Morgunblaðið - 11.07.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993
15
heimshluti nýti Iridium-kerfið.
Motorola stefnir að því að við-
skiptavinir kerfisins verði orðnir 2
milljónir árið 2002, þar af noti um
700 þúsund notendur kerfið fyrir
boðtæki.
Hnattsími til góðs eða ills?
í marsmánuði 1992 tók alþjóð-
leg ráðstefna um úthlutun sendit-
íðna ákvörðun um að helga ákveð-
ið tíðnisvið hnattrænum símkerf-
um sem nota gervihnetti. Tíðni-
I sviðið sem tekið var til þessara
nota getur einungis rúmað tvö til
þrjú kerfi. Hnattræn símakerfi
munu væntanlega lúta stjórn fjöl-
þjóðafyrirtækja, en ekki ríkis-
stjóma, líkt og mörg símafélög
hafa gert hingað til. Engu að síð-
ur er velvilji stjórnvalda nauðsyn-
legur eigi að skapast starfsaðstaða
fyrir hnattræn símafélög. Leyfi
þarf til að selja símtækin innan
hvers ríkis og svo þarf að inn-
heimta afnotagjöld og senda þau
til höfuðstöðva símafélagsins. Það
sem helst er talið standa í vegi
þess að stjórnvöld einstakra ríkja
leggi stein í götu hnattsímans er
að ríkisrekin símafélög_ munu
missa spón úr aski sínum. í þróun-
arlöndum eru símafélögin gjald-
eyrisskapandi því tekin eru há
gjöld fyrir að afgreiða símtöl er-
. lendis frá. Það hefur einnig komið
á daginn að í tilvikum hafa stjóm-
endur ríkisrekinna símafélaga
„einkavætt" þau að hluta í eigin
þágu. Þegar argentínska símafé-
lagið var einkavætt í fyrra komu
í ljós þúsundir óskráðra símalína
sem óprúttnir stjórnendur höfðu
selt á svörtum markaði. Til að
koma til móts við stjórnvöld ein-
stakra ríkja hafa hnattrænu sím-
afélögin boðið að láta hluta afnota-
gjalda verða eftir í því landi sem
hringt er frá í hnattsímann. Eins
hafa þau boðist til að láta ríkis-
stjórnir fá einkaleyfi á markaðs-
setningu símtækja og innheimtu
I símgjalda innan sinna landamæra.
Tímaritið TheEconomist fjallaði
um símabyltinguna í vor. Blaðið
tók þá afstöðu að í stað þess að
láta múta sér til samþykkis ættu
stjórnvöld ríkja að taka hnattsí-
| manum fagnandi og greiða götu
hans. Símakerfi tilheyrðu upp-
byggingu innviða þjóðfélagsins
líkt og vegakerfí og raforkukerfi.
Samkeppnin stuðlaði að því að
símgjöld myndu lækka og því ætti
ekki að leggja stein í götu nýrra
aðila á þessum markaði. Þá bend-
ir blaðið á að þráðlaus hnattsími
muni spara fátækum löndum upp-
byggingu dýrra dreifikerfa með
símalínum og örbylgjusendum til
fámennra og afskekktra staða.
Mönnum hefur verið tamt að
líta á dreifinet símans líkt og veit-
ur fyrir rafmagn og vatn. Hvert
hús hefur verið tengt við endann
| á flóknu leiðsluneti sem leiðir að
dreifístöð. Þessi skilgreining sím-
kerfisins á ekki við eftir að þráð-
laus símkerfi ryðja sér til rúms
og fjöldi ólíkra upplýsingaveitna
kaupir sér pláss á ljósleiðaranet-
um. Framtíð þeirra hugmynda sem
nú prýða teikniborðin er undir við-
tökum markaðarins komin, sumar
munu týnast og aðrar fá brautar-
gengi. Þessar nýjungar eiga það
sameiginlegt að til að þær nái að
blómstra verða stjórnvöld víða um
lönd að aflétta takmarkandi
ákvæðum laga og reglugerða sem
sett voru á öðru og eldra tíma-
skeiði tækninnar.
Harðnandi samkeppni
íslensk símayfirvöld eiga allt
eins von á aukinni samkeppni er-
lendis frá á næstu árum. Islensk-
um ferðamönnum hefur verið boð-
ið að nýta sér þjónustu erlendra
símafyrirtækja á borð við Sprint
og MCI. Evrópubandalagið stefnir
að fijálsri samkeppni í símamálum
innan sinna landamæra 1998.
Margt bendir til þess að eftir
snarpa og harða samkeppnisorr-
ustu á alþjóðlega símamarkaðin-
um muni standa eftir einn eða
fáir risar og óttast sumir að upp
rísi einokun stórfyrirtækjanna.
Gústav Arnar telur tímabært að
íslendingar fari að spá í framtíðar-
þróun fjarskipta við útlönd og leiti
jafnvel að alþjóðlegum samstarfs-
aðilum á þessu sviði. „Sá mögu-
leiki er fyrir hendi að við getum
misst eitthvað af viðskiptum okkar
í hendur erlendra aðila,“ segir
Gústav Amar. „Það væri slæmt
að missa fjarskiptin aftur úr landi
og það fer að verða áleitin spum-
ing hvort við getum staðið einir á
þessum markaði." Hann bendir á
að alþjóðleg símafyrirtæki hafí
þegar sett upp skrifstofur á hinum
Norðurlöndunum í því skyni að
ná fótfestu á þeim markaði. „Þetta
er bara spurning um hvenær ein-
hver fær áhuga á íslandi. Reyndar
er markaðurinn hér lítill og verð-
lagning símaþjónustu mjög lág
miðað við önnur lönd, en það koma
fleiri sjónarmið til greina en bein
viðskiptaleg sjónarmið í þessu
efni.“
raðlaus
tiivera á _
mm
staf* iiiiflv
rænn '%))))))))]
farsími
Stafrænu farsímarnir, likt og GSM símarnir sem teknir verða í notkuri hér á
næsta ári, tryggja betur símaleynd og henta mun betur til gagnaflutnings en
gömlu hliðrænu símarnir.
Þráðlaus einkasími
Ódýrir þraölausir heimasímar eru nothæfir í næsta nágrenni heimilisins.
Starfsmenn fyrirtækis hafa allir þráðlausa síma. Tölvustýrt skiptiborð gefur upp-
iýslngar um helstu símanúmer.
Gervihnattasími
Motorola hefur gert áætlun um Iridium simakerfið sem á að nota net gervihnatta
sem svífa lágt yfir jörðu. Með þessum símutn á að vera hægt að hringja hvaðan
sem er i heiminum og hvert sem er.
Gagnapakkar
Ný tækni sem lætur gagnapakka „hoppa“ á milli lausra talrása í hliðræna far-
símakerfinu og eykur nýtingu þess,
Pakkavarp
Lítil ferðatæki til að senda tölvugögn á milli tveggja aðila.
Einkaboðtöivur
Frumgerðir koma á markað á þessu ári. Petta er þráðlaus einkatölva sem
nernur boð líkt og boðtæki auk þess að geta sent boð.
Þráðlaus tölvukerfi
Tölvusamskipti fara fram með útvarpsbylgjum í stað þráða. Þetta auðveldar
breytingar á kerfunum.
Samskiptamiðstöö
- símtæki
Símtæki framtíðarinnar verður mun
fullkomnara en við eigum að venjast.
Til dæmis hafa Phillips verksmiðjurnar
sett á markað nýja kynslóð síma sem
eiga að leysa af hendi „gamaldags“
tónvalstæki. Auk venjulegra val-
hnappa er á tækinu 13 sentimetra
tölvuskjár og hnappaborð líkt og á
tölvu. Skjárinn sýnir 16 línur með 40
bókstöfum. Þessi sími er gerður með
það í huga að símnotandinn geti sinnt
bankaviðskiptum sínum og bókað
flugfar að lieiman. Þannig á notandinn
að geta flett upp flugáætlunum og
valið sér far með tiltekinni flugferð.
Flugfarið er síðan skuldfært á flögu-
kort (smart-card) eigandans sem
stungið er í símtækið. Flögukort eru
á stærð við greiðslukort og á þeim er
minniskubbur og jafnvel örgjörvi sem
inniheldur upplýsingar um banka-
reikninga og greiðslukortareikninga
eigandans. Á símanum er hnappur sem
skiptir á milli hljóðhams og mynd-
hams, síminn tekur flögukort með allt
að 4 megabæta minni sem geymir upp-
lýsingar og sérhæfðar aðgerðir. Einnig
er hægt að tengja prentara og venju-
legt tölvulykilborð við símann.
Þú hringir í síma 611720 kvöldið fyrir
brottför og pantar bílinn. Símaþjónusta
BSR sér um að vekja þig á réttum tíma.
Bíllinn kemur stundvislega,
hlýr og notalegur.
Og þú ferð í loftið afslappaöri en ella.
Við bjóðum nú þessa þjónustu á
tilboðsverði, kr. 3SOO.- eða aðeins
975.- á mann miöaö viö fjóra.
JrW
6IJ720
<0ófhr/e/Hlfrted