Morgunblaðið - 07.03.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.03.1993, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C 4 • K- - I STOFNAÐ 1913 55. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Breska stjórnin hefur sókn gegn andstæðingum Maastricht Segja „skotgrafahernað“ geta klofið Ihaldsflokkimi Vinnuvernd ábótavant ÍTARLEG könnun á vegum hagstofu vinnumarkaðarins í Bandaríkjunum hef- ur ieitt í ljós að algengasta orsök þess að menn deyi á vinnustað sínum í New York sé að þeir séu myrtir. Alls létu 177 opinberir starfsmenn í New York lífið árið 1991 og voru 69% þeirra myrtir. Langflestir voru skotnir til bana. Ein- ungis 18% létust er þeir duttu eða rák- ust á eitthvað, 7% létust í umferðarslys- um og 2% í brunum eða sprengingum. Bijóstagjöf heimiluð á almannafæri STJÓRNVÖLD á Flórída hafa samþykkt lög sem leyfa brjóstagjöf á almanna- færi. Þó að fleiri ferðamenn komi árlega til Flórída en nokkurs annars ríkis Bandaríkjanna eru þar í gildi mjög ströng lög varðandi nekt. Konur mega til dæmis ekki bera bijóst sín á ströndum og vandlega er fylgst með að því banni sé framfylgt. Frumvarpið um bijóstagjöf var lagt fram af þingmanni af kúbversk- um uppruna með þeim rökum að í kúb- verskri og evrópskri menningu væri brjóstagjöf fyllilega eðlileg. Næturakstur ung- linga hættulegur UMFERÐARRÁÐ Bandaríkjanna hefur lagt til að 16 og 17 ára gömlum ökumönn- um verði bannað að aka frá miðnætti til klukkan fimm um morguninn. Sam- kvæmt nýrri skýrslu eru ökumenn á aldr- inum 15-20 ára helmingi líklegri en aðrir til að lenda í banaslysum. Reynslu- leysi þeirra segir sérstaklega til sín í myrkri. Þó að táningar séu ekki mikið á ferðinni að nóttu til má rekja helming allra banaslysa að næturlagi til þeirra. Banna óþýdd auglýsingaskilti BORGARSTJÓRI Moskvu hefur ákveðið að banna allar auglýsingar á veggspjöld- um, sem ekki hafa verið þýddar yfir á rússnesku. Rússar hafa sýnt mikið dá- læti á erlendum auglýsingum, aðallega enskum, og ekki óalgengt að vara sem er auglýst á ensku sejjist betur en sama vara auglýst á rússnesku í búðinni við hliðina, þó svo að sú „enska“ hafi verið dýrari. Svipaðar reglur voru samþykktar í Pétursborg í fyrra. London. The Daily Telegraph. FORYSTA breska íhaldsflokksins hóf á föstudag sókn gegn þeim þingmönnum flokksins sem verið hafa andsnúnir John Major forsætisráðherra í Evrópumálum. Ráðherrar hvöttu til samstöðu og vöruðu við því að ef „skotgrafahernaði" gegn Maastricht-sáttmála Evrópubandalagsins yrði haldið áfram, gæti það klofið íhalds- flokkinn, gert vonir um efnahagsbata að engu og valdið upplausn innan EB. Norman Fowler, formaður íhaldsflokksins, sagði á fundi miðstjórnar flokksins á föstudag að flokkseining væri ekki hlutur sem menn gætu valið og hafnað að vild. „Við getum ekki sýnt flokkshollustu einungis suma daga vikunnar. Við getum ekki valið þann kost að styðja við bakið á forystumönnum okkar þeg- ar þeir eru að framfylgja sumum atriðum úr stefnuskrá flokksins en vera svo á móti þeim þegar kemur að öðrum atriðum." Douglas Hurd utanríkisráðherra sagði að allir væru orðnír þreyttir á þessari umræðu og hvatti til þess að málið yrði endanlega afgreitt fyrir næsta sumar. Þangað ti! þetta mál yrði leitt til lykta væri flokkurinn klofinn og Bretum tækist ekki að fylgja málum eftir af fullum krafti á alþjóðavettvangi. „Það er í þágu þjóðarhagsmuna að staðfesta [Maas- tricht-jsamkomulagið. Við skulum því drífa í þessu,“ sagði Hurd. Hann bætti við að það gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir Breta ef þeir höfnuðu samkomu- laginu t.d. hvað varðaði erlendar fjárfesting- ar. Vitnaði hann til nýrrar skýrslu sem gerð var fyrir bresk fjármálafyrirtæki þar sem fram kemur að tap Breta gæti numið 5.000 milljörð- um króna á fimm ára tímabili. Hafa þessi afdráttarlausu ummæli utanrík- isráðherrans verið túlkuð sem svo að ríkis- stjómin hyggist nú leggjast til atlögu gegn andstæðingum sínum í málinu og sé reiðubú- in að taka nokkra áhættu. Kenneth Clarke innanríkisráðherra vék einnig að þessum málum og gagnrýndi and- stæðinga Evrópustefnu stjómarinnar fyrir að vera í litlum tengslum við raunveruleikann. Hélt hann því fram að orðaskipti sín í þinginu við ýmsa þingmenn íhaldsflokksins væm í anda Monty Python-sjónvarpsþáttanna, sem eru þekktir fyrir flest annað en raunsæi. Lagskona Rasmussens Vill launað frí Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt- ur, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞINGKONAN Lone Dybkjær, lagskona Pouls Nyrups Rasmussens forsætisráð- herra, hefur farið fram á að þjóðþingið viðurkenni að ferðalög hennar með forsæt- isráðherranum séu opinber störf, svo hún fái frí frá þingstörfum í landinu. Meðal þingmanna virðist ekki vera meiri- hluti fyrir að fallast á afstöðu hennar. Því hefur verið lagt að henni að draga málaleitan sína til baka til að forða stjóminni frá óþægi- legu umtali. Ekki tíðkast að greiða sérstaklega fyrir ráðherramaka á ferðalögum. SYNDUOUR MESSÍASÁ HEIMSENDA 18 Pálmor Gunnarsson komst lifs af úr flugslys- inu í Ljósu- fjöllum fyrir 7 árum ALÞING HIÐ NÝJA Aí hverju ég ÞRJAR GRÆNAR BLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.