Morgunblaðið - 25.08.1993, Side 26

Morgunblaðið - 25.08.1993, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 Rannsóknir og rann- sóknasjóðir á Islandi eftir Þór Eysteinsson Eins og sumir lesendur Morgun- blaðsins hafa eflaust tekið eftir voru nýverið veittir hinir árlegu styrkir ti! vísindarannsókna úr vísindasjóði Vís- indaráðs íslands, og nöfn styrkþega og verkefna þeirra voru birt hér í ^*blaðinu. Vegna umræðunnar í þjóðfé- laginu um hugsanlegan þátt rann- sókna og þróunar í nýsköpun í at- vinnulífi vekja slíkir hlutir e.t.v. meiri eftirtekt en áður, og óhætt er að segja að aldrei áður hefur staða vís- indarannsókna verið jafn ofarlega á baugi á Islandi og nú. Ástæður eru margar, ekki síst sú að ljóst er að lítil sem engin nýsköpun á varanleg- um grunni hefur orðið í efnahagslífí okkar í langan tíma, þjóðartekjur fara lækkandi ár frá ári, og eygja margir litla von út úr þessum ógöngum nema e.t.v. með rannsókn- um og þróunarstarfsemi. Vandinn er hins vegar sá að ef sanngjarn og heiðarlegur samanburður er gerður - 4 frammistöðu Islendinga á sviði rannsókna og þróunar við aðrar vest- rænar þjóðir, blasir við að árangur okkar er þar enn sem komið er afar rýr. Þar erum við því miður enn aftar- lega á merinni. Eðlileg viðbrögð við því væru m.a. að skoða þær þjóðir sem fremstar eru á þessu sviði sér- staklega, og athuga hvað það er sem þær gera öðruvísi en við að þessu leyti. Það er sjálfsagt og eðlilegt að stjórnvöld hér eins og annars staðar reyni að stuðla að vísindarannsókn- ?um og þróunarstarfsemi í Iandinu eftir bestu getu, t.d. með starfrækslu rannsóknasjóða fyrir almannafé á borð við Vísindasjóð, Rannsóknaráð ríkisins og fleira af því tagi. Til við- bótar styðja stjómvöld við rann- sóknasjóði sem starfræktir eru innan Háskóla íslands og sem ætlað er að styrkja rannsóknastarfsemi háskóla- kennara og nemenda sérstaklega. Þessir sjóðir við HÍ eru mikilvægir vegna þess að háskólar eru yfírleitt megindrifkraftur vísindarannsókna hjá þeim þjóðum er mestum árangri ná, og það eru kennaramir og dugm- iklir nemendur við þá skóla sem þá vinnu framkvæma. Mikill meirihluti rannsókna- og þróunarverkefna sem era í gangi hér á landi tengjast Há- skóla Islands á einn eða annan hátt. Oft er bent á að framlag einkafyr- irtækja til þessara hluta er hér mun minna hlutfallslega en hjá nágranna- þjóðum, en í raun er varla hægt að ætlast til þess af stjómendum og hluthöfum þessara félaga að þau leggi mikið meira fé í rannsóknir og þróun en nú er, í ljósi afkomu þeirra nú og þeirra rekstrarskilyrða sem þau búa við, og í ljósi þeirra skatta- laga sem gilda í landinu. Oft er einnig bent á að opinberir íslenskir rannsóknasjóðir hafa ávallt úr litlu fé að spila, og sjaldan hefur verið ágreiningur um það atriði, en oftast hafa stjómvöld ekki séð sér fært að auka framlög til þeirra þrátt fyrir góðan vilja. Margir vilja af þeim sökum gefa þá skýringu eina á rýram árangri að fé skorti til rannsókna og þróunar, en horfa fram hjá öðra er gæti valdið. Aðrir hugsanlegir þættir eru margir, m.a. að vinnulag rannsóknasjóðanna sé óheppilegt og hvetji ekki nægilega vel til árangurs. Það era þó merki þess að viðhorf- in séu að breytast í þeim efnum, a.m.k. innan Háskóla íslands þar sem höfundur þekkir einna best til, og menn vilji nú ræða fleira en fjárskort- inn. Svokallaðri þróunamefnd HÍ, sem m.a. fjallar um þessa hluti, var nýlega breytt á þá lund að margt gott fólk utan skólans hefur tekið sæti í nefndinni. Er henni ætlað að koma með tillögur til úrbóta innan Háskólans til að efla rannsóknir og kennslu við skólann. Eitt af fyrstu verkum nýju nefndarinar var að útbúa skoðanakönnun til að kanna viðhorf okkar kennara til starfsins og málefna skólans, og er það mikil framför. I bréfí er fylgdi könnuninni er þess m.a. getið að slík könnun hafí aldrei verið gerð áður við HÍ, en að slíkar kannanir séu viðtekin venja við bandaríska háskóla. Það er fullkomlega eðlilegt að þró- unamefnd HÍ geri slíkan samanburð við bandaríska háskóla þar sem að bandarískir háskólakennarar sópa til sín meginþorra Nóbelsverðlauna á ári hveiju, að þeir taka út mun fleiri einkaleyfí á ári hveiju en t.d. kolleg- ar í Evrópu, að þeir skrifa hlutfalls- lega fleiri rannsóknaskýrslur og þær eru meira lesnar og hafa meiri áhrif á þróun vísinda en skrif kollega í Evrópu, og þannig má áfram telja. En fyrst nú þykir viðeigandi að bera sig saman við Bandaríkjamenn í þessum efnum er eðlilegt að gerður sé samanburður á bandarískum og íslenskum rannsóknasjóðum án þess að einblína á þann fjárskort sem hijáir þá íslensku. Þess má þó geta fyrst að þrátt fyrir þá miklu flár- muni sem Bandaríkjamenn deila úr slíkum sjóðum er samt ávallt óánægja meðal þarlendra vísinda- manna með „iýr“ íjárframlög. En þegar gerður er samanburður á starfsháttum rannsóknasjóða þar og hér sést að þar ber töluvert í milli. Bæði bandarískir og íslenskir rann- sóknasjóðir hafa vitaskuld reglur um framsetningu umsókna um styrki og hvemig þær era metnar. En reglur Bandaríkjamanna um mat á umsókn- um era mun skýrari og opnari en þær íslensku, og hvetja bæði um- sækjendur og sérfróða umsagnarað- ila er meta umsóknirnar til að vanda vinnu sína. Án efa stuðlar þetta að betri rannsóknaverkefnum, og þá betri vísindum. Bandarískir styrkir era veittir til lengri tíma en hér á landi, og hægt er að sækja um oftar en einu sinni á ári. Kostir þessa era margir og ætti að vera Óþarfí að rekja þá. Nafnleynd gildir í báðum löndum, þ.e. að umsækjandi fær ekki að vita hveijir era umsagnaraðilar, og er vitaskuld sjálfsagður hlutur. Umsagnaraðilar bæði bandarískra Þór Eysteinsson „En reglur Bandaríkja- manna um mat á um- sóknum eru mun skýrari og opnari en þær ís- lensku, og hvelja bæði umsækjendur og sér- fróða umsagnaraðila er meta umsóknirnar til að vanda vinnu sína.“ og íslenskra rannsóknasjóða semja skriflega umsögn og gefa umsóknum einkunn í tölum. En bandarískir umsækjendur um styrki til Vísinda- sjóðs Bandaríkjanna, Heilbrigðis- stofnunarinnar og fleiri slíkra stofn- ana þar í landi fá í hendumar afrit af umsögnum og einkunnum, en hér á landi fá umsækjendur ekkert slíkt í hendur, og ekkert að vita um hvem- ig umsóknir vora metnar. Kostir þessa bandaríska fyrirkomulags era margir. Þar verður umsagnaraðilinn að kynna sér ýtarlega hveija umsókn og það svið sem hún fjallar um, og skrifa vandaðan, rökstuddan texta um niðurstöður sínar. Að öðram kosti getur umsækjandi lagt fram rök- studda kvörtun til sjóðsstjómar. Umsagnaraðilar geta einnig notað Um sóunarstefnu Sorpu eftir Magnús H. Skarphéðinsson Með ólíkindum er hvemig viðhorf endumýtingarfyrirtækið Sorpa hefur til endumýtingar. Það virðist vera heista markmið fyrirtækisins að end- umýta sem minnst og helst ekkert af því sorpi og öðra dóti.sem til fell- ur á höfuðborgarsvæðinu. Ég er ekki viss um að allir geri sér eðli þessa sorpfyrirtækis (í tvennri merkingu) Ijóst. Það er ekki hægt að kalla það endumýtingu að kurla mestallt timb- ur sem þangað berst niður í ofnana hjá Grundartangarverksmiðjunni. Eða hálfgefa Stálbræðslunni allt V málmkyns efni til bræðslu. Það er eins og að endurnýta reiðhjólið mitt eftir minn dag með því að bræða það Erfidrykkjur Glæsileg kíiífi- hlaðborð fallegir salirogmjög g()ð þjónusta. Upplýsingar Ísúna22322 FLUGLEIDIR IÉTEL LOFTLEIDIK „Ekki bara að auðlindirn- ar séu allt of fáar og lang- flestar þeirra mjög tak- markaðar, heldur er ein- nota-stefna okkar mann- anna á alla hluti það sem allt er að drepa í vistkerf- inu í dag.“ niður í stað þess að gefa það einhveij- um öðrum sem þarf hjól en ekki lít- inn stálklump. Það er ekki bara óæskilegt að mati forráðamanna fyrirtækisins að nokkur einstaklingur fái að endur- nýta neitt af því sem þessu furðufyr- irtæki berst af úrkasti menningar- innar hér á höfuðborgarsvæðinu, heldur er að sögn starfsmanna gáma- stöðva þess stranglega bannað að viðlögðum brottrekstri að lofa fólki að hirða nokkum skapaðan hlut úr gámunum, hluti sem aðrir hafa losað sig við ýmsra ástæðna vegna eins og gengur og gerist. Nei, og aftur nei, era öll svör allra hjá þessari eyðingarstofnun. Að eyða öllu, er kjörorð stofnunarinnar að sögn starfsmanna hennar. Einnota stefnu mannkynsins verður að stöðva strax! Það sem flestu öðra fremur er að í rnenningu okkar Vesturlandabúa er sóunarstefna okkar á hráefni og ofnotkun okkar á auðlindum jarðar. Ekki bara að auðlindimar séu allt of fáar og langflestar þeirra mjög takmarkaðar, heldur er einnota- stefna okkar mannanna á alla hluti það sem allt er að drepa í vistkerfinu í dag. Ekki er bara það að raslahaugar og urðunarstaðir þéttbýlisstaða stækka sífellt í það óendanlega, held- ur skapa þessir losunarstaðir mjög svo vanmetna efnatímasprengju sem vinnur hægt og bítandi á allt um- hverfí sitt um ókomnar þúsundir og milljónir ára. Fyrir nú utan hversu mikil móðgun það er við náttúruna og móðir jörð í heild að líta á flestar afurðir hennar sem einnota um ár og aldir alda af okkur manndýranum og „henda“ þeim síðan bara eitt- hvað. Það er gegn þessum gamla sóunarhugsunarhætti sem allar þjóð- ir era að reyna að bregðast við í dag. Sumar betur en aðrar. Nokkrar þjóðanna bregðast þó sýnu langverst og heimskulegast við þessum vanda, eins og sjá má á þessu sorpsamlagsfyrirtæki sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu, nefni- lega hinni sömu umtöluðu Sorpu. Ollu skal hent, hvað sem allri endur- nýtingarstefnu heimsins og Brundt- Iandsskýrslum Iíður. ÖIlu! Timbri, járni, lífrænum úrgangi, húsgögnum, tækjum, reiðhjólum, o.fl., o.fl. skal hent! Og þrátt fyrir það að fjölda- marga einstaklinga og fyrirtæki bráðvanti margt af því sem aðrir hafa losað sig við. Þeir hlutir eru því raunveraleg verðmæti í hagkerfínu þegar þannig stendur á. Hér á ég einkanlega við timburefni ýmiskonar og jámefni líka. Nei, engin tár eða bænir bræða keisarann í Sorpu Nei, engin tár og engar þarfír eru svo stórar að keisarinn í Sorpi bráðni við þær. Lögmál endumýtingarfyrir- tækisins er: Alls engin not eða raun- veralega endumýtingu. Núverandi kjörorð endumýtingarsamlagsins mætti segja í þremur stuttum orðum: Magnús Skarphéðinsson Henda - eyða - einnota. Svona langt erum við nú komin í endumýtingar- hugsunarhættinum hér á íslenska höfuðborgarsvæðinu. Ef forráðamenn þessa furðufyrir- tækis fást ekki til að breyta um stefnu mjög fljótlega ætti umsvifa- laust að slíta samlaginu og taka gamla lagið aftur upp þar sem heið- arlegir endumýtingarsinnar gátu þó hirt af hinum opnu sorphaugum hvers sveitarfélags fyrir sig margt sem hægt var að nota aftur fyrir einhveija. Það fyrirkomulag var margfalt vistvænna en hin fáránlega ekki-nota-aftur-stefna Ögmundar Einarssonar framkvæmdastjóra samlagsfyrirtækisins Sorpu. Sú lausn sem á endanum verður tekin upp (eftir trúlega nokkrar hrímaðar Ögmundarkynslóðir) er að endurnýta yfír 99% af öllu því sem til mun falla úr þéttbýli mannsins og dreifbýli, þar meðatalið hans eig- in lífræna úrgang. Það er það sem koma skal ef menningin á að lifa af meira en nokkra áratugi í viðbót. tækifærið til þess að benda umsækj- endum á hvað mætti betrumbæta, s.s. hvaða tæki og aðferðir þyrfti að nota í verkefninu, hvaða athuganir eða tilraunir þyrfti að gera, o.s.frv. Sem sagt aðstoða óbeint umsækj- anda við að ná betri árangri. Ef umsókn um styrk er hafnað getur umsækjandi þá notfært sér það sem fram kemur í umsögn til að bæta vinnu sína og sækja um aftur, jafn- vel á sama ári, þannig að rannsókna- vinnan þurfí ekki að leggjast niður. Óhjákvæmilega stuðlar þetta að betri umsóknum og verkefnum, og að trausti þess að menn fái sanngjarna málsmeðferð. Allt þetta vantar í starfsemi íslenskra rannsóknasjóða, og sú leynd sem hvílir yfír þessu hér á landi er ekki aðeins óskiljanleg, heldur beinlínis til trafala. Þeir starfshættir sem hér tíðkast hafa það í för með sér að gæði um- sókna eru án efa minni fyrir bragð- ið. Þar sem menn fá enga rökstudda gagnrýni á þessa vinnu né einkunn fyrir hana er hætta á að menn láti nægja að skrifa umsóknir um styrki er duga til þess að fá úthlutað, og senda inn jafnvel sömu lélegu um- sóknina ár eftir ár eilítið breytta, þ.e. með eilítið breyttri fjárhagsáætl- un, sem reyndar virðist skipta mestu máli. í verstu tilfellum batnar verk- efnið sjálft vitaskuld ekkert þar sem efnisleg gagnrýni berst aldrei til þess aðila sem þarf á henni að halda, þ.e. umsækjanda. Afleiðingin er sú að vinna umsagnaraðila bætir ekki á nokkum hátt íslensk rannsóknaverk- efni, og því missum við þama af gullnu tækifæri til að bæta vísinda- starfsemina í landinu. Þeir sem senda inn umsókn, en fá ekki úthlutað, sitja eftir með sárt ennið án þess að hafa hina minnstu hugmynd um hvers vegna umsókn var hafnað, og verða að bíða í heilt ár með hendur í skauti. Margt fleira mætti bera saman í þessum efnum en verður ekki gert nema í lengra máli. Það þyrfti að gera heildarsamanburð að þessu leyti við sambærilega erlenda sjóði ef menn vilja bæta ástand þessara mála hér á landi. Að lokum er rétt að taka fram að undirritaður fékk úthlutað í ár úr Vísindasjócþ, þannig að þessi grein getur ekki skoðast sem nöldur vegna óánægju eða öfundar. Höfuadur er dósent í lifeðlisfræði við Iæknadeild Háskóla íslands. Gámum safnað saman á opnum svæðum fyrir almenning til að hirða úr Og þá verður öllum hæfilega stór- um en fullum raslagámum komið fyrir á opnum svæðum, eða í opnum eða hálfopnum húsum um lengri eða skemmri tíma þar sem öllum verður ekki bara leyft að hirða allt sem til fellur frá fjöldanum (nema t.d. per- sónuleg bréf og fleira slíkt), heldur verður fólk líklega verðlaunað með einu eða öðru móti fyrir að geta los- að menninguna við frákast og komið því aftur í gagn án eyðslu eða brennslu. Vísir að slíku er víða kom- inn í Evrópu. Einna lengst er þessi náttúravin- samlegi hugsunarháttur kominn í Hollandi og Danmörku. En hvað skyldi vera langt í að landsfeðumir hér á landi færu að hugsa í slíkum raunveralega vistvænum hugsunum? Er það nema von að venjuleg^i fólki stórlega sárni þegar það fær svona menningarkjaftshögg í andlitið eins og því er trakterað hjá þessu nýlega en í raun löngu úrelta fyrirtæki Sorpu. Okkur er skömm að Sorpu í dag Nei, okkur höfuðborgarbúum er sannkölluð skömm að hafa komið upp annarri eins fáránleikastofnun og þessari svokallaðri Sorpu, þ.e. þessu samlagsfyrirtæki sem þessi algjörlega veraleikafírrti Ögmundur stjórnar með dyggri aðstoð starfs- manna sinna og annarra ábyrgra aðila sem teljast í stjóm þess. Þessari verðmætatortímingu verð- ur að breyta og það ekki seinna en strax. Það skyldu allir ábyrgir sveit- arstjómarmenn höfuðborgarsvæðis- ins og aðrir Guðfeður þessa óhapp- akróa gera sér sem fyrst ljóst. Þó það kosti einhvem pening í byijun. Höfundur er nemi í Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.