Morgunblaðið - 11.07.1993, Qupperneq 38
KAPPAKSTUR / FORMULA 1
MORGÚNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTÍR SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993
Fjarstýrðir keppnisbíiar?
Morgunblaðið/Gunnlaugur
ÞAÐ er ekkert grin að aka Formula 1 keppnisbíl, enda hraðinn í keppni oft yfír 300 kílómetrar á klukkustund. Stórstígar tækniframfarir hafa nú orðið þannig að tölvumenn að tjaldabaki fylgjast grannt
með bílnum og geta breytt ýmsum þáttum sem skipta máli, meðan leikur stendur sem hæst. Þeir eru líka í sambandi við bílstjórann í gegnum fjarskiptakerfi.
Stórstígar tækniframfarir
sem valdið hafa deilum
Sumir segja keppendur orðna eins og farþega — bOnum sé nánast fjarstýrt að tjaldabaki
ALAIN Prost og Ayrton Senna, mennirnir sem slást um heims-
meistaratitilinn í Formula 1 kappakstri aka fyrir ríkustu liðin og
er ekki vel til vina eftir að hafa barist á kappakstursbrautum um
allan heim íheimsmeistarakeppninni íkappakstri. Peningaveltan
i tengslum við Formula 1 kappakstur er svo mikil að í íþróttaheim-
inum eru Ólympíuleikarnir aðeins hærri hvað fjármagn varðar.
Af þeim sökum er líka mikil keppni, hamagangurinn og tæknibún-
aðurinn f kringum Formula 1 hefur aldrei verið meiri.
bestu dýrmætir liðunum sínum.
Þessa dagana er mikið rifist um
tæknilegar framfarir, en bílafram-
leiðendur hafa alltaf nýtt mikið
af tækninni úr Formula 1 bílum í
almennri bílaframleiðslu. Honda
var lengi vel leiðandi í Formula 1
kappasktri og nýtti þátttöku í hon-
um til að þróa 16 ventla bílvélar,
en núna eru það Ford og Renault
sem leggja mest uppúr Formula
1. Renault hjá Williams liðinu og
Ford hjá Benetton og McLaren,
en þessi þijú lið standa upp úr í
dag. Ferrari liðið fræga hefur átt
erfitt uppdráttar, en með nýjum
mönnum gæti hagur þess vænkast
á næstu mánuðum.
Tvær sekúndur 1100 km hraða
Keppt er í heimsmeistarakeppn-
inni í dag, að þessu sinni á Silvers-
tone kappakstursbrautinni í Eng-
landi. Þar er hópur Islendinga nú
Heimsmeistarinn í Formula 1
kappakstri, Bretinn Nigel
Mansell hætti í Formula 1 og færði
sig til Bandaríkj-
Gunnlaugur anna, þar sem hann
Rögnvaldsson býr og keppir í Indy
skrifar Car kappakstri.
Hann hefur tvívegis
unnið keppni og klesst keppnisbíl
í tvígang, en hann var alltaf þekkt-
ur fyrir að vinna eða tapa ellegar
„illa“ í Formula 1. Hans er sárt
saknað af Formula 1 aðdáendum,
en launin sem hann fær vestan-
hafs eru 10 miljónir dollara fyrir
keppnistímabilið, eða rúmar 700
milljónir íslenskar; dágóð summa
það. En ástæðan fyrir þessum
launum er sú að hann hefur farið
í gegnum strangan skóla síðustu
ár, nefnilega Formula 1 kappakst-
ur, þar sem keppendur aka 6-800
hestafla keppnisbílum, oft á yfir
300 km hraða á hlykkjóttum
brautum. Síðustu ár hefur tæknin
tekið stórstígum framförum í bíl-
unum, þannig að alþjóðasamband
bílaíþrótta vill nú stemma stigu
við tæknilegum framförum.
Rifist um tæknibúnaðinn
Núna eru bílarnir í Formula 1
keppninni útbúnir tölvustýrðri
fjöðrun og þannig úr garði gerðir
að fjarstýra má bæði fjöðrun og
vélarstillingu úr bílskýlum
keppnisliðanna á kappaksturs-
brautunum. Má breyta stillingu
vélanna á augabragði, en að
tjaldabaki fylgjast tæknimenn lið-
anna með eldsneytiseyðslu, hvað
vélin skilar í hestöflum, öndun
hennar og öðru sem fær hana til
að virka. Allt er stillt í samræmi
við legu brautarinnar, hve margar
beygjurnar eru og brekkurnar,
hvernig andrúmsloftið er og aðrir
þættir sem hafa áhrif á vinnsluna.
Með nokkrum tökkum má breyta
allri virkni vélarinnar og sömu
sögu má segja um fjöðrunarkerfi
toppbílanna. Mörgum þykir sem
ökumennirnir séu orðnir farþegar
frekar en keppendur, en þrátt fyr-
ir slíkar fullyrðingar þá eru þeir
KNATTSPYRNA
Pollamót Þórs haldið ífimmta sinn á Akureyri um síðustu helgi
Víkveiji sigraði í vítakeppni
POLLAMÓT Þórs var haldið á
Akureyri um síðustu helgi. Þar
voru mætt til leiks 47 lið og
hafa þau aldrei verið fleiri. Lið
Víkverja sigraði á mótinu eftir
úrslitaleik og vítaspyrnukeppni
við C-lið Þórs. Til þess að vera
gjaldgengur í Pollamótinu þarf
aðeins að uppfylla eitt skilyrði,
en það er að vera eldri en þrí-
tugur.
Keppnin fór fram á föstudag og
laugardag og var leikið á átta
völlum frá morgni til kvölds, og þeg-
HHBH ar upp var staðið var
Reynir búið að leika um 180
Eiríksson leiki.
Það var greinilegt
að margir höfðu litlu gleymt og sáust
margir skemmtilegir taktar hjá leik-
mönnum en það mátti þó sjá að ein-
hverjir höfðu bætt utan á sig frá
því á árum áður. Aðstandendur
mótsins voru mjög ánægðir með það
og sögðu að það væri virkilega gam-
an að standa að því.
Að þessu sinni var keppt í tveim-
ur „deildum“, fyrir þrítuga og eldri
og síðan lávarðadeild, fyrir 40 ára
og eldri. Til keppni í lávarðadeildinni
mættu sex lið cg var það Fram sem
fór með sigur af hólmi eftir úrslita-
leik við ÍBK. í Pollamótinu sjálfu
léku til úrslita Víkveiji og Þór C,
og höfðu Víkveijar betur eftir víta-
spyrnukeppni. Markahæstu menn
mótsins voru Sverrir Brynjólfsson
Þrótti B og Haraldur Guðmundsson
Aftureldingu með átta mörk, og í
Lávarðadeildinni gerði Heiðar Breið-
fjörð Breiðabliki sjö mörk.
Að venju var haldin mikil veisla
að mótinu loknu, þar sem veitt voru
margháttuð verðlaun og má m.a.
nefna að liðið Garpar frá Akureyri
var kosið persónuleiki Pollamótsins.
Þeir höfðu sett sér það markmið að
skora helmingi fleiri mörk í ár en í
fyrra, en þá gerðu þeir eitt mark.
Kristinn Peterseb Fram var valinn
persónuleiki Lávarðadeildarinnar.
Árni Stefánsson Tindastóli og Þor-
steinn Ólafsson ÍBK voru kosnir
bestu markverðir mótsins, Gunnar
Austfjörð Þór og Haraldur Erlends-
son Breiðabliki voru bestu varnar-
mennirnir, en Karl Þórðarson ÍA og
Atli Jósafatsson Fram voru valdir
bestu sóknarmennirnir.
Wpm w 'Á tJfWfsn
P /ái| mm Ú :$ |D
1*
& [ zw W mmm mtm'- J
ðtWV f 'lj&L %
Jj Hr
Pollarnir
Lið Víkverja og Þórs C sem Iéku til úrslita á Pollamóti Þórs á Akureyri.