Morgunblaðið - 25.07.1993, Blaðsíða 40
N • Á • JVt * A • N
Landsbanki
íslands
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Arnarfellið fann mannlausa trillu á Faxaflóa
Lík sjómanns
'kom upp með
haukalóðinni
TRILLUSJÓMAÐUR af Akranesi fórst I Faxaflóa aðfararnótt
laugardagsins. Hann var einn á veiðum með haukalóð og ekki
er vitað nákvæmlega hvernig lát hans bar að. Leit hófst að
trillu mannsins um klukkan tvö um nóttina og 40 mínútum
síðar fann Arnarfellið hana. Var trillan þá mannlaus en vélin
í gangi. Er haukalóðin var dregin um borð kom lík mannsins
upp með henni.
Rætt um að
greiðsluað-
lögun verði
tekin upp
NÝLEG lög í Noregi um greiðslu-
^áðlögun hafa verið til umræðu
hér á landi og eru starfsmenn
félagsmálaráðuneytis og dóms-
og kirkjumálaráðuneytis að afla
gagna um greiðsluaðlögun í ná-
grannalöndunum og undirbúa
starf nefndar sem meta á kosti
hennar og galla fyrir íslendinga.
Norsk lög um greiðsluaðlögun fel-
ast í því að hi^ opinbera aðstoðar
vanskilamenn við að semja við lánar-
drottna sína um lækkun skulda.
Skuldurum er gert að lifa spart í
fimm ár og selja eignir á meðan
grynnkað er á skuldunum. Að fimm
árunum liðnum má fella eftirstöðv-
amar niður með dómsúrskurði.
Skiptar skoðanir eru á ágæti
i>_greiðsluaðlögunar meðal lögmanna
og þeirra sem fara með mál fólks í
greiðsluerfiðleikum. Telja margir
kerfið vera þungt í vöfum og að of
fáir njóti aðstoðar.
Sjá bls 10: Skuldarar í gjör-
gæslu?
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni var þyrla köll-
uð út til leitar skömmu eftir klukk-
an tvö en nokkru síðar fann Arnar-
fellið trilluna og var hún þá stödd
um 9 mílur vestur af Þormóðs-
skeri. Þyrlan flaug yfir trilluna og
þá sást að engin var um borð.
Rannsókn í gangi
Að sögn lögreglunnar á Akra-
nesi voru menn frá slysavarnar-
deildinni Hjálp kallaðir út og
sigldu þeir bát sínum að trillunni.
Er þeir drógu færið inn var lík
mannsins fast í því. Að svo búnu
sigldu þeir trillunni til hafnar á
Akranesi.
Lögreglan segir að lát mannsins
sé óútskýrt og rannsókn á því
standi enn yfir. Líklegast er talið
að maðurinn hafi flækst í hauka-
lóðinni og dregist útbyrðis. Ekki
er að svo stöddu hægt að greina
frá nafni hins látna.
Morgunblaðið/Bjami
Gróska í
golfinu
Á SÍÐUSTU firam árum
hefur félögum í klúbbum
innan Golfsambands íslands
fjölgað úr rúmlega þijú þús-
und I um sex þúsund manns,
en talsvert fleiri iðka íþrótt-
ina án þess að vera félags-
bundnir. Á sama tíma hefur
golfvöllum fjölgað og víða
er unnið að skipulagningu
eða gerð golfvalla. I haust
ætla tveir íslenskir golf-
menn að reyna að komast í
atvinnumennsku í þessari
vinsælu íþróttagrein.
íslandsmótið í golfi hefst í dag
á golfvelli Keflvíkinga á Hólms-
velli í Leiru og er myndin tekin
þar í vikunni. Kylfingur undirbýr
högg við Bergvíkina, braut sem
bæði vekur ugg og aðdáun með-
al þeirra sem leikið hafa á
Hólmsvellinum. Kylfingar þurfa
að slá yfir sjó og hafa ófáir golf-
boltar endað í Atlantshafinu.
Blaðauki um golf
Átta síðna blaðauki um golf
fylgir Morgunblaðinu í dag og
auk íslandsmótsins er m.a. fjall-
að um golf sem almennings-
íþrótt, tísku í golfí, íslensk heiti
á hugtökum í golfi, verð á golf-
vörum og birt er kort þar sem
golfvellir á íslandi, 42 talsins,
eru sérstaklega merktir.
Heyskapur er víða 2-3
vikum á eftir meðalári
Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson
Listaverk í Vatnsdalshólum
MYNDLISTARKONAN Finna Bima Steinsson byrjaði í fyrrakvöld
að skapa umhverfislistaverk sitt í Vatnsdalshólum. Verkið felst í því
að reka 1.000 hæla með appelsínugulum veifum í hólana óteljandi
og ljósmynda þá. Listakonan nýtur aðstoðar fjölskyldu sinnar við
verkið og var myndin tekin í þokusuddanum í Vatnsdal í fyrrakvöld
þegar Finna Bima var að reka niður hæl í einn hólinn.
HEYSKAPUR er víðast hvar á landinu 2-3 vikum á eftir því sem gerist
í meðalári, nema á Suðurlandi þar sem heyskaparsumarið hefur ver-
ið mjög gott og heygæði mikil. Ástandið er einna verst á norðaust-
an- og austanverðu landinu og á Héraði er sláttur til dæmis allt að
mánuði á eftir meðalári.
í Borgarfirði hefur heyskapur
gengið mjög vel og spretta þar hefur
verið þokkaleg. Margir bændur eru
búnir með fyrri slátt og aðrir eru
langt komnir. Spretta var seinni í
ár en undanfarin ár vegna kuldari
vor, og þeir sem fyrstir hófu heyskap
fengu af þeim sökum minni upp-
skeru. I Dölunum hefur heyskapur
gengið mjög vel síðastliðinn hálfan
mánuð þrátt fyrir að spretta sé mjög
misjöfn og þar hafa nokkrir bændur
lokið fyrri slætti.
Á Vestfjörðum er heyskapur al-
mennt 2-3 vikum seinna á ferðinni
en undanfarin ár. Heyskapur er víð-
ast hvar byrjaður og við bestu að-
stæður er hann langt á veg kominn.
Nokkuð er um kal í týnum á Vest-
fjörðum, t.d. við Ísafjarðardjúp og í
Barðastrandarsýslum, en í V-ísa-
fjarðarsýslu hefur aftur á móti lítið
borið á kali.
Misjafn gangur á Norðurlandi
í Húnavatnssýslum gengur hey-
skapurinn misjafnlega, en í heildina
er þar útlit fyrir minni heyfeng en
undanfarin ár. í Skagafirði hefur
heyskapurinn hins vegar gengið
nokkuð vel með því að verka heyið
í rúllur og vothey, en erfitt hefur
verið að hirða í súgþurrkun og mjög
lítið hefur gengið að fullþurrka hey-
ið. Margir bændur eru komnir vel
áleiðis með heyskapinn, en í útsveit-
um og inn til dala eru menn lítið
byijaðir þar sem sprettan hefur verið
seinna á ferðinni þar. í Eyjafirði er
heyskapur að minnsta kosti hálfum
mánuði á eftir meðalári, en þar er
þó búist við uppskeru í meðallagi.
Nokkrir bændur hafa þegar lokið
fyrri slætti en þeir sem beittu á tún
sín eru að byija slátt um þessar
mundir.
Versta ótíð í manna minnum
í S-Þingeyjarsýslu hefur óþurrka-
tíð verið um langt skeið og alvarlegt
kal er þar víða í túnum. Heyskapur
í sýslunni hefur gengið misjafnlega,
en þar eru sumir bændur komnir
nokkuð áleiðis á meðan aðrir eiga
langt í slátt vegna sprettuleysis, sér-
staklega þeir sem voru með fé á
túnum sínum fram í lok júní. Fáir
bændur hafa náð einhveiju heyi að
marki, en dæmi eru um að hey hafi
hrakist á túnum. Muna bændur í
sýslunni ekki eftir annarri eins ótíð,
en hjá sumum er þó ástandið þannig
að þeir gætu hafið slátt strax og
þurrkur kæmi. í N-Þingeyjarsýslu
er sláttur hvergi byijaður og bíða
menn þar eftir þurrki. Víða er mjög
mikið kal og dæmi um að allt að
80-90% túna séu ónýt á einstaka
bæjum.
Léleg spretta á Héraði
Mikið kal er einnig í túnum víða
á Austurlandi og þar er heyskapur
allt að því mánuði á eftir meðalári
þar sem ástandið er verst. Sláttur
er ennþá óvíða hafinn á Héraði þar
sem spretta hefur verið léleg. í
Fijótsdal er sprettan hins vegar á
við það sem gerist í meðalári og slátt-
ur þar víða hafinn, og sömu sögu
er að segja af fjörðunum en þar
hafa menn verið að bíða eftir góðum
þurrki. Heyskapur gengur hægt í
austanverðri A-Skaftafellssýslu, en í
Öræfunum hefur hann aftur á móti
gengið vel. Spretta hefur verið sæmi-
leg vegna rigninga á Söndunum, en
heyskapur í sýslunni fór almennt
rúmlega viku seinna af stað en í
meðalári.
Heygæði hafa ekki verið meiri í
mörg undanfarin ár á Suðurlandi,
en spretta þar hefur þó verið nokkuð
mismunandi eftir svæðum. Almennt
séð er þetta mjög gott heyskapar-
sumar og allmargir bændur eru þessa
dagana að ljúka fyrri slætti.