Morgunblaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 33
I I I I I 1 ( ( ( i ( MOKGUNBLAÐID FÖSTUÍ)AtiUK 16. AI’KÍL 1293 33 Fundað um vanda Hitaveitu Akraness og Borgarfj arðar Of dýrt vatn er vandamálið Hvannatúni í Andakíl. NÝLEGA komu fulltrúar eignaraðila Hitaveitu Akraness og Borg- arfjarðar saman og ræddu stöðu hitaveitunnar, vanda hennar og fjárhagsstöðu. Mættir voru um 30 fulltrúar. Tilefni fundarins var bág fjárhagsstaða HAB og gagnrýni þorra notenda veitunnar. Smábátahöfnin í Stykkishólmi. Morgunblaðið/Ámi Heigason Vorannir í Hólminum Stykkishólmi. SMÁBATARNIR eru til taks. Það er verið að búa þá til grásleppu- vertíðar, en eins og menn vita eru grásleppuhrognin mikils virði. Þau eru unnin í dýra matvöru til útflutnings. Hér er verksmiðjan Nora sem nýtir þau og kemur þeim í glæsilegar umbúðir. Ingólfur Hrólfsson, fram- kvæmdastjóri HAB, gerði á fundinum grein fyrir reynslunni af breytingunni yfir í rennslis- mæla, sem hafa verið mikið umtal- aðir að undanförnu. I stuttu máli má segja að tekjur HAB hafi ver- ið ívið hærri en ráð var fyrir gert, enda orkureikningar verið allt of háir að allra áliti. Rekstrarkostn- aður veitunnar hefur í raun lækk- að undanfarin ár og rekstraraf- koma batnað en þó ekki nóg til að stjómin treysti sér til að lækka taxta. Tekjur eru upp í vaxta- greiðslur skulda, sem nú eru um 105 millj. á ári en ekki hefur ver- ið unnt að afskrifa eignir veitunn- ar eins og eðlilegt getur talist. Fjárhagsstaða HAB er sem fyrr nánast vonlaus, að sögn Ingólfs. Sveinn Hallgrímsson, stjómar- Gengið var frá skipun starfs- hópsins þann 10. mars sl. og fyrsti fundur var haldinn þann 5. apríl. Eftirtaldir aðilar skipa hópinn: Egill Guðlaugsson, Egilsstöðum, tilnefndur af Alþýðuflokki, Hjör- leifur Guttormsson, Neskaupstað, tilnefndur af Alþýðubandalagi, Karen Erla Erlingsdóttir, Seyðis- fírði, tilnefnd af Framsóknar- formaður HAB, lýsti áformum HAB til að hækka hitastig vatns- ins, aðallega á Akranesi, og leiðum til að ná til allra kyndikerfa í hús- um á Akranesi. Stjórn HAB ákvað fyrr í vetur, að keyptur yrði búnað- ur til sískráningar á rennsli, vatns- hita og útihita á Akranesi, í Borg- arnesi og á Hvanneyri. Þessar mælingar verði notaðar til aukinn- ar hitastigsleiðréttingar, ef vatns- hiti við mörk byggðar fer niður fyrir viðmiðunarmörk. Reglur verði ákveðnar síðar með hliðsjón af reynslu af mælingum, eins og segir í samþykkt stjórnar. Orkubú Borgarfjarðar Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í Borgarnesi, fjallaði um undirbún- ing að stofnun Orkubús Borgar- fjarðar. Nefnd var falið 1987 að flokki, Tómas Ingi Olrich, Akur- eyri, tilnefndur af Sjálfstsæðis- flokki og Þóranna Pálsdóttir, Reykjavík, tilnefnd af Samtökum um kvennalista. Formaður starfs- hópsins er Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri og ritari hópsins Guðlaugur Gauti Jónsson, arki- tekt. (Fréttatilkynning) kanna möguleika á að stofna Orkubú Borgarfjarðar. Er það í tengslum við kröfu iðnaðarráðu- neytisins um að taka á sig hluta af lánayfirtöku ríkisins árið 1987 að upphæð 350 millj. kr. og var það skilyrði sett, að yfirtaka þessa hluta færi fram fyrir árslok 1993. Að umræðunum um Orkubú standa eignaraðilar HAB og iðnað- arráðuneytið. Þar hefur m.a. verið talað um yfirtöku Andakílsárvirkj- unar, sveitarfélögin þijú eiga um 60% hlut í henni, aðrir hreppar í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu eiga um 40% virkjunarinnar, en einmitt það torveldar þann möguleika. Fram kom á fundinum, að HAB gengur nú lengra til jöfnunar á hitaveitukostnaði, en aðrar veitur bjóða upp á, en á móti kemur að hitastig vatnsins er afar misjafnt, aðallega á Hvanneyri og á Akra- nesi, en þar fer það mikið eftir hverfum og einstökum húsum, sem stafar að hluta af því að ekki eru öll hús tengd veitunni. Þó hef- ur könnun á kyndingarkostnaði, eftir því hvað mikill afsláttur er veittur, leitt í ljós að þar sem af- slátturinn er mestur er kostnaður ívið lægri. Of miklar skuldir Vandamál veitunnar er of dýrt vatn, sagði Sveinn Hallgrímsson við fréttaritara. Til að ráða bót á vandamálum HAB þarf í fyrsta lagi að losna við alltof miklar skuldir, í öðru lagi þarf að ganga úr skugga um, á hvern hátt er hægt að tengjast rafmagnsveitum héraðsins og kanna hvort heima- menn geti komið inn í það dæmi, t.d. með hagræðingu orkuveita í héraði og að síðustu þarf iðnaðar- og félagsmálaráðuneytið að koma meira inn í þetta dæmi, að mati heimamanna. Stjórn HAB heldur þessar vik- urnar kynningarfundi með íbúum á orkuveitusvæðinu. - D.J. Þá er hitt að margir bátarnir stunda eyjabúskap þegar varpið byijar. Þá er tíminn til að flytja eigendur út í eyjar til að nytja verð- mætin þar. Dúnninn er að vísu ekki hátt skrifaður í dag, en menn lifa alltaf í voninni um að úr rætist og alltaf er dúnninn tekinn og eigend- ur hans nota hann þá fyrir sjálfa sig, fjölskyldu og vini í sængur því dúnsængur eru mjög eftirsóttar. - Árni. Slökkviliðsmenn kynna sér búnað slökkviliðsins á Keflavíkurflug- velli til að fást við hættuleg efni undir leiðsögn Stefáns Eiríkssonar aðstoðar slökkviliðsstjóra. Meðferð hættulegra efna Slökkviliðsmenn í heim- Ráðgjafarnefnd um Fljótsdalslínu í kjölfar afgreiðslu Skipulagsstjórnar ríkisins í lok síðasta árs ákvað umhverfisráðherra að skipa starfshóp með fulltrúum allra þingflokka, til að vera sér til ráðgjafar um valkosti að Jjví er varðar raflínuleið milli Austurlands og annarra landshluta. I þessu felst m.a. það álit umhverfisráðherra að mikilvægt sé að finna lausn sem tekur tillit til umhverfisþátta og réttmætra hagkvæmn- issjónarmiða í samstarfi við heimaaðila. Síðbúinn nafnalisti ferm ingarbama á Akureyri Eftirtalin börn voru fermd sl. pálmasunnudag í Akureyrar- kirkju. Listinn barst of seint til að hægt væri að birta hann á fermingardaginn: Anna Þorbjörg Jónasdóttir, Austurbyggð 6. Anton Ingi Þórarinsson. Heiðarlundi 4h. Arnar Þór Jóhannesson, Furulundi 4b. Ásta Hrönn Hersteinsdóttir, Reynivöllum 4. Bernharð Arnarson, Skarðshlíð 33c. Brynja Dögg Hermannsdóttir, Furulundi lle. Börkur Árnason, Háalundi 8. Eygló Jóhannesdóttir, Fjólugötu 12. Friðný Rut Haraldsdóttir, Ásabyggð 8. Gunnlaugur Búi Ólafsson, Laugargötu 3. Hafþór Einarsson, Tjarnarlundi 8j. Halla Hafbergsdóttir, Heiðarlundi 3d. Halla Hrund Skúladóttir, Barðstúni 7. Haraldur Már Pétursson, Dalsgerði lc. Haraldur Óli Haraldsson, Hrísalundi 6g. Hákon Örn Atlason, Hlíðargötu 3. Helga María Hermannsdóttir, Grundargerði 4d. Helgi Baldursson, Grenilundi 19. Hrafnhildur Arnardóttir, Hrísalundi 6a. Hrólfur Jón Flosason, Hrafnabjörgum 5. Ingvar Rafn Guðmundsson, Vanabyggð 1. Jósef Þeyr Sigmundsson, Hrafnagilsstræti 4. Kristbjörg Anna Hauksdóttir, Sólvöllum 11. Kristinn Snær Harrýsson, Grænumýri 3. Kristján Bergmann Tómasson, Vallargerði 4c. Njáll Ómar Pálsson, Hjallalundi 17g. Óðinn Ásgeirsson, Hjallalundi 7a. Ómar Halldórsson, Álfabyggð 24. Sigurður Áki Sigurðsson, Grenigrund 7. Siguijón Jónasson, Dalsgerði 6c. Sverrir Már Jónsson, Furulundi 2g. Valdimar Geir Valdimarsson, Grænumýri 13. Viðar Júlíusson, Lerkilundi 7. Viðar Valgeirsson, Engimýri 10. Aðalheiður Hannesdóttir, Hjarðarlundi 7. Alma Lára Hólmsteinsdóttir, Hafnarstræti 7. Andri Geir Viðarsson, Furulundi 6i. Árni Viðar Björgvinsson, Hjallalundi 18. Dagbjörg Agnarsdóttir, Hjallalundi 20. Dagný Gunnarsdóttir, Kringlumýri 3. Guðmundur Freyr Aðalsteinsson, Lækjargötu 6. Halldór Ingi Kárason, Akurgerði 5f. Haukur Snær Baldursson, Munkaþverárstræti 38. Inga Jenný Ingvadóttir, Höfðahlíð 1. Jón Rafn Ragnarsson, Þingvallastræti 32. Kári Jónsson, Dalsgerði 4d. Kjartan Sigtryggsson, Eikarlundi 17. Kristbjörg Eva Halldórsdóttir, Eyrarlandsvegi 29. Kristbjörn Elmar Birgisson, Heiðarlundi 5e. Kristín Þóra Haraldsdóttir, Eikarlundi 22. Ómar Sveinsson, Álfabyggð 6. Pétur Sigurðsson, Hrafnabjörgum 6. Sigríður Ragna Gylfadóttir, Grundargerði le. Sigrún María Hallsdóttir, Grundargötu 3. Snorri Benediktsson, Hafnarstræti 18b. Sólveig Smáradóttir, Hafnarstræti 25. Svana Karlsdóttir, Þórunnarstræti 118. Tryggvi Hallgrímsson, Aðalstræti 52. Valdís Guðbjörg Jónsdóttir, Gilsbakkavegi 11. sókn á Keflavíkurflugvelli Keflavík. NÝLEGA gekkst Brunamálastofnun ríkisins fyrir námstefnu um hættuleg efni og voru þátttakendur um 40 slökkviliðsmenn viðs vegar af landinu. Meðal verkefna á námstefnunni var að heim- sækja slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli sem hefur sérhæft sig í búnaði og tækjum til að fást við hættuleg efni. Að sögn Guðmund- ar Haraldssonar deildarstjóra fræðslu- og þjálfunardeildar Bruna- málastofnunar er þetta fyrsta námstefnan sem haldin er hér á landi um þennan flokk. Að sögn Stefáns Eiríkssonar að- stoðar slökkviliðsstjóra, sem hefur umsjón með þessum þætti hjá slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli, eru nú talið að um 8 milljón tegund- ir séu til í heiminum í dag af hættu- legum efnum og efnasamböndum en þar af væru um 400 þúsund í al- mennri notkun. Stefán sagði að mörg af þessum efnum væru stórhættuleg og því nauðsynlegt að menn væru í stakk búnir og hefðu kunnáttu til að hefta, einangra og fjarlægja hættuleg efni. _gg FERMINGARSKEYTI SKÁTA í fjölda ára hafa skátafélög vfða um land selt ferm- ingarskeyti til styrktar æskulýðsstarfinu. Landsmenn, sendið fermingarbörnum heilla- óskakveðju f tilefni fermingardagsins og styrkið verðugt málefni í leiðinni. Skátafélögin taka við skeytapöntunum á ferming- ardaginn á eftirtöldum stöðum: Sauðárkrókur: Skf. Eilífsbúar, Gulló og Gagnfrsk., s. 95-36103 Akureyri: Skf. Klakkur, Hvammi & Garðakirkju, s. 96-12266 Neskaupstaður: Skf. Nesbúar, Sæbakka 28, s. 97-71458 Höfn: Skf. Frumbyggjar, Hlíðartúni 23, s. 97-81285/81142 Vestm.eyjar: Skf. Faxi, Skátaheimilinu, Faxastíg, s. 98-12915

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.