Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993 Minning Jón K. Sæmunds son ljósmyndari Þegar ég kynntist Jóni Sæm. átti hann heima í Tjarnargötu 10B og var giftur amerísku konunni, henni Maríu. A jiessum árum var frændi hans Óli 01. í sama húsi og þarna vorum við strákarnir eins og gráir kettir, Aggi Biering, Stebbi Sturla, Raggi Arinbjarnar, Ingólfur Lilliend- al og margir fleiri. Við kynntumst Jóni og komumst brátt að því að ^'hann kunni frá ýmsu að segja. Hann fræddi okkur meðal annars um New York, steinsteypufrumskóginn þar sem hann átti heima um sex ára skeið. Þar vann hann á stórri ljós- myndastofu hjá konu sem ég man ekki lengur hvað hét. Þessi kona sagði stundum við hann: „AU we need is time John.“ Einu sinni var hann sendur til að taka myndir í brúðkaupi, en þegar hann ætlaði heim spurði hann einn gestanna að því hvar strætisvagninn stansaði, því þetta var í úthverfi; gesturinn leið- beindi honum með bros á vör. En daginn eftir segir konan, vinnuveit- andi hans, „Is it true John that you are annoying the guests?“ ■ ''•* En Jón kynnti okkur ekki heiminn með því einu að segja sögur, ha’nn spilaði líka fyrir okkur á píanóið „Shine on, shine on harvest moon“ og mörg fleiri lög að vestan. Hann kunni líka ýmis lög að austan og stundum söng hann með. Einu sinni kom til hans hermaður af vellinum, sá var fæddur Rússi. Jón spilaði fyr- ir hann á flygilinn lög frá gamla land- inu og söng með á heimatilbúinni rússnesku. Manninum þótti þetta svo hjartnæmt, ekki síst að heyra móður- málið, að hann „fór að gráta“, eins ög Jón sagði okkur síðar. En Jón kunni líka Alla túrka og ýmislegt fleira eftir stóru kallana og sagði að þeir væru enn sprelllifandi. Jón giftist Línu með ljósa hárið; það var upp úr því sem hann keypti húsið í Hafnarfirði og fluttist þangað með fjölskylduna. Þetta var við Vita- stíginn. Hann lýsti þar aðstæðum. Þama var mjólkurbúðin, þama stoppaði strætó og svo — og nú lækk- aði Jón róminn „neðst við götuna er sprúttsali, hann heitir Guðrjón". Ljós- myndastofu sína hafði Jón þó áfram við Tjarnargötuna. Einu sinni stönd- um við Jón þar við glugga og ég segi: „Jæja, svo þú ert bara fluttur til Hafnarfjarðar." „Ég,“ segir Jón, - ,jú, ég sef í Hafnarfirði, en,“ segir hann og bendir út um gluggann „ég á heima héma við Tjörnina — hjá öndunum" og margan góðviðrisdag- inn fórum við niður á götuna til þess að skoða þessa fugla og stundum keyptum við franskbrauð handa þeim í bakaríinu á horninu. Og tíminn leið, strákagengið í Tjarnargötunni leystist upp og menn hurfu hver í sína áttina. Jón og Lína heimsóttu okkur í Stykkishólm. Þá var haldið mikið teiti í apótekinu og ýmsum boðið. Jón var þá með nikku með sér. Þar gekk hann spilandi milli gesta og beygði sig niður að hverjum og einum eins og spilarar gerðu í gamla daga á kaffihúsunum í Búdapest. Mörg ár liðu þar til ég hitti Jón næst, en dag einn labba ég upp stig- ana í Tjamargötunni. Jón kemur til dyra og segir: „Khómení er að vinna stríðið." „Nú,“ segi ég. „Já,“ svarar Jón, „hann segir það, hann segist ætla að vinna.“ Og nú er hann allur þessi heims- borgari, þessi lífsglaði maður og aldr- ei framar eigum við eftir að heyra hann mæla eitthvað spaklegt upp úr eins manns hljóði, svo sem eins og „save your money, buy whisky!" Til þess að komast að því hvernig sá var sem genginn er getur verið gagnlegt að hugleiða hvemig hann var ekki. Jón Sæm. var ekki það sem kalla mætti „Homo pragmaticus" eða maðurinn sem hvorki sér lit blóm- anna né finnur ilm þeirra; maðurinn sem leitar sér sáluhjálpar á Bylgj- unni eða Stöð tvö; maðurinn sem er í rauninni ekki annað en bókfærslum- askína í jakkafötum. Lífssýn hans var önnur. Mér er nær að halda að hann hafi séð heiminn undir sama horni og bróðir hans, málarinn Ág- úst Petersen, maðurinn sem skynjaði veruleikann á bak við veruleikann. En svona er lífið. Endumar á Tjöminni halda áfram að éta fransk- brauð og segja bra bra, en Tjörnin er samt ekki söm og áður og það emm við ekki heldur, gamlir vinir Jóns Sæm., því með honum misstum við eitthvað af okkur sjálfum, eitt- hvað sem hver og einn finnur með sjálfum sér, en enginn fær þó komið orðum að. Blessuð sé minning Jóns K. Sæ- mundssonar. Stefán Sigurkarlsson. Mér fannst Jón Sæm. ljósmyndari og fjölskylduvinur til margra ára allt- af eins og persóna úr skáldsögu eft- ir William Heinesen. Hann var hrif- næmi drengurinn með ást á fögrum listum, eirðarlaus listamaður í sí- felldri leit að fullkomnun, einlægur fagurkeri. Ég veit lítið um æsku hans annað en að hún var stef við sígilda sögu, um viðkvæman son athafnamanns- ins, sem hvorki gat né vildi feta troðna slóð og laga sig að harðn- eskju lífsbaráttunnar. Hann þráði að fá að skapa, gat þó lengi ekki gert það upp við sig hvert hann átti að beina kröftunum, enda var honum margt gefíð. Hann sagði sjátfur, að sem bam hefði hann verið síteiknandi og leitað fanga í litaflóru Vestmannaeyja. Einn daginn kom hann hlaupandi til móður sinnar og tilkynnti með andk- öfum að nú hefði hann séð guð. Þeg- ar að var gáð reyndist guðdómurinn felast í vel tilhafðri hefðarkonu í plássinu, sem hafði gengið fyrir sto- fugluggann með skrautlegan túrban á höfði. Guð hlaut að vera falleg kona í heitum og skærum litum. Þessa hugljómun bamsins, hrif- næmi og hrekkleysi varðveitti Jón alla ævi. Þess vegna var hann öðrum' fremur snillingur augnabliksins. Hann kunni að fanga það og hann kunni að njóta þess. Hann var ótrú- lega næmur á fólk, fljótur að átta sig á réttu sjónarhorni og hafði lag á að laða fram bestu hliðarnar í hverri sál. Það átti fyrir honum að liggja að læra ljósmyndun, fijálsar listir þóttu ekki vænlegt lifibrauð i upphafi kreppunnar og vestur um haf var Ágúst Jóhannesson fæddist að Bakkabæ á Brimilsvöllum 6. ágúst 1898 og ólst þar upp. Faðir Ág- ústs var Jóhannes Bjarnason, bóndi á Bakkabæ, (f. 1869, d. 1921). Jóhannes eignaðist gott bú og gerði út fjóra báta og komst í góðar álnir á þess tíma mæli- kvarða. En er allt lék í lyndi og útgerðin gekk vel brann bærinn og öll gripahúsin með gripum og heyforða. Þurfti Jóhannes þá að selja bátana og koma sér upp búi að nýju. Móðir Ágústs var Anna Sigurðardóttir (f. 1871, d. 1927), dóttir Sigurðar Bjamasonar og Þorkötlu Jóhannsdóttur þeirrar sem margar sögur eru af, enda annálaður kjarnakvenmaður og formaður á bátum. Þorkatla var móðir Sigurðar Kristófers Péturs- sonar rithöfundar, sem dó úr lungnabólgu um aldur fram. Afi sótti snemma sjóinn og naut lítillar formlegrar skólagöngu. Hann sagði okkur seinna að far- andkennari hefði gengið á milli bæja og kennt bömum að lesa og draga til stafs. Annarri skóla- menntun var ekki til að dreifa. Hins vegar varð menntunin meiri í lífsins skóla og gerðist. afi snemma mikill fyrir sér í sjósókn Blömastofa Friöfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opiðöllkvöld til kl. 22,- einnig um heigar. Skreytingar viö öll tilefni. Gjafavörur. haldið til framhaldsnáms. Það sýndi sig að fríðleikspilturinn úr Eyjum gat tekið afbragðs portretmyndir, þótt hann hafí átt stærri drauma og þráð að læra kvikmyndun. í gömlu íbúð- inni hans við Tjamargötu héngu margar af hans fyrstu myndum, menn og konur liðinna tíma, banda- rísk ungstirni innan um harðneskju- legri andlit landans. Mög þeirra urðu með tímanum gamlir kunningjar, því eftir því sem ég kynntist ljósmyndar- anum betur lærði ég að þekkja mynd- irnar hans úr, þegar þær bar fyrir í bókum og blöðum. Það var baklýsing sem einkenndi þær, með henni tókst Jóni oft að draga fram einhveija mystík og áru, birtuna á bak við andlitið. Handbragðið leyndi sér ekki og margar bestu mannamynda hans eru listilegar lýsingar á kvikum karakt- erum, félögum hans í andanum. Jón dróst að öllu skapandi fólki og í minn- ingunni er hann samofínn þessari svarthvítu sviðsmynd á Tjamargöt- unni, þar sem heimili hans var allt í senn, biðstofa, ljósmyndastofa og framköllunarherbergi, mörg augna- blik fest á eina keðju, eins og lífið sjálft. Þama undi hann sér innan um fegurðardísir, ungskáld, bóhema, líf- snautnamenn og hugsuði. En Jón var líka gleðimaður í orðs- ins bestu merkingu og hann lagði mikið til í góðra vina hópi. Hann hafði unun af að leika á píanó, helst djass og söng þá gjaman með, hann var frábær ljóðalesari og sögumaður og sagði oft bráðfyndnar hrakfalla- enda harðger og duglegur með afbrigðum. Honum er vel lýst í eftirfarandi vísu úr kvæði sem Hilmar sonur hans samdi um hann: Fyrrum út á sætijám sótti snemma lið að honum þótti enda lundin styrk sem stál það er allra manna mál. Árið 1919 gekk afi að eiga ömmu okkar, Lilju Kristjánsdóttur frá Mávahlíð í Fróðárhreppi. Hófu þau í fýrstu búskap á Bakkabæ en fluttu til Akraness 1923 og síð- an til Hafnarfjarðar 1927, þar sem þau bjuggu æ síðan. Afi starfaði lengst af á skipum Einars Þorgils- sonar og var lengi á togaranum Surprise (gamla Præsa) frá Hafn- arfirði. Ágúst og Lilja eignuðust fimm böm, Aðalbjörgu, Sigurlín, Krist- ján, Bjarna og Hilmar. Elst er Aðalbjörg, f. 3. september 1920. Fyrri maður hennar var Atli Hall- dórsson og eiga þau fjögur börn saman. Seinni maður hennar er Árni Jónasson. Næst koma tvíbur- amir Sigurlín, f. 1. júlí 1923, gift Guðmundi Ársæli Guðmundssyni og eiga þau sex börn, og Kristján, einnig f. 1. júlí 1923. Kristján kvæntist Sigrúnu Guðmundsdótt- ur, sem nú er látin. Kristján átti tvo syni og er annar þeirra á lífi. Bjarni, f. 14. febrúar 1925, er kvæntur Sóleyju Brynjólfsdóttur og áttu þau tvö börn, en misstu son sinn ungan. Hilmar, f. 16. mars 1928, var yngstur barna þeirra hjóna. Hann lést um aldur fram árið 1970. Hann var kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur og áttu þau þijár dætur. Af þeim hjónum Lilju og Ágústi er kominn langur leggur afkomenda í fjóra ættliði. Minningar okkar barnabarn- anna um afa og ömmu eru einkum tengdar Suðurgötu 58 í Hafnar- firði, en þar bjuggu þau á árunum frá 1957 til 1978. Á Suðurgötuna var alltaf gott að koma, enda lögðu margir leið sína þangað. Það má segja að heimili afa og ömmu hafi verið nokkurs konar athvarf allrar fjölskyldunnar og þar var á vísan að róa um mannamót. Þarna skapaðist vettvangur fyrir upplýs- ingar og skoðanaskipti ef svo bar undir. Og alltaf var heitt á könn- LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöf ða 4 — sími 681960 Líkkist uvinnus tofa LlJv'mclar, Amasonar Ulfarafijónusla t I íkkislusmíði Vesturhlíð 3 ♦ Sími: I3485 ♦ Davíð Osvaldsson ♦ Heimasími: 39723 Agúst Jóhannes- son - Minning Fæddur 6. ágúst 1898 Dáinn 28. júní 1993 sögur af sjálfum sér. Meinfýsi var ekki til í hans orðabók og einhvem veginn var honum betur lagið að setja eigið líf á svið en finna snögga bletti á öðrum. Jón gerði ekki miklar kröfur í ver- aldlegum efnum. Hann var ekkert að leita réttar síns í félags- og heil- brigðisgeiranum, þegar hann hætti að vinna, orðinn sársjúkur. Vildi helst aldrei ónáða neinn og vera fremur veitandi en þiggjandi. Síðustu æviár- in voru honum erfið og án efa ein- manaleg, flest bama hans búsett erlendis og heilsunni hrakaði hratt. Síðast þegar ég hitti hann á götu var hann að verða alveg hjálparlaus, þótt það héti svo að hann sæi um sig sjálfur. Hann var lengi á leiðinni út á kaffihús, einföldustu hlutir vöfð- ust fyrir honum og hann villtist auð- veldlega af leið. Nú þegar þessi ljúflingur er kvadd- ur eru þær myndir þó skýrari í endur- minningunni, þegar einlæg gleði skein úr andliti hans. Þegar hann heimsótti okkur eitt sumarið í Dan- mörku og sýndi okkur stoltur einka- dótturina og bamabörnin hinum megin Eyrarsunds, og þegar hann sló hveija strófuna á eftir annarri á píanóið heima á Kárastig, sneri sér svo brosandi við og jánkaði eitthvað út í bláinn eins og honum einum var lagið. Síðbúið svar við einhverri hugdettu eða kannski bara staðfest- ing á því að gleðina býr maður til sjálfur. Sigrún Björnsdóttir. unni, nýbakaðar hveitikökur og heimagerð rúllupylsa á boðstólum. Afí byggði lítinn hjall á lóðinni aftan við húsið þar sem hann þurrkaði fisk, herti og saltaði. Það var ævintýri líkast að fá að fara með afa út í hjall. Þar gaukaði hann að forvitnu afabarni rykkl- ingsbita að maula á meðan hann vann að flökun og söltun. Meðan á þessu stóð raulaði hann gjarnan rímur fyrir munni sér um hetjud- áðir og afrek frækinna kappa. Hjallurinn sjálfur var undraheimur þar sem hengu torkennileg tól í bland við fiskspyrður. Ámur og keröld voru í röðum með veggjum og amboð undir rjáfri. Það lifir einnig sterkt í minning- unni um afa þegar hann hélt utan um okkur með sínum stóru sterk- legu höndum og kyrjaði vísur og stökur dimmri röddu. Það var afa mikið áfall þegar hann missti Lilju konu sína í nóv- ember 1981. Brosviprurnar og glampinn í augunum hurfu. Hann sat einn eftir og missti smám sam- an áhuga á flestum málum þrátt fyrir góða heilsu lengst af. Hann fluttist á Hrafnistu í Hafnarfírði 1983 og átti rólegt og þægilegt ævikvöld. En lífsfyllinguna vant- aði, enda höfðu þau hjónin verið óvenju samrýnd og samhent um alla hluti. Við barnabörnin og aðrir ætt- ingjar kveðjum gamlan og þreytt- an mann sem er hvíldinni feginn. Loks hittir hann Lilju sína aftur og það er sem heyra megi óminn þegar þau fara með stökurnar sín- ar saman. Blessuð sé minning afa okkar og ömmu. Barnabörnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.