Morgunblaðið - 07.03.1993, Blaðsíða 43
íti rai f*: >
p.<Un XvffAM ■.v-.trr>nÁVnriyn/;tp- i^lyiNgvÚMm VAl/WHU iLM^airLLia:k:arx;ffiM_
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993
2&
43
224 milljónir til fjárfest-
inga og viðhaldsverkefna
Selfossi.
FJÁRHAGSAÆTLUN fyrir bæjarsjóð Selfoss var samþykkt við seinni
umræðu á bæjarstjórnarfundi 24. febrúar. Áætlaðar tekjur eru 381,6
miHjónir sem er 2,4% lækkun frá fyrra ári. Rekstur málaflokka nemur
286,3 milljónum. Áætlaðar brúttó fjárfestingar bæjarins nema 166
milljónum auk viðhaldsverkefna fyrir 58 milljónir. Nettó skuldaaukning
bæjarsjóðs nemur um 44 milljónum króna.
Helstu breytingar á skatttekjum
milli ára eru hækkun útsvars um 830
þúsund, lækkun innheimtu- aðstöðu-
gjalda um 11,6 milljónir, hækkun
fasteignagjalda um fjórar milljónir,
lækkun jöfnunarsjóðsgjalds um 3,8
milljónir og hækkun holræsagjalds
um 1,1 milljón. Samtals nemur nettó-
lækkun 9,4 milljónum króna.
Stærstu málaflokkar í rekstri bæj-
arsjóðs og framkvæmdum eru al-
mannatryggingar og félagshjálp 67
milljónir, fræðslumál 59,6, yfirstjóm
bæjarins 28,7, æskulýðs- og íþrótta-
mál 26,3, til gatna og holræsa 27,4
milljónir.
í máli Karls Björnssonar bæjar-
stjóra á bæjarstjómarfundinum kom
fram að heildarfjárfestingar og við-
hald sem Selfosskaupstaður tengdist
með beinum eða óbeinum hætti nema
um hálfum milljarði króna.
Engin hætta á ferðum
Um niðurstöðu áætlunarinnar og
þá skuldaaukningu sem óhjákvæmi-
leg væri sagði bæjarstjóri: „Miðað
við þær miklu framkvæmdir sem
bæjarfélagið stendur fyrir á árinu
1993 og þá gífurlegu raunskulda-
Iækkun sem átt hefur sér stað síð-
ustu ár tel ég að engin hætta sé á
ferðum hvað varðar áframhaldandi
góða fjárhagsstöðu bæjarsjóðs. Auk
þess er framlag bæjarsjóðs til at-
vinnu á Selfossi gríðarlega mikilvægt
með þessum miklu framkvæmdum
með tilliti til þess samdráttar sem á
sér stað í þjóðfélaginu og þar með á
Selfossi. Bæjarsjóður er vel undirbú-
inn hvað þetta atriði varðar og er
lántökuþol hans fyrir hendi vegna
góðrar afkomu síðustu ára' og léttrar
greiðslubyrði lána miðað við flestalla
aðra kaupstaði landsins eins og Ár-
bók sveitarfélaga yitnar um. Á árinu
1993 getur Selfosskaupstaður því
leyft sér að leggja sitt af mörkum
til atvinnuuppbyggingar á svæðinu
með fyrirliggjandi ijárhagsáætlun
bæjarsjóðs fyrir árið 1993.“
Sig. Jóns.
Stjórn Landssamtaka heilsugæslustöðva f.v.; Kristín Pálsdóttir, Valdi-
mar K. Jónsson, formaður, Lúsía Óskarsdóttir, Guðmundur Sigvalda-
son og Eva Eðvarsdóttir.
Landssamtök heilsu-
gæslustöðva stofnuð
LANDSSAMTÖK heilsugæslustöðva voru stofnuð í Reykjavik fyrir
nokkru. Tilgangur þeirra er m.a. að efla samræmingu heilsugæslunnar
í landinu og gæta hagsmuna hennar.
Stofnendur Landssamtaka heilsu-
gæslustöðva eru nær allar heilsu-
gæslustöðvar í landinu sem eru án
starfstengsla við sjúkrahús, en þær
eru alls 39. í lögum samtakanna er
gert ráð fyrir aukaaðild þeirra heilsu-
gæslustöðva sem starfa í tengslum
VÍð sjukrahus. (Úr fréttatilkynningu)
mmm
K.AOAUGL YSINGAR
Útboð
Fyrir hönd Orkubús Vestfjarða óskar Tækni-
þjónusta Vestfjarða eftir tilboðum í smíði og
fullnaðarfrágang á ca 100 m2 og 589 m3
dreifistöðvarhússvið Mánagötu 1Aá ísafirði.
Húsið er úr steinsteypu, ein hæð, og skal
það einangrað að utan með panelklæðningu.
Verklok: 3. september 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Tækniþjónustu
Vestfjarða Austurvegi 1, 400 ísafirði, frá og
með 8. mars 1993, gegn 10.000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Orkubús
Vestfjarða, Stakkanesi 1,400 ísafirði, mánu-
daginn 29. mars 1993 kl. 14.00.
Tækniþjónusta Vestfjarða hf.,
Austurvegi 1, 400 ísafirði,
sími 94-3902.
‘qym
'W Útboð
Vegskáli um Hvanngjá innri
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð
65 m langs vegskála um Hvanngjá innri á
Djúpvegi.
Helstu magntölur: Mót 2.800 fm, steypustyrkt-
arstál 100 tonn og steinsteypa 1.000 rm.
Verki skal lokið 15. september 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins á ísafirði og í Borgartúni 5, Reykjavík
(aðalgjaldkera) frá og með 9. þ.m.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00
þann 22. mars 1993.
Vegamáiastjóri.
Mosfellsbær -
útboð
Mosfellsbær auglýsir eftir tilboðum í lagn-
ingu slitlaga sumarið 1993.
Helstu magntölur eru:
Jöfnunarálag 10.000 m2
Tvöföld klæðning 3.100m2
Malbik 12.400 m2
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Mosfells-
bæjar, Hlégarði, frá og með mánudeginum
8. mars nk. gegn 15.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00
þriðjudaginn 16. mars nk.
Tæknifræðingur Mosfellsbæjar.
n GIMLI 5993030819 I 1 Frl.
atkv.
□ MÍMIR 5993030819 II11 Frl.
Q HELGAFELL 5993030819 VI2
Samkoma í Breiðholts-
kirkju íkvöld kl. 20.30
Tvær hugleiðingar. Vilborg
Schram og Kristinn Eysteins-
son. Bæn. Söngur.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Spíritistafélag íslands
Miðlarnir Dennis Burn’s og Anna
Carla munu starfa hjá félaginu
með einkatíma. Dennis verður
með nýjung: 15-20 manna
skyggnilýsingafundi. Allir fá lest-
ur. Tímapantanir í síma 40734
frá kl. 10.00-22.00 alla daga.
Mi. VEGURINN
^ Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Fjölskyldusamkoma kl. 11.00.
Brauðsbrotning, barnakirkja,
krakkastarf, ungbarnastarf o.fl.
Guðni Þorvaldsson predikar.
- Almenn kvöldsamkoma
kl. 20.30. Björn Ingi Stefánsson
predikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
„Sæll er hver sá er óttast
Drottin!"
Munið Bibliulestur sr. Halldórs
S. Gröndal miðvikudag kl. 18.00.
Allir velkomnir.
fÍMnhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum í
dag kl. 16.00. Mikill söngur.
Samhjálparkórinn tekur lagið.
Vitnisburöir Samhjálparvina.
Barnagæsla.
Ræðumaður Óli Ágústsson.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
w' KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðsfélag karla,
Reykjavík
Fundur verður í Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58-60,
mánudagskvöldið 8. mars kl.
20.30. Lesinn verður 2. kap.
Kólossubréfs.
Allir karlmenn velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelffa
Brauðsbrotning kl. 11.00.
RæðumaöurHafliði Kristinsson.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Mike Fitzgerald.
Barnagæsla. Allir hjartanlega
velkomnir. Barnasamkoma á
sama tíma.
Systrafundur á morgun, mánu-
daginn 8. mars, kl. 20.30. Konur
hjartanlega velkomnar.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustrseti 2
Helgunarsamkoma kl. 11.00.
Kafteinn Miriam Óskarsdóttir
stjómar og talar. Sunnudaga-
skóli samtímis. Kl. 20.30 sam-
kirkjuleg samkoma í Fella- og
Hólakirkju.
Mánudag kl. 16.00:
Heimilasambandsfundur.
SmO ouglýsingor
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Samkoma í dag kl. 11.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Bænaskóli kl. 18.Ó0.
£
&
hæð. Túlkur. Húsið opnað kl.
19.30, lokað kl. 20.30. Mætið
tímanlega. Ókeypis kaffi. Gerry
hefur starfað sem virtur og við-
urkenndur miðill í 35 ár og er
þekktur leiöbeinandi i Evrópu.
Einkatímapantanir hjá Dulheim-
um, sími 668570, kl. 13-18.
Skyggnilýsingarfundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
og Guðrún Hjörleifsdóttir, spá-
kona, halda skyggnilýsingarfund
o.fl. þriðjudaginn 9. mars
i Akógessalnum, Sigtúni 3,
kl. 20.30.
Húsið verður opnað kl. 19.30.
Miöar seldir við innganginn.
KFUM/KFUK, SÍK
Háaleitisbraut 58-60
Almenn samkoma í Kristniboðs-
salnum í kvöld kl. 20.30.
Æskulýðsdagurinn. Upphafsorð
hefur Jenný Brynjarsdóttir.
Vitnisburðir: Helga Vilborg Sig-
urjónsdóttir og Halldór Guð-
mundsson. Drama og mikill
söngur.
Ath. Bænastund kl. 20.00.
Allir eru velkomnir - þú líka!
Auðbrckka 2 . Kópavoqu
Samkoma í dag kl. 16.30.
Kveðjusamkoma fyrir Paul Han-
sen sem er á förum til Bandaríkj-
anna. Allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Skyggnilýsingarfundur
Miöillinn Gerry Foster heldur
skyggnilýsingarfund þriðjudag-
inn 9. mars í Ármúla 40, 2.
Munið fundinn þriöjudaginn 9.
mars kl. 20.15. Lív Kristófersson
kynnir fallegt og nýstárlegt
páskaföndur. Ennig munum við
þúa til eitthvað fallegt sjálfar.
Fjölmennum.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Miðvikud. 10. mars kl. 20
Aðalfundur Ferðafélagsins
Aðalfundur Ferðafélags islands
verður haldinn næstkomandi
miðvikudagskvöld 10. mars I
Ferðafélagshúsinu, Mörkinni 6,
risi, og hefst hann stundvíslega
kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsmenn sýni ársskírteini
1992 við innganginn.
Missið ekki af vetrarfagnaðin-
um að Flúðum 20.-21. mars.
Skráning á skrifstofunni og á
aðalfundinum.
Ferðafélag (slands.
FERÐAFELAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Sunnudagsferðir 7. mars
1. Kl. 10.30 Skíðaganga: Blá-
fjöll—Heiðin há-Þrengsli. Ath.
breytta áætlun. Gott skíða-
gönguland.
2. Kl. 13.00 Hafnarskeið-Þor-
lákshöfn. Skemmtileg strand-
ganga austan Þorlákshafnar. Til-
valin fjölskylduférð. Gengið í átt-
ina að Óseyrarbrú.
3. Kl. 13.00 Skíðaganga: Lága-
skarð-Lakadalir. Þægileg
skíðaganga austan Meitla.
Verð í ferðirnar: 1.100 kr., frítt
f. börn m. fullorðnum.
Vættaganga á fullu tungli á
þriðjudagskvöldið 9. mars kl.
20.00. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni austanmegin
(stansað við Ferðafélagshúsið,
Mörkinni 6). Munið aðalfundinn
miðvikudagskvöldið 10. mars
kl. 20.00 i Mörkinni 6 (risi).
Ferðafélag (slands.
UTIVIST
iHallveigarstig l • simi 6143,
Dagsferð sunnud.
7. mars
Kl. 10.30 Reykjaborg-Bjarna-
vatn.
Ath: Skíðaganga sem átti að
vera kl. 10.30 fellur niður.
Tunglskinsganga íViðey
mánudaginn 8. mars.
Á fullu tungli er haldið út í Við-
ey. Gengið verður um vestur-
eyna og fjörubál kveikt undir Eið-
isbjargi.
Brottför kl. 20.00 frá Klettagörð-
um í Sundahöfn. Verð kr. 500.
Verið með í skemmtilegri ferð.
Dagsferð sunnud. 14. mars
Kl. 10.30 Skýlagangan 6. áfangi.
Árshátíð Útivistar 1993
verður haldinn þann 20. mars í
Skíðaskálanum i Hveradölum.
Glæsilegur matseðill og frábær
skemmtiatriði. Hljómsveit Jak-
obs Jónssonar leikur fyrir dansi.
Rútuferð frá BSI kl. 18.00. Miða-
sala á skrifsofu Útivistar, opið
frá kl. 12-17.
Miðaverö aðeins kr. 3.900.
Félagsmenn og farþegar Útivist-
ar fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Útivist.
' ÝMISLEGT
Silfurkrossinn
Þann 15. mars kemur indverski
miðillinn og sjáandinn Bill Lyons
aftur til landsins.
Upplýsingar og tímapantanir í
síma 688704.
Einnig mun Iris Hall verða með
einkatíma frá 15.-26. mars.
Elísabet.
EINKAMAL
Eignist vini
af báðum kynjum í Evrópu og
um allan heim. Fáið ókeypis
upplýsingar um hinn alþjóðlega
pennavinaklúbb okkar.
WWC, box 4026, S-42404,
Angered, Sviþjóð.
KENNSLA
Unglinganámskeið
Kripalujóga
Námskeið f. 8., 9. og 10. bekk
9. mars - 6. april þri. og fim.
kl. 15.00-16.30. Verð kr. 7.000.
Upplýsingar og skráning í sima
679181 alla virka daga.
Jógastöðin Heimsljós.