Morgunblaðið - 11.07.1993, Síða 10

Morgunblaðið - 11.07.1993, Síða 10
ío i ÍJÚUfi CíiOfAJSMUOJiOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JUU 1993 Neyðarnefitdin Frá blaðamannafundi Neyðar- nefndarinnar 19. ágúst 1991 þar sem félagar í henni gerðu grein fyrir sjónarmiðum sínum. Fund- urinn þótti algjörlega mis- heppnaður og framganga valda- ræningjanna n\jög ósannfær- andi. Fyrir miðju er Gennadíj Janaév sem var skipaður forseti nefndarinnar en honum á hægri hönd er Borís Púgo sem var inn- anríkisráðherra í tíð Míkhaíls S. Gorbatsjovs og framdi síðar sjálfsmorð. Landraðamaður leða ranglega borinn sðkum? Texti og mynd: Jón Ólofsson og Lórus Jóhonnesson VALDARÁNIÐ í Sovétríkjunum í ágúst 1991 er og verður ráðgáta. Seint skýrist hveijar voru raunverulegar fyrirætlanir Neyðarnefndarinnar svokölluðu, áttmenninganna sem ætluðu í samein- ingu að stjórna Sovétríkjunum undir neyðarlögum eftir að hafa einangrað Míkhail Gorbatsjov for- seta þeirra. Mörgum hefur hins vegar þótt merki- legt að þeir sem í raun fóru með æðstu völd ríkis- ins skuli hafa þurft að ræna þeim og þess vegna hefur sumum þótt hæpið að kalla atburði ágúst- mánaðar 1991 valdarán. Hver var hlutur Gorbatsj- ovs I því? Var hann fórnarlamb, eða reyndi hann að notfæra sér fyrirætlanir samstarfsmanna sinna í þeim pólitíska hildarleik sem hafði staðið yfir frá því að Sovétríkin byijuðu að gliðna, í árslok 1989, þegar Kommúnistaflokkur Litháens sagði sig í heilu lagi úr Kommúnistaflokki Sovétríkj- anna? Aðeins tveir af æðstu mönnum ríkisins voru ekki í Neyðarnefndinni. Annar var auðvitað Gorb- atsjov leiðtogi ríkisins sem sat í sumarsetri sínu á Krím, að eigin sögn í stofufangelsi. Að sögn ákærðra valdaránsmanna vissi hann hins vegar nákvæmlega hvað til stóð og hefði getað komið í veg fyrir það hefði hann viljað. Hinn var Anatolíj Lúkjanov forseti Æðstaráðsins sem í raun var næstur Gorbatsjov að völdum og hafði um árabil verið vinur hans og samstarfsmaður. Hegðun Lúkjanovs var undarleg á meðan á valdaráninu stóð. Hann notaði tækifærið til að gefa opinbera yfirlýsingu um andstöðu sína við nýjan sambands- sáttmála Gorbatsjovs og leiðtoga lýðveldanna, sem beið undirritunar. Þetta og fleira varð til þess að marga grunaði að þótt Lúkjanov væri ekki í nefnd- inni kynni hann að vera maðurinn á bak við valdaránið. Við hittum Lúkjanov að máli á heimili hans í Moskvu, þar sem hans bjó á meðan hann var þingforseti og þar sem hann býr enn eftir að honum var sleppt úr Matijosskaja Tishina öryggisfangelsinu, þar sem hann satfrá 29. ágúst 1991 til 28. desem- ber 1992. Hann heilsar okkur með handabandi og vísar okkur inn á vinnustofu sína. Lúkjanov er greini- lega mikið snyrtimenni og reglu- maður. Á skrifborði hans er allt í röð og reglu. Við getum ráðið af bunkum af erlendum tímaritum og blöðum að hann fylgist vel með heimsmálunum. En hann er líka áhugamaður um skáldskap, einn veggurinn á vinnustofunni er þak- inn ljóðabókum og hann segir okkur að í heild telji bókasafn hans ein 12.000 bindi. Sjálfur er Lúkjanov ljóðskáld og hefur gefíð út nokkrar ljóðabækur. Við komum dálítið of seint og reynum að stynja upp fáeinum af- sökunarorðum. Umferðin hafí auk- ist gífurlega í Moskvu síðasta árið eða svo, á háannatímum sé ekki nokkur leið að komast áfram í mið- borginni nema með því að taka neðanjarðarlestina. En óhjákvæmi- lega setja þessi fyrstu orðaskipti um öngþveitið í Moskvu tóninn fyr- ir spjallið sem á eftir fylgir. Lúkj: anov er maður gamla tímans. I hans augum er hrun Sovétríkjanna harmleikur, ekki aðeins í sögu Rússlands heldur mannkynsins alls. Sjálfur á hann samt yfír höfði sér dóm, sem samkvæmt rússneskum lögum gæti jafnvel orðið dauðadóm- ur, fyrir föðurlandssvik við þetta fallna ríki. -Væru Sovétríkin til ennþá ef neyðarnefndin svokallaða hefði ekki rænt völdunum af Gorbatsjov for- seta Sovétríkjanna? „Því er ómögulegt að svara. Hins vegar er fjarri lagi að kenna neyðar- nefndinni um hrun Sovétríkjanna þótt aðrir hafí notfæit sér aðgerðir hennar til að leysa ríkið upp. Þjóðin hafði lýst yfir vilja sínum til þess að Sovétríkin væru áfram til í at- kvæðagreiðslu í mars 1991 og í samræmi við þá niðurstöðu var unnið að nýjum sambandssáttmála. Samkvæmt honum átti að auka Anatolíj Lúkjanov fyrrum forseti Æóstaráós Sovétríkjanna rœóir vió Morgunblaóió unt valdaránió, hrun Sovétríkjanna og Mikhail Gorbatsjov rétt lýðvelda, sjálfstjórn borga og valdaumboð sveitarstjóma auk þess að styrkja tengsl þeirra við stjórn ríkisins í Moskvu. Allt hefði þetta rúmast innan ramma sovésku stjórnarskrárinnar og gert Sovét- ríkin að sambandsríki í svipuðum skilningi og Bandaríkin og Þýska- land. En starf okkar miðaðist einnig að því að endurnýja og færa til nútímans þá sósíalísku þjóðfélags- skipan sem við bjuggum við. Framapólitík og aðrir þættir óvið- komandi hagsmunum þjóðarinnar ollu hmni SovétríkjannaiValdabar- átta, öfgafull þjóðemishyggja og aðskilnaðarstefna sem af henni leiddi. Þjóðernishyggjahafði auðvit- að alls staðar verið í vexti, ekki bara í Sovétríkjnum en hún hefði ekki þurft að valda aðskilnaði Sov- étlýðveldanna." Almennur stuðningur við sambandssáttmála -Nú lýstuð þér sjalfir andstöðu við sambandssáttmálann á meðan á valdaráninu stóð. Hvernig samrým- ist það því sem þér segið nú um að nýr sambandssáttmáli hefði get- að bjargað Sovétríkjunum og að slíkur sáttmáli hafi haft nægilegan pólitískan stuðning? „Sjáið þið til, Sambandssáttmál- inn varð til með eftirfarandi hætti: Þegar ákveðið var að styrkja ríkið með því að auka réttindi og völd lýðveldanna þurfti að breyta stjórn- arskránni en hluti af henni var samningurinn á milli Úkraínu, Hvít- arússlands, Suður-Kákasuslýðveld- isins og Rússlands sem gerður var 1922 þegar Sovétríkin vo.ru stofn- uð. Þótt Sovétríkin hafi fengið nýja stjórnarskrá 1936 og aftur 1977, var sá samningur í grundvallaratr- iðum óbreyttur. En á meðan á þessu starfi stóð fóru þjóðernisástríður að segja til sín. Eystrasaltsríkin lögðu til að gerður yrði nýr samn- ingur um ríkjasamband en ekki sambandsríki og um það vom haldnar viðræður, sem þó urðu aldr- ei neitt meira en skoðanaskipti. Það kom í minn hlut að setja á blað fyrstu drögin að nýjum sambands- sáttmála, í nafni Æðstaráðsins og forsetans. Hugmyndin var frá upp- hafi sú að gera Sovétríkin að sam- bandsríki á gmndvelli gildandi laga og stjórnarskrár. Þess vegna er ekki hægt að halda því fram að ég hafi verið á móti nýjum sambands- sáttmála. Spumingin var hins vegar hvers konar sáttmála við vildum gera. Aðalatriðið var að Sovétríkin yrðu áfram eitt ríki. Aukin réttindi Iýð- veldanna og fullt fjárhagslegt sjálf- stæði mátti hvorki hindra að ríkis- fjármálin væru á einni hendi, né að sovésk stjómarskrá og sovésk lög hefðu forgang fram yfir stjórn- arskrá og lög lýðveldanna eða að lýðveldin yfírtækju eignir Sam- bandsríkisins. Það mátti ekki gerast að eignarhald tvístraðist á járn- brautum eða orkulögnum og orku- auðlindum. Ennþá síður að lýðveld- in tækju í sínar hendur það sem nauðsynlegt er vömum ríkisins, eða tækju við hergagnaiðnaðinum. Nokkrum sinnum var þessi sam- bandssáttmáli tekinn til umræðu í Æðstaráðinu og á Fulltrúaþinginu. Til þess að tryggja stuðning þjóðar- innar, ákvað fulltrúaþingið að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hann 17. mars 1991. Tveir þriðju þeirra sem tóku þátt í henni lýstu stuðningi við endurnýjað Samband Sósíal- ískra Sovétlýðvelda, við sambands- ríki þar sem tryggð væru jöfn rétt- indi allra borgaranna sama af hvaða þjóðerni þeir væru. Eftir það sner- ist allt mitt starf um að veija þessa hugmynd að áframhaldandi Sovét- ríkjum, því það var vilji þjóðarinnar. En lýðveldin snerust gegn þessu; einkum Rússland og Úkraína. I Úkraínu höfðu menn aðrar hug- myndir, Úkraínumönnum fannst að sambandið ætti að verða líkara Evrópubandalaginu. Moldavía og Kírgísía voru líka fylgjandi þeirri hugmynd. Eystrasaltsríkin höfðu sérstöðu því þar vildu menn segja sig úr sambandinu hvert svo sem það yrði. í Eystrasaltslöndunum höfðu þjóðernissinnar náð mestum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.