Morgunblaðið - 16.04.1993, Page 11
; jg&ftðfllfetgfcfiPí?Ö§tÖMéiíM( ¥6jíÁ-f>ttíííi(i%3
011
17.00. Efnisskráin er að venju fjöl-
breytt. Stjórnandi kórsins er Helgi R.
Einarsson og undirleik annast Hrönn
Helgadóttir á píanó og Kristjana Helga-
dóttir á flautu. Kórinn er nú að ljúka
sínu 13. starfsári. Kórinn hefur komið
víða við í vetur og hefur verið ákveðið
að halda sig við Frón og ferðast um
Norðurland fyrstu helgina í júní og
syngja fyrir Þingeyinga og Eyfirðinga.
Nicolette Salas sem tekur við
hlutverki Svanhildar í Coppelíu.
Leiklist
Nýir dansarar í
Coppelíu
Næstkomandi sunnudag taka nýir
dansarar, þau Noclette Salas og Mauro
Tambone, við aðalhlutverkum í Coppelíu.
Mauro Tambone er ítalskur og hefur
starfað með íslenska dansflokknum um
skeið, en Nicolette Salas er frá Banda-
ríkjunum og starfar nú um stundarsakir
með flokknum. Hlutverk Dr. Coppelíusar
verður áfram í höndum Þrastar Leós
Gunnarssonar. Coppelía er stærsta upp-
færsla íslenska dansflokksins um langt
skeið og taka auk dansara flokksins um
30 nemendur þátt í uppsetningunni, tveir
ieikarar og hijómsveit. Uppfærslan er í
höndum Evu Evdokimovu og hefur hún
fengið einróma lof gagnrýnanda fyrir
sýninguna. Hljómsveitarstjóri er Órn
Oskarsson, en búninga og leikmynd
hannaði Hlín Gunnarsdóttir.
Undirbúningsfundur
Undirbúningsfundur fyrir Óháða lista-
hátið 1993 verður haldinn í Djúpinu nk.
sunnudag kl. 20.00. Hin s.k. Óháða lista-
hátíð verður haldin í annað sinn 10.-26.
júni víðsvegar í Reykjavík. Markmið
hátíðarinnar er að auka samskipti og
samvinnu listamanna. í fréttatilkynningu
eru allir áhugasamir hvattir til að mæta
í Djúpið.
Öperuiðja Tónlistarskóla Kópavogs
Barnaóp-
eran Hans
og Gréta
BARNAÓPERAN Hans og Gréta
eftir Engilbert Humperdinck
verður frumsýnd laugardaginn
17. apríl klukkan 14 í hinum nýja
tónleikasal Tónlistarskóla Kópa-
vogs að Hamraborg 11. Nemend-
ur í söngdeild skólans munu flytja
óperuna undir stjórn Önnu Júlí-
önu Sveinsdóttur, söngkennara.
Óperan er stytt frá upprunalegri
mynd. Sögumaður mun segja sög-
una og tengja um leið söngatriðin
sem sungin verða á íslensku.
Flytjendur eru: Kolbrún Jónsdóttir
(Gréta), Margrét Geirsdóttir (Hans),
Jón Pétur Friðriksson (faðirinn),
Guðrún Guðlaugsdóttir (móðirin),
Lovísa Guðmundsdóttir (galdranorn-
in), Brynhildur Fjölnisdóttir (dagg-
ardvergurinn), Takakó Inaba Jóns-
son (Óli Lokbrá) og sögumaður verð-
ur Halldór Björnsson.
Dansmeyjar dansa hlutverk
verndarenglanna; þær Hlíf Kvaran
Brynjarsdóttir, Ólöf Júlía Kjartans-
dóttir og Rut Reykjalín. Undirleik á
píanó annast Jóhannes Andreasen
Atriði úr barnaóperunni Hans og
Grétu sem frumsýnd verður á
morgun.
og búninga gerði Sigríður Thorar-
ensen, nemandi við söngdeildina.
Leikmynd var fengin að láni hjá
Leikfélagi Hafnarfjarðar.
Flutningurinn tekur tæpa klukku-
stund. Verð aðgöngumiða verður
krónur 300 og verða þeir seldir við
innganginn.
Sýningar verða laugardaginn 17.
og sunnudaginn 18. apríl klukkan
14, þriðjudaginn 20. apríl klukkan
18 og iaugardaginn 24. apríl klukk-
an 14.
Söngtónleikar
__________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Anna Sigríður Helgadóttir hélt
sína fyrstu tónleika með aðstoð Ólafs
Vignis Albertssonar, pianóleikara, í
Gerðubergi sl. þriðjudag, en hún
hefur nýlokið framhaldsnámi erlend-
is. Á efnisskránni yoru lög eftir Jór-
unni Viðar, Jón Ásgeirsson, Victor
Urbancic, Hjálmar H. Ragnarsson,
Karl O. Runólfsson, Brahms, Britten,
Gluck, Saint-Saéns og Verdi.
Anna Sigríður hefur hljómdjúpa
og fallega mezzosópran rödd en
henni hættir til að beita henni oft á
nokkuð breytiiegan máta sem vitnar
aðeins um að raddlega er hún enn
leitandi.
íslensku lögin báru þess nokkur
merki en bestu lögin voru, Mun það
senn, eftir Urbancic, þar sem dökki
litur raddarinnar naut sín einkar vel
og í Síðasta dansinum, eftir Karl O.
Runólfsson.
Margt var fallega gert í fimm lög-
um eftir Brahms,
þó nokkuð vantaði
á að túlkunin væri
sannfærandi. Af
fímm lögum eftir
Britten voru tvö
þau síðustu best
fluttu lögin, bæði
það leikræna í A
Charm og raddlega
í því bráðfallega lagi, Thé Nurse’s
Song, er Anna Sigríður söng frábær-
lega vel.
Aría Orefusar eftir Gluck var að
mörgu leyti vel sungin en það var í
aríu Dalílu, eftir Saint Saéns og í
Stride la vampa, eftir Verdi, þar sem
falleg^ rödd Ónnu Sigríðar naut sín
best. í heild voru tónleikamir gæddir
þokka, enda naut hún góðrar aðstoð-
ar Ólafs Vignis. Anna Sigríður getur
enn bætt um betur og hefur hún allt
til að bera að geta orðið mjög góð
söngkona, glæsilega og tónfagra
rödd, sem hún á aðeins eftir aga í
átökum við verðug viðfangsefni.
um tíma, um ítök jcvenna i Eddu-
kvæðum og síðar íslendingasögum
og um afleiðingar kristnitöku, skrift-
ar og skóla fyrir konur. Það er Helga
Kress sem skrifar um þetta. Aðrir
meginkaflar í fyrsta bindinu heita
„Hið heilaga hlutverk", „Feminae ill-
ustres“ og „í eigin nafni“. Bindinu
lýkur svo eins og það hefst á munn-
legri hefð hér vestur frá, í þetta sinn
með grænlenskum bókmenntum þar
sem hinn skrifaði skáldskapur tók
við af hinum munnlega svo seint sem
á þessari öld.
Innan hvers meginkafla skiptast á
kaflar um bókmenntir kvenna frá
Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finn-
landi. Efnið er þannig skrifað og
hugsað saman í vinnslu bókarinnar.
Þegar lesið er um verk þessara
kvenna, sem eru oft gerólíkar og
virðast fátt eiga sameiginlegt, koma
engu að síður í ljós þræðir í vefnum,
það verða til mynstur, hljómurinn
af lágværu samtali.
Úr föðurhúsunum — en hvert?
Annað bindi norrænu kvennabók-
menntasögunnar heitir „Föðurhús"
og fjallar um 19. öldina. í kvennabók-
menntum þess tímabils á Norður-
löndum má sjá mikla spennu á milli
þeirra frelsisdrauma sem fóru í kjöl-
far borgarabyltinganna í Evrópu og
þess ófrelsis sem konur nutu í raun.
Spennan birtist oft í textunum í formi
táknrænna lýsinga og dæmisagna.
í þriðja bindinu sem heitir „Heim-
urinn stóri“ og spannar fyrri hluta
20. aldar fram til 1950 hafa konur
fengið borgaraleg réttindi og „frelsi"
til að ráða sjálfar yfír lífi sínu. Þær
dreymir um heilt líf, um að sameina
móðurhlutverk og vinnu, um nýtt og
betra samfélag. 1 fjórða bindinu sem
heitir „Á jörðinni" og fjallar um tíma-
bilið frá 1950 til okkar daga sjáum
við hins vegar hvernig trúin á hug-
myndakerfin brestur, draumarnir um
hinar einföldu lausnir verða efni
sápuóperunnar og afþreyingarbók-
anna, leiðir lokast í listinni og nýjar
leiðir opnast. Fimmta og síðasta
bindið heitir „Líf og verk“ en þar
verður höfundatal yfir allar þær kon-
ur sem nefndar eru í bókmenntasög-
unni og helstu verk þeirra.
Stórvirki
Norræna kvennabókmenntasagan
er stórvirki sem hefur að mestu leyti
verið fjármagnað af Norðurlanda-
ráði. Verkið verður gefið út samtím-
is í Danmörku og Svíþjóð en Norð-
menn og Finnar hafa haldið að sér
höndum vegna þess að á síðustu tíu
árum hafa komið út sérstakar norsk-
ar og /innskar kvennabókmennta-
sögur. Á íslandi eru forlögin að öllum
líkindum að keppast um útgáfurétt
að þessu mikta verki.
Prófessor Helga Kress var íslensk-
ur ritstjóri fyrsta bindisins en undir-
rituð er ritstjóri íslenska efnisins í
síðari bindunum. Auk okkar hafa
eftirfarandi bókmenntafræðingar
skrifað: Guðrún Bjartmarsdóttir,
Ragnhildur Richter og Soffía Auður
Birgisdóttir.
ÓDÝRIfí
notadirbfíar
á verðinu
50-500
þúsund.
LÁN íALLT AÐ 36 MÁNUÐI
ALLIR SKOÐAÐIRAFBIFREIÐASKOÐUN
o © ©
Ford Sierra CL 5 dyra, 4 gíra Árgerð1983 Ekinn: 125.000 km Verð: 130.000 kr. Saab 900 4dyra,5gíra Árgerð 1983 Ekinn: 72.000 kni Verð: 350.000 kr. Volvo360GL 4 dyra,5 gíra Árgerð1986 Ekinn: 90.000 km Verð: 400.000 kr.
o © ©
Toyota TercelDX 5 dyra, 5 gíra Árgerð 1983 Ðdnn: 125.000 km Veið: 185.000 kr. Lada 1500station 5 dyra,5 gíra Árgeið1991 Ekinn: 22.000 km Verð: 375.000 kr. MMCLancerGLX 4 dyra, 4 gíra Árgerö 1986 Ekinn: 109.000 km Veið: 250.000 kr.
o o ©
CitroenAX 3dyra,5gíra Árgeið 1988 Ekinn: 47.000 km Veið: 300.000 kr. Nissan Micra 3 dyra, 5 gíra Árgerð 1988 Bdnn: 48.000 km Verð: 360.000 kr. Toyota Corolla 3 dyra, 4 gíra Árgerð 1988 Ekinn:81.000km Verð: 470.000 kr.
© © ©
Daihatsu Charade Cx 5dyra,4gíra Árgerö 1986 Ðdnn: 106.000 km Veið: 260.000 kr. SubaruJusty 5 dyra, 5 gira Áigeið 1987 Ekinn: 50.000 km Verð: 320.000 kr. Volvo 340 GL Hurðir og gírar 5 dyra, 5 gíra Árgerö1987 Bdnn: 54.000 km Veið: 490.000 kr.
FAXAFENI 8 • SÍMI 91- 685870