Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 4

Morgunblaðið - 16.09.1993, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1993 Vel viðrar á fjallmenn Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson NÚ standa yfir göngur og réttir víða um land og hafa fjallmenn víðast hvar um landið fengið mjög gott veður. Myndin er tekin við Fosslæk, sem er einn áningastaður á Hrunamannaafrétti, á sunnudaginn. Kerl- ingarfjöll skarta sínu fegursta í fjarska. Sennilega er þetta eini áningastaður leitarmanna á landinu þar sem verið er í tjöldum. Réttað verður í Hrunarétt í dag. VEÐUR IDAG kl. 12.00 HeímiW: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í g«er) VEÐURHORFURIDAG, 16. SEPTEMBER YFIRLIT: Milli Vestfjarða og Graenlands er 1.022 mb hæð, en yfir N-Evr- ópu er víðáttumikil 989 mb lægð á leið norðaustur. SPÁ: Breytiieg eða noröaustlæg átt, víðast gola. Skýjað að mestu og sums staðar dálítil þokusúld, einkum við ströndina og að næturlagi um landið norðan- og austanvert, en suðvestanlands verður fremur bjart veður að deginum. Hiti verður 3 til 9 stig fyrir norðan og austan, en fer víða yfir 10 stig suðvestanlands. VEBURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Haeg austan- átt sunnantil á landinu en hægviðri í öörum landshlutum. Lítils háttar súid við suðaustur- og suðurströndina en víðast skýjað í öðrum lands- hlutum. Einna helst má búast við bjartviöri vestanlands. Hiti 5 til 12 stig. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. o & •ó m Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.. / / / * / * * * * • * 10° Hitastig / / / / / * / / * / * * * * * V V V V Súld J Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka ^ FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30igær) Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiöfænr. Viða er þó unniö að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam- kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabílum, Gæsavatna- leið fær til austur frá Sprengisandi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sima 91-631500 og ígrænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA kl. 12.00 í gær UM HEIM að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hlti 5 11 veður alskýjað þokumóða Björgvin 12 hálfskýjað Helslnkl 8 skýjað Kaupmannahöfn 9 rign.ásfð.kfst. Narssarssuaq 4 þokafgrennd Nuuk 6 rign.ásíð.klst. Ósló 10 skýjað Stokkhólmur 7 rigning Þórshöfn 8 hálfskýjað Algarve 23 léttskýjað Amsterdam 16 skýjað Barceiona 28 léttskýjeð Berlín 17 skýjað Chicago 11 alskýjað Feneyjar 22 léttskýjað Frankfurt 16 skýjað Glasgow 12 skýjað Hamborg 13 rigning London 16 skýjað Los Angeles 18 skýjað Lúxemborg vantar Madrid 19 skýjað Malaga 28 léttskýjað Mallorca 26 hálfskýjað Montreal 25 skýjað NewYork 23 léttskýjað Orlando 23 skýjað Parfs 15 rign.ásfð.kist. Madeira 24 léttakýjað Róm 25 hólfskýjað V(n 21 skýjað Washington 23 mistur Winnipeg 3 8kýjað Nýtt gjaldsvæði hjá bílastæðasjóði Kostar 2.000 krón- ur á mánuði fyrir 220 vinnudaga á ári BORGARRÁÐ hefur samþykkt að taka upp nýtt gjaldsvæði á miða- mælum bílastæðasjóðs, sem er ódýrara en önnur gjaldskyld bíla- stæði fyrir langtímanotendur. Miðast gjaldið við 40 krónur fyrstu tvær klst. og lækkar þá í 15 krónur fyrir hveija klst. eftir það. Kostnaður er að meðaltali 2.000 krónur á mánuði ef stæðið er notað allan gjaldtökutímann í 220 vinnudaga á ári. í tillögxinni er Iagt til að nýja gjaldsvæðið verði á bílastæðunum við Landakotstún, Tryggvagötu 13, Ingólfsgarði og Skúlagötu 4 til 6 auk stæða við Geirsgötu eða á sam- tals 459 stæðum. Gjald í miðamæla er nú 60 krón- ur á klst. á mælum miðsvæðis en 40 krónur á klst. á svæði nær jöðr- um gjaldtökusvæðis. Greiðslukort bílastæðasjóðs Bent er á greiðslukort bílastæða- sjóðs sem miðasjálfsalar geta lesið og seld eru hlaðin með fyrirfram ákveðinni upphæð. Þá hafa miða- mælar þann kost að einungis er greitt fyrir þá daga sem stæðin eru notuð en með fastri leigu stæða er greitt mánaðarlega ákveðið gjald, samanber bílastæðahús. Miðað við skammtímadvöl er veittur góður afsláttur og unnt er að velja á milli mismunandi stæða frá degi til dags. Gert er ráð fyrir að miðamælar verði teknir í notkun á stæði á Miðbakka norðan Geirsgötu þegar Geirsgata verður að fullu opnuð fyrir umferð. Þá er gert ráð fyrir miðamælum til bráðabirgða á lóð SVR-húss við Geirsgötu austan Pósthússtrætis. Við gerð Geirsgötu hverfa úr notkun mörg ókeypis bílastæði og hefur verið stefnt að því að geta boðið þeim sem starfa í miðborginni bílastæði á viðráðanlegu verði, seg- ir í umsögn Stefáns Haraldssonar, framkvæmdastjóra bílastæðasjóðs. Tryggingaráð um starf forstjóra Fimm umsækjend- ur taldir hæfir Meirihluti tryggingaráðs telur fimm umsækjendur um stöðu forsljóra Tryggingastofnunar hæfa til að gegna starfinu. Alls sóttu 13 um stöðuna sem heilbrigðisráðherra veitir. Þeir umsækjendur sem meiri- hluti tryggingaráðs mælti með eru Hilmar Björgvinsson deildarstjóri, Jón Sæmundur Sigutjónsson hag- fræðingur, Karl Steinar Guðnason alþingismaður, Kristján Guðjóns- son deildarstjóri og Pétur H. Blön- dal tryggingastærðfræðingur. Meirihluta ráðsins skipuðu Bene- dikt Jóhannsson, Bolli Héðinsson, Sólveig Pétursdóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Sigríður Lillý Baldursdóttir skil- aði séráliti þar sem hún telur að Jón Sæmundur Sigurjónsson, Kristján Guðjónsson, Ólína Torfa- dóttir hjúkrunarforstjóri og Pétur H. Blöndal uppfylli best þau skil- yrði sem ráðið hafi sett við mat á umsækjendum. Engin skilyrði sett í bréfi tryggingaráðs til heil- brigðisráðherra, þar sem skýrt er frá niðurstöðu ráðsins, kemur fram, að engin sérstök skilyrði um hæfni hafi verið sett við auglýsingu stöðunnar eða starfslýsing á emb- ætti forstjóra. Við umfjöllun sína hafi ráðið lagt áherslu á menntun, starfsferil og reynslu, stjórnun og félagsstörf en fleiri atriði hafi einn- ig komið til athugunar. ♦ ♦ ♦ ASI mótmæl- ir gjaldtöku í heilbrigð- iskerfinu MIÐSTJÓRN Alþýðusambands íslands sendi í gær frá sér álykt- un þar sem mótmælt er harðlega öllum áformum ríkisstjórnarinn- ar um að selja aðgang að heil- brigðiskerfi landsmanna. „Gjaldtaka með þessum hætti bitnar þyngst á þeim sem minnst mega sín. Kostnaði í heilbrigðis- kerfínu verður að mæta með al- mennri skattheimtu," segir í álykt- un miðstjórnar ASÍ. Fyrsta leiguflugið til Evrópu frá Egilsstöðum íslandsflug sækir áhöfn Otto Wathne FYRSTA leiguflugið til Evrópu frá hinum nýja flugvelli á Egilsstöð- um verður í dag er Dornier-vél íslandsflugs heldur til Hull að sækja áhöfnina á Otto Wathne. Að sögn Sigfúsar Sigfússonar markaðs- stjóra íslandsflugs var ákveðið að selja laus sæti á leiðinni út á 10.000 kr. og er vélin fullbókuð. Vélin mun fara í hefðbundið áætl- unarflug frá Reykjavík til Egilsstaða um hádegisbilið í dag en síðan áfram til flugvallar í grennd við Hull. Sext- án manna áhöfn Otto Wathne verður tekin þar um borð og flogið heim. Ahöfnin verður hérlendis í fjóra daga en flýgur svo utan aftur með íslands- flugi og þeir farþegar sem keyptu sæti út koma heim aftur. Að sögn Sigfúsar er áformað að I I I jl I Dornier-vélin lendi um miðnætur- leytið á Egilsstöðum með farþegana frá Hull eftir ljóra dag og hún er svo tóm á leiðinni frá Egilsstöðum til Reykjavíkur. Sigfús segir að ákveðið hafi verið að selja sæti í henni í þetta miðnæturflug til Reykjavíkur á 2.000 krónur ef ein- hver hefur áhuga á að notfæra sér það.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.