Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691191, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. EINN FYRIR MÖMMU... Morgunblaðið/Kristinn Flutningar á fiskveiðiheimildum milli kjördæma færast í vöxt Hagnaður MHF fyrsta ársfjórðung í eigu ÚA Andvirði samnings við SH 1,8 milljarðar HAGNAÐUR hefur verið af rekstri þýzka útgerðarfélagsins Mecklenburger Hochseefischer- ei, þá þrjá mánuði sem liðnir eru frá því að Útgerðarfélag Akur- eyringa keypti meirihluta í fyrir- tækinu. Veiðar verksmiðjutogar- anna átta í eigu fyrirtækisins hafa gengið vel. Gert er ráð fyr- ir að andvirði þeirra afurða, sem samið hefur verið um að Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna selji fyrir MHF, verði um 1,8 milljarð- ar króna á ári. „Reksturinn gengur álíka og við gerðum ráð fyrir. Aflinn og fram- leiðslan hafa verið eftir áætlunum," sagði Gunnar Ragnars, fram- kvæmdastjóri ÚA, í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að hagn- aður hefði verið af rekstrinum frá því að ÚA keypti 60% hlut í fyrir- tækinu í byijun apríl, en vildi ekki nefna tölur í því sambandi. Yfir 5.000 tonna þorsk- kvóti fór til Reykjaness Sj ómannasambandið undirbýr málssókn í sjö kvótakaupamálum SAMKVÆMT yfirliti sem Fiskistofa hefur unnið um tilfærslur á botnfiskkvótum milli kjördæma á kvótaárinu sem nú stendur yfir kemur í ljós að 5.200 tonna þorskkvóti hefur verið fluttur suður á Reykjanes úr öðrum kjördæmum. Til Vesturlands hefur 2.000 tonna þorskkvóti verið fluttur en þau kjördæmi sem mest hefur verið flutt frá eru Vestfirðir, Norðurland vestra, Norður- land eystra og Reykjavík. Kvótaviðskipti þar sem stórar útgerðir eða fiskvinnslur láta minni báta veiða fyrir sig eða kaup útgerðarmanna á kvótum sín í millum hafa töluvert verið í umræðu í vetur og vor. Sjómannasamband íslands hefur mótmælt harðlega frjálsu framsali á kvótum og telur að í mörgum tilfellum þar sem um bein kaup er að ræða sé brotið í bága við kjarasamninga sjómanna. Er Sjómannasambandið nú að und- irbúa málsókn í sjö kvótakaupamálum. Tonn á móti tonni Framangreindar tölur eiga við um leigu- kvóta en ekki varanlegt framsal. Hvergi er að finna nákvæmar tölur um viðskipti með leigu- kvóta yfir landið í heild en í stórum dráttum má sjá umfang þeirra með því að skoða framan- greindar botnfisktilfærslur. Megnið af tilfærsl- um á þorskkvóta er vegna svokallaðra tonn á móti tonni viðskipta þar sem fiskvinnslufyrir- tæki norðanlands fá báta fyrir sunnan til að veiða fyrir sig. Ekkert af þeim sjö málum sem Sjómannasambandið ætlar með fyrir dómstóla er vegna slíkra viðskipta en sambandið telur þau samt á gráu svæði og er að kanna um- fang þeirra. Málin sjö snúast öll um bein kaup á kvótum og kæruefnið er að uppgjör er ekki í samræmi við verðmæti selds afla. Sjá bls. 36: „Yfir 7.000 tonna...“ Hagstæð búbót þegar afli fer minnkandi Gunnar sagði að alltaf hefði stað- ið til að koma afurðum þýzka fyrir- tækisins inn í sama sölukerfi og framleiðsla ÚA væri seld í gegnum. „Það er reiknað með að andvirði afurðanna sé um 1.800 milljónir króna á ári. Það er auðvitað mjög hagstætt fyrir okkur að fá svona lagað inn þegar aflinn fer minnk- andi hjá okkur,“ sagði Gunnar. Samningur um þjónustu á íslandi í síðustu viku var, auk samnings- ins við SH, undirritaður samningur ÚA og Mecklenburger Hochsee- fischerei um að ÚA sjái um alla þjónustu við togara fyrirtækisins á Islandi. Gunnar segir að þar sé eink- um um að ræða losun á afurðum og aðdrætti. Fleiri íslenzk fyrirtæki hafa fengið viðskiptasamninga við MHF, til dæmis Hampiðjan og J. Hinriksson vegna veiðarfæra og skipafélögin vegna flutninga á af- urðum. Samkeppni harðnar í símamálum ÍSLENSK símayfirvöld búast við erlendri samkeppni um íslenska símnotendur. Mikil uppstokkun er nú fyrirsjáanleg í símamálum á alþjóðavettvangi. Gústav Arnar yfírverkfræðingur hjá Pósti og síma telur tímabært að íslendingar spái í framtíðarþróun fjarskipta við útlönd og fari jafnvel að svipast um eftir erlendum sam- starfsaðilum. „Það væri slæmt að missa fjarskiptin aftur úr landi og það fer að verða áleitin spurning hvort við getum staðið einir á þess- um markaði," segir Gústav Arnar. Sjá bls. 14: „Sími framtíðar". íslenzkir leiðsögnmenn kæra erlendan fararstjóra án atvinnuleyfis Vilja undanþágu frá EES FÉLAG leiðsögumanna kærði fyrir skömmu fararstjóra þýzku ferðaskrif- stofunnar Studiosus Reisen fyrir að starfa á íslandi án atvinnuleyfis. Fararstjórinn fór úr landi með hóp sinn samkvæmt áætlun eftir að fulltrúi frá lögreglunni í Reykjavík hafði rætt við hann. Þýzka ferðaskrifstofan og samstarfsaðili hennar hér á landi, Ferðaskrifstofa BSÍ, hafa gert athugasemdir til félagsmálaráðu- neytisins við framkomu forsvarsmanna Félags leiðsögumanna. Ráðuneytið veitir erlendum leiðsögumönnum atvinnuleyfi hér á landi, að fenginni umsögn nefndar á vegum samgönguráðuneytisins og Félags leiðsögumanna. í fyrrgreindu tilviki hafði verið sótt um atvinnuleyfi fyrir hinn þýzka leið- sögumann, en það ekki verið afgreitt. Gylfi Kristinsson, deildarstjóri í félagsmála- ráðuneytinu, segir að umsóknir um atvinnuleyfi leiðsögumanna verði úr sögunni með EES- samningnum, sem kveður á um fijálsa ferð laun- þega um Evrópska efnahagssvæðið. Þórama Jónasdóttir, formaður Félags leiðsögumanna, segist hins vegar vonast til að íslenzkir leiðsögu- menn fái samþykktar undanþágur frá EES- samningnum. „Við vonumst til að það sama verði látið gilda og í byggingariðnaði, þar sem íslenzk náttúra og umhverfi er talið svo sér- stakt að íslenzkmenntað fólk þurfi til að starfa í byggingariðnaði hér. Er ekki íslenzk náttúra og íslenzk menning svo sérstök, að það þurfi Islendinga eða að minnsta kosti íslenzkmenntað fólk til að gera þessu skil við gesti okkar? Er það ekki raunhæf krafa?" sagði Þórarna. Handtaka gefín í skyn Gunnar Sveinsson, framkvæmdastjóri ferða- skrifstofu BSÍ, segir að formaður Félags leið- sögumanna hafí nálgast þýzka fararstjórann og gefið í skyn að hann yrði handtekinn og honum vísað úr landi. Ferðaskrifstofan hafí því gert athugasemd til félagsmálaráðuneytisins. Þórarna Jónasdóttir segir að samskipti leiðsögu- manna og hins þýzka starfsbróður hafi verið hin elskulegustu og honum einungis gert Ijóst að hann mætti búast við skýrslutöku lögreglunn- ar og að þurfa að hafa atvinnuleyfí, næst þegar hann kæmi til landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.