Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B 154. tbl. 81. árg. Dagmamma má slá börn DÓMSTÓLL í Sutton á Englandi hefur gefið enskri dagmömmu leyfi til að beita barn sem hún er með í gæslu líkamlegri refsingu. Dagmamman sagði að með þessu legði dómurinn blessun sína yfir hagnýtar og raunsæjar aðferðir, frekar en að fylgja lærðum kenningum upp- eldisfræðinga. Dómarinn sagði að það hefði verið rangt af bæjarstjórn Sutton að taka Davis af skrá yfir dagmömmur af því hún skrifaði ekki undir skjal þar sem hún lofaði að beita ekki börn sem hún væri með í gæslu líkamlegri refs- ingu. Bæjarstjómin bar fyrir sig reglur heilbrigðisyfirvalda á Englandi þar sem dagmömmum og fóstrum er bannað að beita slíkum refsingum. Aðstoð eða ákæra BRESKUR maður á þrítugsaldri verður líklega kærður fyrir að aðstoða ekki lög- reglumann í neyð. Tildrög málsins vom þau að til handalög- mála kom milli lög- regluþjóns og inn- brotsþjófs, sem hann ætlaði að handtaka. Hrópaði lögreglu- maðurinn til vegfaranda, er tók að halla á hann í stympingunum, og bað um að- stoð. Því neitaði maðurinn og á hann nú á hættu að verða kærður á grundvelli foms lagaákvæðis. Hann getur ekki not- að þá málsvöra að aðstoð hans hefði dugað skammt þar sem í máli, sem rétt- að var í 1841, var það ekki tekin sem gild afsökun hjá manni sem þráaðist við að aðstoða nokkra verði laganna sem þurftu að beijast við 400-500 æsta óláta- belgi eftir hnefaleikakeppni. Einungis hefur verið sakfellt þrisvar á gmndvelli þessara laga undanfarin 150 ár. Svíar halda ekki „ríkinu“ SVÍAR verða líklega að afnema einka- sölu á áfengi ætli þeir að gerast aðilar að EB. Greinir Svenska Dagbladet frá því að framkvæmdasijórn EB neiti að taka tillit til krafna Svía um að fá undan- þágu í þessum efnum í aðildarviðræðun- um. Bendir framkvæmdastjórnin á Róm- arsáttmálann þar sem blátt bann er lagt við einokunarsölu ef það leiði til að sam- keppnisaðilum sé mismunað. Hún segir þau rök að með einokunarsölu sé verið að vernda heilsu almennings ekki mark- tæk þar sem ekkert bendi til að áfengis- einkasalan hafi dregið úr neyslu. STOFNAÐ 1913 SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Samkomulag um samstarf BILL Clinton Bandaríkjaforseti og Kiichi Miyazawa, forsætisráðherra Japans, takast í hendur á blaðamannafundi þar sem tilkynnt var um víðtækt rammasamkomulag ríkjanna um samstarf á sviði efnahagsmála. Bandaríkjamenn og Japanir gera rammasamkomulag um efnahagssamvinnu Markmíðið er að jafna viðskipti milli ríkjanna Tókýó. Reuter. BANDARIKJAMENN og Japanir gerðu á laugardag rammasamkomulag um samstarf í efnahagsmálum. Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Kiichi Miyazawa, forsætisráðherra Japans, kynntu samkomulagið á sameiginlegum blaðamannafundi í Tókýó og sögðu að í því fælist mikilvægt skref í þá átt að jafna vöruskiptajöfnuð milli ríkjanna. Við- skipti ríkjanna hafa til þessa verið Japönum mjög í hag og segja stjórnmálaskýrendur að hinu nýgerða samkomulagi sé fyrst og fremst beint að þeim. Á síðasta ári var vöruskiptajöfnuður Japana við Bandaríkin hagstæður um 118 milþ'arða dollara. Þó að Bandaríkjamenn eigi samkvæmt samkomulaginu að draga verulega úr fjár- lagahalla sínum og auka samkeppnishæfni sína er Japönum gert að draga mjög úr þeim mun sem er á viðskiptum þeirra við Bandarík- in, meðal annars með því að stórauka innflutn- ing á bandarískum vörum. Háttsettur japanskur embættismaður sagði að það væri mjög mikilvægt að sýna fram á að Japanir væru allir af vilja gerðir í þessum efnum. „Það hefur borið á þeirri skoðun að Japönum sé ekki alvara með því að vilja draga úr hagstæðum vöruskiptajöfnuði sínum,“ sagði embættismaðurinn. Annar japanskur embættismaður sagði að Miyazawa forsætis- ráðherra hefði sjálfur lagt mikla áherslu á það við samningamenn sína að samkomulag myndi nást áður en Clinton færi úr landi. Sú mikla ánægja sem ríkir meðal Japana með samkomulagið hefur verið skýrð með því að Clinton féll frá þeirri kröfu sinni að til- greind yrðu töluleg markmið, sem stefna ætti að. í hinu endanlega rammasamkomulagi er einungis að finna almenn markmið. Með samkomulaginu er stefnt að fjórum atriðum. í fyrsta lagi að bæta markaðsaðgang og auka sölu á innfluttum vörum og þjón- ustu, í öðru lagi að auka fjárfestingar, í þriðja lagi að bæta samkeppnishæfni og í þriðja lagi að styrkja efnahagssamvinnu ríkjanna tveggja. Japanir lofa að auka eftirspum á heimamarkaði sínum sem ætti að hafa í för með sér að japönsk fyrirtæki einbeiti sér frek- ar að honum en útflutningsmörkuðum. Clinton forseti hvatti menn hins vegar til að vera ekki of bjartsýna um framhaldið. Rammasamkomulag hefði verið gert en eftir ætti að semja um einstök atriði. Þær samn- ingaviðræður yrðu mjög erfiðar. „Við höfum þó í það minnsta náð samkomulagi um hveij- ar niðurstöður þessara samningaviðræðna eiga að verða,“ sagði Clinton. Hann sagði samstarf Japana og Bandaríkjamanna hafa verið með ágætum á pólitíska sviðinu og á sviði varnar- og öryggismála. Hins vegar hefðu ríkin deilt hart um viðskiptamál og yrðu að reyna að finna einhverja lausn á þeirri deilu. „Þetta samkomulag er góð byij- un,“ sagði Bandaríkjaforseti. Auóævi i 18 undirdiúpum BARIST FYRIR 16 BETRIHEIMI Líf &listir BLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.