um 150
milljónir króna. Auk þess ætti EG
ákveðna eignaprósentu í Sölumið-
stöð Hraðfrystihúsanna. „Ef geng-
ið hefði verið að nauðasamningum
eins og við lögðum þá upp, þá
hefði fyrirtækið átt vel fyrir skuld-
um. Ef félagið hefði selt bænum
togarana, eins og erindi okkar og
bæjarins gekk út á, þá hefðu skuld-
ir fyrirtækisins orðið 200 til 250
milljónir króna,“ sagði Einar Jóna-
tansson.
Einar kvaðst líta þannig á að
stjórn Byggðastofnunar hefði í
raun og veru samþykkt að reynt
yrði að fara þessa skuldalækkunar-
leið, og þannig mætti líta svo á
að stjómvöld hefðu samþykkt
hana. „En það er svo í viðskipta-
banka okkar sem málið strandar,
og það tel ég ekki bara vera áfall
fyrir okkur, heldur fyrir atvinnu-
greinina sem slíka, sjávarútveginn
á íslandi. Gjaldþrotaleiðin hlýtur
alltaf að vera sú leið, sem skaðar
alla mest,“ sagði Einar.
Sjá ennfremur fréttir frá
Bolungarvík á miðopnu.
Skuldir EG og Hóla hf. nálgast
nú um tvo milljarða króna sam-
tals, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins. Einar sagði að
skuldir EG við milliuppgjör í fyrra-
sumar hefðu numið um 1100 millj-
ónum króna, en þær hafi þá verið
taldar um 1350 milljónir króna
vegna kröfu sem EG átti á Hóla,
og er nú talin töpuð krafa. Áhvíl-
andi skuldir á Hólum hf. að meðtal-
inni tapaðri kröfu EG á Hóla eru
nú um hálfur milljarður króna. Það
sem gerir það að verkum að heild-
arskuldirnar hafa hækkað frá því
að umrætt milliuppgjör fór fram,
eru þær breytingar sem orðið hafa
á gengi, auk þess sem dráttarvext-
ir fyrirtækisins á vangoldnum
skuldum hafa einnig hækkað um-
talsvert.
Skip og kvóti metin á 850 millj.
Einar sagði að erfitt væri á
þessu stigi að segja til um það á
hvað eignir EG og Hóla væru
metnar. Hann kvaðst þó telja eðli-
legt að fískiskip EG ásamt kvóta
væru metin á um 850 milljónir
króna og frystihús EG og rækju-
Ámi Sæberg
? Tómur vinnslusalur
ENGIN vinnsla fór fram í fiskvinnslu Einars Guðfinnssonar hf.
í gær og var vinnslusalurinn eyðilegur yfir að líta. Milli 130
og 140 manns skráðu sig á atvinnulausa á Bolungarvík.
Einar Guðfinnsson hf. og Hólar í Bolungarvík gjaldþrota
Skuldir félagtinna nálg-
ast tvo milljarða króna
Bræðslan
gangsett
EG í Bolungarvík og Har-
aldur Böðvarsson hf. á
Akranesi undirrituðu á
miðnætti í fyrrakvöld
leigusamning, þar sem sá
fyrrnefndi leigir þeim síð-
amefnda loðnubræðslu
Bolvíkinga timabundið.
Fyrsta loðnan var því í gær
á leiðinni til Bolungarvíkur og
það var Höfrungur sem sigldi
með um eittþúsund tonn áleiðis
til Bolungarvíkur. í gær var
reiknað með því að loðnu-
bræðslan yrði gangsett annað-
hvort seint í gærkveldi eða ár-
degis í dag.
140 manns
án atvinnu
Á BILINU 130-140 manns
fara á atvinnuleysisskrá á
Bolungarvík við gjaldþrot
Einars Guðfinnssonar hf.,
og að sögn Daða Guðmunds-
sonar formanns Verkalýðs-
og sjómannafélags Bolung-
arvíkur telur hann að þegar
upp verði staðið muni gjald-
þrotið þýða að nær 70%
vinnufærra manna í bænum
verði atvinnulausir.
Greiddar atvinnuleysisbætur á
Bolungarvík hafa nær engar verið
á síðustu 4-5 árum að sögn Daða.
Á fjölmennasta fundi sem haldinn
hefur verið hjá Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Bolungarvíkur kom
fram að mikill meirihluti þeirra ríf-
lega 100 félagsmanna sem sátu
fundinn gerði sér litla grein fyrir
þeirri stöðu að vera atvinnulaus.
„Hér hefur alitaf verið vinnu að
fá og hana mikla. Nú er hins vegar
mjög dauft hljóðið í félagsmönnum
okkar og ekki bjartsýni á að úr
rætist á næstunni," sagði Daði.
Forstjóri Hagvirkis-Kletts segir að kyrrsetning geti leitt til gjaldþrots fyrirtækisins
Bústj óri segir hundruð milljóna
króna gefnar út úr fyrirtækinu
RAGNAR H. Hall, bústjóri þrotabús Fórnarlambsins hf, sem áður hét Hag-
virki, segir í bréfi til fjármálaráðuneytisins að við gerð samninga um sölu eigna
Hagvirkis til Hagvirkis-Kletts í desember 1990 hafi fyrirsvarsmenn fyrirtælg-
anna gefið eignir að verðmæti nokkur hundruð milljónir króna til að þær gætu
ekki nýst skuldheimtumönnum félagsins. „Mér sýnist augljóst af aðdraganda
samningsgerðarinnar og öllu yfirbragði samninganna að umræddar ráðstafanir
hafi gagngert miðað að því að hægt yrði að gera upp við nánast alla aðra en
ríkissjóð,“ segir í bréfi bústjórans til fjármálaráðuneytisins sem lagði fram þá
115 milljóna króna tryggingu sem þurfti að leggja fram til að ábyrgjast kostn-
að sem kynni að hljótast af rekstri riftunarmála búsins þegar kyrrsetningar-
bústjórans var tekin fyrir þjá sýslumanni í Hafnarfirði á laugardag.
Jóhann G. Bergþórsson forstjóri Hagvirkis-
Kletts sagðist á blaðamannafundi á sunnudag
telja líklegt að gjaldþrot Hagvirkis-Kletts
gæti leitt af kyrrsetningu eignanna. Hann
kvaðst ekki synja fyrir það að forsvarsmenn
Hagvirkis hefðu lagt meiri áherslu á að greiða
kröfur annarra lánardrottna en ríkissjóðs
enda þess að geta að félagið hefði talið sig
eiga inni 6-700 milljónir hjá ríkissjóði vegna
ofgreidds söluskatts, uppgjörs framkvæmda
við Keflavíkurflugstöðina, o.fl.
Ragnar H. Hall segist telja að við samning-
ana hafí 349 milljóna króna óveðsett verð-
mæti verið seld úr búi Hagvirkis (síðar Fórn-
arlambsins) án þess að þær greiðslur sem í
staðinn hafí komið hafí komið nokkrum öðr-
Starfsmenn funda
STARFSMANN AFÉL AG Hagvirkis-
Kletts fundaði í gær og var þar samþykkt
ályktun sem ætlunin er að færa Friðrik
Sophussyni fjármálaráðherra í dag.
um sérstaklega til góða en Hagvirki-Kletti
og eigendum þess.
Mati lokið í vikunni
Búist er við að matsmenn ljúki í vikunni
við að meta markaðsverð þeirra eigna sem
Hagvirki-Klettur benti á við kyrrsetninguna.
Verði niðurstaðan sú að fyrirtækið eigi ekki
eignir til að veðsetja fyrir kröfunni geta lánar-
drottnar Hagvirkis-Kletts krafíst gjaldþrots.
Í þrotabú Fómarlambsins var lýst 1.700
milljóna króna kröfum. Yfir 500 milljónum
hafnaði bústjóri. Innheimtumenn ríkissjóðs
fengu viðurkenndar um 380 milljóna kröfur,
sem allar eru án gildra trygginga. íslands-
banki á um 442 milljóna króna kröfur, sem
tryggðar eru með ýmsum veðum, sem er ljóst
að munu ekki standa að öllu leyti undir kröf-
um, að sögn Odds Ólafssonar hjá íslands-
banka.
Sjá einnig bls. 20-21.