Morgunblaðið - 25.08.1993, Síða 1
56 SIÐUR B/C
190. tbl. 81.árg.
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dagvistarúrræði í Kaupmannahöfn
Foreldniniim borg1-
að fyrir pössunina
NÝBREYTNI í dagvistarmálum í Kaupmannahöfn þar sem foreldrum
er borgað fyrir að sjá um böm sín sjálfir hefur gefist vel. Nú þegar
njóta rúmlega tvö hundmð böm góðs af en gert er ráð fyrir að tvö
hundmð fjölskyldur bætist við í haust vegna aukinna fjárframlaga frá
bænum, að því er fram kemur í Berlingske Tidende í gær.
Fyrirkomulagið er þannig í stuttu
máli sagt að tvær fjölskyldur sem
þekkjast og eiga báðar barn á bið-
lista eftir dagheimilis- eða vöggu-
stofuplássi eru leiddar saman. Eitt
foreldri er svo ráðið til að gæta barn-
Ólgan í Nígeríu
Babangida
lofar afsögn
Lagos. Reuter.
IBRAHIM Babangida, hershöfð-
ingi og einræðisherra í Nígeríu
undanfarin átta ár, hyggst segja
af sér forsetaembætti á morgun,
fimmtudag, að sögn talsmanna
forsetans. Þeir sögðu að fram
færi hersýning honum til heiðurs
og Babangida myndi taka eiða af
nýrri bráðabirgðastjórn sama
dag. Stjórnarandstaðan segir að
um sýndarmennsku sé að ræða.
Babangida ógilti fyrir skömmu
lýðræðislegar kosningar áður en búið
var að telja öll atkvæðin en þá var
ljóst að kaupsýslumaðurinn Moshood
Abiola hafði verið kjörinn forseti.
Stuðningsmenn Abiola krefjast
þess að hann taki þegar við. Þeir
segja enn fremur að bráðabirgða-
stjómin verði skipuð handbendum
Babangida, þar á meðal nokkrum
herforingjum. Þess vegna verði ekki
hætt við mótmæli sem fyrirhuguð
voru í dag og á morgun en fjölmenn-
ir útifundir hafa verið í landinu síð-
ustu vikurnar þar sem krafist hefur
verið lýðræðis.
anna tveggja uns sveitarfélagið getur
útvegað báðum pláss á dagvistar-
stofnun.
Mikill áhúgi hefur verið fyrir þessu
úrræði síðan fyrst var boðið upp á
það árið 1990. Nú njóta 223 böm
góðs af en ekki hefur verið bætt við
síðan í febrúar vegna fjárskorts.
Barnfóstran fær 11.123 danskar
krónur á mánuði (114.560 íslenskar
krónur) í laun frá sveitarfélaginu.
Þriðjungur launanna er undanþeginn
skatti. Hvorir foreldrar um sig verða
að borga 1.495 danskar krónur á
mánuði (15.400 ísl. kr.) til bæjarins
sem samsvarar gjaldi fyrir dagvistar-
pláss.
Nú era 3.149 börn á biðlista eftir
vöggustofu- eða dagheimilisplássi í
Kaupmannahöfn.
Reuter
Fjandskapast
við Saddam
TVEIR íraskir sendiherrar, Hisham
al-Shawi og Hamed al-Jubouri,
fengu pólitískt hæli í Bretlandi í
gærkvöldi og ákváðu að ganga til
Iiðs við írösku stjómarandstöðuna.
Á blaðamannafundi í London í gær
sökuðu þeir stjóm Saddams Hus-
seins um grimmdarverk og sögðu
hana hafa leitt þjóðina í fáheyrða
örbirgð. Þeir sögðu að bein and-
staða við Saddam hefði íj'arað út
heima fyrir skömmu eftir lok Persa-
flóastríðsins, eftir að hann hefði
gengið milli bols og höfuðs á kúrd-
um og shítum sem reyndu að rísa
upp gegn stjórn hans. „Landið er í
rúst og ógnarstjóm situr að völdum.
Frelsi er ekkert og þegnarnir njóta
ekki lágmarksmannréttinda. Frum-
skógarlögmálið er allsráðandi. Allar
stofnanir landsins, pólitískar, fé-
lags- eða menningarlegar, hafa ver-
ið upprættar eða lamaðar. Hið opin-
bera er orðið að einu allsheijar lög-
reglukerfi sem gegnir því hlutverki
einu að vemda valdaklíkuna og
tryggja völd hennar," sagði Shawi,
sem er til vinstri á myndinni. Hann
var sendiherra í Kanada en Jubouri
í Túnis.
Forseti Litháens um brottflutning rússneskra hermanna
Viljum ekki hefja
kalt stríð við Rússa
Vilnius, Moskvu. Reuter.
ALGIRDAS Brazauskas, forseti Litháens, gaf út yfirlýsingu
í gær um að hann væri bjartsýnn á að lausn fyndist í deil-
unni við Rússa um brottflutning rússneskra hermanna frá
landinu. „Við viljum ekki kalt stríð við Rússa,“ sagði forset-
inn. Vítalíj Tsjúrkín, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands,
sagði á blaðamannafundi í Moskvu að deilan um hersveitirn-
ar yrði ekki til þess að skaða samskipti ríkjanna.
Reynt að opna þýska kafbátinn við Danmerkurstrendur í dag
Ólíkar getgátur um farminn
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðs-
dóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
BÝSNA ólíkar getgátur eru á
kreiki um farm þýska kafbáts-
ins sem dreginn var upp af
botni Kattegats í fyrrakvöld
eftir 48 ár á hafsbotni; að þar
sé að finna allt frá kartöflum
til gulls og gersema.
Þar sem báturinn lagði úr höfn
þegar ósigur nasista í seinna
stríðinu var augljós hafa ýmsar
sögusagnir gengið um að átt
hafi að koma fjársjóðum nasista
undan, auk þess sem talað hefur
verið um að blóð Krists frá kross-
förunum ogjarðneskar leifar Evu
Braun og Adolfs Hitlers væri að
finna um borð. Hermt er að ít-
alska sendiráðið í Kaupmanna-
höfn hafi gert kröfu til að fá
afhenta „innsiglaða kistu“ sem
það hefði vitneskju um að væri
um borð. Werner Weins, einn úr
áhöfn bátsins, sagði í viðtali við
danska sjónvarpið að allt sem
Of þungur
EKKI tókst að lyfta þýska kafbátnum úr sjó og opna hann í gær.
hann hafi lesið um farminn sé
hreinasti þvættingur. Báturinn
hefði verið fullhlaðinn með fimm-
tíu manna áhöfn og því ekki get-
að tekið neinn stórfarm.
Þó óljóst sé hver farmurinn er
í raun og veru, eru 16 tundur-
skeyti og aðrar sprengjur í hon-
um sem gera verður óvirkar áður
en lengra er haldið.
Stjórnvöld í Rússlandi tilkynntu
á sunnudag, að þau hefðu hætt við-
ræðum um brottflutning rússneska
herliðsins frá Litháen og vöraðu
jafnframt litháísku stjórnina við
hörðum viðbrögðum yrðu hermenn-
irnir fyrir einhverri áreitni. Braz-
auskas, forseti Litháens, hætti strax
við fyrirhugaða heimsókn til
Moskvu og viðræður við Borís Jelts-
ín, forseta Rússlands, þegar rússn-
eska utanríkisráðuneytið gaf út til-
kynningu um viðræðuslitin en
kreppan, sem nú er í samskiptum
ríkjanna, er talin sú alvarlegasta
síðan yfirráðum sovétstjórnarinnar
lauk 1991.
í tilkynningu Rússa sagði, að
brottflutningi hersins yrði haldið
áfram en á þeim tíma, sem Rússum
hentaði. í Litháen eru enn 2.500
rússneskir hermenn af 30.000 en
það, sem virðist vaka fyrir Rússum
núna, er að neyða Litháa til að falla
frá kröfum um bætur fyrir hernám
í 50 ár. í tilkynningunni á sunnudag
sögðu þeir, að þeir hefðu nú einnig
fallið frá hugmyndum um að ræða
slíkar kröfur.
Geimvísindi
A braut
umMars?
Pasadena. Reuter.
BÚIST var við því að
bandarískt könnunarfar
færi á braut um reiki-
stjörnuna Mars í gær-
kvöldi en samband rofnaði
við farið fyrir helgi og var
um tíma óttast að förin
yrði til einskis en þar með
færi milljarður dollara, 71
milljarður króna, í súginn.
Könnunarfarinu, Mars Obs-
erver, var skotið á loft í sept-
ember í fyrra og átti að fara
á braut um Mars klukkan
20.30 að íslenskum tíma í
gærkvöldi eftir 725 milljóna
kílómetra ferðalag.
Síðustu daga hefur árang-
urslaust verið reynt að ná sam-
bandi við geimfarið til þess að
stilla stjómtæki þess svo það
kæmist á braut um Mars. Von-
ast var til að sjálfvirkur tölvu-
búnaður þess kveikti á vara-
búnaði er kæmi farinu sjálf-
krafa á braut með því að hægja
á ferð þess. Gangi það ekki
eftir er hætta á að Observer
fari fram hjá Mars og glatist
í óravíddum geimsins.
Wallenberg slapp
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKA lögreglan hefur handtekið þrjá Rússa og einn Svía sem
grunaðir eru um að hafa ætlað að ræna iðnjöfrinum Peter Wall-
enberg, að sögn lögreglunnar í Stokkhólmi.
Wallenberg er auðugur iðnjöfur
og var sænski sendifulltrúinn Raoul
Wallenberg, sem hjálpaði gyðingum
í Búdapest að komast undan nasist-
um í seinna stríðinu, frændi hans.
Mennirnir fjórir voru handteknir
í fyrrakvöld er þeir voru að snuðra
á landareign Peters Wallenbergs
fyrir utan Stokkhólm. Varð hann
sjálfur var við þá og lét lögreglu
vita. Mennirnir voru vopnaðir hand-
sprengjum og skammbyssum. Að
sögn lögreglunnar hugðust þeir
ræna Wallenberg og krefjast hás
lausnargjalds.