Morgunblaðið - 02.03.1993, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
Minning
Einar Olgeirsson
fv. alþingismaður
____________Brids________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Frá Skagfirðingum, Reykjavík
Aðaltvímenningskeppni Skagfirð-
inga 1993 lauk síðasta þriðjudag með
sigri Þrastar Ingimarssonar og Þórðar
___ Bjömssonar.
Röð efstu para varð þessi:
Þröstur Ingimarsson - Þórður Björnsson 112
Benedikt Helgason - Gylfi Jón Gylfason 91
ÓskarKarlsson-ÞórirLeifsson 69
RagnheiðurNielsen-SigurðurÓlafsson 61
ÁrmannJ. Lárusson - Lárus Hermannsson 69
AlfreðAlfreðsson-BjömÞorvaldsson 42
Alla þriðjudaga hér eftir verður eins
kvölds tvímenningskeppni hjá Skag-
firðingum. Spilað er í góðu húsnæði
að Stakkahlíð 17 og hefst spila-
mennska kl. 19.30.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Þetta eru úrslit úr eins kvölds tví-
’ menningnum fimmtudaginn 25. febr-
úar sl.
N-S:
Guðbrandur Guðjohnsen - Magnús Þorkelsson 321
KristóferMagnússon-AlbertÞorsteinsson 304
ElísHelgason-JörgenHalldórsson 303
Sigtryggur Sigurðsson - Anton Valgarðsson 288
A-V:
ÞórirLeifsson-ÓskarKarlsson 352
MagnúsHalldórsson-HjálmarS.Pálsson 313
BemharðGuðmundsson-ÁmiGuðmunds. 288
PállÞ.Bergsson-ViðarJónsson 280
Næsta fimmtudag, 4. mars, hefst
aðaitvímenningur félagsins með baró-
meter útreikningi. Reiknimeistari
Kristján Hauksson, stjómandi ísak
Sigurðsson.
Skráning er hafin hjá ísak í síma
632820 eða hjá Elínu í síma 689360.
Bridsdeild Víkings
Spilað var þriðjudaginn 23. febrúar
og efstu sæti skipuðu:
JónÖmÁmundason-EmaHrólfsdóttir 239
HelgiSamúelsson-UnnurSveinsdóttir 239
Bergsteinn Pálsson - Guðm. Samúelsson 237
SigurðurGeirsson-FilippusÞorláksson 231
Næst verður spilað þriðjudaginn 2.
mars Spilað verður eins kvölds tví-
menningur. Byijað verður að spila kl.
19.30 stundvíslega.
Þegar ég heyrði lát Einars 01-
geirssonar frv. alþingismanns
staldraði ég ósjálfrátt við. Það greip
hug minn á ákveðnari hátt en flest-
ar fregnir nú um stundir. Ég fann
þörf til að riija upp nokkrar minn-
ingar.
Einar var fæddur á Akureyri.
Fyrst man ég eftir honum við jarð-
arför Einars Sigfússonar á Stokka-
hlöðum í mars 1924, að mig minnir.
Hildigunnur systir Einars var með
honum, en hún var að nokkru leyti
alin upp hjá Einari og Guðríði á
Stokkahlöðum. Einar Olgeirsson
var þá þegar og næstu ár að vekja
athygji með glæsileika á öllum svið-
um. í flugmælsku meðal annars.
Engum duldist að þar fór afburða-
maður á marga lund. Og þar sem
hann var, var hann allur.
Einar sat á Alþingi þau ár er ég
sat þar. í apríl 1964 var sex fulltrú-
um Alþingis boðið í heimsókn til
breska þingsins, tveimur fulltrúum
frá hvorum, Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokki, og einum frá hvorum,
Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi.
Birgir Finnsson þingm. Alþýðu-
flokks var fyrir Vestfírði, þá forseti
sameinaðs þings, og því fyrirliði
hópsins. Einar Olgeirsson var þá
staddur í Bretlandi og kom þar til
móts._ Ég fór í þessa för ásamt Sig-
urði Ólasyni, forseta Efri deildar frá
Sjálfstæðisflokki, og frá Framsókn-
arflokki Halldór Sigurðsson og Jón
Skaftason. Fjölbreytt var það er á
dagana dreif. Kvöld eitt vorum við
að koma úr hófí er klukkan var um
12 á miðnætti. Við dvöldum á svo-
nefndu Dorchester-hóteli, líklega í
miðborg Lundúna. „íbúðir“ okkar
Einars lágu svo til saman. Einar
spyr mig þá hvort ég vilji ekki koma
inn til sín um stund. Ég þáði það
og um klukkustund var spjallað.
Einar var hýr á svip og þama sagði
hann mér frá átökum og erfíðleik-
unum við myndun nýsköpunar-
stjórnarinnar haustið 1944. Hrifn-
ing hans var mikij af snilli og ódrep-
andi þolinmæði Ólafs Thors. Einar
var greinilega forustumaður Sósíal-
ista í þeim samningum. Margar
hindranir mættu, en öðru hvoru
virtist markið_ vera að nást. Undir
lokin talar Ólafur við Einar að
kvöldi og segir dökkt í álinn. Segir
svo: Eigum við ekki að sofa á þessu
í nótt?
Nóttin leið. Um morguninn
hringir Ólafur og segir málið í höfn!
Mig minnir að það hafí verið skeyti
frá Finni Jónssyni á ísafírði er kom.
Það var glaður og hlýr maður, Ein-
ar Olgeirsson, á þessari stundu.
Fleiri atvik voru nefnd um sam-
skipti Ólafs og Einars. í átökum
eitt sinn um kosningu meirihluta í
stjórn verkalýðsfélags í Reykjavík,
mig minnir í iðnaði. Þetta var á
þeim tíma árs er Alþingi starfaði.
Skörp skil voru milli flokka, og taln-
ing atkvæða var seint að kvöldi eða
fram á nótt. Sósíalistar sigruðu.
Daginn eftir var Einar kominn til
sætis, er Ólafur Thors kemur í þing-
sal. Hann gengur rakleitt til Einars
og heilsar hressilega og segir: „Mik-
ið andskoti fórum við á rassinn
núna!“
Þetta spjall okkar Einars veitti
mér mikla innsýn. Ég held að í
raun hafi Einar tæpast metið nokk-
urn mann meir en Ólaf Thors. Við
ýmis fleiri atvik var auðvelt með
inngreyptri athygli að sjá þetta.
Þess vegna vil ég einnig geta að
við fjölda viðburða í þessari heim-
sókn til Englands var það Einar
Olgeirsson, sem best gaf því gætur
að ég færi ekki mjög á mis við það
er fram fór, vegna engrar kunnáttu
á ensku máli, þetta fann ég.
Síðustu árin hefur verið hljótt
um Einar Olgeirsson. Ekki leikur
vafí á að misjafnt álit býr í hugum
íslendinga, þeirra er horfa yfír svið
Einars Olgeirssonar og feril langrar
ævi — í sviptivindum stjómmála-
hreyfínga, þar sem hann var mjög
í forystu.
Við leiðarlok býr í míum hug
hlýr maður og sannur mannvinur.
Þegar dómar líða um margra hug
við ævilok leita á huga minn lýsing-
ar úr Nýja testamentinu er ég nam
í bamaskóla og minna stundum á
sig. Æðstu prestar og farísear í
samtíð Jesú Krists komu eitt sinn
til hans með konu: þessi kona hefír
syngað! Samkvæmt lögmálinu skal
hún grýtast! Svo segir að Jesús
hafí litið til jarðar, ritað.með staf
sínum í sandinn, litið svo til æðstu
prestanna og sagt: Sá yðar sem
syndlaus er, kasti fyrsta steininum!
Æðstu prestum allra tíma er
hollt að minnast þessarar sígildu
sögu biblíunnar.
Ég kasta ekki steini á minningu
Einars Olgeirssonar.
Jónas Pétursson.
+ GUÐJÓN JÓNSSON,
Starkaðarhúsum,
Stokkseyri,
er látinn. Ólafía Sigurðardóttir.
+
Faðir minn,
PÉTUR GUÐBJARTSSON,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 28. febrúar.
Fyrir hönd vandamanna,
Ottó Laugdal.
t
Faðir okkar og mágur,
ROBERT H. GREIF,
lést í Vínarborg 25. febrúar.
Stefan Greif, Oern Greif,
Hiidur Davfðsdóttir, Marít Davíðsdóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUNNÞÓRUNN KLARA KARLSDÓTTIR,
Birkivöllum 13,
Selfossi,
andaðist í Borgarspítalanum sunnudaginn 28. febrúar.
Sveinn J. Sveinsson, Björg Sigurðardóttir,
Nína S. Sveinsdóttir, Arnór Hannibalsson,
Ingibjörg S. Sveinsdóttir, Freysteinn Sigurðsson,
Sigurður G. Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginkona mín, mágkona, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNA INGIBJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR,
Álftamýri 40,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 27. febrúar.
Sverrir Meyvantsson, Elfsabet Meyvantsdóttir,
Jóhann B. Sigurgeirsson, Sigrún Þorgeirsdóttir,
Ingólfur Kr. Sigurgeirsson, Gerða Pálsdóttir,
Áshildur Fr. Sigurgeirsdóttir, Eggert Andrésson,
Erla Sigurgeirsdóttir,
Sofffa H. Sigurgeirsdóttir, Benedikt Bjarnason,
Sigrfður E. Sverrisdóttir, Gunnar Hilmarsson,
Vilhelm Sverrisson,
Hreggviður S. Sverrisson, Hulda Jósepsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir mín og amma,
JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 25. febrúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 9. mars
kl. 13.30.
Viktoría Kristjánsdóttir,
Þorkell Snorri Sigurðarson.
Vilhjálmur Ámason,
Burstafelli - Minning
Fæddur 19. febrúar 1921
Dáinn 19. febrúar 1993
Vilhjálmur var ætrð kenndur við
fæðingarstað sinn, Burstafell við
Vestmannabraut, en þar ól hann
allan sinn aldur, fæddist þar 19.
febrúar 1921. Foreldrar hans voru
hjónin Ámi Oddsson frá Oddsstöð-
um, fyrrum skipstjóri og síðar um-
boðsmaður Bmnabótafélags ís-
lands. Kona hans var Sigurbjörg
Sigurðardóttir frá Stuðlum í Norð-
firði og varð þeim átta bama auð-
ið: Guðfínna, gift Elíasi Sigfússyni;
Sigríður, gift Óskari Lárussyni;
Pálina, gift Jónasi Sigurðssyni;
Lára, gift Baldri Jónssyni; Aðal-
heiður, gift Ágústi Bjamasyni, en
þau hjón em nýlátin; Helga, gift
Guðjóni Jónssyni; og Óli ísfeld, og
em tvö síðastnefndu systkinin bæði
látin.
Vilhjálmur missti föður sinn, Óla
ísfeld bróður sinn og Árna systur-
son í hörmulegum eldsvoða er íbúð-
arhúsið á Burstafelli brann 16. júní
1938.
Villi hóf snemma að sjá sér far-
borða og vann við það sem bauðst
og tvö sumur stundaði hann sjó-
róðra frá Norðfirði. Þar kynntist
hann konuefni sínu, Maríu. Hófu
þau sambúð 1940 og giftu sig 22.
febrúar 1941.
María fæddist 6. mars 1923,
dóttir hjónanna Gísla Jóhannssonar
frá Krossi í Mjóafírði og konu hans
Þómnnar ísfeld.
Þeim Vilhjálmi varð fimm bama
auðið. Em þau: Óli Árni, sjúkraliði,
búsettur í Njarðvíkum; Þór ísfeld,
verkstjóri hjá Vinnslustöðinni, kona
hans er Sólveig Adolfsdóttir; Sæ-
mundur, rafmagnseftirlitsmaður,
búsettur í Njarðvík, kona hans er
Fríða Jóna Ágústsdóttir; Sigur-
björg, húsmóðir í Vestmannaeyjum,
maður hennar er Muggur Pálsson;
Vilhjálmur er svo yngstur, vakt-
maður, hans kona er Ragnheiður
Svansdóttir.
Starfsvettvangur Villa hér í bæ
var ætíð verslun og þjónusta og
virtist það eiga vel við hann og
hentaði allri hans háttpiýði. Liðlega
tvítugur hefur hann störf í Bæjara-
búðinni og síðar til margra ára
verslunarstjóri hjá Kaupfélagi
Vestsmannaeyja, eða til ársins
1959, að hann festi kaup á Efna-
lauginni Straumi við Skólaveg og
rak hana þar til 23. janúar 1973,
að hann gerðist lögregluþjónn. Árið
1974 kaupir hann Þvottahúsið af
Vestmannaeyjabæ og sameinar þar
rekstur þvotta- og efnalaugar og
selur síðan 198|. Síðustu starfsárin
vann hann sem verkstjóri á vemd-
uðum vinnustað, eða þar til hann
varð sjötugur.
Vilhjálmur sinnti talsvert félags-
málum og vann öllu vel sem hann
kom nærri, allt með einstakri hóg-
værð og háttvísi. Tranaði sér hvergi
fram en kaus þeim mun betur að
skila sinu í kyrrþey. Hygg ég að
dúkaþvottur félagsins Akoges hefði
stundum getað orðið nokkuð hár
ef reikningi hefði verið skilað en
þetta annaðist hann í kyrrþey til
marga ára.
Vilhjálmur var sannur jafnaðar-
maður og gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir Álþýðuflokkinn í
Vestmannaeyjum. íþróttafélagið
Þór átti hug hans og fylgdi hann
þar félögum sínum dyggilega og
sat um skeið í stjóm félagsins og
sem fulltrúi þess í stjóm íþrótta-
bandalags Vestmannaeyja. Vil-
hjálmur var gerður að heiðursfélaga
í Þór á sjötíu ára afmæli félagsins.
Með Villa er genginn ljúfur liðs-
maður, leikmaður, sem lagði allt
kapp á liðsheildina og þá var gleði
hans stærst er sigur var í höfn að
loknu góði dagsverki.
Blessuð veri minningin um Vil-
hjálm Árnason.
Félagið Akoges í
Vestmannaeyjum.
+
Eiginmaður minn,
ÓSKAR D. ÓLAFSSON
fyrrv. brunavörður,
Sörlaskjóli 90,
verður jarðsunginn frá Neskirkju
miðvikudaginn 3. mars kl. 15.00.
Fyrir mína hönd og annarra
vandamanna,
Rebekka Lúthersdóttir.
+
Maðurinn minn og faðir okkar,
EINAR MAGNÚSSON
skipaamlður,
Grenivöllum 24,
Akureyri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 20. febrúar sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Sigurlfna Pálsdóttir,
börn hins látna
og fjölskyldur þeirra.