Morgunblaðið - 25.07.1993, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1993
J
Elgnr og eyðilegging
í Miðvesturríkjunum
MISSISSIPPI er tignarlegt Gjót, sem teygir sig frá nyrstu ríkjum
Bandaríkjanna suður til Mexíkóflóa. Nafnið kallar fram í hugann skáld-
sögur Marks Twains og fljótabáta, sem silast letilega eftir lygnri ánni.
Þeim sem búa við Mississippi og þverár hennar í Miðvesturríkjum
Bandaríkjanna verður hins vegar hvorki hugsað til Stikilsbeija-Finns
né fljótapramma um þessar mundir. Linnulausar rigningar leiddu til
þess að áin flæddi svo um munaði yfír bakka sína fyrir rúmum mánuði
og virðist ekkert lát ætla að verða á þeim á næstunni. Flóðin hafa
kostað 33 menn lífið og sett líf mörg hundruð þúsund manna á annan
endann. Tjón af völdum þeirra er metið á 10 milljarða dollara (rúm-
lega 700 milljarða ísl. kr.). Stjórnmálamenn hafa streymt á vettvang
og hefur Bill Clinton Bandaríkjaforseti heimsótt Miðvesturríkin í þrí-
gang frá þvi að flóðin hófust. Fjárhagsaðstoð hefur hins vegar ekki
streymt jafn greitt og fíjótið og stjórnmálamennirnir. Á meðan íbúar
á flóðasvæðunum keppast við að hlaða varnargarða úr sandpokum til
að búa sig undir rigningar helgarinnar karpar þingheimur um það
hvernig fjármagna skuli neyðaraðstoð til handa fórnarlömbum stór-
fljótsins.
Fellibylir og og jarðskjálftar skilja
eftir sig rústir. Mississippi sýnir vald
sitt með öðrum hætti. FTjótið flæðir
mórautt inn í hús og mannvirki og
fyllir þau af leðju og aur. Sums stað-
ar rétt gægjast húsþök upp úr vatn-
inu. Laufkrónur trjáa ná rétt að
teygja sig ankannalega upp úr ánni.
Suma daga hefur rigningin mælst
tíu sentimetrar og flóðhæðin náði
hámarki á
þriðjudag þegar
hún fór upp í
14,3 metra við
borgina St. Lou-
is í Missouri.
Þegar vatns-
borð Mississippi fer yfir níu metra á
dýpt telst komið flóð í ána.
Vanreiknaðir vamargarðar?
Þegar verkfræðingar Bandaríkja-
hers, sem hefur umsjón með því
flókna kerfí stíflna og varnargarða,
sem ætlað er að hemja Mississippi-
fljótið, reiknuðu út hvemig fara ætti
að beittu þeir likindareikningi. Þeir
töldu það næga varkámi að miða
mannvirki sín við flóðhæð, sem líkur
væm á að myndaðist á fímm hund-
rað ára fresti. Flóðið mikla (eins og
þegar er farið að kalla þessar nátt-
úrahamfarir) hefur reynst flestum
mannvirkjum ofviða. Nú er svo kom-
ið að á rúmlega þijú
hundrað km kafla
er ekki færa brú að
fínna yfir Miss-
issippi. Að sögn
Rauða krossins
hafa 32 þúsund
heimili orðið fyrir tjóni. 40 þúsund
km2 ræktaðs lands liggja undir vatni.
Gervihnattamyndir sýna nú risastórt
stöðuvatn þar sem árfarvegir hrísluð-
ust áður eins og þræðir eftir landinu.
Flóðanna hefur gætt í átta ríkjum
og auk Mississippi hafa ámar Des
BAKSVID
Karl Blöndal skrifar
Moines, Raccoon og Missouri valdið
miklu tjóni. Athygli fjölmiðla hefur
beinst að ýmsum smábæjum, þar sem
íbúar hafa háð hetjulega baráttu við
vatnselginn, oft án árangurs. Miss-
issippi-fljótið sópaði á fimmtudag
burtu lítilli eyju í Illinois, sem mynd-
aðist í flóði fyrir einni öld. Einhveij-
um tókst að hringja klukkum þorps-
ins á eyjunni til að vara þá við, sem
ekki höfðu þegar forðað sér. Bærinn
Hannibal í Missouri fór mikið til
undir vatn, en íbúum tókst þó að
bjarga fæðingarstað Marks Twains.
Ekki hefur síður verið fjallað um
stærri borgir. Flóðin menguðu drykkj-
Vegskiltin standa fyrir sínu Menn ferðast nú um akvegi í bátum í
bænum Crafton í Illinois.
arvatn íbúa í Des Moines í Iowa og
var vatnslaust í borginni í 12 daga.
Flætt hefur í úthverfum St. Louis,
en 16 metra hár vamargarður utan
um miðborgina heldur enn.
Ástæðan fyrir því að rignt hefur
allt að því þrefalt meira á flóðasvæð-
unum en í venjulegu árferði er hæða-
kerfí, sem hefur legið yfír austur-
strönd Bandaríkjanna undanfamar
sex vikur. Hæðimar gera það að
verkum að heitt og rakt loft streym-
ir norður á bóginn frá Mexíkóflóa
og þar sem það mætir hinum land-
læga vestanvindi, sem blæs þvert
yfír Bandaríkin í um tíu km hæð og
liggur nú yfír ofanverðum Miðvestur-
ríkjunum, myndast þramuveður með
tilheyrandi úrhelli. Á meðan þessi
staða helst verður lítið lát á flóðum.
Aðeins tveir af hverjum tíu
tryggðir
Flóðin í sumar hafa ásamt felli-
bylnum Andrew, sem skall á Flórída
í fyrra, og jarðskjálftanum í Kalifor-
níu í hitteðfyrra vakið spumingar
um það hvers vegna fólk kýs að búa
þar sem líklegt er að móðir náttúra
láti að sér kveða. Venjuleg trygg-
ingafélög bjóða sjaldan upp á flóða-
tryggingu, en það gerir ríkið hins
vegar. Aðeins um tveir af hveijum
tíu, sem orðið hafa fyrir tjóni í flóðun-
um, hafa nýtt sér þessa tryggingu.
Hinir treysta á það að ríkið komi til
bjargar og hafa nokkuð fyrir sér í
því. Ótryggðir eiga rétt á opinberam
bótum, en sá böggull fylgir skamm-
rifí að þeir fá tjón sitt aðeins bætt
einu sinni. Verði þeir aftur fyrir tjóni
af völdum flóðs án þess að hafa
tryggt verða þeir látnir bjarga sér
sjálfír.
Clinton hefur reynt að slá á vonir
fórnarlamba flóðanna um fullar bæt-
ur frá Washington. „Alríkisstjómin
hefur aldrei bætt hvers kyns tjón af
völdum náttúrahamfara að fullu,“
sagði forsetinn fyrir viku. Um leið
lagði hann til að veitt yrði þriggja
milljarða dollara neyðaraðstoð nú
þegar. Gert er ráð fyrir því að þess-
ir þrír milljarðar verði taldir til næstu
ijárlaga. Þegar kom til kasta full-
trúadeildar Bandaríkjaþings að veita
aðstoðina upphófust deilur um það
hvemig ætti að fjármagna hana.
Innilegustu þakkir fyrir blóm, skeyti og gjafir
á 80 ára afmœli minu.
GuÖ blessi ykkur öll.
Jónína Pálsdóttir.
Veitingahús - Akranesi
Vorum að fá í einkasölu fasteignina Bárugötu 15, Akra-
nesi, ásamt öllum rekstri og búnaði. í húsinu hefur um
árabil verið rekið veitingahús og hótel. Rekstur hússins
í dag áhugaverður fyrir duglega aðila.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á
skrifst. 8057.
ÍÍS^FASTEIGNA
“ MIÐSTÖÐIN
B2 20 30
SKIPHOLTI50B -105 REYKJAVÍK
SÍMI 622030 - SÍMBRÉF 622290
Dalshraun - Hafnarfirði
Nýkomið í einkasölu glæsilegt 1000 fm atvinnuhúsnæði
á tveimur hæðum (500 fm hvor hæð). Báðar hæðirnar
eru í leigu. Næg bílastæði. Frábær staðsetning.
Teikningar og nánari upplýsingar á skrifst. 9155.
Snorri Wium
syngur í
Hafnarborg
SNORRI Wium, tenórsöngvari,
heldur tónleika í Hafnarborg á
mánudag, 26. júní, kl. 20.30, við
undirleik Davids Neely. Snorri
Wium stundaði nám við Söng-
skólann í Reykjavík frá 1984 til
1988 týá Magnúsi Jónssyni og
Dóru Reyndal. Frá árinu 1988 til
1992 stundaði hann nám við
Konservatorium Vínarborgar.
í Vín naut hann m.a. handleiðslu
Svanhvítar Egilsdóttur og síðar
Carol Black-Mayo. Þar fór hann
með hlutverk Rudolfo í La Bohémé;
Lionel í Mörtu; og Hans í Seldu
Brúðinni. Þá tók hann þátt í upp-
færslu Jugendstil Theater á Brott-
náminu úr Kvennabúrinu, og söng
hlutverk Pedrillo. Einnig ferðaðist
Snorri með Salzburger Toume um
Þýskaland, Holland og Danmörku
og fór með hlutverk Don Ottavio
úr Don Giovanni. Síðastliðin þijú
sumur hefur Snorri sungið við
Wagner-óperuna í Bayreuth.
Haustið 1992 gerði hann tveggja
ára samning við Óperuhúsið í Co-
burg í Þýskalandi, en mun á næsta
ári auk þess syngja sem gestur við
Óperuna í Lippstadt.
Morgunblaðið/Kristinn
David Neely og Snorri Wium.
Píanóleikari á tónleikunum er
David Neely. Hann er fæddur í
Day-Ton Ohio í Bandaríkjunum og
stundaði nám bæði í píanóleik og
hljómsveitarstjóm í Cincinatti og
við Tónlistarháskólann í Blooming-
ton. Árið 1990 réðst David sem
hljómsveitarstjóri við Óperana í
Coburg, en hann hefur nú verið
ráðinn til Ríkisóperunnar í Stuttg-
art.
Nýtt hljóð-
tímarit
BLINDRAFÉLAGIÐ hefur hafið
útgáfu á nýju hljóðtímariti,
„Ræktun og lífsgildi". Aðalhvata-
maður er Ingibjörg Jóhannsdótt-
ir fyrrverandi skólastjóri frá
Löngumýri í Skagafirði. Þar er
ætlunin að fjalla um ýmislegt
menningarefni og lífssigra fólks.
Hljóðtímaritinu er ætlað að koma
út þrisvar á ári, á sumri, um haust
og um jól. Áskriftargjald er 500.-
fyrir hvert skipti eða 1.500.- á ’ári.
í fyrsta tölublaðinu er aðaluppi-
staðan viðtöl við Jónas Tryggvason
frá Finnstungu í Bólstaðarhlíðar-
hreppi. Jónas var alla tíð mjög
sjóndapur og síðustu árin blindur.
Hann stjórnaði kórum, orti ljóð og
stundaði handiðn á Blönduósi, þar
sem hann bjó meginhluta ævi
sinnar. Einnig eru flutt lög eftir
Jónas og Torfí Jónsson les ljóð eft-
ir hann og fleiri. Þá flytur Guðrún
P. Helgadóttir fyrram skólastjóri
Kvennaskólans í Reykjavík hugleið-
ingu og frumort ljóð. Ingibjörg Jó-
hannsdóttir frá Löngumýri fylgir
hljóðtímaritinu úr hlaði með nokkr-
um orðum. Fleira enfi er í ritinu.
Hljóðtímaritið er á einni 90 mínútna
snældu. Aðstandendur eru Ingi-
björg Jóhannsdóttir frá Löngumýri
og Gísli Helgason. Ábyrgðarmaður
er Halldór S. Rafnar framkvæmda-
stjóri Blindrafélagsins. Hljóðtíma-
ritið fæst hjá Blindrafélaginu og
geta menn gerst áskrifendur með
því að hafa samband við skrifstofu
þess.
(Úr fréttatilkynningu)
Skipholt - til leigu
Til leigu mjög góð jarðhæð um 140 fm. Auk þess geta
fylgt 80 fm í kjallara. Ýmsir notkunarmöguleikar.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni. 9151.
ffc ^FASTEIGNA
"■ MIÐSTÖÐIN
I62 20 30 SKIPHOLTI50B -105 REYKJAVÍK
SÍMI 622030 - SÍMBRÉF 622290
r-Ö Z^FASTEIGNA
~M MIÐSTÖÐIN
62 20 30 SKIPHOLTI50B -105 REYKJAVÍK
SÍMI 622030 - SÍMBRÉF 622290
fólksí öllum
starfsgreinum!