Morgunblaðið - 06.08.1993, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1993
41
Lúpína - frætaka og sáning
Frá Halldóri Kr. Júlíussyni:
FLESTIR hafa eflaust tekið eftir því
hvernig lúpínan sáir sér og nær á
undraskömmum tíma að breyta ör-
foka landi í grænar breiður sem
standa bláar í blóma frá júní og fram
eftir júlí ár hvert. Mörgum hefur
samt gengið ilia að koma lúpínu til
með sáningu. Hér verður drepið á
nokkur atriði til að leiðbeina þeim
sem vilja sá lúpínu til uppgræðslu
og landverndar.
Lúpínan er skyld baunum og
myndar fræ í baunabelgjum. Þegar
belgirnir fara að fá á sig dökkan lit
eru fræin þroskuð. Þetta gerist oft-
ast { ágúst til september, en er
breytilegt eftir tíðarfari og öðrum
aðstæðum. Þegar baunabelgirnir
tréna og þorna myndast í þeim
spenna sem leysist við að þeir
springa og dreifa fræjunum út frá
plöntunni. Á sólríkum degi að hausti
má oft heyra hvelli þegar gengið er
um lúpínuakur.
Frætaka fer fram þegar bauna-
belgir lúpínunnar fara að taka á sig
dökkan lit. í ár er lúpína á Suður-
landi víða komin með þroskuð fræ
nú í byrjun ágúst. Auðveldast er að
bijóta af plöntunni í heilu lagi efsta
hluta stöngulsins með öllum fræ-
belgjunum á. Heppilegt er að safna
í stóran poka því belgirnir eru léttir
en fyrirferðarmiklir.
Til að ná fræjunum er auðveldast
að láta náttúruna hafa sinn gang
og láta belgina sjálfa losa sig við
fræin með því að þurrka þá. Heppi-
legt er að setja belgina eins og þeir
koma fyrir á stönglinum í netpoka
og hengja þá upp á þurrum stað þar
sem þeir springa. Þá má safna fræj-
unum upp af gólfinu á eftir. Önnur
aðferð er að breiða úr belgjunum til
þurrkunar á dúk eða blöð og safna
síðan fræjunum saman þegar bel-
girnir hafa sprungið. Fræin má síðan
geyma á þurrum stað, jafnvel árum
saman.
Sáning er einföld, en krefst þó
þekkingar. Lúpínan lifir í samlífi við
geril og þrífst illa eða ekki án hans.
Við sáningu verður því að tryggja
að fræin séu smituð af gerlinum.
Einfaldast er að taka mold af rótum
lúpínu og mylja saman við fræin
þegar sáning fer fram. Sáð er með
því að kasta fræjunum á það svæði
sem rækta Éþ og getur farið fram
hvort sem er að hausti eða vori.
Að lokum skal ítrekað að það gild-
ir um lúpínu eins og annað að hana
má nota og misnota. Fáar jurtir eru
jafn duglegar við að stöðva landeyð-
ingu og græða upp örfoka land.
Ástæðan er sú að örfoka melar og
gróðurauðn eru kjörlendi lúpínunn-
ar. Reynsla úr Heiðmörk og víðar,
þar sem lúpínan hefur verið hvað
lengst, bendir til að hún víki af sjálfu
sér eftir að hafa- á 20-30 árum
breytt ógrónu landi í gróið land.
Lúpínan er því hentug til upp-
græðslu og kjörin til að skapa skil-
yrði fyrir aðrar plöntur, t.d. birki.
Lúpínan á hins vegar ekki heima í
þjóðgörðum eða öðrum svæðum þar
sem við erum sátt við sambúð okkar
við landið.
HALLDÓR KR. JÚLÍUSSON,
framkvæmdastjóri Sólheima í
Grímsnesi og áhugamaður um
notkun lúpínu til uppgræðslu og
landvemdar.
Fólksflutningar
Frá Þór Þórissyni:
STALÍN neyddi bændur til að mynda
samyrkjubú og flytja búferlum, Ce-
ausescu flutti fólk að vild úr sveitum
í bæi. Þetta eru í dag talin níðings-
VELVAKANDI
GÆLUDYR
Kettlingur
AF SÉRSTÖKUM ástæðum ósk-
ar stálpuð kolsvört læða, besti
kötturinn í Hafnarfirði, eftir
góðu heimili, helst með börnum.
Upplýsingar í síma 54435 eftir
kl. 18 og um helgina.
Læða í óskilum
GRÁBRÖNDÓTT læða, með
hvíta bringu og lappir og er
u.þ.b. sex mánaða, er enn í óskil-
um í Kambaseli í Breiðholti. Hún
kom þangað fyrir tæpum tveim-
ur vikum og neitar að fara. Eig-
andi má hafa samband við hús-
ráðendur í síma 79288 eða
76206.
Kettlingar
FJÓRIR kassavanir kettlingar
fást gefins. Einn högni og þrjár
læður. Upplýsingar í síma
13193.
Patti er týndur
PATTI, eins árs geldur högni,
hvarf frá Sléttuvegi 3 aðfaranótt
sl. föstudags. Hann er svartur
með hvíta flekki á bringu og
kvið. Þegar hann hvarf var hann
með bláa og rauða ól með bjöllu
og tunnu og einnig í bláu og
gráu beisli. Hann þekkir nafnið
sitt en er ekki mjög hændur að
ókunnugum. Hafi einhver orðið
hans var er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma 29133
fyrir hádegi og 687446 eftir
hádegi. Sóley.
Hústökukettir
KONA hringdi til Velvakanda
og sagði frá því að hún hefði
þurft að þrífa og ganga frá íbúð
fyrir fólk sem var að flytja en
þegar í íbúðina var komið voru
þar fýrir sjö kettir, tvær fullorðn-
ar læður og önnur þeirra búin
að gjóta fimm kettlingum. Nú
auglýsir hún eftir hjartahlýju
fólki til að taka að sér kettina
svo ekki þurfi að farga þeim.
Upplýsingar í síma 652915.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Hálskeðja tapaðist
GULLHÁLSKEÐJA tapaðist á
ferðalagi um Selfoss, Eyrar-
bakka og Stokkseyri um verslun-
armannahelgina. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 54654 eða
51717. Fundarlaun.
Gleraugu töpuðust
TVENN spangargleraugu, sól-
og lesgleraugu, töpuðust á
göngugötu í Elliðaárdalnum sl.
sunnudag. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 677856.
Myndavél fannst á Búðum
FREKAR lítil myndavél fannst á
Búðum sl. laugardagskvöld.
Upplýsingar í síma 53394.
Þýskur garðyrkjumaður
óskar eftir samböndum
BERND Kohlmann, 36 ára gam-
all garðyrkjumaður frá austur-
hluta Þýskalands, er á leið hing-
að til lands og hefur _hug á að
komast í samband við íslendinga
t tengslum við ferðina. Hann
hefur mikinn áhuga á plöntum,
sögu, umhverfisvemd, ásatrú og
tijárækt.
Hægt er að ná sambandi við
Bemd í síma (9049) 360 82 9226
eða skrifa til hans á eftirfarandi
heimilisfang:
Bemd Kohlmann
Hauptstrasse 80
D-37308 Bemterode
Þýskaland.
verk þ.e. að með tilskipun séu menn
nauðbeygðir til flytja búferlum eða
hafa verra af.
ísland 1993. Tæplega 400 störf
af höfuðborgarsvæðinu skulu flutt
út á land. Ef þessir borgarbúar vilja
ekki flytja verður þeim sagt upp og
á tímum vaxandi atvinnuleysis geta
þeir í kjölfarið búist við að missa
eignir sínar.
Höfuðborgarbúar eru að mati
bændahöfðingja afætur á þjóðfélag-
inu, að sjálfsögðu með verulega
skertan kosningarétt vegna búsetu
sinnar, sem er álíka skynsamlegt og
ef vægi atkvæða færi eftir skó-
stærð. Og núna á að reka um 400
fjölskyldur eða a.m.k. 1.000 manns
út á land eins og hvern annan sauð-
fénað.
Að Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
flokkur skulu vera að íhuga þessar
aðgerðir er í hæsta máta undarlegt.
Þessir flokkar sækja stærsta hluta
fylgis síns til Reykjavíkur- og Reykj-
aneskjördæmis. Skynsamlegra væri
fyrir þessa flokka að beijast .fyrir
leiðréttingu á atkvæðavægi, en láta
ekki bændahöfðingja teyma sig út í
þessa vitleysu.
ÞÓR ÞÓRISSON,
Neðstaleiti 1,
Reykjavík.
LEIÐRÉTTINGAR
Rangt föðurnafn
Rangt er farið með föðurnafn sókn-
arprestsins í Siglufírði á Akur-
eyrarsíðu Morgunblaðsins á m_ið-
vikudag. Hann heitir Bragi J. Ás-
geirsson og er hann beðinn afsökun-
ar á þessu mishermi.
Leiðrétting
í frétt um hestamannamót
Storms í Dýrafirði var rangt farið
með nafn eiganda og knapa hests-
ins Skolla sem sigraði í 250 m
skeiði, hann heitir Sigurður Ingi
Pálsson, Patreksfirði. Er hann beð-
inn velvirðingar á þessum mistök-
um.
Arkitektúr,
verktækni
og skipulag
í Staksteinum í gær, fimmtudag
5. ágúst, er staldrað við grein eftir
Valdimar Kristinsson, viðskipta- og
landfræðing, ritstjóra Fjármálatíð-
inda. Þess láðist að geta að grein
Valdimars, sem Staksteinar vitna
til, birtist í ritinu Arktitektúr, verk-
tækni og skipulag, 2. hefti 1993.
Velvirðingar er beðist á þessum
mistökum.
imm
Aðaltölur:
2 7 11
Vinningstölur ,------------
miövikudaqinn: 4. ágúst 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
n6a<6 0 64.260.000,-
EJ 5 af 6 LÆ+bónus 3 187.661,-
0 5a16 10 71.821,-
\ 4 af 6 577 1.566,-
ÉH 3 af 6 Cfl+bónus 1.636 246,-
^20) (29) (30)
BÓNUSTÖLUR
HeildarupphæO þessa viku:
66.847.231,-
á ísi.: 2.587-231,-
UPPCVSINGAR, SÍMSVARI91-68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
NUDDSKÓLI RaFMS QEIRDALS
Faglegur bakgrunnur
skólastjóra
k 3ja ára nám í þjóðfélagsfræði við Háskóla íslands, 1979 -
'82. Lauk 48 einingum.
★ 1 ársnám ílífeflissálarfræði, 1982-'83. Útskriftmeðskrírteini.
★ I'/í árs nuddnám í „Boujder School of Massage Therapy",
Boulder, Kólóradó, 1985. Útskrift sem nuddfræðingur. Sérpróf
í nuddkennslu.
★ Kvöld- og helgarnám í sálfræðiráðgjöf við Hakomi stofnunina,
Boulder, Kólóradó. Útskrift af miðhiuta námsins árið 1985 með
skrírteini.
★ Stofnun eigin nuddstofu 1985.
★ Stofnfélagi að Félagi íslenskra nuddara 1985. Kosinn í fræðslu-
nefnd.
★ Nuddkennsla með almennu námskeiðahaldi 1987. Um 100
þátttakendur.
★ Lögg. sjúkranuddari skv. leyfisbréfi nr. 18, 1987.
★ 1árs nám í andlegri heilun, Philadelphiu, Pennsylvaníu, 1987
- '88. Útskrift með skírteini.
★ Innvígður lærisveinn hjá Gurudev, Dr. Yogi Amrit Desai, stofn-
anda Kripalu jóga aðferðarinnar og heilsumiðstöðvar. Maí
1988. Skírteini.
★ Stofnun á eigin nuddmiðstöð 1988. Nudd og nuddnámskeið.
Um 700 þátttakendur.
★ Námskeið í Reiki heilun, 1. stig. Útskift með skírteini, 1989.
★ Eins mánaðar nám í heilsuráðgjöf við Kripalu jóga- og heilsum-
iðstöðina í Massachusetts, 1989. Útskrift með skírteini.
★ Meistarabréf frá Félagi íslenskra nuddara ágúst 1989. Réttur
til að taka nema.
★ Stofnun og rekstur á eingin nuddskóla frá 1989. 124 nemend-
ur hafa hafið nám, 37 hafa útskrifast til fulls sem nuddfræðing-
ar.
★ Stofnfélagi að Félagi islenskra sjúkranuddara 1989.
★ Stofnun á eigin sjúkranuddstofu 1990.
★ Kosinn í stjórn félags íslenskra sjúkranuddara, 1991.
•k Stofnfélagi að Félagi íslenskra nuddfræðinga 1992. Formaður
þess.
Skólastjóri.
riöij&urf
ARTHURMtfSBÝ^P
Hinn heimsþekkti laxveiðimaður, kastkennari og Speykastari
Arthur Oglesby með lax úr Rangá hrj“” “ veiðitúr!
1 Wi Mörkinni 6, v/Suðurlandsbraut, sími: 687090
Kastkénnarinn Arthur Oglesby
heldur fyrirlestur og svarar
fyrirspurnum í verslun okkar
á morgun frá kl. 14-16 og sýnir
nokkurlétt Speyköst
(ef veður leyfir).
í tilefni dagsins verður
sértilboð á öllum tveggja
handa flugustöngum.
Veiðimenn! Missið ekki af
þessu einstaka tækifæri.
P.S. Kaffi á könnunni.
I-