Morgunblaðið - 26.06.1993, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1993
Mæður á Fæðingar-
heimilinu fá gjafir
Nýlega var Fæðingarheimili
Reykjavíkur opnað aftur eftir nokk-
urt hlé. í tilefni þess og því að
Ungbamablaðið Bambi er komið
út ákváðu fyrirtækin Gamabúðin
Tinna og J.S. Helgason hf. að gefa
þeim konum sem fæddu börnin 25.
maí gjafir. Það voru hamingjusam-
ar mæður sem veittu viðtöku Ung-
bamablaðinu Bamba, gami í peysu
og Nivea-barnavörum. Þess má
geta að þennan dag fæddust 12
börn og var jöfn skipting milli kynj-
anna. Á myndinni má sjá Huga
Hreiðarsson, markaðsstjóra Garna-
búðarinnar Tinnu, og Ástu Hafþórs-
dóttur, sölumann frá J.S. Helgasyni
hf., afhenda Kolbrúnu Markúsdótt-
ur gjafirnar. Með á myndinni er
nýfædd dóttir hennar.
149 voru braut^
skráðir frá KHÍ
ALLS luku 149 kennarar og kennaraefni námi við Kennaraháskól-
ann í vor af fjórum námsbrautum. Hér á eftir fer listi þeirra.
Almennt kennaranám til
B.Ed.-gráðu
'~i' Alda Baldursdóttir, Alma Hlíð-
berg, Anna Guðrún Auðunsdóttir,
Anna Kristín Guðmundsdóttir,
Anna Lára Lárusdóttir, Anna Lísa
Sigurjónsdóttir, Anna Margrét Sig-
urðardóttir, Atli Georg Lýðsson,
Auður Pálsdóttir, Auður Sigurðar-
dóttir, Ágúst Már Jónsson, Ásdís
Lovísa Grétarsdóttir, Ásthildur Lov-
ísa Grétarsdóttir, Ásthildur Magn-
úsdóttir, Bergljót Böðvarsdóttir,
Bima Björnsdóttir, Birna Hugrún
Bjarnadóttir, Bjarný Sigmarsdóttir,
Björk Pálmadóttir, Björn Sigurðs-
son, Dagmar Þóra Sævarsdóttir,
Edda Guðmundsdóttir, Edda Guð-
rún S. Guðfinnsdóttir, Edda Huld
Sigurðardóttir, Elín Berglind Vikt-
' orsdóttir, Eiín Einarsdóttir, Elísabet
Ingunn Benediktsdóttir, Elísabet
Júlíusdóttir, Elísabet Pétursdóttir,
Ellen Klara Eyjólfsdóttir, Eyþór
Bjarki Sigurbjörnsson, Gróa Erla
Ragnvaldsdóttir, Guðbjörg Eiríks-
dóttir, Guðbjörg Grímsdóttir, Guð-
björg Ólafsdóttir, Guðlaug Stella
Brynjólfsdóttir, Guðrún Cortes,
Guðrún Dóra Marteinsdóttir, Guð-
rún Guðmundsdóttir, Gunnur Bald-
ursdóttir, Gyða Björk Jónsdóttir,
Hafdís Friðriksdóttir, Hafdís Garð-
arsdóttir, Hafdís Garðarsdóttir,
Halldóra Jenný Gísladóttir, Heiðrún
Óladóttir, Helga Harðardóttir,
Helga Ólafsdóttir, Helga Sigrún
, Harðardóttir, Herdís Snorradóttir,
Hjördís Kristinsdóttir, Hólmfríður
Björg Jónsdóttir, Hrefna Jónsdóttir,
Huld Aðalbjarnardóttir, Ingunn
Jónsdóttir, Jakob Frímann Þor-
s einsson, Jóhann Bjarnason, Jó-
hanna Lovísa Gísladóttir, Jóhanna
Sigurbjörg Vilbergsdóttir, Krist-
björg Gísladóttir, Kristín Bjarna-
dóttir, Kristín Einarsdóttir, Kristín
Helga Valdimarsdóttir, Kristín
Helgadóttir, Kristín Hildur Thorar-
ensen, Kristín Kristófersdóttir,
Kristín María Indriðadóttir, Kristín
jíverrisdóttir, Kristjana Ríkey
Magnúsdóttir, Kristján Freyr
Helgason, Laufey Gísladóttir, Lára
Gunndís Magnúsdóttir, Linda Björk
Bergsveinsdóttir, Margrét Snæ-
björnsdóttir, María Jóhanna
Hrafnsdóttir, María Jónsdóttir,
María Lea Guðjónsdóttir, Oddfríður
Kristín Traustadóttir, Ólafur Vest-
, œann Þóroddsson, Ragnheiður
‘Matthíasdóttir, Rannveig Hafberg,
Rannveig Lydía Benediktsdóttir,
Rósa Gunnarsdóttir, Rut Berg-
steinsdóttir, Rut Indriðadóttir, Ses-
selja Traustadóttir, Signý Ingadótt-
ir, Sigríður Gylfadóttir, Sigrún Að-
alsteinsdóttir, Sigrún Björk Cortes,
Sigrún Elín Svavarsdóttir, Sigrún
Erla Ólafsdóttir, Sigrún Guðmunds-
dóttir, Sigrún Jónína Baldursdóttir,
Sigurbjörg Ásdís Snjólfsdóttir, Sig-
urbjörg Björnsdóttir, Sigurbjörg
Róbertsdóttir, Sigurborg Hrönn
Sævaldsdóttir, Sigurður Halldór
Jesson, Sjöfn Katrín Aðalsteins-
dóttir, Sólný Ingibjörg Pálsdóttir,
Sólrún Höskuldsdóttir, Stefanía
Baldursdóttir, Steinunn Hulda The-
ódórsdóttir, Stella Hjaltadóttir,
Unnur Pálsdóttir, Vilborg Einars-
dóttir, Vilborg Sigurveig Halldórs-
dóttir, Þóra Björg Stefánsdóttir,
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, -
Ægir Rúnar Sigurbjörnsson, Ægir
Örn Sveinsson, Órn Alexandersson.
Viðbótarnám kennara
Albert Ríkharðsson, Ágústa
Oddsdóttir, Börkur Vígþórsson,
Dagný Guðmundsdóttir, Erna Matt-
híasdóttir, Heiðmar Jónsson, Herm-
ína Gunnþórsdóttir, Hildur Sigurð-
ardóttir, Móeiður Gunnlaugsdóttir,
Ólafur Elí Magnússon, Sigríður Ól-
afsdóttir.
BA-gráða í hússtjórnarfræðum
Anna Sigurðardóttir, Ásdís Guð-
mundsdóttir, Fríða Ásbjörnsdóttir,
Greta F. Kaldalóns, Helga Gunnars-
dóttir, Ingunn Valtýsdóttir, Jónína
Ólöf Emilsdóttir, Stefanía V. Stef--
ánsdóttir, Svanhiidur Gunnarsdótt-
ir.
Kennsluréttindanám fyrir
framhaldsskólakennara
Árni Sigurður Sigurðsson, Birgir
Bjarnason, Birgir Sörensen, Björn
Guðmundsson, Björn Jóhannsson,
Emil Gautur Emilsson, Guðlaug
Ragnarsdóttir, Guðni Kolbeinsson,
Guðrún Sigríður Sævarsdóttir,
Hrafnkell Marinósson, Ingvar Grét-
ar Ingvarsson, Jónína Margrét
Sævarsdóttir, Páll Hlöðversson,
Páll Indriði Pálsson, Pétur Ólafur
Hermannsson.
Kennsluréttindanám fyrir
grunnskólakennara
Sigurlaug Jónsdóttir.
Ný handbók Tryggingastofn-
unar um almennatryggingar
Ásta R. Jóhannesdóttir deildarstjóri afhendir Guðmundi Árna Stef-
ánssyni heilbrigðisráðherra hina nýju upplýsingahandbók Trygg-
ingastofnunar, með ósk um að hún komi honum að góðu gagni í
starfi hans sem ráðherra tryggingamála.
KOMIN er út upplýsingahandbók
Tryggingastofnunar rikisins. Til-
gangur hennar er að auðvelda
starfsmönnum Tryggingastofn-
unar og umboða hennar dagleg
störf. Einnig er hún ætluð starfs-
mönnum sjúkrahúsa, dvalarstofn-
ana, félagsmálastofnana og öðrum
sem ætla má að þurfi að veita al-
menningi upplýsingar um al-
mannatryggingar.
Handbókin skiptist í 7 kafla. Fyrsti
kaflinn er um Iífeyristryggingar,
annar um slysatryggingar, þriðji um
sjúkrahústryggingar, fjórði um al-
menn ákvæði almannatrygginga,
fimmti um samninga við erlend ríki,
sjötti inniheldur tölulegar upplýs-
ingar og sá sjöundi um aðra mála-
flokka sem tengjast Tryggingastofn-
un svo sem atvinnuleysistryggingar.
Bókina ber að nota samhliða al-
mannatryggingalögunum. Hver kafli
byggist á lögum, reglugerðum, sam-
þykktum og vinnureglum sem tengj-
ast hveijum málaflokki.
Bókin er gefin út á vegum félags-
mála- og upplýsingadeildar og er í
lausblaðaformi til að auðvelda að
halda henni ávallt réttri. Þegar lög-
um eða reglum er breytt eru viðeig-
andi breytingar sendar handbókar-
höfum á nýjum blaðsíðum, sem koma
í stað hinna eldri eða bætast við þær
sem fyrir eru. Nýjustu upplýsingar
ættu því alltaf að vera fyrir hendi í
bókinni.
Handbókin hefur ekki lagagildi og
er ekki tæmandi heimild um allt sem
lýtur að málefnum Tryggingastofn-
unar. Ef um vafaatriði er að ræða
ber að leita í tilvísanir í lok hvers
kafla og lesa sér til í frumgögnum.
Katrín A. Sverrisdóttir í upplýsinga-
deild hefur haft veg og vanda af
gerð bókarinnar í samráði við lög-
fræðinga og aðra starfseminn Trygg-
ingastofnunar. (Úr fréttatilkynningu)
Ráðstefna um heilsufar á norðurslóðum
Þjálfun er nauðsynleg til að
koma í veg fyrir ofkælingu
OFKÆLING getur verið mjög hættuleg fyrir þá sem vinna í köldu
umhverfi eins og oft er á Islandi á veturna. Þegar unnið er í kulda
er nauðsynlegt að tekin séu fleiri vinnuhlé en venjulega og að í þeim
komist menn í hlýtt skjól. Við veru út í kulda, t.d. upp á fjöllum, er
mikilvægt að forðast ofþornun en mikil hætta er á henni, þar sem
fólk verður ekki vart við þorsta undir slíkum kringumstæðum.
Ofangreindar fullyrðingar komu
fram á ráðstefnu um heilsufar á
norðurslóðum hjá Per-Ola Granberg,
yfirmanni skurðdeildar Karólínska
Háskólans í Svíþjóð, og A. M. Os-
orio, sem kynnti niðurstöður könnun-
ar yfirdeildar heilsugæslu í Kalifor-
níu um áhrif kulda á menn, sem vinna
í köldu veðri.
Áhrif kulda
Granberg hefur kannað áhrif
kulda á líkamsstarfsemi og sagði að
ef fólk þyrfti að haldast við úti í
kulda í einhvern tíma, t.d. ef það
kæmist ekki til byggða af ijöllum
og þyrfti að grafa sig í fönn, væri
líklega eina leiðin til að sjá hvort lík-
aminn væri farinn að kólna og þoma
upp að gæta að lit þvagsins frá sér.
Ef það væri ljóst væri allt í lagi en
ef það væri dökkt væri hætta á of-
þomun líkamans og þyrfti þá að
drekka mjög mikið af vatni.
Osorio sagði að norðarlega í Kali-
fomíu yrði oft mjög kalt. I samtali
við Morgunblaðið sagði hún að að-
stæður á íslandi gætu vel fallið und-
ir niðurstöður rannsóknanna, því
þótt ekki væri mikið frost hér þá
væri vindur oft svo mikill að kæling-
in yrði mikil.
Þjálfun starfsmanna
„Þjálfun starfsmanna mundi felast
í því hvernig ætti að nota hlífðarföt
og hvemig væri hægt að vinna vinn-
una á sem öruggastan hátt. Það verð-
ur að segja nýliðum frá því hver séu
fyrstu merki ofkælingar og kulda-
tengdra sjúkdóma svo þeir geti gert
viðvart um leið og þeir sjá einhver
einkenni,“ sagði Osorio. „Þetta er
ekki bara spurning um mikinn kulda,
heldur það að vera að vinna úti í
lengri tíma þegar veður er kalt,
blautt og vindasamt. Það, sem gerist
þegar maður kemst í snertingu við
kulda, er að fingurnir dofna og hæfi-
leikinn til að handleika hluti með
fingrunum minnkar. Smám saman
getur það færst út í hendumar eða
andlitið og maður byijar að vinna
hægar,“ sagði hún.
Hjá Guðmundi Eiríkssyni, um-
dæmisstjóra hjá Vinnueftirliti ríkis-
ins, fengust þær upplýsingar að eng-
in könnun hefði verið gerð á þessum
málum hérlendis en hin síðari ár
hefðu hins vegar góð hlífðarföt færst
í vöxt enda hefði verð þeirra lækkað
um leið og gæðin hefðu aukist. Inn
á borð til Vinnueftirlitsins hefðu ekki
komið nein dæmi um ofkælingu
starfsmanna en hann taldi þetta
verðugt rannsóknarverkefni.
EKKI gengur laxveiði betur
norðan heiða en sunnan, þannig
eru árnar í Húnavatnssýslunum
mjög daufar, eins og sjá má af
meðfylgjandi tölum.
Stórir í Víðidalsá...
„Það eru komnir 58 laxar á land,
þeir stærstu tveir 17 punda,“ sagði
Brynja Eyþórsdóttir í veiðihúsinu
að Tjarnarbrekku í gærdag. Stóru
laxarnir tveir veiddust í Steinafljóti
og af gömlu brú, en Brynja sagði
bara örfáa laxa vera undir 10 pund-
um enn sem komið væri. „Þeir
fengu sex í morgun, þþannig að
menn eru bjartsýnir á framhaldið,"
sagði Brynja og bætti við að ágætt
vatn væri í ánni þessa dagana.
„Vildi vera hressari...“
„Ég vildi gjarnan vera hressari,
hér eru allar aðstæður upp á það
besta, en það vantar bara laxinn
saman við,“ sagði Böðvar á Barði
í Miðfirði. 50 laxar voru komnir
úr ánni um miðjan dag í gær, yfir-
leitt vænir fiskar, en þó hefur að-
eins orðið vart smálaxa að und-
anförnu. „Það boðar í sjálfu sér
gott fyrir smálaxagöngur að sjá
smálax í júní, maður vonar það
besta,“ sagði Böðvar. Hann sagði
að þrátt fyrir allt væri dálítið af
fiski, en það sem væri komið í ána
tæki í ofanálag illa.
Lélegt í Vatnsdalnum...
Lítið hefur aflast í Vatnsdalsá,
aðeins 18 laxar voru komnir á land
á hádegi í gær, að sögn Bjargar
Erlingsdóttur í veiðihúsinu Flóð-
vangi. Stærsti laxinn veiddist í
gærmorgun, 18 punda. Björg sagði
menn sjá lítið af laxi og að áin
væri vart enn orðin skikkanleg.
Enn væri hún vatnsmikil og köld.
Hér og þar...
Fyrsti laxinn í Eystri Rangá
veiddist í gærmorgun, 8 punda
fiskur var dreginn á Bergsnefi.of-
arlega í ánni. Enginn lax veiddist
þar í júní í fyrra.
Nokkuð meiri afli hefur verið
tekinn úr Laxá í Kjós heldur fram
kom í Morgunblaðinu í gær, munar
þar nokkrum fiskum og skal rétt
vera rétt. Sagt var að tæplega 40
laxar væru komnir, en þar átti að
standa tæplega 60. Þegar tölur eru
ekki hærri, munar um minni
skekkjur.
Samningur....
Veiðiménn í Kjósinni hafa ugg-
laust tekið eftír því hversu rækilega
allir leiðsögumennimir eru merktir
bandaríska fyrirtækinu Orvis. Þeir
eru með nafnið á húfum, vestum
og vöðlum, auk þess sem þeir reifa
alla helstu kosti Orvistækja við við-
skiptavini sína. Rótin að þessu er
samningur sem Macom, Orvis á
íslandi, gerði við veiðifélagið
Lax-á, sem leigir Laxá. Orvis sér
leiðsögumönnunum fyrir tólum og
tækjum á sérstöku gæðaverði og á
móti kemur það sem reifað hefur
verið. Að auki er í gangi nokkurs
konar,, “heimsendingarþjónusta"
Orvis á veiðigræjum upp í Kjós.
Svona lagað er nýtt hér á landi,
en erlendis tíðkast þetta og þaðan
er fyrirmyndin.