Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 27
Minning MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993 27 Gróa Ásmundsdóttir frá Jörfa, Akranesi Fædd 15. september 1910 Dáin 27. júní 1993 Þegar mér barst fréttin um að amma væri látin kom margt fram í hugann. Aðeins var liðin vika síð- an við fórum upp í Borgarfiörð sam- an og heimsóttum fornar slóðir æsku hennar, meðal annars Syðstu- Fossá í Andakíl, en þar bjó bróðir hennar Guðjón sem nýlega er lát- inn. Mest var gleði ömmu er við hittum Ásgrím son minn, en hann var þar í sveit. Eftir kaffi og góðar veitingar héldum við í bæinn og ræddum um heima og geima. Ég hef sjaldan keyrt jafn hægt þessa leið því að við nutum þess að spjalla. Ég held við höfum bæði vitað að kveðjustundin væri ekki langt und- an og það læddist að mér að þetta myndi seinasta ferð ömmu í Borgar- fjörðinn sem var henni svo kær. Við kvöddumst síðan hinsta sinni er ég ók henni að heimili hennar í Fannborg í Kópavogi. Mér fannst hún vera léttstíg og ánægð. Það kom mér ekki á óvart að það leið ekki langt á milli þeirra afa og ömmu, en það eru nú eitt ár og níu mánuðir síðan hann lést. Þau voru einlægir vinir og sálufélagar, og aðskilnaðurinn var ömmu erfiður eftir rúmlega sextíu ára sambúð þó að hún bæri sig vel. Ég vissi þó að undir niðri saknaði hún hans sárt og átti erfítt með að lifa án hans. Hún var hans stoð og stytta og studdi hann með ráðum og dáð í flestu er hann tók sér fyrir hend- ur. Afí var þjóðkunnur maður (Baldvin Þ. Kristjánsson), athafna- maður, eldhugi og ræðumaður, og töluvert í sviðsljósinu á sínum tíma. Amma var hins vegar hlédræg og ekki mikið fyrir að láta á sér bera. En það veit ég að hvort sem það voru ræður eða greinar eða annað sem afi vann að, spurði hann hana ætíð álits, og breytti eftir hennar ábendingum ef þess þurfti. Amma hafði listræna hæfileika í ríkum mæli, bæði málaði hún myndir á yngri árum og eftir hana liggja all- mörg ljóð. Hún ræktaði hins vegar hvorugan hæfíleikann því að hún helgaði sig svo til algerlega fjöl- skyldunni, eiginmanni, börnum og bamabörnum. Amma heillaðist alla tíð af austrænni speki, það vissu fáir. Sérstaklega heimspeki hinna indversku yoga. Hún trúði staðfast- lega á endurholdgun, lögmál orsaka og afleiðinga (karma) og ódauðleika sálarinnar. Hún trúði staðfastlega að lífíð væri einskonar skóli til að ná þroska. Hún leit svo á að dauð- inn væri einungis formbreyting, einskonar fæðing til annars lífs, áfangi á leið sálarinnar til guðdóms- ins. Amma hafði gaman af að ræða þessi mál og ræddum við oft um fHtggtm* í Kaupmannahöfn FÆST í BLADASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUQVELLI OQÁRÁOHÚSTORGI þessa hluti á síðkvöldum, enda höfð- um við mjög svipaðar skoðanir á þessu sviði. Snemma í vor er við ræddum saman um dauðann sagði hún: „Það er best þú skrifír um mig þegar ég er dauð,“ og hló við. Það var mér Ijúft að verða við þessu. Vildi hún að viðhorf sín til andlegra mála kæmu þar fram. Það er því að hennar ósk að ég skrifa þessi orð. Amma var nokkuð seintekin og gaf ekki vináttu sína hveijum sem var, en fáum sem kynntust henni duldist að þar fór einstök kona sakir kærleika, festu, vilja- styrks og hugrekkis. Mér finnst viðeigandi að birta hér ljóð eftir ömmu sem heitir Draumalandið. Hve gott að eiga innst í hjarta ofurlítinn reit þar sem enginn óvelkominn auga sínu leit, indælt, lítið, ððrum hulið ævintýraland þar sem engu óskaskipi örlög veita grand. Já, þar er gott að geyma mega gleði þess sem var, leita þangað lífs frá striði, lifa - og elska þar. Ég sendi afa og ömmu ástar- kveðjur í ríki ljóssins. Enginn á þeim jafn mikið að þakka og ég. Om shanti, shanti, shanti. Ásmundur Gunnlaugsson. t Móðir okkar, ÞORBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, varð bráðkvödd erlendis að morgni 9. júlí. Jóna, Einar Már og Erla. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANNES ÖRN ÓSKARSSON forstöðumaður, Vfðimel 35, Reykjavfk, lést í Borgarspítalanum 9. júlí. Ólöf Erla Kristinsdóttir, Laufey Erla Jóhannesdóttir, Hannes Sigurðsson, Arndís Birna Jóhannesdóttir, Kristinn örn Jóhannesson, Brynhiidur Ólafsdóttir, Þórhiidur Ýr Jóhannesdóttir, Einar Örn Hannesson. t Sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, LOFTUR BALDVINSSON, Heiðargerði 1 b, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. júlí kl. 13.30. Kristjana J. Richter, Baldvin Loftsson, Guðrún Asta Franks, Helgi Loftsson, Guðný Þorvaldsdóttir, Finnur Loftsson, Harpa Svavarsdóttir, Ólöf Loftsdóttir, Vilhjálmur Kr. Garðarsson og barnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faöir okk- ar, tengdafaðir og afi, SVEINBJÖRN HAFSTEINN PÁLSSON vélsmfðameistari, lést 5. júlí sl. á heimili sínu, Jökulgrunni 22, áður Langholtsvegi 144, Reykjavík. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mið- vikudaginn 14. júlí kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Heimastoð krabbameinslækningadeildar Landspítalans. Guðrún Guðmundsdóttir, Guðlaug St. Sveinbjörnsdóttir, Þórður Kristjánsson, G. Erla Sveinbjörnsdóttir, Gérerd Vautey, Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson, fris Björnæs Þór, Erla, Örvar Hafsteinn, Marít Guðríður, Nfls Sveinbjörn, Sólveig Guðríður og Tómas Þór. + Faðir okkar, ÁGÚST JÓHANNESSON, er lést á Hrafnistu 28. júní, verður jarðsunginn frá Garðakirkju mánudaginn 12. júlí kl. 13.30. Aðalbjörg Ágústsdóttir, Sigurlín Agústsdóttir, Kristján Ágústsson, Bjarni Ágústsson. ■ Útför móöur okkar, t ÖNNU S. ÁRNADÓTTUR WAGLE, verður gerð frá Dómkirkjunni kl. 13.30. Reykjavík mánudaginn 12. þ.m. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Hrafnistu í Hafnar- firði (sími 653000). Herdfs Hinriksdóttir, Elísabet Hinriksdóttir. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BENEDICTU K. GUNNARSSON frá ísafirði. Katharína Ú. Ranson, Birgir Úlfsson, Brynja Jörundsdóttir Gunnar Martin Úlfsson, Kolbrún Svavarsdóttir, Kristfn Úlfsdóttir, Egill Rögnvaldsson, barnaböm og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug viö andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks vistheimilisins Seljahlíðar. Lillý Ása Kjartansdóttir, Ásdís Mountz, James Mountz, Ingibjörg Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, JÓNUJÓNSDÓTTUR, áðurtil heimilis á Skúlagötu 60, Reykjavík. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki deildar 3 A á Hrafnistu, Reykjavík. Sæmundur Sigursteinsson. + Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengamóður, dóttur og systur, ERLU BJARGAR ARADÓTTUR, Kleifarseli 3, Reykjavfk. Pétur Jónsson, Pétur Pétursson, Guðrún Pétursdóttir, Haraldur Óskar Haraldsson, Bjarghildur Sigurðardóttir og systkini. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts vinar míns, bróður okkar og mágs, RUNÓLFS STEFNIS STEFNISSONAR. Dr. E. Gerald Regfna Stefnisdóttir, Þóra Stefnisdóttir, Hrönn Stefnisdóttir, Anna Nína Stefnisdóttir, Fanný Stef nisdóttir, Hugrún Stefnisdóttir, Auður Stefnisdóttir, Valur Jóhann Stefnisson, Dabbs, Elfas Ágústsson, Thomas Gill, Howard Thornton, Böðvar Björgvinsson, Hilmar Eggertsson, Þórður Njálsson, Marta Grettisdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.