Morgunblaðið - 11.07.1993, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIUGAR SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993
29
Anna Sigríður
Amadóttir Wagle
Fædd 27. janúar 1894
Dáin 2. júlí 1993
Anna fæddist fyrir hartnær 100
árum eða hinn 27. janúar 1894 að
Gerðakoti á Miðnesi. Hún var dótt-
ir merkishjóna, Elínar Ólafsdóttur
og Árna Eiríkssonar útvegsbónda
þar. Börnin voru níu, en sex kom-
ust á legg. Anna var þeirra elzt.
Elín mátti sjá af manni sínum í
sjóinn, en slíkur var kjarkur þeirrar
konu, að hún tók við verki bónda
síns og reri til fiskjar og sá fyrir
bamahópnum sínum, sem reyndar
voru allt stúlkur. Eins' og allir vita,
voru stúlkur á þeim árum taldar
heldur verðminni til verka en
drengir, en allt gekk nú upp fyrir
því. Þegar tími kom til, var sózt
eftir þessum stúlkum og fengu þær
allar með tölu góða eiginmenn, sem
sköruðu fram úr þeirri dýrkuðu
meðalmennsku, sem nú tröllríður
þessu þjóðfélagi.
Anna Sigriður hét skjólstæðing-
ur okkar fullu nafni. Hún fór ung
að árum til Noregs sem húshjálp á
heimili og kom sér vel á þeim bæ.
Þar réðst framtíð hennar á þann
veg, að hún kynntist þeim manni,
sem varð eiginmaður hennar. Sá
hét Henrik Schumann Wagle og
var vélgæslumaður í niðursuðu-
verksmiðju Bjellands hins norska.
Henrik, eða reyndar Hinrik, eins
og við kölluðum hann (Norðmenn
bera e fram eins og við i), var
reyndar fleira til lista lagt en gæta
véla, hann var mjög gefínn fyrir
hljómlist, spilaði á hvaða hljóðfæri,
sem hann sá og gat einnig sungið,
en helzt á norsku þó, því að íslenzk-
an hans var aldrei alveg íslenzk.
Anna og Henrik eignuðust fimm
börn og með þetta fólk tóku þau
upp bú sitt árið 1930 og fluttust
til íslands. Hér gerðist Henrik
vélgæzlumaður hjá Sláturfélagi
Suðurlands hjá öðlingnum Helga
Bergs, en síðan hjá SÍF, þar sem
hann vann m.a. með Þorvaldi Guð-
mundssyni, nú í Síld og Fiski, en
báða þessa menn mat hann mikils,
sem voru nú engin undur, þessir
stórvezírar íslenzkrar kjötfram-
leiðslu.
Börnunum var komið á legg og
fer hér á eftir upptalning þeirra:
Árni, f. 1918 og dáinn sama ár;
Ellen Ingibjörg, f. 24. desember
1919. Hún giftist William G. Down-
ey, sem var foringi í bandaríska
hernum, og eignuðust þau einn
sonn, William Gerald 3. Ellen og
drengurinn fórust með Goðafossi,
þegar hann var skotinn í kaf við
Reykjanes 1944. William G. Down-
ey lézt fyrir nokkru. Herdís Al-
vilda, f. 10. júní 1922. Hún var
gift Einari A. Jónssyni, sem var
áratugum saman aðalgjaldkeri hjá
Sparisjóði Reykjavíkur og nágrenn-
is, en hann lézt 1982. Þau eignuð-
ust þrjú börn, dreng og tvær stúlk-
ur. Hann lézt í flugslysi fyrir tæp-
um 20 árum, en þær hafa báðar
gifzt og búa í Reykjavík. Ida Elísa-
bet, f. 8. apríl 1925. Hún er gift
undirrituðum og eigum við tvær
dætur, en misstum dreng í æsku.
Þær eru báðar giftar og býr önnur
í Garðabæ, en hin í Kaupmanna-
höfn. Árni Marselíus, f. 7. marz
Morgunblaðið/Árai Helgason
Afkomendur Árna Thorlacius Ólafssonar við minnisvarðann um
hann.
Heimsækja fomar slóðir
Stykkishólmi.
Á STYKKISHÓLMI voru nýlega á ferð nokkrir af afkomendum
Árna Thorlacius Ólafssonar sem talinn er fyrsti íbúi Stykkis-
hólms, bæði til að minnast forföður síns og eins að líta á minnis-
varðann sem honum hefur verið reistur.
Árni fæddist árið 1802. Hann
setti upp verslun í Stykkishólmi
árið 1845 og var umsvifamikill
athafnamaður á Snæfellsnesi.
Honum var reistur veglegur minn-
isvarði við Stykkishólm fyrir
nokkru til að minnast umsvifa
hans. Margir afkomenda hans
hafa, þegar þeir eru á ferð um
Snæfellsnes, komið við og stað-
næmst við varðann og rifjað upp
minningar. - Árni.
Komum heil heim -
átak sem alla varðar
SLYSAVARNAFÉLAG íslands hefur um árabil í samstarfi við fjölda
aðila staðið að sérstöku átaki til að vekja athygli almennings á þeim
miklu hættum sem geta fylgt ferðalögum innanlands og bent alveg
sérstaklega á hættu við ár og vötn, við akstur yfir óbrúaðar ár, í báts-
ferðum, á tjaldstæðum, í og við sumarbústaði og svo í hinni miklu og
geigvænlegu umferð, jafnt í bæjum sem úti á þjóðvegum.
Slysavamafélagið hefur leitað til
fjölmiðla. til að koma fræðsluefni
bæði í formi auglýsinga, heilræða
og greinaskrifa er þetta varðar til
almennings og mun það birtast fólki
á næstu vikum.
Ein þáttur átaksins er prentun og
dreifing límmiða í afturrúður bífreiða
með hvatningu um að koma heil
heim. Miðamir verða til dreifingar á
öllum bensínstöðvum landsins.
Fjölmargir aðilar styrkja þetta
forvarnarátak og gera þannig Slysa-
varnafélaginu mögulegt að sinna
betur sínu mikilvæga verkefni.
Það vilja allir koma heilir heim
en því miður eru allof margir sem
gera sér ekki grein fyrir þeirri
ábyrgð og hættum sem ferðalögum
fylgja. Slysavarnafélagið hvetur
landsmenn til að vera varkára og
varast slysin.
1930. Hann var giftur Helgu Henr-
ýsdóttur og áttu þau sex börn, sem
öll eru á lífi. Árni Marselíus lézt
18. september 1975.
Ég kynntist Önnu fyrst þegar
ég var um fermingu, þar eð Wagle-
fólkið bjó í næsta húsi við okkur á
þeim árum. Lítið minnist ég Önnu
frá þeim tíma, enda var þá aðallega
lesið fyrir skóla og svo verið úti í
stórfiskaleik eða einhverju álíka á
milli lestrarins. Þetta var mjög fyr-
irferðarlítið fólk.
Henrik kynntist ég aldrei nema
lítillega, þar eð hann féll frá einu
og hálfu ári eftir að kunningsskap-
ur hófst. Hann var dulur maður
og prúður.
Önnu hef ég þekkt í 40 ár og
næstum allan þann tíma hefur hún
verið ekkja, sem reyndar verður
hluskipti annarrar hverrar konu.
Þar eð efnin voru aldrei mikil af
veraldlega taginu í búi Önnu og
Hinriks, reyndi á samheldni fjöl-
skyldunnar, og kom það í hlut Ein-
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Yf ir 30 tegund ir
Stærðir: 36-41
Litir: Hvítur, blár og vínrauður
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
Kringlunni,
Kringlunni 8-12, sími 689212
Domus Medica,
Egilsgölu 3, sími 18519
V____________ J
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' síðum Moggans!
ars og Herdísar að taka hana inn
á heimili sitt. Alltaf er vandi að
umgangast gamalt fólk (reyndar
var Anna ekki nema um sextugt,
þegar hún missti Henrik) inn á
heimili, en bezt ber það vott um
þægindi og geðprýði Önnu, og
reyndar ekki síður Herdísar og Ein-
ars, að þeir hlutir gengu ágætlega
vel upp öll árin.
Er mér nær að halda, að Anna
hafi haldið vel á sínu, enda
samvizkusöm, myndarleg og köttur
þrifinn og nýtni hafði hún lært í
foreldrahúsum.
Þegar Annafvar komin um nír-
ætt, datt hún á sléttu gólfi og lær-
brotnaði. Ekki var búizt við, að hún
kæmist gegnum þær hremmingar,
stóra svæfingu og uppskurð. Hún
var komin í fullan gang eftir nokkra
mánuði og þégar hún brotnaði aft-
ur á lærlegg tveim árum seinna,
komin þá á tíræðisaldur, komst hún
enn á stjá og varð ekki rúmföst
fyrr en við þriðja brot af sama tagi.
Komu þá til Hrafnistumenn í Hafn-
arfirði og tóku henni opnum örmum
og það sem meira var, sinntu henni
með virðingu og einstakri hugulsemi
til loka ævikvöldsins. Starfsfólki þar
og stjórn eru tjáðar miklar þakkir.
Þegar gamla konan lézt hinn 2.
júlí síðastliðinn, var hún sett dáin
í sérherbergi, þar sem aðstandend-
ur fengu að vera hjá henni nokkra
klukkutíma, en inni var á borðinu
logandi kerti og biblía, sem heimil-
ið hafði sett þar á borðið hennar.
Þetta var virðuleg kveðja stofnun-
arinnar til skjólstæðings síns.
Ég vil þakka Önnu skuggalausa
viðkynningu og aldrei hallaði hún
til mín orði, enda þótt ég væri
stundum brokkgengur sem tengda-
sonur.
Blessuð sé minning hennar, Hen-
riks og litla drengsins, sem hvílir
á milli þeirra.
Sveinn Torfi Sveinsson.
Á morgun verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni Anna Sigríður Árna-
dóttir Wagle, en hún lést á dvalar-
heimilinu í Hafnarfirði í hárri elli,
vantaði sex mánuði í hundrað ára
afmælisdaginn.
Anna Sigríður var stórkostleg
kona, ég; sem þessar línur skrifa,
bjó með Önnu í tvo áratugi. Ég var
unglingur þegar Anna fluttist til
okkar á Hallveigarstíginn og man
ég ekki eftir að þar hafi nokkurn
tíma fallið skuggi á.
Anna var ekkja eftir Hinrik
Wagle. Hann var norskur og
bjuggu þau í Noregi fyrstu ár sín
saman. í lífshlaupi Önnu dró oft
ský fyrir sólu. Hún missti elstu
dóttur sína í flugslysi og fékk sinn
skammt af sorginni. Ég man ekki
eftir að maður sæi neitt á Önnu,
hún var sú sterka. Mér er minnis-
stæður sá dagur þegar Goðafoss
var skotinn niður. Það var ábyggi-
lega einn lengsti dagur í lífi Önnu,
enginn vissi hver hefði komist af.
Svo kom fréttin hræðilega, Ellen
og Billy höfðu farist með skipinu.
Ég mun aldrei gleyma þessum degi,
ég dáðist að Önnu, annað var ekki
hægt.
Þakka ég alit það góða sem
Anna gerði fyrir bróður minn sem
var helsjúkur síðustu árin sem hann
lifði. Það var lærdómsríkt að þekkja
Önnu, hún var einstök móðir,
amma og húsmóðir, heimilið var
henni allt.
Anna var mjög trúuð kona og
kveið ekki heimkomunni, enda
margir sem taka á móti henni.
Góð kona er gengin, en ég veit
í hjarta mínu að henni líður vel.
Við Erlendur sendum dætrum,
tengdasyni og öllum ástvinum ein-
lægar samúðarkveðjur.
Guð blessi Önnu á nýjum leiðum.
Anna Clara Sigurðardóttir.
THE EDINBURGH
MBA
Heilsársnám
Alþjóðlegt námsefni
og þátttakendur
(1992 komu námsmenn frá 26 þjóðlöndum,
þrír komu frá íslandi)
Námið byggist á: Fyrirlestrum, dæma-
verkefnum, ráðgjöf fyrir Sicosk fyrirtæki,
stjórnunarleik, hópvinnuverkefnum og
gestafyrirlesurum.
Gerð er krafa til að minnsta kosti tveggja
ára starfsreynslu (meðalaldur var 29 ár skóla-
árið 1992).
Námsuppbygging:
1. Kjarni, helstu viðskiptagreinar
2. Fjórir valáfangar ásamt stefnumark-
andi stjórnun
3. Lokaritgerð til MBA-gráðu
Nám í einum af merkustu háskólum Evrópu.
Dvalið í einni fallegustu borg Evrópu.
Nánari upplýsingar og ráðleggingar veitir:
Trish Fraser, sími: 9044 31 650 8066
EUMS, 7 Bristo Square
Edinborg EH8 9AL, Skotland, UK
Símbréf: 9044 31 6506501
mm
EDINBURGH
UNIVERSITY
MANAGEMENT
SCHOOL
MEST SELDU
STEIKUR Á ÍSLANDI
Nauta-, lamba- 09 svínagrillsteikur
frá 690 krónum.
Ódýrara en að elda heima!