Morgunblaðið - 06.08.1993, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.08.1993, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1993 Sambandsleysi og bilun hjá símanum BILUN í símkerfinu í Reylqavík í gær og fyrradag varð þess valdandi að erfitt gat verið að ná í númer sem byijuðu á 4 eða 5. Um var að kenna ásláttarvillu við uppsetningu leiðavals í mið- bæjarstöð, sem olli því að talsónn gat komið þótt ekki væri á tali, og samband því ekki náðst. Bilunin varð þess valdandi að 92 lín- ur af um 300 gátu svikið. Ragnar Benediktsson, deildar- stjóri hjá Póst- og símamála- stofnuninni, sagði eina af fjórum valleiðum símtala milli mið- bæjarstöðvar Reykjavíkur og hliðrænu stöðvanna í Kópavogi og Hafnarfirði hafa verið bilaða í gær og fyrradag. „Eftir að beinu línumar eru allar orðnar uppteknar geta samtöl því hafa lent á þessum línum,“ sagði Ragnar. „Þetta er nokkuð sem við höfum ekki orðið varir við fyrr en nú, þegar okkur var bent á það.“ Engir kvörtuðu Að sögn Ragnars hefur truflun- in að öllum líkindum hijáð flesta þá að einhveiju marki, sem tengd- ir eru miðbæjarstöð, þótt engar kvartanir hefðu borist. „Þetta var ásláttarvilla í uppsetningu á leiðavali," sagði Ragnar. „Þegar menn fengu línu sem voru með þessum galla varð ekki aftur snú- ið og menn fengu talsón.“ Símkerfið skoðað Morgunblaðið/Kristinn RAGNAR Benediktsson, deildarstjóri hjá Póst- og símamálastofn- uninni, fyrir framan tölvu sem beintengd er öllum símstöðvum. Þaðan er unnt að rekja bilanir, ef nægilega glöggar upplýsingar eru til grundvallar. Mývatnssveit Sláttur nýhafinn „ÉG ER búinn að hirða í tvo daga. Það var ekki byijað að slá fyrr en um mánaðamót. Ég hef aðeins náð að heyja af nokkrum hektur- um og þetta lítur heldur illa út,“ segir Björn Yngvason, bóndi á Skútustöðum í Mývatnssveit. Hann segir að menn hafi áhyggjur af slæmu tíðarfari, því spáin sé ekki góð næstu daga og sjálfsagt. væri hann ekki búinn að ná neinu inn ef ekki færi allt í rúllubagga. Hann segist þó ekki vera farinn að ör- vænta. „Árið 1979 vorum við nú að hirða hey eftir 20. október og þá var það búið að liggja undir snjó í einar sex vikur. Þannig að þetta er ekki orðið vonlaust,“ segir Björn. Afgreiðslu staða íslands til tillagna um einhliða aðgerðir gegn Serbum Farið fram á fund í SíK utanríkismálanefnd STJÓRN Tryggingasjóðs við- skiptabankanna tók ákvörðun um að flýta afgreiðslu eins miHj- arðs króna vílqandi láns til Landsbanka íslands á fundi sín- um í gær. Ríkisstjórnin tók ákvörðun um að styrkja eigin- fjárstöðu bankans m.a. með þess- um hætti um miðjan mars. Ríkisstjórnin tók ákvörðun um að leggja bankanum til þijá millj- arða króna til viðbótar víkjandi láni að upphæð 1.250 milljónir króna frá Seðlabanka í desember. Annars vegar var gert ráð fyrir að ríkissjóð- ur legði fram tveggja milljarða króna ijárhagsaðstoð og hins vegar að bankanum yrði veitt allt að eins milljarðs króna lán með ríkisábyrgð úr Tryggingasjóði viðskiptabank- anna. Eftir að ganga frá ýmsu Rætt hefur verið um lánið á þremur fundum stjómar Trygg- ingasjóðsins og sagði Bjöm Frið- fínnsson, stjómarformaður, að á síðasta fundinum, í gær, hefði verið tekin ákvörðun um að flýta af- greiðslu lánsins. Hins vegar sagði hann að enn ætti eftir að ganga frá ýmsum atriðum, t.d. hvernig pen- ingamir yrðu fengnir. „Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi. Eitt er hvort sjóðurinn fer sérstaklega af stað með lántöku eða hvort hann verður í samfloti við ríkissjóð," sagði Bjöm í þessu sambandi og benti á að hægt væri að fá hag- kvæmara lán yrði síðari kosturinn fyrir valinu. Þá sagði hann að ekki hefði verið tekin ákvörðun um láns- kjör. ÓLAFUR Ragnar Grímsson formaður AI- þýðubandalagsins, sem sæti á í utanríkis- málanefnd, hefur farið fram á það að fund- ur verði haldinn í nefndinni sem allra fyrst til að ræða afstöðu fulltrúa íslands á fundi Atlantshafsbandalagsins fyrr í vikunni til tillagna Bandaríkjamanna um einhliða að- gerðir gegn Serbum í Bosníu. Björn Bjarna- son formaður utanríkismálanefndar segir að væntanlega verði fundur í nefndinni nk. þriðjudag og þar yrðu málefni fyrrverandi Júgóslavíu til umræðu. Davíð Oddsson forsætisráðherra skýrði frá því í kvöldfréttum Sjónvarpsins sl. miðvikudags- kvöld að íslendingar hefðu, ásamt Þjóðveijum óg Tyrkjum, stutt tillögur Bandaríkjamanna um einhliða aðgerðir gegn Serbum í Bosníu á fundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel fyrr í vik- unni. Þorsteinn Ingólfsson ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu sagðist ekki geta rætt um fundinn í Bmssel að öðm leyti en því, að vísa til samhljóða lokaályktunar fundarins, en þar var ekki jafnlangt gengið og Bandaríkjamenn hefðu viljað. „Það er af og frá að tengsl séu á milli afstöðu íslendinga á fundi Atlantshafsráðs- ins og þeirra viðræðna, sem era að hefjast í Reykjavík," sagði Þorsteinn, en í dag hittast fulltrúar íslenskra og bandarískra stjórnvalda og ræða um fyrirhugaðan samdrátt í starfsemi vamarstöðvarinnar í Keflavík. Skoðanir fulltrúa íslands Ólafur Ragnar Grímsson sagði að borist hefðu fregnir erlendis frá og að nokkru hefði það verið staðfest í ummælum forsætisráðherra að fulltrúi íslands á fundi NATO hefði stutt loftá- rásir Bandaríkjanna á fyrmm ríki Júgóslavíu án þess að ákvarðanir stofnana Sameinuðu þjóð- anna kæmu fyrst til. „Ef þetta er rétt þá er það í slíkri andstöðu við skoðanir fjölda annarra Evrópuríkja að nauðsynlegt er að fá það á hreint á þeim vettvangi sem þessi mál á að ræða, þ.e. í utanríkismálanefnd, hvað fulltrúi íslands hafi sagt. Hvort hann hafí stutt þessi úreltu viðhorf um einhliða hernarðaraðgerðir eða hvort hann hefur stutt þær raddir sem telja að allar aðgerð- ir eigi byggjast á ákvörðunum Sameinuðu þjóð- anna,“ sagði Ólafur Ragnar. Björn Bjarnason formaður utanríkismála- nefndar sagði að tilefni fundar utanríkismála- nefndar væri málefni ríkja fyrrverandi Júgóslav- íu í ljósi þeirra ákvarðana sem teknar hafa ver- ið á vettvangi Atlantshafsbandalagsins. „Utan- ríkismálanefnd þarf ekki að fjalla um fréttaskýr- ingar í Ríkisútvarpinu. Stuðningur íslendinga við tillögumar á fundi Atlantshafsbandalagsins er ekki málum blandinn. Þarna kom fram til- laga frá Bandaríkjamönnum og hún var sam- þykkt með því fororði að ekki verði gripið til sprengjuaðgerða gegn skotmörkum í Júgóslavíu nema það sé í samráði við Sameinuðu þjóðirn- ar. Það stóðu öll 16 NATO-ríkin að samþykkt- inni. Þannig má segja að afstaða einstakra ríkja sé aukaatriði því aðalatriðið er það að það er verið að taka ákvarðanir á alþjóðlegum vett- vangi um það að reyna að stilla til friðar og það hefur þegar komið í ljós að ákvörðun NATO- ríkjanna hefur leitt til þess að Serbar em nú að draga á brott herafla frá hemaðarlega mikil- vægum stöðum. Þetta er aðalatriðið," sagði Bjöm Bjarnason. Viðræður um starfsemi Keflavíkurstöðvarinnar hefjast í dag Engar tillögnr liggja fyrir Skák Helgi Ass Grétarsson í öðru sæti á HM barna og unglinga 28 íslensk tunga Islensk málstöð kaus þágufall í veðurfréttum 17 Götubörn i Rio Nærri 300 myrt á fyrra helmingi ársins 20 Leiðari Rauðu vegabréfin eru blá 22 VIÐRÆÐUR fulltrúa ríkisstjórna Bandaríkjanna og íslands um breytingar á starfsemi varnarstöðvarinnar í Keflavík hefjast í Reykjavík í dag. Að sögn Þorsteins Ingólfssonar, ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, liggja engar formlegar tillögur um samdrátt í starfsemi stöðvarinnar fyrir fyrsta fundinum. Davíð Oddsson for- sætisráðherra hefur hins vegar látið hafa eftir sér eftir fund með ráðamönnum í Washington, að það liggi ljóst fyrir að samdráttur verði í Keflavík. „Við getum ekki gefíð okkur neitt fyrirfram. Það er ljóst að ein- hver aðlögun í rekstri varnarstöðv- arinnar verður að fara fram á lengri tíma. Við getum ekki spáð í hvaða hugmyndir Bandaríkjamenn era með fyrr en þær em lagðar fyrir okkur, “ sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið. „Engar hug- myndir hafa komið fram ennþá.“ Þorsteinn Ingólfsson verður for- maður íslenzku viðræðunefndarinn- ar. Auk hans em í nefndinni Gunn- ar Pálsson, sendiherra, Róbert Trausti Ámason, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins, Albert Jónsson, deildarstjóri í forsætisráðuneytinu, Amór Siguijónsson frá vamar- málaskrifstofu og Sturla Siguijóns- son frá alþjóðadeild utanríkisráðu- neytisins. Fulltrúar flotasljórnariimar í Norfolk í viðræðunefnd í forsvari fyrir bandarísku sendi- ,•>1 >1 i cjsmw .— r U I CmtttllMailM! * f sHís-i-gvs Þrjár stofnanir *|v omcinasi umsÖ£era 4aar-» L...I? t*™**krd ,ajllAls-Æ n znsæxz&ssö:Hi. Hr ryti^ahrwi|forf»ð 'HSriIiíí r. Daglegt líf ► - Heimsókn til Gísla á Hofí - Skoda Favorit reynsluekið - Cancun í Mexico - heilsusam- legri súkkulaðikaka - - kín- verskir trúlofunarsiðir - nefndina verður Eugene Schmiel, sendifulltrúi og yfirmaður banda- ríska sendiráðsins í Reykjavík um þessar mundir. Einnig verður í nefndinni Edward Dickens, stjórn- málafulltrúi við bandaríska sendi- ráðið. Frá Bandaríkjunum koma Michael J. Byron herfylkishöfðingi, yfírmaður stefnumótunar- og áætl- anadeildar yfirflotastjómar Atl- antshafsbandalagsins í Norfolk í Virginíu (SACLANT), Lewis P. Sposato undirofursti, í Norður-Atl- antshafsdeild stefnumótunar- og áætlanadeildar SACLANT, og Carl Cramb yfirlautinant, aðstoðarmað- ur Byrons hershöfðingja. Frá varn- arstöðinni í Keflavík koma Michael Haskins aðmíráll, Stephen Barn- eyback höfuðsmaður og Remington lautinant. Nýjar tölur frá upplagseftirliti VI Morgnnblaðið selt í 52.838 eintökum í SAMRÆMI við reglur upplagseftirlits á vegum Verslunarráðs ís- lands hefur trúnaðarmaður þess, Reynir Vignir löggiltur endurskoð- andi, sannreynt selt upplag Morgunblaðsins í mánuðunum mars, apríl og maí í ár. Niðurstaðan er sú að meðaltals- sala blaðsins var 52.838 eintök á dag á þessu þriggja mánaða tíma- bili. Á næstu þremur mánuðum á undan var meðaltalssalan 51.393 eintök á dag. Aukningin er 1.445 eintök eða 2,8%. Meðaltalið á þessu sex mánaða tímabili öllu var því 52.115 eintaka sala á dag. Enn sem komið er nota önnur dagblöð ekki þjónstu eftirlitsins um staðfestingu upplags síns, segir að lokum í frétt frá Verslunarráði ís- lands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.