Morgunblaðið - 16.04.1993, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993
45
HEILRÆÐI
ERU LYF OG ONNUR HÆTTULEG EFNI
í LÆSTUM SKÁP Á ÞÍNU HEMJLI?
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Ekkí er öll vitleysa
eins - eða lítil saga
af þjónustu við fólk
Frá ísleifi Friðrikssyni:
Um daginn sagði vinur minn við
mig: — Á ég að segja þér frá því,
þegar ég fór á haugana (Gámastöð
Sorpu) nýlega? Þetta byijaði þannig
að ég hafði verið að taka til í garðin-
um hjá okkur og flokkað sorpið í
þijá poka og eina spýtu- eins og
vera bar. Jæja, þar sem ág á engan
bíl, og er ekki áskrifandi að blöðum,
setti ég allt draslið í hjólbörurnar
og fletti upp í símaskrá, þar stend-
ur hvenær opið er á gámastöðvum.
— Aha, þeir opna eftir klukkutíma!
Ég sturta í mig kaffinu, fer út í
garð og legg af stað úr Skeijafirði
í Ánanaust með hjólbörurnar á und-
an mér sem leið liggur í góða veðr-
inu, og eftir 45 mínútur stend ég
við lokað hlið Sorpu. Óskiljanlegt!
Stóð ekki, að opið væri frá 10 -
22? Jú, en hvað stendur hér á
veggnum, ha? Það er opið á Sævar-
höfða. Það er nú svo gott veður,
og heilir 3 tímar þangað til opnað
verður hér, svo ég ákveð að ganga
uppeftir með ruslið. Labbi-labbi-
labb, mikið asskoti eru þær þungar
upp Ártúnsbrekkuna, þessar hjól-
börur! „Bíb- bíb,“ bíll stoppar og
út stekkur hann Þorvaldur sendi-
bílsstjóri. „Hvert ert þú að fara með
hjólbörumar, Ingó?“ „Jú, sjáðu til,
ég er að henda rusli,“ og svo segi
ég honum ferðasöguna. „Ég er á
leið upp í Sorpu með drasl, viltu
ekki koma með?“ Jú, úpps, upp í
bílinn með börurnar. Svo komum
VELVAKANDI
KANNAST
EINHVER VIÐ
SEINNIPARTINN?
VIÐ heyrðum þennan fýrripart
hjá Flóamanni um daginn, sem
mundi ekki seinni partinn. Þetta
mun vera eftir dr. Svein Berg-
sveinsson. Eru einhveijir lesend-
ur sem kunna seinni partinn og
gætu látið okkur vita?
Hvað er líkt með korktrekkjara
og kjörnum manni á þing?
Að ...
Gunnlaug og Stefán
GÆLUDÝR
Lítil svört læða
LÍTIL svört læða er í vanskilum
í Hamrahlíð 29. Sá sem á læð-
una má hafa samband í síma
32821.
Týndur hvolpur
SVARTUR og hvítur border-
collie-hvolpur, þriggja mánaða,
tapaðist frá Seljahverfi sl.
þriðjudagskvöld. Gegnir nafninu
Týri. Upplýsingar í síma 79556
eða 670992.
Týndur páfagaukur
GRÁR dísarpáfagaukur með
hvítu í vængjum, gulu í stéli,
rauða vanga og kamb tapaðist
frá Reyðarkvísl 1 sl. þriðjudag.
Finnandi vinsamlega hafi sam-
band í síma 673220.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Týnt hjól
BLÁTT lítið reiðhjól með gulum
púðum á stýri og stöng og með
hjálpardekkjum hvarf úr hjóla-
geymslu í Veghúsum 31 á föstu-
daginn langa eða laugardaginn.
Upplýsingar í síma 683594.
Týndir gönguskór
GÓNGUSKÓR, bláir og grænir
af gerðinni Dimon, hurfu úr
stigagangi við Leirubakka að-
faranótt föstudagsins langa.
Foreldrar á nærliggjandi heimil-
um eru beðnir að athuga hvort
bæst hafi við skóeign fjöskyld-
unnar og hafa samband í síma
76923 eða símboða 984-53333.
Fundarlaun.
við uppeftir og þarna standa 10
bílar og bíða eftir því.að komast
inn, en svo virðist sem bara komi
bílar út. „Hvað er að gerast,Valdi,“
spyr ég. Jú, sjáðu til, hér á að vigta
alla bíla sem koma og fara, en það
er bara ein vog, svo vegna þess,
að þá langar ekkert í sorp, hafa
þeir tekið upp á því að vera ekkert
að flýta fyrir. Þess vegna láta þeir
okkur bíða en reyna svo að losna
við þá, sem inni eru, — Það mætti
svo sem auðvelda þetta með því að
fá aðra vog, þá gætu bílar komið
inn á eina og út af annari", segi
ég um leið og við keyrum inn á
vogina og Valdi, sjötugur maðurinn,
stekkur út sem unglamb væri og
prílar upp á vegrið til þess að renna
spjaldi gegnum vél í þriggja metra
hæð. Ó-ó, þarna var hann nærri
dottinn! „Maður er bara í stórhættu
við að vigta þetta árans drasl“, seg-
ir hann og hlær, þegar hann sest
inn í bílinn aftur og ekur af stað
inn í þessa svakalegu skemmu. Þar
nemum við staðar við skilti, sem
segir okkur að bíða eftir aðstoð.
Seint og um síðir kemur maður, sem
segir okkur að henda draslinu
„þarna í gryfjuna", og svo sest
hann aftur inn í athvarfið sitt.
Valdi bakkar að gryfjunni og við
tökum hjólbörurnar út, en með
reynsluna frá gámastöðinni á baki
ákveð ég að tala nánar við eftirlits-
mann út af mínu flokkaða rusli, og
segi honum að ég sé með gúmmí-
slöngu, plastbrúsa og fleira sem
ekki eyðist af sjálfu sér.
„Allt í lagi“, segir hann, „ég sagði
þér að henda þessu öllu í gryfj-
una.“ O.K. í gryfjuna með allt horn-
grýtis draslið. „Heyrðu, þú þarna
með hjólbörumar, hvað heldur þú
að þú sért að gera! Það má ekki
henda timbri hér, það á að fara í
kvörnina þarna úti í enda,“ segir
maður i bláum galla merktum
Sorpu og bendir þangað. „En hvað
þá með greinarnar og hitt ruslið,"
spyr ég. „Það er í lagi, en spýtan
á að fara í kvörnina," segir maður-
inn og sendir mig ofan í gryfjuna
til að ná í Ijölina. Svo eltir hann
mig að kvörninni, sennilega til að
ég láti ekki freistast til að henda
henni á leiðinni.
Mikið var ég feginn, þegar Valdi
keyrði inn heima hjá mér!
— En til hvers er að flokka niður
sorp, ef því er svo bara blandað
saman aftur hjá Sorpu, “ spurði
Ingó mig að skilnaði.
Ja, ekkert veit ég
ísleifur Friðriksson, skipa-
smiður
LEIÐRÉTTINGAR
Nöfn misrituðust
í GREIN um friðlýstan fólkvang á
Seltjamarnesi sem birtist í Bréfi til
blaðsins í gær misrituðust nöfn
tveggja aðila af þremur sem fyrir
greininni stóðu. Það voru nðfn
þeirra Önnu B. Jóhannesdóttur og
Sigurðar Kr. Árnasonar. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á mistök-
unum.
Pennavinir
Átján ára ítölsk stúlka kveðst
heilluð af íslandi en getur ekki
annarra áhugamála:
Giulianelli Teresa,
Borgo s. Croce nr. 3,
62010 Appignano (MC),
Italy.
Frá Ghana skrifar 25 ára stúlka
með áhuga á ferðalögum o.fl.:
Victoria Fandoh,
P.O. Box 390,
Cape Coast,
Ghana.
Sautján ára finnsk stúlka með
áhuga á dýrum, tónlist, dansi o.fl.:
Sari Pellikka,
Vasaratie 7,
Sf- 92930 PyhánUi,
Finland.
Pólskur 35 ára kennari með
margvísleg áhugamál vill eignast
íslenska pennavini:
Jarek Smogor,
Sikoorskiego 43 A,
64 700 Czarnkow,
Poland.
LOTTH
Aðaltölur:
9X11X13
T Gréta Boða, förðunarmeistari eða -:i:- Þórunn Jónsdóttir, förðunarfræðingur veita faglega ráðgjöf
um förðun og liti. V E R I Ð V E L K O M I N
Napp
sportveiði-vörulistinn 1993 frá
Abu Garcia er kominn!
^Abu
Garcia
Ferskar nýjungar og hafsjór
fróðleiks um allt sem að
sportveiði lýtur: hjól, stangir,
línur, spúna...
Tryggðu þér ókeypis eintak hjá
umboðsmönnum Abu Garcia
um land allt.
Lengdur OPNUNARTÍMI: Föstudaga kI. 9-19, laugardaga kl. 10- 16.
HAFNARSTRÆTI 5 • REYKJAVÍK • SÍMAR 91-16760 & 91-14800
T Hagkaup, Skeifunni - föstud. 16. april * Ársól, Grimsbæ - föstud. 30. april
T Hagkaup, Kringlunni - laugard. 17. apríl T Sigurboginn, Laugavegi 80 - föstud. 30. april
T Bjarg, Akranesi - miðvikud. 21. april frá kl. 15-18 virka daga og 13-16 laugardaga.
Vinn ngstölur ,-------
miðvikudaginn:ji4. aprfl 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
n6afe 2 (á ísl. 0) 10.527.000,-
Gfl 5 af 6 E9+bónus 2 396.725,-
R1 5 af 6 7 36.699,-
H 48f6 301 1.357,-
n 3 af 6 f-B+bónus 956 184,-
15j(19)(24
BÓNUSTÖLUR
@@(44)
Heildarupphæð þessa viku
22.688.704,-
áisi; 1.634.704,-
UPPLÝSINGAR, SÍMSVARl 91- 68 15 11
LUKKULlNA 99 10 00 ■ TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR